Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FERJUSLYSIÐ I EYSTRASALTI Margir í koju er feijan fórst Óttast að á níunda hundrað manna hafi farist í einu mannskæðasta sjóslysi sögunnar - Tekist hafði að bjarga á annað hundrað manns Lýsingar nokkurra sem komust lífs af Braust upp á dekk og kastaði sér í sjóinn Moskvu. Reuter. EINUM þeirra, sem komust lífs af eftir feijuslysið á Eystrasalti, var bjargað eftir að hafa verið fimm klukkustundir um borð í björg- unarbáti í stórsjóum og nístingsköldu veðri. Segist hanrí hafa vakn- að við, að komin var mikil slagsíða á skipið og brotist þá upp á dekk og kastað sér í sjóinn. Komst hann síðanum borð í bát. Neeme Kalk sagði í viðtali við eistnesku fréttastofuna ETA, að hann hefði vaknað við, að skipinu hallaði mjög á bakborða og hefði hann þá ekki beðið boðanna en farið strax upp á dekk. Þar hefði hann og aðrir fundið björgunar- vesti og spennt á sig. „Skipið var farið að sökkva og það var ekki hægt að vera þar lengur," sagði Kalk, sem kastaði sér í sjóinn og komst í bát ásamt þremur Svíum. „Það síðasta, sem ég sá til feijunnar, var þegar kjöl- urinn hvarf í djúpið.“ Kalk er nú til aðhlynningar í Hanko í Finnlandi en í viðtali við ffeuíers-fréttastofuna sagði ann- ar, sem af komst, maður á þrítugs- aldri, að allt hefði verið um garð gengið á hálftíma.„F!estir farþeg- anna voru áreiðanlega í klefa sín- um og ég held, að margir hafi ekki verið komnir út úr honum þegar feijan var sokkin.“ Það kom einnig fram hjá sumum, að ýmsir hefðu verið að skemmta sér og kannski nýgengnir til náða þegar slysið varð. Komust ekki út Aðrir sem komust af sögðu að algör ringulreið hefði ríkt á þilfari feijunnar, margir hefðu ekki kom- ist gegnum dyr vegna þess hversu mjög skipið hallaðist og björgunar- bátum hefði hvolft. „Ég skil ekki hvað gerðist, þetta var mjög gott skip,“ sagði Silver Linde, háseti á Estonia. „Það var hins vegar enginn tími til að hugsa.Ég bara hljóp og hljóp.“ Linde og margir þeirra, sem kom- ust af, voru meðhöndlaðir við of- kælingu og vatni í lungum og lík- amshiti eins var kominn niður í 26 gráður þegar hann var dreginn úr sjónum. I sex klukkustundir á bátskili „Ég vaknaði við hávaða og fann að skipinu hallaði. Ég hljóp upp á dekk og fór í björgunarvesti og fór síðan að ýta bátunum í sjó- inn,“ sagði Einar Kukk, einn úr áhöfninni á Estonia. „Það voru margir bátar fyrir í sjónum og einn á hvolfi og á kilin- um lágu þrír menn. Einn þeirra, maður á sextugsaldri, var kvik- nakinn. Við vorum þarna í sex klukkustundir.“ Viljho Itaranta frá Borlangen í Svíþjóð var nýlagstur í koju. „Ég rauk fram úr og kallaði á félaga, að við yrðum að koma okkur buit og þegar upp kom kastaði ég mér í sjóinn frá skutnum. Fyrsta aldan skellti mér utan í skipið en mér tókst að ná taki á gúmmíbát og tveir aðrir héngu utan í mér. Okk- ur var svo hjálpað upp í bátinn," sagði Itaranta. Helsinki. Morgunbladið. ÓTTAST var að rúmlega 800 manns hefðu farist er eistneska bílfeij- an Estonia sökk í fyrrinótt miðja vegu milli Tallin í Eistlandi og Stokk- hólms, en þá var hún stödd um 35 kílómetra suðvestur af finnsku eynni Utö. Stór hluti farþega var í koju þegar slysið varð og átti litla eða enga möguleika á að komast upp á þilfar í björgunarbáta. Skip- veiji sem bjargaðist segir að skuthlerum skipsins hafí ekki verið nóg- samlega lokað er feijan lét úr höfn. Láta mun nærri að 964 manns hafi verið um borð í feijunni er henni hvolfdi en einungis rúmlega eitt hundrað björguðust. í gærkvöldi fundust þó 15 manns á lífi skömmu áður en leit úr lofti var hætt. Skömmu eftir að neyðarkall barst frá Estonia klukkan 23:24 að íslenskum tíma í fyrrakvöld, 01:24 að staðartíma, hófst um- fangsmikil björgunaraðgerð þar sem við sögu komu 26 þyrlur og tugir skipa, þar á meðal farþega- feijur sem sigla milli Svíþjóðar og Finnlands. Estonia var í venjubundinni áætlunarferð milli Tallinns og Stokkhólms er hún sendi út neyð- arkall. Þar sagði að 20-30 gráðu slagsíða væri komin á skipið og það væri myrkvað með öllu sakir rafmagnsleysis. Meira heyrðist ekki frá skipinu en menn sem komust lífs af sögðu að skipið hefði sokkið á örfáuum mínútum eftir að það lagðist á hliðina. Öldu- hæðin var sjö metrar og vindur fimm til sex stig. Drapst á vélunum Sænska fréttastofan TT hafði eftir skipveijanum Henrik Sillaste, að annar skuthlerinn hefði verið illa lokaður og sjór fossað þar inn í skipið. „Ytri hlerinn var lokaður en ekki sá innri. Við sáum að eitt- hvað var að því sjórinn fossaði inn. A skammri stundu stóðum við í hnédjúpu vatni á neðra dekkinu,“ sagði Sillaste. Skömmu síðar lagð- ist skipið á hliðina, að hans sögn. Talsmaður hafnaryfirvalda í Tallinn sagði að svo virtist sem drepist hefði á aðalvélum feijunn- ar af einhverri ókunnri ástæðu. Eftir það hefði skipið verið eins og Ieiksoppur öldunnar og hvass- viðris. 552 Svíar um borð Mikill viðbúnaður var hafður á sjúkrahúsum í Svíþjóð og Finn- landi. Sérstakir neyðarhópar voru myndaðir til þess að sinna að- standendum farþega sem fórust en í þessum hjálparsveitum voru prestar, sálfræðingar og fólk úr heilbrigðisstétt. Um borð í feijunni •voru 552 Svíar og 163 Eistar auk Finna, Norðmanna, Úkraínu- manna, Letta, Litháa, Þjóðveija, Dana, Hollendinga, Breta og Spánveija. Hermt var að Estonia hafi verið í góðu ásigkomulagi en hún var 14 ára gömul, smíðuð í Þýskalandi 1980. Hún var 15.500 tonn og skráð fyrir allt að 1.400 farþega og 460 bíla. í fyrstu var hún í eigu skipafélagsins Silja Line og í siglingum milli Svíþjóðar og Finnlands. Síðar komst hún í eigu Eistneska ríkisins en ásamt því átti sænskt útgerðarfyrirtæki, Nordström og Thulin, hlut í feij- unni. Reuter Lík látinna flutt í land BJÖRGUNARMENN úr finnsku strandgæslunni fluttu mörg líkanna, sem þeir fundu í sjónum og í björgunarbátum, í land á lítilli eyju, Uto, skammt undan finnsku ströndinni. í gærkvöldi hafði tekist að bjarga 141 manni og 15 fund- ust þegar allt að 18 klukku- stundir voru liðnar frá því Estonia fórst. Var þá verið að hætta leit sökum myrkurs. Kafað að Estonia Tallinn. Reuter. RANNSÓKNARNEFND, sem eistnesk yfirvöld hafa skipað til að kanna Estonia-slysið, sagði í gær, að allt of snemmt væri að geta sér til um ástæður slyss- ins. Ekki væri hægt að slá neinu föstu fyrr en kafað hefði verið niður að skipinu. Haft var eftir sænskum sér- fræðingi í öryggisbúnaði skipa í gær, að skuthlerar Estonia hefðu verið í ólagi og líklega ekki lokast alveg. Ande Meist- er, samgönguráðherra Eist- lands, sagði, að það væri eitt af þeim atriðum, sem yrðu könnuð, en gaf þó í skyn, að hann tryði ekki á þá skýringu. Kafað verður niður að skipinu og líklegast er talið, að síðar verði reynt að ná því upp. Það liggur á um 80 metra dýpi. Neyðarkall frá Estonia heyrðist aðeins tvisvar sinnum og er það eitt af verkefnum nefndarinnar að kanna hvers vegna þau þögn- uðu svo fljótt. H i í 'I f I I I [ I I * i I I » 1 i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.