Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRIL 1992 25 Selir í hættu vegna geisla- mengunar ÞÚSUNDIR sela eru að deyja af völdum krabbameins vegna geislamengunar við norður- strönd Rússlands, að því er rússneskir vísindamenn sögðu í gær. Þeir hvöttu til þess að geislavirkur úrgangur yrði tek- in úr sjónum við eyjarnar Novaja Zemlja, þar sem kjarn- orkutilraunir Sovétmanna fóru fram. „Sjórinn við ströndina á þessu svæði er orðinn að rusla- haug fyrir geislavirkan úr- gang,“ hafði TASS-fréttastof- an eftir vísindamönnunum. Bosnía biður SÞ um aðstoð STJÓRNVÖLD í Bosníu- Herzegovínu báðu í gær Sam- einuðu þjóðirnar um tafarlausa hernaðaraðstoð til að binda enda á bardaga sem geisuðu víða í lýðveldinu og sköpuðu hættu á allsherjar borgarastyij- öld. Hersveitir Serba náðu á sitt vald bænum Banja Luka, þar sem hermenn Sameinuðu þjóðanna eiga að vera með höf- uðstöðvar er þeir hefja friðar- gæslu í nágrannalýðveldinu Króatíu. Um 30 manns biðu bana í síðustu viku í hörðustu bardögum sem hafa geisað í Bosníu frá síðari heimsstyrjöld- inni. Óstaðfestar fregnir hermdu að mun fleiri hefðu fallið. Einkavætt fangelsi Almenningur fékk 'að skoða fyrsta einkavædda fangelsi Bretlands í gær, tveimur dög- um áður en fyrstu fangarnir koma í það. Fangelsið er í Humberside í norðausturhluta Englands og í því verða 300 fangar sem bíða réttarhalda. Fyrirtæki, sem hefur sérhæft sig í öryggisgæslu, annast fangavörsluna. Fjárlaga- frumvarp í Póllandi Andrzei Olechowski, fjármála- ráðherra Póllands, lagði í gær fram fjárlagafrumvarp á pólska þinginu, þar sem gert er ráð fyrir miklum niðurskurði á rík- isútgjöldum. S^mkomulag náð- ist á síðustu stundu við stjóm- arandstæðinga um frumvarpið og er því búist við að það verði samþykkt. c^v-ío'92 Verð frá: 1.184.000,- Greiðslukjör við allra hæfi Til sýnis núna að Vatnagörðum 24 virka daga kl. 9:00 — 18:00 og laugardaga kl. 11:00 - 15:00. Nánari upplýsingar í síma 68 99 00 (H) 1 Bresku þingkosningarnar: Fylgi stóru flokk- anna orðið hnífjafnt Lundúnum. licutcr. íhaldsflokkurinn og Verkainannaflokkurinn í Bretlandi lögðu í gær áherslu á að tryggja sér atkvæði miðjumanna í þingkosningun- um 9. apríl þar sem skoðanakannanir bentu til þess að fylgi þeirra væn hnífjafnt og að Frjalslyndir veðrið. Samkvæmt skoðanakönnun, sem gerð var í helstu kjördæmunum, er fylgi Ihalsflokksins og Verkamann- aflokksins nú 40%. Stuðningurinn við Frjálslynda demókrata er nú kominn í 20% og leiðtogi þeirra, Paddy Ashdown, virðist njóta æ meiri vinsælda. Ashdown leggur áherslu á að þrettán ára valdatími íhaldsflokks- ins hafi leitt til lengstu efnahags- kreppu landsins frá íjórða áratugn- um en segir að Verkamannaflokkn- um sé ekki heldur treystandi fyrir stjórn efnahagsmála. Hann stefnir að því að tryggja flokki sínum nógu mörg þingsæti til að geta knúið á um breytingar á kosningalöggjöf- inni. Ashdown vill að teknar verði upp hlutfallskosningar í stað núver- andi kerfis, þar sem sá flokkur sem fær mest fylgi í tilteknu kjördæmi fær þingsæti þess. Hann hyggst setja það sem skilyrði fyrir aðild demókruLii' væru að sækja í sig að samsteypustjórn að kosninga- löggjöfinni verði breytt fái hvorugur stóru flokkanna þingmeirihluta. Talið er að allt að ellefu milljónir af þeim 44 milljónum Breta, sem hafa kosningarétt, kunni að vera hallar undir boðskap Ashdowns. Stóru flokkarnir reyndu að höfða til þessa hóps með mismunandi hætti. Neil Kinnock, leiðtogi Verka- mannaflokksins, kvaðst reiðubúinn að skipa nefnd með aðild annarra flokka til að kanna hvort æskilegt væri að taka upp hlutfallskosning- ar. Ashdown sagði hann ekki ganga nógu langt. John Major forsætisráðherra hafnaði hins vegar hvers konar breytingum á kosningalöggjöfinni og sagði að með tali sínu um nefnd væri Kinnock að reyna að laða til sín kjósendur, sem væru hallir und- ir Frjálslynda demókrata. Strætísvagnar ganga fyrir repjufræolíu Kaupmannahöfn. Reuter. FIMM strætisvagnar í Kaupmannahöfn verða látnir ganga fyrir repju- fræolíu í stað díselolíu í tilraunaskyni. Tilraunin hefst í þessum mánuði og miðar að því að draga úr koltvísýringsmengun. Það eru bændasam- tökin í Danmörku, fyrirtækið sem rekur strætisvagnana og danska tæknistofnunin sem standa sameiginlega að þessari framkvæmd. „Repjufræolía er laus við koltví- ávinning og ávinning bænda af því sýring eins og aðrir lífrænir orku- gjafar,“ sagði talsmaður bændásam- takanna í gær. „Við erum að reyna að tvinna saman umhverfislegan að losna við umframframleiðslu sem Evrópubandalagið kærir sig ekkert um. Staðgreiðsluafsláttur af öllum gólfefnum til páska 5% afsláttur af raðgreiðslum VISA og Eurocredit Fullt verð Staðgr. Afsláttur Boen-parket eik Natur 3.785.- 3.217.- pr.m 2 15% Boen-parket Beta eik 3.495.- 2.970.- n 15% Vesterby-plast parket eik og beyki 2.780.- 2.363.- n 15% Höganás-leirflísar 10x20 cm 4.300,- 3.740.- n 15% Höganás-leirflísar 20x20 cm 4.800.- 4.080.- ii 15% Gólfflísar Oder 30x30 cm 1.680.- 1.428.- ii 15% Gólfflísar Ormuz 20x20 cm 1.790.- 1.522,- ii 15% Veggflísar Sphinx-Forum 15x20 cm 1.987.- 1.689.- n 15% Armstrong-gólfdúkar í 2, 3 og 4 metra breidd — þarf ekki að líma: Spectrum - margir litir 1.567.- 1.175.- II 25% Boutique — mörg mynstur 1.269.- 952.- II 25% Gólfteppi og filtteppi, 400 cm breið Alpha — 3 fallegir litir 1.290.- 995.- II 23% íslensk ullarteppi — Álafoss 4.430.- 3.322.- II 25% Royal Berber - 5 ára blettaábyrgð 2.536.- 1.895.- II 25% STAR - nælonteppi 980.- 735.- II 25% Allar mottur og smáteppi með 15-50% staðgreiðsluafslætti. TEPmBUÐIN GóHelnamarkaOup, Suðunlandsbnaut 26, sími 91-681950

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.