Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ „Blóðuga sunnudagsins“ minnst í Londonderry Vilja alþjóðlega rann- sókn á atburðinum Londonderry. Reuter. Reuter ÞJÓÐARLEIÐTOGARNIR á blaðamannafundi í Toronto. Fujimori og Hashimoto Yaldiekki beitt Tókýó, Lima. Reuter. RYUTARO Hashimoto, forsætisráð- herra Japans, sagði í gær að forseti Perú, Alberto Fujimori, hefði lofað honum á fundi þeirra í Toronto um helgina að valdi yrði ekki beitt við lausn gíslamálsins í Lima nema skæruliðar myndu vinna gíslunum mein. Taldi Hashimoto það til marks um að fundurinn hefði verið árang- ursríkur, þar sem Fujimori hefði lýst þessu yfir í vitna viðurvist. Leiðtogi Tupac Amaru-skæruliðanna, sem haldið hafa gíslum í bústað japanska sendiherrans frá því um miðjan des- ember, vísaði um helgina á bug frétt- um um að skæruliðarnir kynnu að vera reiðubúnir að slá af kröfum sínum. Á fundi Hashimoto og Fujimori á laugardag náðu þeir ennfremur sam- komulagi um að fulltrúi japanskra stjórnvalda yrði í alþjóðlegri nefnd sem komið hefur verið á laggirnar til að semja um lausn gíslanna en á þriðja tug Japana eru á meðal þeirra. í sjónvarpsviðtali sem birt var á laugardag við Nestor Cerpa, leiðtoga skæruliðanna sem halda 72 gíslum í sendiráðinu í Lima, ítrekaði hann fyrri kröfur um að 400 félagar, sem eru í fangelsi í Perú, yrðu látnir laus- ir. Fujimori hefur látið að því liggja að skæruliðarnir hafi fallið óbeint frá kröfum sínum en talsmaður skæruliðanna sagði í gær að hann mistúlkaði orð þeirra. Sagði talsmað- urinn að skæruliðamir gerðu sér grein fyrir því að þeir myndu ekki ná fram öllum kröfum sínum. ÞUSUNDIR kaþólikka gengu á eft- ir 14 hvítum krossum í London- derry í fyrradag þegar þess var minnst, að 25 ár eru liðin frá „Blóð- uga sunnudeginum", sem sumir líta á sem upphaf óaldarinnar á Norður- írlandi. Þá skutu breskir hermenn á fólk á útifundi og lágu 13 eftir í valnum og sá 14. lést síðar af sárum sínum. í göngunni í gær var hvatt til alþjóðlegrar rannsóknar á at- burðinum. „Ég hvet til alþjóðlegrar rann- sóknar á atburðum þessa dags fyr- ir 25 árum,“ sagði Martin McGuinn- ess, frammámaður í Sinn Fein, póli- tískum armi írska lýðveldishersins, IRA. Var hann meðal göngumanna 1972. „Þennan blóðuga sunnudag komu breskir hermenn til borgar- innar, myrtu 14 manns og voru síð- an heiðraðir af drottningu." Nýjar upplýsingar Gangan í gær var hápunktur minningarathafna, sem staðið hafa í viku, og jafnframt tilrauna af hálfu írskra þjóðernissinna og írsku ríkisstjórnarinnar til að fá bresku stjórnina til að taka mann- fallið í Londonderry til rannsóknar á ný. Gangan fyrir 25 árum var farin til að mótmæla því, að fólk væri haft í gæsluvarðhaldi án dómsúr- skurðar en rannsóknarnefnd á veg- um bresku stjórnarinnar komst að þeirri niðurstöðu, að bresku her- mennirnir hefðu talið sig vera að svara skothríð þegar þeir skutu á óvopnað fólkið. Voru þeir sýknaðir af allri sök. Að undanförnu hafa verið að koma fram nýjar upplýs- ingar í þessu máli og er því meðal annars haldið fram, að breskar leyniskyttur hafi skotið á fólkið of- an af húsum. írska stjórnin hefur einnig verið að safna saman nýjum upplýsingum um þetta mál og ætlar að leggja þær fyrir bresku stjómina. Hún hefur hingað til neitað að taka málið upp nema eitthvað nýtt komi til. Sósíalistar mynda slgórn SÓSÍALISTAFLOKKUR Búlg- ariu, sem situr við stjómvölinn í landinu, samþykkti í gær bráðabirgðaráðherralista nýrr- ar ríkisstjómar, sem eingöngu er skipuð flokksmönnum. Fjár- mála-, landbúnaðar- og orku- málaráðherrar fráfarandi ríkis- stjómar halda stólum sínum samkvæmt listanum, þrátt fyrir látlaus mótmæli stjómarand- stæðinga undanfarnar fjórar vikur, en þeir krefjast nýrra kosninga. Nikolai Dobrov, til- vonandi forsætisráðherra, legg- ur listann fyrir Petar Stoyanov forseta í dag. Viðurkennir húnadráp VIKTOR Tsjemomyrdín, for- sætisráðherra Rússlands, hefur valdið úlfaþyt í fjölmiðlum þar eystra með því að viðurkenna að hafa skotið tvo bjamdýrs- húna og móð- ur þeirra eftir að dýrin höfðu vaknað úr vetrardvala. „Bjamdýrs- veiðar eru ekki bannaðar, þær eru eðlilegur hlutur,“ sagði Tsjemomyrdín í sjónvarpsviðtali á sunnudag. Bjamdýrsveiðar hafa löngum verið stundaðar í Rússlandi sem leið til að sanna karlmennsku. 15 farast í lestarslysi FIMMTÁN manns að minnsta kosti fórust og 10 manns slös- uðust er flutningalest lenti í árekstri við farþegalest nærri ferðamannaborginni Edfu i Suður-Egyptalandi í gær. Far- þegalestin hafði numið staðar á lestarstöð, er flutningalestin lenti af fullum skriðþunga aftan á farþegalestinni. íkveikjuárás- ir I Búdapest KVEIKT var með íkveikju- sprengjum f veitingastað og tónlistarknæpu í Búdapest í gær, fjórum dögum eftir að tvennt beið bana er hand- sprengju var varpað inn á ann- an veitingastað í borginni. Að sögn lögreglu eiga glæpa- mannaflokkar í borginni í stríði. Frá því í september síðastliðn- um hafa fleiri en 12 árásir af þessu tagi átt sér stað í ung- versku höfuðborginni. „Lífsstíls- smugu“ lokað MIKE Horan, heilbrigðisráð- herra í Queensland, einu ríkja Ástralíu, boðaði í gær að hann myndi leggja fram lagafrum- varp, sem bannaði lesbíum að notfæra sér tæknifijóvgun með hjálp sæðisbanka, þrátt fyrir að dómstóll, sem er sérstaklega skipaður til að skera úr um mál er varða mismunun, hafi kveðið upp þann úrskurð nýlega, að samkynhneigðri konu leyfist að fá að nýta sér tæknifrjóvgun. Ráðherrann sagði í útvarpsvið- tali, að hann vildi „loka lífsstíls- smugu þeirri sem lesbíum byð- ist með þessu“. Reuter ÆTTINGJAR þeirra 14 manna, sem létu lífið í skothríð breskra hermanna í Londonderry fyrir 25 árum, báru myndir af þeim í gðngunni í gær. Grænlendingar og Danir semja vegna Thulemálsins Grænlendingar fá flug- braut, en enga afsökun Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. í KJÖLFAR skýrslu dönsku utanríkisstofnunar- innar um Thule-málið eru Grænlendingar gram- ir dönsku stjóminni fyrir að hafa veitt Banda- ríkjamönnum aðstöðu á Grænlandi, án samráðs við Grænlendinga. Raddir voru uppi á Græn- landi um að nota málið til að krefja Dani greiðslna, en eftir fund Lars Emil Johansens formanns grænlensku landsstjórnarinnar og Poul Nymp Rasmussens forsætisráðherra Dana fyrir helgi er Ijóst að Grænlendingar komast ekki Iangt í kröfugerð sinni. Þeir fá reyndar flug- völl í sárabætur eins og þeir höfðu vonast eftir, en ekki með þeim kjörum, sem þeir höfðu farið fram á og danska afsökunarbeiðni fá þeir ekki. Tvískinnungur dönsku stjórnarinnar í kjarnorkumálum Stefna Dana eftir stríð var að kjamorkuvopn ættu ekki að vera á dönsku landi eða í flugvél- um, sem flygju yfir danskt land. Í varnarsamn- ingi Dana og Bandaríkjamanna frá 1951 eru kjamorkuvopn ekki nefnd, en hann má túlka sem samþykki Dana við slíkum vopnum á Græn- landi. Árið 1957 vildu Bandaríkjamenn fá úr því skorið hvort þeir mættu hafa kjamorkuvopn á Grænlandi eða ekki, en þá vísaði H.C. Hansen forsætisráðherra til samningsins frá 1951 og gerði Bandaríkjamönnum ljóst að stjómin vildi ekki vera beðin um frekara samþykki. Þá gat danska stjórnin bæði haldið stefnu sinni og góðu sambandi við Bandaríkjastjórn. Þessi tvískinn- ungur var aðeins á mjög fárra vitorði. Þegar B-52 sprengjuflugvél með kjarnorku- vopn hrapaði 1968 á Grænlandi var enn lögð áhersla á dönsku stefnuna, en skömmu síðar gerði danska stjórnin samning við Bandaríkja- stjóm um bann við kjarnorkuvopnum á Græn- landi og eftir því sem best er vitað hafa slík vopn ekki verið þar síðan. Vegna breyttra að- stæðna og tækni skipti ekki lengur máli fyrir Bandaríkjastjórn að hafa þar kjarnorkuvopn og hún var upptekin af andstöðu almennings við kjarnorkuvopn. Umsvif Bandaríkjamanna hefta þróun f erðamannaþj ónustu Grænlendingar brugðust reiðir við skýrslu utanríkisstofnunarinnar, því hún sýndi glögglega að Grænlendingar voru aldrei með í ráðum og máttu auk þess þola nauðungarflutninga milli byggðarlaga 1953 til að liðka fyrir bandarískum umsvifum. í sárabætur fóru þeir bæði fram á greiðslur og opinbera afsökun. Johansen og Nyrup Rasmussen komust að samkomulagi, sem bindur enda á frekari kröfur Grænlendinga vegna málsins. Danir skuldbinda sig nú til að leggja flugbraut í Qaanaaq, um 100 kílómetra norðan Thulestöðvarinnar, miðstöð Bandaríkjamanna á Grænlandi. Danir leggja þó ekki fram aukafjárveitingu til framkvæmdarinn- ar, heldur verður tekið af fé, sem þegar hafði verið samþykkt til framkvæmda við flugvöllinn í Dundas, sem er á þessu svæði, en þær fram- kvæmdir gufuðu upp vegna andstöðu Bandaríkja- manna við farþegaflug þar. Danir leggja 47 millj- ónir danskra króna til brautarinnar, en Grænlend- ingar verða sjálfir að greiða 30 milljónir. Rekstur brautarinnar er ódýrari en í Dundas, svo þar sparar landssljómin. Andstaða Bandaríkjamanna við almennar samgöngur á þessum slóðum hefur að mati landsstjórnarinnar heft mjög þróun þessa svæðis og torveldað móttöku ferðamanna þar. Grænlendingar höfðu farið fram á rannsókn á umsvifum Bandaríkjamanna á Grænlandi eftir 1968, en því hafnaði Nyrup Rasmussen. Þess í stað vonast Grænlendingar eftir að endurskoðun vamarsamningsins frá 1951 taki af öll tvímæli um umsvif Bandaríkjamanna á Grænlandi fram- vegis og krefjast þess um Ieið að verða aðilar að endurskoðuninni. Grænlendingar hafa einnig farið fram á að Danir biðjist afsökunar á nauð- ungarflutningunum 1953, en Nyrup Rasmussen vildi ekki teygja sig lengra en að segja að hann harmaði þá.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.