Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 39 MIINININGAR Dauðinn er lækur en lífið er strá Skjálfandi starir það straumfaílið á. Hálf hrætt og hálf fegið hlustar það til Dynur undir bakkanum draumfagurt spil (M. J.) Mig langar með þessum fáu orð- um að kveðja vin minn Kristin M. Þorkelsson eða Kidda eins og hann var kallaður á meðal okkar. Það sem fyrst kemur upp í hug- ann er hversu hjálpsamur og góður vinur hann var. Ef ég bar undir hann hvernig ég ætti að standa að einhveiju verki, þá sagði hann að bragði: Ég kem og lít á þetta. Þar með þurfti ég ekki að hafa frekari áhyggjur af því verki. Greiðvikni var honum í blóð borin. Hann var hrókur alls fagnaðar í vinahópi og alltaf tilbúinn að gleðj- ast með vinum sínum þegar tilefni gáfust. Nú er stórt skarð höggvið í hópinn sem ekki verður fyllt. Ég kveð hann með söknuði og þakka samfylgdina. Ég votta fjölskyldu hans mína dýpstu samúð við þennan mikla missi. _ _ * Garðar Olafsson. Kveðja frá Knattspyrnu- félaginu Frara Kristinn Þorkelsson átti gott og skemmtilegt áhugamál. Hann sótti knattspyrnuleiki af miklu kappi og var í hópi fastagesta á vellinum. Að sjálfsögðu lét hann sig aldrei vanta á völlinn, þegar bláhvítir Framarar hlupu til leiks. Knatt- spyrnufélagið Fram var hans félag og hafði lengi verið. Það er gott að eiga góða að og íþróttafélögin eiga sem betur fer marga slíka. Þeir taka þátt í starf- inu hver með sínum hætti og stuðla með ýmsu móti að velgengni fé- lagsins. Traustir stuðningsmenn gleðjast af hæversku þegar vel gengur, en taka mótlæti með jafn- aðargeði. Knattspyrnufélagið Fram átti slíkan mann í Kristni Þorkelssyni. Við sendum fjölskyldu hans og öllum vandamönnum hug- heilar samúðarkveðjur. Halldór B. Jónsson. Kveðja frá vinkonu Kær vinur minn, hann Kiddi, lést af slysförum við vinnu sína í Sundahöfn fimmtudaginn 22. sept. sl. Maður veltir óhjákvæmilega fyr- ir sér hver sé tilgangurinn þegar ungur maður í blóma lífsins er hrifinn burt svo snögglega. Yfir mann hellist þrúgandi tilfinning og maður spyr aftur og aftur af hveiju þú og af hveiju nú, aðeins 36 ára að aldri. Við Kiddi kynnt- umst fyrir rúmum tuttugu árum og svo til frá þeim tíma unnum við saman hjá Eimskip í Sunda- höfn. Þá eignaðist ég ekki aðeins góð- an vinnufélaga, heldur líka traust- an og góðan vin. Það er vinátta sem ég hef alla tíð metið mikils. Við áttum eftir að eiga margar skemmtilegar stundir saman ásamt góðum vinahópi. Sérstak- lega eru mér minnisstæðar nú ut- anlandsferðir sem skilja eftir ynd- islegar minningar. Það var ekki eingöngu gaman að umgangast Kidda, það var líka þessi tilfinning að finna hversu traustur og góður drengur Kiddi var. Þegar árin liðu minnkaði sam- band sumra okkar innan vinahóps- ins eins og gengur og gerist. En samband mitt við Kidda hélst þó alltaf enda við bæði starfandi hjá Eimskip. Síðustu ár starfaði Kiddi á dekkjaverkstæði Eimskips. Þar var alltaf notalegt að koma, spjalla við Kidda og fá fréttir af gamla vina- hópnum sem hann var í góðu sam- bandi við. Þar var spjallað um heima og geima. Ekki hvað síst um fótbolta og þá auðvitað liðið hans, Fram. Kiddi fylgdist vel með sínum mönnum í Fram og fór mik- ið á völlinn. í því sambandi dettur mér í hug ein ferðin sem farin var til Spánar. Mikið var að gerast í fótboltanum heima og alltaf þurfti Kiddi að hringja reglulega heim til að frétta um gengi Framara, oft þurfti að halda uppá sigra í þeirri ferð. Kiddi var mjög góður starfsmað- ur, hann var alltaf að og leysti öll mál sem upp komu einstaklega vél af hendi. Hann var hjálpsamur og bóngóður og alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd. Það hefur verið höggvið djúpt skarð sem aldrei verður fyllt. Sökn- uðurinn er mikill en minningin um góðan vin lifir. Kiddi var mikill fjölskyldumaður og veit ég að hann reyndist systur sinni, Guðrúnu, og hennar börnum sérstaklega vel þegar á þurfti að halda. Hann var ávallt þessi trausti maður sem stóð eins og klettur með sínum. Ég votta foreldrum hans og systkinum, Guðrúnu og Jóhanni, og þeirra fjölskyldum mína dýpstu samúð. Megi Guð blessa ykkur í þessari miklu sorg. Blessuð sé minnig góðs vinar. Halldóra Bragadóttir. Elsku Kiddi, mér fannst heimur- inn hrynja á mig þegar mér var tilkynnt að þú hefðir látist af slys- förum. í gegnum hugann fóru allar þær stundir sem við áttum saman, þú sem barn, ég sem lítil stolt stelpa að fá að passa þig lítinn, hressan strák. Svo stækkaðir þú og máttir hvergi aumt sjá, þá varst þú kom- inn. Ég man hvað þú varst góður við ömmu þína í Gyðufelli. Ef maður spurði hana: Vantar þig eitthvað? var svarið: Nei hann Kiddi minn kom eða Kiddi minn hringdi. Þú varst alltaf boðinn og búinn og hvað þú varst góður við mömmu þína og pabba. Ef maður kom upp í sumarbústáð til þeirra varst þú þá alltaf að smíða og hjálpa til, alltaf tilbúinn að rétta fram hönd til að laga og bæta og ekki má gleyma hve þú .varst góð- ur við Guðrúnu og dætur hennar. Kiddi var ekki bara bróðir og frændi heldur sannur vinur og fé- lagi og Jóhann átti þar góðan stórabróður sem vin og félaga. Að lokum vil ég biðja algóðan Guð að styrkja foreldra og systkini og alla ástvini í þeirra miklu sorg. Kristín Björg Einarsdóttir. Við kveðjum í dag ungan, góðan mann með söknuði og trega. Þú komst og fórst með ást til alls, sem grætur, á öllu slíku kunnir nákvæm skil. Þín saga er ljós í lífi einnar nætur, eitt ljós, sem þráði bara að vera til. Ó, minning þín er minning hreinna ljóða, er minning þess, sem veit hvað tárið er. Við barm þinn greru blómstur alls þess góða. Ég bið minn Guð að vaka yfir þér. (Vilhjálmur frá Skáholti.) Blessuð sé minning þín. Sigríður Magnúsdóttir, Freyr og Birkir. Kveðjuorð til elsku frænda Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Elsku Kiddi, takk fyrir allt. Við geymum minningu um góðan frænda í hjarta okkar. Svava, íris og Rakel. Það var þokudrungi og rigning fimmtudaginn 22. september. I kaffistofunni í Sundahöfn hittumst við félagarnir í hálftíukaffinu eins og vanalega. Það var gert að gamni sínu og óðum styttist í helgina og nú fengjum við örugglega stóra vinninginn í getraununum, já, sennilega yrðum við allir á leið til Flórída á mánudaginn með fulla vasa af seðlum. En skjótt skipast veður í lofti, rúmum tveimur tímum seinna kom sú fregn að slys hefði orðið á dekkjaverkstæðinu. Ég flýtti mér á staðinn fullviss um að ekkert alvarlegt hefði gerst. En vissan um slíkt varð að engu, Kiddi, besti vinur minn, var látinn. Skyndilega virtist þokan verða svört og rign- ingin ennþá þéttari. Við stóðum þarna vinnufélagarnir harmi lostn- ir og tárin blönduðust rigningarúð- anum. Það er erfítt að sjá á bak svo traustum vini yfir móðuna miklu en það sannast hér enn einu sinni að þeir sem guðirnir elska deyja ungir. Eitt er víst að litli getrauna- hópurinn okkar .verður aldrei sá sami, í hann hefur verið höggvið stórt skarð sem ekki er hægt að fylla aftur. Óteljandi minningar streyma fram, allar ferðirnar sem við fórum saman á völlinn til að fylgjast með Fram spila fótbolta, þá var ekki verið að hugsa um veðurfar eða vegalengdir. Skemmst er að minn- ast ferðar er við fórum einn sunnu- dag fyrir nokkru síðan norður til Akureyrar til að fylgjast með fót- bolta. Þá var mikið rætt um ótrú- legustu málefni og víst er það að ferðin er mér ógleymanleg þrátt fyrir ósigur okkar liðs. Margar stundir áttum við saman heima hjá Kidda í Blikahólunum og þá var sko ætíð glatt á hjalla. Hjálpfús var hann með eindæmum, alltaf gaf hann sér tíma til að líta á bílinn hjá mér ef eitthvað var að og sömu sögu veit ég að ótal margir geta sagt. Já, minningarnar um góðan og traustan vin eru óteljandi og þær getur enginn tekur frá okkur. Ég kveð Kidda með sárum söknuði. Foreldrum, systkinum og öðrum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð og bið Guð að styrkja þau í sorginni. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Garðar V. Sigurgeirsson. LEGSTEINAR MOSfllK H.F. Hamarshöfða 4 — sími 871960 t Móðir mín, LAUFEY GUÐMUNDSDÓTTIR SVEINBJÖRNSSON, Langholtsvegi 159, Reykjavík, andaðist á vistheimilinu Kumbaravogi, Stokkseyri, sunnudaginn 25. september. Útförin fer fram frá Dómkirkju Krists Konungs Landakoti, þriðju- daginn 4. október. kl. 13.30. Fyrir hönd fjölskyldunnar. Þorsteinn L. Þorsteinsson. t Fósturmóðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, MARTA EYJÓLFSDÓTTIR, Hofteigi 22, Reykjavík, sem lést á Skjólvangi, Hafnarfirði, aðfaranótt 26. þ.m., verður jarðsungin frá Laugarneskirkju föstudaginn 30. september kl. 15.00. Hilmar E. Guðjónsson, Magnús Guðjón Hilmarsson, Haukur Hilmarsson, og barnabarnabörn Ólöf Magnúsdóttir, Ingibjörg Magnúsdóttir, t Dóttir okkar og systir, GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR, Hofsvallagötu 21, Reykjavík, er lést á Reykjalundi fimmtudaginn 22. september, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju föstudaginn 30. september kl. 10.30. Jón Þórðarson, Jóhanna Sveinsdóttir, Auðbjörg Pétursdóttir, Ögmundur Frímannsson Pétur Jónsson, Sigrún Jónsdóttir, Hjalti Björnsson, Guðrún Jónsdóttir, Úlfar Herbertsson, Ægir Þór Jónsson, Jan Dodge Jónsson, Haraldur Ögmundsson. + Þökkum innilega vinarhug og samúð við andlát og útför BRODDA JÓHANNESSONAR. Friðrika Gestsdóttir, Guðrún Broddadóttir, Guðjón Ingvi Stefánsson, Þorbjörn Broddason, Þorsteinn Broddason, Ingibjörg Broddadóttir, Broddi Broddason, Guðrún Hannesdóttir, Guðríður Steinunn Oddsdóttir, Sigurður Jakobssón, Björg Ellingsen, Soffía B. Sverrisdóttir. + Hugheilar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, stjúpföður, tengda- föður, afa og langafa, JÓNS HJALTA ÞORVALDSSONAR umsjónarmanns, Grandavegi 47, Reykjavík. Guðrún S. Guðmundsdóttir, Sveinn Jónsson, Friðrik Jónsson, Kolbrún Jónsdóttir, Guðmundur Óli Scheving, Ómar J. Scheving, Viðar J. Scheving, Hrafnhildur Scheving, Gunnlaug Garibaldadóttir, Jónína Jónsdóttir, Thorleif Jóhannsson, Jónfna Stefánsdóttir, Gunnhildur Hlöðversdóttir, Elin Guöjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, (ÞORLEIFS) VIGGÓS ÓLAFSSONAR, Litla-Laugardal, Tálknafirði. Ingibjörg G. Viggósdóttir, Elías Kristinsson, Snæbjörn G. Viggósson, Sigurður V. Viggósson, Þorbjörn H. Viggósson, Símon Ó. Viggósson, Bjarni F. Viggósson, S. Kristin Viggósdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Helga Jónasdóttir, Anna Jensdóttir, Birna Benediktsdóttir, Jóhanna Þórðardóttir, Hilmar Jónsson,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.