Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 52
Mmi Msm ■^MíCROSOFT. einar j. WINDOWS. SKÚLASONHF MORGUNBLAÐID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK SIMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HA FNA RSTRÆTl 85 LAUGARDAGUR 4. APRIL 1992 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Innsigla símainn- Jtök fjölbýlishúsa Dæmi um að fólk hafi notað síma á kostn- að nágranna og kvartanir vegna hlerana NOKKUR brögð hafa verið að því í fjölbýlishúsum að íbúar hafi farið inn á símalínu hjá öðrum og notað síma viðkomandi á kostnað hans. Samkvæmt núgildandi reglum Pósts og síma eiga öll fjarskiptavirki að vera varin með öruggum læsingum eða innsiglun. Unnið hefur ver- ið að því að undanförnu að innsigla inntök og tengibox í húsum. Með núgildandi reglum Pósts og síma á að vera tryggt að óviðkom- andi aðilar komist ekki inn á inntök hjá fólki og geti með því nýtt sér síma þess endurgjaldslaust. Að sögn Ágústs Geirssonar umdæmisstjóra símamála á höfuðborgarsvæðinu eru ‘•^jiglurnar frá árinu 1986, en fram ^ að þeim tíma voru fjarskiptavirki almennt ekki innsigluð. „Síðan reglurnar komu hefur þeim Stj órnar frumvarp til samkeppnislaga: Banna má vfirtöku og sameiningu í STJÓRNARFRUMVARPI sem viðskiptaráðherra hefur lagt fram á Alþingi er veitt hcimild til að banna samruna fyrirtækja eða yfirtöku eins fyrirtækis á öðru ef það dregur verulega úr sam- keppni. Einnig verður heimilt samkvæmt frumvarpinu að ógilda samruna eða yfirtöku sem þegar hefur átt sér stað. Er sérstaklega tekið fram að þetta eigi einnig við ef eigendur með virk yfirráð í einu fyrirtæki ná virkum yfirráð- um í öðru fyrirtæki, þannig að ^bmlað geti samkeppni. Sérstakt samkeppnisráð, sem komi í stað verðlagsráðs, getur, skv. frumvarpinu, gripið til aðgerða gegn samningum, skilmálum og athöfnum sem talin eru hafa skaðleg áhrif á samkeppni, sem m.a. felist í að fyrir- tæki nái, viðhaldi eða styrki mark- aðsráðandi stöðu sína á markaði. Sjá nánar á bls. 22. verið framfylgt alls staðar þar sem verið er að setja ný inntök í hús. Auk þess erum við með vinnuflokk á okkar vegum til að bæta úr þessu í eldri húsum,“ segir Ágúst. Hann segir að komið hafi fyrir að fólk hafi farið inn á símalínu hjá öðrum íbúum í fjölbýlishúsum og notað síma viðkomandi á kostnað hans. „Slík tilvik hafa komið upp og við höfum þá gjarnan kallað til lögreglu,“ segir Ágúst. „Öðru hveiju heyrum við jafn- framt frá fólki sem óttast að sími þess sé hleraður. Við höfum rannsak- að þau tilvik sérstaklega en erfitt er að skera úr um hvort slíkt eigi við rök að styðjast ef ekki er verið að hlera símann þegar við komum að. Við höfum hins vegar gjarnan notað þessi tækifæri til að innsigla inntak og tengibox í húsinu,“ segir Ágúst. Morgunblaðið/Sigurgeir Með fullfermi af fiski utan við kvóta Klakkur VE kom til Vest- mannaeyja í gær eftir fimm daga veiðiferð með fullfermi af tegundum utan kvóta, aðallega blálöngu en einnig um 30 kör af búra. Frakkar hafa greitt allt að 190 krónur fyrir kílóið af búra og þar er einnig mikil eftirspurn eftir blálöngu. Til Frakklands verður þorri aflans sendur, þannig að Stígur Hannesson háseti, sem sést hér á mynd- inni, og félagar hans á Klakki mega vel við túrinn una. Um 13,5 tonn af blálöngunni voru seld á markaði í Vestmanna- eyjum í gær fyrir um 70 króna meðalverð á kílóið og ætlunin er að selja svipað magn þar í dag, að sögn Þor- steins Árnasonar fram- kvæmdastjóra markaðarins. Hann kvaðst einnig væntan- lega mundu bjóða upp tvö kör af búranum þar sem ekki kemst allt fyrir í gáminum, sem senda á til Frakklands. Frumvarp um að breyta ríkisbönkum í hlutafélög: Engum einum aðila verði selt meira en Vi % hlutafiár FRUMVARP viðskiptaráðherra um stofnun hlutafélaga um rekstur Landsbanka og Búnaðarbanka gerir ráð fyrir að við sölu hlutabréfa sé skylt að gæta þess að hlutafjáreign dreifist sem mest og að ríkis- sjóði sé óheimilt að selja einum aðila meira en sem svarar til 'h % eignar í hvoru hlutafélagi. Óvíst er hvort viðskiptaráðherra leggur frumvarp- ið fram sem stjórnarfrumvarp vegna andstöðu Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra og þriggja Alþýðuílokksþingmanna. Einnig er andstaða við frumvarpið hjá nokkrum þingmönnum Sjálf- stæðisflokks. Málið var rætt í ríkis- stjórn í gær en án niðurstöðu. 1 frumvarpinu er gert ráð fyrir að við stofnun hlutafélaganna verði hlutafé allt eign ríkissjóðs en ráð- herra geti ákveðið skiptingu þess í hluti með það í huga að einstakling- ar og lögaðilar geti keypt hluti í fé- lögunum. í frumvarpinu er ákvæði um að fastráðnum starfsmönnum bankanna bjóðist starf hjá hlutafé- lagsbönkunum en þá falli niður rétt- ur þeirra til launa það sem eftir er af uppsagnarfresti. Mælt er fyrir um að hlutabréf fé- laganna verði skráð á Verðbréfáþingi íslands. í athugasemdum frumvarps- Könnun á útvarpshlutun, sjónvarpsáhorfi og blaðalestri: 23% fleiri lesa Morgunblað- ið en DV að meðaltali á dag Ekki umtalsverðar hlutfallsbreytingar á lestri blaðanna, segir formaður SIA „ÞEGAR verið er að bera dagblöð saman er skynsamlegast að bera saman meðallestur hvers tölublaðs. I þessari könnun lásu að meðal- tali 53,5% þátttakenda Morgunblaðið en 43,5% DV,“ sagði Elías Héðinsson sérfræðingur í fjölmiðlakönnunum í samtali við Morgun- blaðið en hann vann að undirbúningi könnunar á útvarpshlustun, sjónvarpsáhorfi' og blaðalestri, sem auglýsingastofur, auglýsendur og fjölmiðlar stóðu saman að. Samkvæmt þessu lásu 23% flciri þátt- Atakendur Morgunblaðið en DV vikuna sem könnunin fór fram, 9. til 15. mars sl. Lestur Pressunnar reyndist vera 16% alla vikuna. Hallur A. Baldursson formaður Sambands islenskra auglýsingastofa sagði að sambandið hefði gert sams konar kannanir á síðasta ári og í þessari könnun kæmu ekki fram umtalsverðar hlutfallsbreytingar á lestri Morgunblaðsins og DV. I könnuninni um hlustun og áhorf útvarps- og sjónvarpsstöðva 'kemur fram þegar borið er saman áhorf á sjónvarpsstöðvarnar tvær á landinu öllu eftir einstökum dög- um að 60 til 76% þátttakenda segj- ast hafa horft á ríkissjónvarpið ein- hvern tíma dagsins og Stöð 2 er með áhorf á bilinu 52 til 57%. Sé aðeins miðað við þá áhorfendur sem geta horft á læsta dagskrá Stöðvar 2 kemur í ljós að sjónvarpsnotkun er aðeins öðruvísi. Stöð 2 fær áhorf hjá þeim hópi, sem nemur 68 til 75%, á meðan Ríkissjónvarpið fær áhorf, sem er á bilinu 55 til 72%. Hlustun á útvarpsstöðvar var þannig að alla vikuna sögðust 27 til 35% aðspurðra hafa hlustað á Rás 1 einhvern tíma dagsins þessa viku miðað við landið allt, en þess- ar tölur lækka í 26 til 34% eftir dögum, þegar aðeins er rætt um Reykjavík og Reykjanes. Til glöggvunar upplýsist að hvert pró- sent miðað við hlustun og áhorf á landinu þýðir um tvö þúsund manns. Hlustunartölur Rásar 2 miðað við landið allt eru á bilinu 34-57% eftir dögum og á höfuð- borgarsvæðinu 26-47%. Samsvar- andi hlustunartölur fyrir Bylgjuna eru 18, til 34% miðað við landið allt, en þær hækka í 19 til 39% ef aðeins er miðað við höfuðborgar- svæðið. FM 95,7 fær 6 til 11% hlustun eftir dögum miðað við land- ið allt, en sé talað um höfuðborgar- svæðið hækka tölurnar í 9 til 18% og Aðalstöðin fær 4 til 5% hlustun miðað við allt landið, en tölurnar verða 5 tii 6% sé miðað við höfuð- borgarsvæðið. Sjá frétt og töflur á miðopnu. ins segir að fyrrgreint ákvæði komi ekki í veg fyrir að einstakir aðilar geti síðar eignast aukinn hiuta í fé- lögunum með viðskiptum á Verð- bréfaþingi eða með öðrum hætti, en meðan ríkissjóður hafi bréf til sölu skuli þess ávallt gætt að ekki sé selt meira af bréfum til einstaks aðila en svo að hann eigi að há- marki 1h% í hvoru félagi. Þingmenn sem eru andvígir frum- varpinu hafa m.a. lagt áherslu á að það verði látið bíða þess að frumvarp um samkeppnislög, sem dreift var á Alþingi í gær, verði að lögum. Sjá einnig bls. 4. --------» ♦ ♦-------- Dvalarheimili aldraðra á Dalvík; 15 veiktust og einn lést Líklega matareitriin TALIÐ er að matareitrun hafi átt þátt í dauða vistmanns sem veikt- ist á dvalarheimili aldraðra á Dal- vík aðfaranótt fimmtudags. Þórir V. Þórisson, heilsugæslu- læknir, sagði að veikindin hefðu ver- ið rakin til upphitaðs saltkjöts og bauna en það hefði ekki fengist stað- fest. Af 40 vistmönnum veiktust 13, þar af 3 alvarlega. Tvo varð að leggja inn og lést annar þeirra aðfaranótt föstudags á sjúkrahúsinu á Akur- eyri. Þórir sagði að þar hefði verið um aldraðan og sjúkan einstakling að ræða. Einnig veiktust tveir starfs- menn en ekki alvarlega. Þórir sagði að flestir vistmannanna hefði náð sér að fullu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.