Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ 9-1-5 Ferdinand m Smáfólk THI5 I5THE BIBLE VERSE I HAVE TO MEMORIZE FOR 5UMPAV 5CHOOL.. Þetta er Biblíuversið sem ég á að læra utanbókar fyrir sunnu- dagaskólann. „Mundu konu Lots.“ Þetta er Þakka þér fyrir. Hvað með að mjög gott. hjálpa mér að búa til nokkra svindlmiða? BREF TEL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Jóhanna Signrðardóttir Frá Albert Jensen: FYRIR nokkrum vikum lét ég þess getið í DV grein að heiðarleiki einkendi störf Jóhönnu Sigurðardóttur. Af ýmsum uppákomum að skilja sýnist að stjóm- málamenn þurfi að hafa kjark, til að vera heiðarlegir. Af honum hefur hún greinilega mikið umfram kollega sína. Jóhanna hefur vakið athygli fyrir að þora að berjast fyrir því sem hún lofaði kjósend- um sínum. Það er engu líkara en sumir flokks- bræður hafi orðið undrandi á þess- ari baráttugleði hennar. Það hafi aldrei verið í myndinni að efna nema hluta. Þeir sneru því dæminu í þá undarlegu veru að hún væri að svíkja þá. Það er víst ekki and- skotalaust að vera þingmaður. Heiðarleiki Jóhönnu gagnvart þeim sem réðu hana á þing, hefur gert henni erfitt að starfa í Al- þýðuflokknum. Þar á bæ virðast menn uppteknir af sjálfum sér vin- um og kunningjum. Þjóðin er leið á þeim. Ofurblaður gagnast þeim ekki lengur. Jóni ráðherra hefur orðið tíð- rætt um heiðarleik í sambandi Jóhönnu. Hann staglast á áróðurskendum full- yrðingum um óheil- lindi hennar, en ætti að líta sér nær. í langan tíma hefur engum stjórnmála- manni tekist jafnvel og honum að láta hlutina líta öðruvísi út en þeir eru í raun. Fullyrða annað en orðið hefur. Nokkuð leiðinlegt, því hann er efni í góðan póli- tíkus, mælskan ótrú- leg. íslenskt þjóðfélag er gegnsýrt af röngum ákvörðunum, eigin- hagsmunapoti og hrikalegu launa- misrétti. Ég fullyrði að allir flokk- ar eiga þar sök. Aðgerðarleysis- flokkar líka. Ef Jóhanna fer af stað með lista, vona ég að hún velji menn sem vinni þjóðinni gagn og taki óspart á þeirri spillingu sem hér hefur náð að festa rætur. Til þess þarf kjark, en menn skulu muna að ætíð fara saman hagsmunir þjóðar og manns eigin. ALBERT JENSEN, Háaleitisbraut 129, Reykjavík. JÓHANNA er heiðar- legur stjórnmálamað- ur, segir í bréfinu. Mistökin leiðrétt Frá Magnúsi Guðmundssyni: VEGNA skrifa Theodórs Einars- sonar til söngfuglanefndarinnar sem undirbjó útgáfu Nýju söng- bókarinnar nr. 2 vilja hlutaðeig- andi koma eftirfarandi á framfæri: Eftir útgáfu bókarinnar komu þau leiðu mistök í ljós að söng- texti Theodórs var rangfeðraður og heiti textans nefnt „Ég vil dansa“ í stað þess að bera heitið „Á hörpunnar óma“, eins og rétt er. Theodór fékk senda formlega afsökunarbeini á þessum tíma og honum tjáð að mistökin yrðu leið- rétt í næstu prentun. í símtali við Theodór kom þetta einnig fram en Theodór bað aldrei um að mis- tökin yrðu leiðrétt opinberlega en mikil vinna margra einstaklinga fór í að safna textum og leita að höfundum texta og laga, m.a. til að forðast að mistök yrðu gerð. Gagnasafn Morgunblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Það var ekki tilgangurinn að van- virða höfundarrétt eða særa til- finningar skáidsins. Við hörmum þessi mannlegu mistök sem forlag- ið, sem að útgáfunni stendur, ber að sjálfsögðu fulla ábyrgð á. í upphaflegum heimildum fann söngfuglanefndin textann með réttu höfundarnafni en textinn var kallaður „Ég vil dansa“_og höfund- ur lags var ókunnur. í útgáfunni var lagt kapp á að geta bæði höf- undar lags og texta og var því send fyrirspurn til RUV um höf- und lagsins og komu þau svör til baka að höfundar að laginu „Ég vil dansa“ væru Guðbrandur Þ. Guðbrandsson textahöfundur og Geirmundur Valtýsson væri höf- undur lagsins. Þannig liggur í málinu og sjálfsagt er rétt að þess- ir tveir aðilar eru höfundar að lagi sem ber þetta nafn. Við biðjum eigendur Nýju söng- bókarinnar nr. 2 að lagfæra á bls. 65 í söngbókinni að höfundur text- ans er Theodór Einarsson og skrá jafnframt hjá ser að lagið er þýskt. Lagið heitir „Á hörpunnar óma“. Vegna síðbúinna sumarleyfa var ekki unnt að svara skrifum Theodórs fyrr, en við sendum höf- undinum kveðju og þakkir fyrir árveknina. Útgáfan tekur heils- hugar undir þau orð hans að aldr- ei verði gert of mikið af því að gefa út vinsæl íslensk og erlend sönglög. Við munum leggja allt kapp á að sú útgáfa gæti höfund- arréttarins í hvívetna. MAGNÚS GUÐMUNDSSON, útgefandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.