Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Samningur um vinnu í fjórum loðnuverksmiðjum undirritaður Hærra kaup utan bræðslutíma - tekju- trygging betri ef illa árar ALÞÝÐUSAMBAND Austurlands og vinnu- veitendur skrifuðu undir nýjan kjarasamning á sunnudag vegna starfsmanna sem vinna í loðnuverksmiðjunum á Eskifirði, Neskaupstað, Höfn og Vopnafirði. Sigurður Ingvarsson, for- maður ASA, segir að stéttarfélögin hafi ekki náð fram þeirri kröfu sinni að starfsmenn haldi óbreyttum launum með minni vinnu. Breyta þurfti vinnufyrirkomulagi í loðnu- bræðslunum vegna tilkomu vinnutímatilskip- unar Evrópusambandsins. Kjarasamningur starfsmanna í loðnubræðslum hefur verið nokk- uð flókinn. Þeir hafa fengið viðbótargreiðslu á kauptaxta þegar ekki eru vaktir. Þeir hafa einn- ig fengið álag vegna gæðamjöls. Greiðsla kom fyrir alla matar- og kaffitíma. Auk þess var ein frívakt í viku greidd. Þetta þýddi að u.þ.b. 30 klukkutímar á sólarhring voru greiddir. Mun betri tekjutrygging Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri VSÍ, sagði að þessar greiðslur hefðu verið felldar niður og færðar inn í kaup- taxtana. „Þetta felur í sér að kaupið er hærra utan bræðslutíma en það var, sem þýðir að menn hafa mun betri tekjutryggingu ef illa árar en áður var.“ Vegna vinnutímatilskipunar ESB var nauð- synlegt að fækka vinnustundum í loðnubræðsl- um. Sigurður Ingvarsson sagði að samningur- inn miðaðist við að starfsmenn ynnu ekki meira en 60 tíma á viku, en fram að þessu hafa þeir unnið allt upp í 72 tíma á viku. „Þetta eitt og sér felur í sér mjög mikla launa- lækkun. Viðfangsefni okkar var að reyna að lágmarka þetta tekjutap. Krafa okkur var að þessi vinnutímatilskipun kæmi ekki niður á Morgunblaðið/Benedikt SIGURÐUR Ingvarsson, formaður ASA, og Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarfram- kvæmdasljóri VSÍ, undirrituðu kjara- samninginn á Eskifirði sl. sunnudag. starfsmönnum, en við náðum henni ekki fram. Ef miðað er við bræðslutímann í verksmiðjun- um skiptist þetta til helminga. Þeir vinna minna en halda helmingi launa fyrir vaktina sem tapast," sagði Sigurður. Álag eftir 70 vaktir Samningurinn geir ráð fyrir að áfram verði unnið á 12 tíma vöktum, en hægt verði að velja milli þess að skipuleggja vinnuna í tveim- ur eða þremur hópum. Framvegis vinnur hver maður fimm vaktir á viku í stað sex áður. Samningurinn gerir ráð fyrir að eftir 70 vaktir verði greiddar 1.660 krónur til viðbótar á hveija 12 tíma vakt. Hannes sagði þetta þýða að álag kæmi þegar búið væri að bræða í verksmiðjunum í rúma þijá mánuði. „Það má tala um að þá sé góðæri í rekstri verk- smiðjanna og þessi greiðsla miðast við að starfsmenn fái hlutdeild í þeim ábata sem svo mikil bræðsla getur gefið.“ Sigurður sagði að þessi viðbótargreiðsla minnkaði það tekjutap sem starfsmenn yrðu fyrir við að missa vaktina. Hækkun á tíma- kaupi nægði þar ekki ein og sér. Hann sagði að eftir þennan samning yrðu grunnlaun starfsmanna í loðnubræðslum u.þ.b. 100 þús- und krónur á mánuði. Samningurinn er sérkjarasamningur og tek- ur mið af þeim launabreytingum sem um semst í aðalkjarasamningi. Kauptaxtar hækka því til samræmis við það sem um semst í samning- um vinnuveitenda og Verkamannasambands- ins. Starfsmenn geta þó ekki farið í verkfall til að knýja á um gerð aðalkjarasamnings ef þessi samningur verður samþykktur. Atkvæðagreiðsla verður um samninginn í lok vikunnar. Atkvæði verða talin sameigin- lega fyrir starfsmenn verksmiðjanna fjögurra. Hannes og Sigurður sögðust ekki telja að þessi samningur gæfi fyrirheit um hvernig almennir kjarasamningar kæmu til með að líta út. í samningnum hefði verið tekist á við tiltekið viðfangsefni, þ.e. óhóflega langa vinnuviku starfsmanna. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, hafði ekki séð samninginn þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. „Eg treysti félögum mínum á Austurlandi til að gera viðunandi samninga og tel að þetta sé liður í að auðvelda okkur heildarlausn." Skoðanakönnun DV og Gallup Vaxandi fylgi Sjálfstæðis- flokksins SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN fengi 45,5% atkvæða ef gengið væri til kosn- inga nú, samkvæmt niðurstöðum skoð- anakönnunar markaðsdeildar Fijálsrar fjölmiðlunar, sem birtar voru í DV í gær. í nýrri skoðanakönnun Gallup, sem gerð var í síðustu viku, fær Sjáifstæðis- flokkurinn 39,9% fylgi. Úrtak í könnun Gallup á fylgi stjórn- málaflokkanna var 1.200 manns og svöruðu 72,6%, tæp 17% voru óákveðin eða neituðu að svara og 8% sögðust ekki mundu kjósa eða skila auðu. Fylgi Sjálfstæðisflokksins samkvæmt könn- uninni er 39,9%, Alþýðuflokksins 20,6%, Framsóknarflokksins 17,7%, Alþýðu- bandalagsins 17,5%, Kvennalistans 3,9% og Þjóðvaka 0,5%. 42,1% óákveðið Af þeim, sem afstöðu tóku í könnun DV, sögðust 45,5% styðja Sjálfstæðis- flokk, 16,9% Framsóknarflokk, 16,6% Alþýðuflokk, 16% Alþýðubandalag, 3,8% Kvennalistann og 1,2% Þjóðvaka. Spurt var um fylgi við ríkisstjórnina og sögðust 47,7% hlynnt henni, 36,8% andvíg og 12,5% óákveðin. Könnun DV var gerð um helgina. Úrtakið var valið úr símaskrá og hringt í 600 manns, sem skipt var jafnt á milli kynja og á milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar. Af þeim, sem spurðir voru, sagðist 42,1% vera óákveðið í af- stöðu sinni til flokkanna og 5,7% neit- uðu að svara. í könnunum með þessari úrtaksstærð eru skekkjumörk nokkuð víð. Fyrir fylgi Sjálfstæðisflokksins eru þau a.m.k. 4% til eða frá, og fyrir Framsóknarflokk, Alþýðuflokk og Álþýðubandalag a.m.k. 3% til eða frá. Fylgi Alþýðubandalags getur þannig verið á bilinu 13-19%. Samband ungra sjálfstæðismanna hefur látið útfæra tillögur um breytt skattkerfi Tveggja þrepa skattkerfi Breytingar á skatthlutfalli, persónuafslætti og skattleysismörkum frá 1988 1fið framreikning ermiðaO viö breytingar á lánskjaravísitölu Miðað við skattalög 1997 Miðað við skattalög 1988 Hækkun / lækkun ( + /-) Hlutfallsl. breyting m.v. lög 1988 Skatthlutfall í staðgreíðslu, % (ekki t. tm. tu 5%hátekjusk.) 44,98% 35,20% +6,78 %-st. +19,26% Persónuafsl. á mán. (kr. á verðl. jan. '97) 24.544 kr. 27.157 kr. -2.613 kr. -9,62% Skattleysismörk á mán. (kr. á veröl. jan. '97) 60.902 kr. 77.515 kr. -16.249 kr. -21,06% Dæmi um skattbyrði meðaltekjufólks, miðað við ofangreindar forsendur Ekki er tekið tillit til barnabóta SKATTBYRÐI BREYTINGAR Samkv. tillögum sus Miðað við Miðað við Munur Hlutfallsl. lögin 1997 lögin 1988 1988/1997 munur, % '• íK^miirrffiivKna 6'“-658llr- 358-7381"- *358'81811'- 305.000 krónur »■ 551752 284'552l»' *257.190 kr. t87% -40.000 krónur III. Einstaklingur með 1,5 millj. kr. árstekjur 309.984 kr. 202.114 kr. +107.870 kr. +53% 30.000 kr Morgunblaðið/Ásdís ÁSLAUG Magnúsdóttir varaformaður Sambands ungra sjálf- stæðismanna, afhendir Davíð Oddssyni forsætisráðherra tillögur um breytingar á reglum um tekjuskatt einstaklinga. SAMBAND ungra sjálfstæðismanna hefur látið útfæra tillögur um breytt skattakerfi einstaklinga, þar sem meðal annars er lagt til að tekið verði upp tveggja þrepa kerfi með 2% skatti á mánaðarlaun undir 125 þús. og 25% skatti á laun þar fyrir ofan. Davíð Oddsson forsætisráð- herra, segir tillögurnar bæði róttæk- ar og athyglisverðar. Davíð sagði að tillögunum yrði komið á framfæri í þeim skattavið- ræðum sem nú fara fram. Hann sagðist þó ekki þora að fullyrða að að hægt yrði að fara í þessar breyt- ingar í þessum áfanga þar sem skammur tími væri til stefnu. Davíð sagði margt í skattatillögun- um vera til þess fallið að hvetja fólk til að afla sér hærri tekna. Guðlaugur Þór Þórðarsson, for- maður SUS, segir að ungt sjálfstæð- isfólk leggi áherslu á að hafnað verði lagfæringum á gamla skattkerfmu. „Við erum búin að vera að lagfæra þetta kerfi síðan 1988 með afleiðing- um sem allir þekkja," sagði hann. „Það sem við viljum sjá er nýtt gegn- sætt einfalt skattakerfi, þar sem menn fá að njóta ávaxta erfiðisins. Við teljum að með þessum tillögum náum við þeim markmiðum." Lagt er til að tekið verði upp tveggja þrepa skattkerfi með 2% skatti upp að 125 þús. króna mánað- artekjum og 25% skatt á tekjur þar fyrir ofan. Gert er ráð fyrir 50 þús. króna barnabótum fyrir hvert barn fram til 16 ára aldurs og 100 þús. fyrir barn einstæðra foreldra. Lagt er til að almennur persónuafsláttur og sjómannaafsláttur verði felldur niður og að álagningu sérstaks há- tekjuskatts verði hætt. í stað vaxta- bótakerfís verði tekinn upp sérstakur skattafsláttur til þeirra, sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð með þeim fyrirvara að þær tillögur sem ungir sjálfstæðismenn hafa lagt fram muni taka miklum breytingum er varóar upphæðir, þar sem ungt fólk yrði i annarri stöðu þegar nýja tekju- skattskerfið samkvæmt tillögunni hefur verið tekið upp. Lægri skattbyrði Að mati Sambands ungra sjálf- stæðismanna munu breytingar á skattalögunum í samræmi við tillög- urnar hafa í för með sér verulega lækkun á skattbyrði þorra launa- fólks. Bent er á að auknar ráðstöfun- artekjur muni skila sér í óbeinum tekjum til ríkissjóðs svo sem með virðisaukaskatti. Þá munu skattsvik minnka og tekjur ríkis og sveitarfé- laga aukast af þeim sökum. Fólki yrði ekki refsað fyrir dugnað eins og í núverandi kerfí og atvinnuþátt- taka myndi aukast og þar með hag- vöxtur. Tekjur hins opinbera myndu hækka, stoðir velferðarkerfisins styrkjast og forsendur skapast til að greiða niður erlendar skuldir. n n s u r Fagleg ráögjöf. LINSAN Góð þjónusta. a a a i s t r æ t i 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.