Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR BENEDIKT BJÖRNSSON + Benedikt Björns- son fæddist á Búðum 31. júli 1916. Hann lést í Borg- arspítalanum 23. september sl. For- eldrar hans voru hjónin Sigriður Og- mundsdóttir og Björn Benediktsson er bjuggu á Búðum. Systur Benedikts eru þijár, allar á lífi: Sig- rún húsmóðir á Búð- um, nú í Reykjavík, Jóhanna deildar- hjúkrunarkona í Reykjavík og Birna verslunarmaður, Reykjavík. Benedikt bjó eystra til ársins 1972 og eftir það í Reykjavík. Eiginkona hans er Kristin Magn- úsdóttir, f. 5. nóvember 1921, en foreldrar hennar voru Guðný Guðjónsdóttir og Magnús Eiríks- son, Eskifirði. Benedikt og Krist- ín giftust árið 1945. Synir þeirra eru: Haraldur, skipstjóri í Garðabæ, kona hans er Brynja Halldórsdóttir og eiga þau þijá syni; Björn, sendibílstjóri í Reykjavík, hans kona er Margrét Finnbogadóttir og eiga þau eitt barn, en Margrét átti þijú börn áður. Benedikt verður jarðsung- inn frá Askirkju í dag. „ÞEIR tínast úr röðinni einn og einn,“ kvað skáldið og með aldrinum fjölgar þeim sem kveðja, en áður áttu með manni hugþekka fylgd á lífsins leið. Þegar góð- vinur hverfur af leik- sviði lífsins lifna gaml- ar leifturmyndir frá lið- inni tíð, þær líða hjá og öðlast yljandi mátt í munans innum um leið og ákveðin eftirsjá fangar hugann. Nú hefur sæmdar- maðurinn Benedikt Björnsson kvatt og fá- ein fátækleg kveðjuorð skulu færð við leiðar- lok. Eg kynntist Bene- dikt fyrst er ég kom ungur kennari að Búð- um og átti undurgott athvarf hjá Sigrúnu systur hans, þeirri kærleiks- ríku konu. Öll voru þau kynni hin ágætustu og glöggt mátti greina mæta eðliskosti, góðgirni, staðfestu, samvizkusemi og um leið hógværa en íhugula athugun á hverju einu. Það fór heldur ekki milli mála að þar fór maður sem vandaði vel verk hvert, enda var Benedikt vel greind- ur, aðgætinn og velvirkur ufti leið. Hann fékkst löngum við verzlunar- og skrifstofustörf, honum lét vel að fást við tölur þar sem glögg ná- kvæmni hans nýttist honum vel. Hann var skoðanafastur skýrleiks- maður, enda var hann valinn af sveit- ungum sínum í sveitarstjórn og var oddviti um skeið í Búðahreppi. Hann bar hag byggðarlags síns mjög fyrir bijósti, hann var sanngjarn og öfga- laus í hveiju máli, en fastur fyrir. Benedikt var mikill gæfumaður í einkalífi sínu. Kristín kona hans mik- il ágætis manneskja, dáðrík dugnað- arkona s.s. hún á kyn til. Synir þeirra farsælir drengskaparmenn iðjusemi og atorku. Sá eldri, Haraldur, var í sumardvöl heima hjá okkur í Selja- teigi ungur drengur og hann bar góðu fjölskyldulífi fallegt vitni. Þannig tengdust vináttuböndin betur við Benedikt og mætagott var að mega hitta hann, finna hina eðlis- lægu hlýju, hlýða á góðlátlegar at- hugasemdir og smáglettnar sögur hans. Farsæl var öll saga þessa einiæga Austfirðings og mér er söknuður í huga. Hans góðu eiginkonu, sonum þeirra og aðstandendum hans öðrum sendum við Hanna okkur einlægustu samúðarkveðjur. Vermandi er vestanblærinn eystra og andar blítt inn til dala sem út við sjó. Eðli og allt dagfar Benedikts var í ætt við þennan ylhlýja andblæ. Hans er minnst í mikilli þökk fyrir kynni kær. Blessuð sé minning hans. Helgi Seljan. Elsku afi okkar Benedikt Björns- son frá Fáskrúðsfirði er látinn eftir erfið veikindi. Okkur bræðurna langar til þess að þakka honum alla góðvildina og umhyggjuna sem hann sýndi okkur. Við biðjum guð að styrkja ömmu okkar sem hefur verið honum stoð og stytta í veikindum hans. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem) Halldór, Benedikt og Sigurð- ur Jóhann Haraldssynir. HAFLINA HAFLIÐADOTTIR + Haflína Haf- liðadóttir var fædd á Akranesi 8. febrúar 1937. Hún lést á Landspítalan- um 20. september síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Sigríður Guð- mundsdóttir og Hafliði Páll Stef- ánsson. Haflína var þriðja elst í sínum systkinahópi og eru hin, í aldursröð: Guðrún Björg, Guð- mundur, Guðjón, Viðar (látinn), Unn- ur og Kolbrún. Eftirlifandi sam- býlismaður Haflínu er Einar Guðnason. Synir þeirra þrír eru: Bjarki, f. 14.4. 1972, Guðni, f. 27.11. 1973, og Daði, f. 21.5. 1975. Fyrir átti Haflina Bjarka, sem lést á fyrsta ári, og Frosta, f. 13.8. 1966. Útför Haflínu fór fram frá Fríkirkjunni í Reykja- vík í gær. VINKONA mín Haflína Hafliðadótt- ir, eða Obba eins og hún var kölluð, er látin. Það kom mér ekki á óvart þegar Guðjón bróðir hennar hringdi í mig og tilkynnti mér lát hennar. Ég hafði heimsótt hana á sjúkrahús- ið daginn áður og sá að nú var Obba mín mikið veik en samt svo æðru- laus eins og svo oft áður. Við Obba kynntumst sem unglingar í gegnum kunningsskap systra okkar Gígju og Siggu á þann hátt að ég fékk lánaðan síðan hvítan fermingarkjól af Obbu. Við vorum báðar litlar og grannar og notuðum sömu stærð. Þannig hófst okkar vinátta sem entist alla tíð. Hún ólst upp ásamt stórum systkinahóp við Vesturgötuna á Akranesi. Obba var einstök hetja í sinni lífsbaráttu sem var oftast erfið. Hún var fædd með hjartagalla sem plagaði hana alla ævi. Hún gekkst undir erfiðar að- gerðir vegna þessa en aldrei bugað- ist Obba. Hún fékk mænuveiki þegar hún var barn og lamaðist annar fót- ur hennar. Þess vegna varð hún að nota sérsmíðaða skó og grind sem háði henni mjög mikið. Aldrei heyrði ég Obbu bölsótast yfir því, hún lét þetta lítið stoppa sig í leikjum ungl- ingsáranna, hún klifraði uppá húsþök og var í fótbolta með hinum krökkun- um og lét sem ekkert væri. Já, hún var einstök hún Obba. Að loknu skólanámi fór hún að vinna á símstöðinni hjá Pósti og síma á Akranesi og síðar í Reykjavík. Þar fannst Obbu gaman að vinna innan um hressar og skemmtilegar stelpur. Obba var mjög félagslynd og hafði gaman af að skemmta sér og lét fötlun sína ekki hefta það. I vor sem leið kom hún upp á Skaga til að hitta gömlu skólafélagana þó að hún væri orðin mikið lasin og mikið fannst henni gaman að hitta og sjá hópinn. Svona var með allt hjá Obbu, æðruleysið og lífsgleðin alltaf í fyrir- rúmi og þó að það hvessti á lífsins ólgusjó þá brosti Obba og beið eftir logninu með æðruleysi. Að hafa fengið að kynnast vinkonu minni og sjá hvernig hún tók á móti lífinu er mikil guðsblessun. Obba og sambýlismaður hennar, Einar Guðnason, bjuggu í Reykjavík og voru búin að koma sér upp húsi í Grafarvoginum. Við Bjarni sendum Einari og son- unum og öllum öðrum sem um sárt eiga að binda innilegar samúðar- kveðjur. Fyrir mér er dauðinn ekki endalok og þess vegna segi ég: Elsku vin- kona, vertu sæl að sinni og Guð geymi þig. Aslaug Hjartardóttir. ÞORÐUR KARASON + Þórður Kárason fæddist í Borgarlundi í Helgafells- sveit 26. janúar 1917. Hann lést á heimili sínu 29. ágúst síðast- Iiðinn og var útför hans gerð frá Laugarneskirkju 7. septem- ber. ÞÓRÐUR Kárason og Guðbrandur Þorkelsson voru ráðnir til starfa sem móttökustjórar hjá Menningar- stofnun Bandaríkjanna fyrir um áratug og kynntumst við ágætlega á þeim vettvangi. Þessir tveir menn þekktust vel enda báðir starfað í lögreglunni um árabil og upplifað umbreytingarskeið íslands frá sjón- arhorni lögreglumannsins. Þetta á að vera minningargrein um Þórð heitinn en ég má til að nefna áfram Guðbrand sem enn er í fullu fjöri því þeir mynduðu skemmtilega heild hjá Menningarstofnuninni. Þórður var sískrifandi og að punkta niður hið spaugilega enda af nægu að taka á þeim vinnustað og Guð- brandur er hafsjór sögulegra at- vika, en hann var meðal annarra á Ólympíuleikunum í Berlín 1936 og kann þaðan margar skemmtilegar sögur. Þórður var alltaf að grúska í bókum og skrifaði auk þess nokkr- ar. Ættfræði Dalamanna hafði hann sterk tök á og gaf út rit þar um. Þá komum við að þeirri bók sem mér þótti vænst um að fá að lesa og það var ferðalagabók hans sem fjallar um ferðalög hans og eiginkonunnar um ýmis lönd. Marg- ir kynnu að segja að þetta hafi verið ósköp venjuleg ferðalög á þotuöld, en þurfa öll ferðalög að vera óvenjuleg til þess að þau séu skemmtileg? Er ekki samvera og væntumþykja í góðra vina hópi það sem skiptir máli? Skemmtilegast er að hann skyldi hafa ráðist í að koma sínum draumum á prent ásamt myndum og dáist ég ávallt að slík- um mönnum. Hver á ekki þúsund ljósmyndir sem liggja einhvers stað- ar í kassa. Hverri ljósmynd fylgir saga sem þarf að skrá en fáir láta verða af því. Alltaf þegar ég hitti Þórð heitinn á förnum vegi með derhúfuna góðu tókum við tal saman um ferðalög og fararstjórn, en Þórður hélt ávallt þeirri miklu ósk vakandi um að fá að verða fararstjóri með litla hópa úti í löndum. Andlát hans var til- kynnt í blaði sem ég las í flugvél einmitt á leið til útlanda. Eitt er víst að í hinum stóra hópi svo- nefndra gamaímenna eru mörg vannýtt handtök til framdráttar og þroskunar þjóðarinnar. En hraðinn og stjórnmálavafstur valtar því mið- ur yfir slíkar hugmyndir og eyði- leggur þar með að eilífu mörg tæki- færi sem gefast til þess að koma blessaðri þjóðinni í andlegt jafn- vægi. Það er víst að Þórður minn er nú þegar orðinn leiðsögumaður í himnaríki og er sá vinnustaður ekki af verri endanum. Blessuð sé minning hans og sendi ég öllum ættingjum Þórðar dýpstu samúðar- óskir. Friðrik Ásmundsson Brekkan. SIGRIÐUR GUÐ- MUNDSDÓTTIR + Sigríður Guðmundsdóttir var fædd á Hjalteyri 22. desember 1910, en ólst upp að Stórubrekku. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 11. ágúst síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akur- eyrarkirkju 19. ágúst. ÞAR sem ég ólst upp við Eyja- fjörð, var skammt milli bæja og mikill samgangur. Fólkið þekktist og deildi kjörum hvað með öðru. Það voru því tíðindi ef einhver kom eða fór. Eitt sinn barst sú frétt að Sigga frá Stórubrekku væri komin í Syðribakka með tvo unga syni, skilin við mann sinn Ólaf Eiríksson bílstjóra, en þau höfðu búið á Akur- eyri. Ég man enn er ég sá þau fyrst. Það var sumartíð og bræðurnir stóðu í túninu og héldust í hendur. Þetta voru Kristján Ólafsson síðar útibússtjóri KEA á Dalvík og Haf- liði bróðir hans, iðnaðarmaður og harmonikuleikari, einnig á Dalvík. Síðar kom í sveitina hálfsystir þeirra Kristjana Ólafsdóttir síðar húsfreyja í Litlubrekku, en hún lést á besta aldri frá 10 börnum. Pöður þeirra systkina Ólafi Ei- ríkssyni kynntist ég löngu síðar í Reykjavík. Hann hafði þá lengi verið bílstjóri hjá Einari Sigurðs- syni í Hraðfrystistöðinni, en^ var hættur störfum vegna aldurs. Ólaf- ur var hress og hreinskiptinn skap- maður, samviskusamur gleðimaður með persónuleika sem setti svip á umhverfið. Trúlega hefur hann fyrrum verið á - stundum erfiður sambúðarmaður. Sigríður dvaldi árabil á Syðri- bakka með syni sína, sem þá urðu nágrannar okkar og leikbræður. Hún giftist svo ágætum sveitunga sínum Herði Kristjánssyni verka- manni og bjuggu þá á Akureyri alla búskapartíð sína og eignuðust tvö börn. Ég sendi afkomendum Sigríðar samúðarkveðju norðuryfir fjöll og þakka liðnar samverustundir. Einn- ig gömlum vinnufélaga mínum Herði Kristjánssyni. Jón frá Pálmholti. Lokað verður vegna jarðarfarar KRISTINS ÞOR- KELSSONAR í dag milli kl. 12.00-17.00. Fatapressan Úðafoss, Vitastíg 13, Reykjavík. Inn- og útflytjendur athugið Búast má við röskun á þjónustu flutningamið- stöðvar Eimskips í Sundahöfn eftir hádegi í dag, fimmtudaginn 29. september, vegna jarðarfarar KRISTINS M. ÞORKELSSONAR. Við biðjum við- skiptavini okkar að sýna skilning á töfum sem kunna að verða á þessum tíma. Hf. Eimskipafélag íslands. BRIDS Umsjón Arnór G Ragnarsson íslandsmótið í einmenningi SKRÁNING er komin vel af stað í íslandsmótið í einmenningi, sem haldið verður í Sigtúni 9 helgina 8.-9. okt. nk. Byijað verður að spila kl. 11 báða dagana og spilaðar tvær umferðir á laugardag og ein á sunnudag. Spiluð verða forgefin spil og samanburður við alla riðla. Þar sem húsið tekur hámark 112 spilara í þessa keppni eru væntan- legir þátttakendur beðnir um að láta skrá sig sem fyrst svo þeir missi ekki af þessari vinsæiu keppni. Spil- að er um gullstig. Núverandi ís- landsmeistari er Gissur Ingólfsson. Bridsfélag Breiðfirðinga Á öðru spilakvöldi félagsins var spilaðUr eins kvölds tvímenningur með þátttöku 22 para. Spilaformið var Mitchell, 30 spil. Besta skorinu í NS náðu eftirtalin pör: Kristófer Mapússon - Albert Þorsteinsson 323 Bjöm Ámason - Björn Svavarsson 318 Erlendur Jónsson - Vigfús Pálsson 318 Oskar Karlsson - Guðlaugur Nielsen 297 Hæsta skorið í AV: Lovísa Jóhannsdóttir - Erla Sigvaldadóttir 326 Torfi Axelsson - Geirlaug Magnúsdóttir 322 Ragnheiður Nielsen - Sigtryggur Sigurðsson299 Andrés Ásgeirsson - Ásgeir Sigurðsson 296 Næsta keppi fclagsins er þriggja kvölda haustbarómeter sem hefst fimmtudagskvöldið 29. september klukkan 19.30. Skráning stendur yfir í þá keppni og er skráð í síma Bridgesambandsins, 619360, og hjá keppnisstjóra á vinnutíma (ísak) í síma 632820. Einnig er hægt að skrá sig á spilastað. Mjög góð þátttaka í Butler hjá Bridsfélagi Suðurnesja Alls mættu 23 pör í þriggja kvölda Butler tvímenning sem hófst sl. mánudag og hefir þátttaka aldrei verið betri í þessari keppni í ára- fjöld. MJög mikið er skorað miðað við keppnisform og er staða efstu para þessi eftir 7 umferðir af 23: Gísli Torfason - Jóhannes Sigurðsson 128 Heiðar Agnarsson - Pétur Júliusson 126 Randver Ragnarsson - Kjartan Sævarsson 123 AmórRagnarsson-KarlHermannsson 118 Valur Símonarson - Kristján Kristjánsson 117 Meðalskor er 105 Drög að vetrarstarfínu liggur nú fyrir og hefir m.a. verið ákveðið að spila 20 spila leiki í aðalsveitakeppn- inni í vetur. Þá verður aukamót fjög- urra efstu sveita að lokinni aðal- sveitakeppni en þetta mæltist mjög vel fyrir í fyrra. Spilað er í Hótel Kristínu á mánu- dagskvöldum og hefst keppnin stundvíslega kl. 19.45. Keppnisstjóri er Isleifur Gíslason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.