Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRIL 1992 4 Minning: Halla Halldórsdóttir, Grundarfirði Fædd 10. desember 1900 Dáin 27. mars 1992 Látin er á Sjúkrahúsinu í Stykk- ishólmi Halla Halldórsdóttir á tí- ræðisaldri, en hún var fædd í Grundarfirði 10. desember árið 1900 og ól þar allan sinn aldur. Hún ólst upp á Kvíabryggju ásamt átta systkinum sínum sem öll komust til fullorðinsára. En árið 1919 dró ský fyrri sólu í lífi fjöl- skyldunnar er faðir hennar lést og urðu þá fjögur systkinanna að fara í fóstur til vina og vandamanna, en móðir hennar, Dagfríður, hélt áfram heimili með hinum systkinun- um. Öll voru þessi systkini myndar- legt fólk og nýtir og vel metnir borgarar í þjóðfélgainu. Ung að árum giftist hún Finni Sveinbjömssyni skipstjóra sem kenndur er við Spjör, en þar áttu þau lengi heima og kom í hlut Höllu að annast búskapinn í fjar- veru eiginmannsins á sjónum. Þau árin sem þau bjuggu í Spjör var á margan hátt blómaskeiðið í ævi þeirra og bjart var yfir þeim árum í endurminningunni. Börn þeirra Höllu og Finns eru þessi: Freyja, var gift Jón ísleifs- syni fiskmatsmanni í Stykkishólmi. Þau em bæði látin. Áttu þau þijá syni. Halldór, hreppstjóri í Eyrar- sveit, kvæntur Pálínu Gísladóttur. Eiga þau 8 börn. Ása, húsfreyja á Sauðanesi í Hornafirði, gift Sigurði Eiríkssyni bónda. Eiga þau 3 börn. Dagfríður, kennari, var gift Guðjóni Péturssyni bifreiðastjóra á Selfossi, en þau eru bæði látin. Áttu þau tvo ' syni. Yngstur var Sveinbjörn, stýri- maður hjá Landhelgisgæslunni, lát- inn, var kvæntur Agnesi Egilsdótt- ur kennara. Áttu þau tvö börn. Það féll í minn hlut að flytja þeim Höllu og Finni þau valegu tíð- indi að sonur þeirra, Sveinbjöm, stýrimaður á varðskipinu Hermóði, hefði farist í aftakaveðri út af Reykjanesi 18. febrúar 1959. Var hann tregaður rryög, enda mátti með sanni um hann segja eins og sagt var um prestsson á Setbergi sem dó ungur að árum á öldinni sem leið, að hann væri „frænda von og föðurlandsins". Sumarið 1976 varð svo þáverandi sóknarprestur í Gmndarfirði að flytja þeim þá harmafregn að dótt- ir þeirra og tengdasonur, Freyja og Jón ísleifsson, hefðu farist í bílslysi í Helgafellssveit. Þá varð Halla að sjá á bak dótt- ur sinni, Dagfríði og tengdasyni, Guðjóni Péturssyni á Selfossi, báð- um í blóma lífsins. Fósturbörn þeirra em þessi: Ág- úst Breiðfjörð, bifreiðasyóri í Hafn- arfirði, kvæntur Maríu Ásgeirsdótt- ur lyfjafræðingi. Eiga þau þijú börn. Hallveig Guðjónsdóttir, hjúkr- unarfræðingur í Noregi, gift norsk- um manni, Morten Nielsen, og eiga þau þijú börn. Systurdóttir Finns, Hrefna Hjartardóttir, kom ung á heimili þeirra og var þeim um langt skeið hin styrkasta stoð og bjuggu þær Halla saman eftir fráfall Finns. Heimili þeirra Höllu og Finns, fyrst í Spjör, síðan í kauptúninu í Grundarfirði, var þeim og ástvinum þeirra sannkallaður gæfunnar reit- ur. Heimili þeirra var fyrsta heimil- ið sem ég kom á í Grundarfirði. Ég man það eins og það hefði gerst í gær er flóabáturinn Baldur renndi upp að bryggju í Grundarfirði og Dagfríður, dóttir Höllu, kom hlaup- andi niður bryggjuna til að taka á móti okkur og fylgja okkur heim í hús foreldra sinna. Þetta var í mars árið 1954, fyrir 38 árum og við Áslaug, þá nýgift og vorum að svip- ast um eftir starfsvettvangi. Leist okkur vel á staðinn og þótti okkur fegurð hans óviðjafnanleg. Inn á þetta heimili, heimili með- hjálparans og sóknarnefndarfor- mannsins, áttu leiðir okkar oft eftir að liggja næstu 20 árin. Þar var okkur ávallt tekið tveim höndum og það varð sem annað heimili okk- ar og Halla og Finnur sem okkar fósturforeldrar hjálpuðu okkur að una okkar hag og festa rætur á nýjum stað. Eigimann sinn Finn Sveinbjörns- son missti Halla 15. janúar 1978. Eftir það héldu þær heimili saman Halla og Hrefna um allmörg ár, uns Halla kaus að flytja í Fellaskjól, heimili aldraðra í Grundarfirði þeg- ar hún var ein orðin. Undi hún hag sínum þar vel og var þakklát fyrir umhyggju og kærleika sem hún naut hjá starfsfólki heimilisins. Þegar Halla leit yfir langan ævi- dag voru harmsefnin mörg, en samt gat hún ekki annað en glaðst inni- lega yfir stórum hópi afkomenda sem er mesta manndómsfólk sem haslað hefur sér völl á ýmsum svið- um - margt af því námsfólk gott sem sjálfsagt á eftir að efla veg og gengi fóstuijarðarinnar. Halla mátti muna tímana tvenna. Hún sá fátæktina hverfa, atvinnu- tækjum fjölga, byggðina blómgast, menntun aukast, mannlífið batna, og síðast en ekki síst kirkjuna rísa. Er mér ljúft við fráfall Höllu að minnast hennar og hinnar vösku sveitar íkvenfélaginu Gleym-mér-ei sem gekk fram fyrir skjöidu við byggingu kirkjunnar og þakka framtak þeirra sem gerði það mögu- legt að kirkjan risi í kauptúninu í Grundarfirði. Halla verður kvödd hinstu kveðju laugardaginn 4. apríl í hinni nýju Grundarfjarðarkirkju. Þar samein- ast ættingjar, venslafók, frændur, vinir og sveitungar í Eyrarsveit í innilegu þakklæti til Guðs, sem gaf svo dýrmæta gjöf og leyfði okkur að hafa hana svo lengi á meðal okkar. Vegferð mætrar konu er lokið og við drúpum höfði í þakkar- skyni og biðjum þess að hún fái nú að reyna sannleika þeirra orða sem voru henni svo kær þegar hún varð að þola raunir ástvinamissis. Jesús sagði: „Ég lifi og þér munuð lifa.“ Við Áslaug sendum öllum ástvin- um Höllu Halidórsdðttur innileg- ustu samúðarkveðjur. Magnús Guðmundsson. Elsku amma er dáin. Amma náði háum aldri, og var sér mjög meðvit- uð um að dauðinn fylgir lífinu. Amma fæddist á Kvíabryggju í Eyrarsveit 10. desember 1990, og var því á nítugasta og öðru aldurs- ári þegar hún lést. Kvíabryggja er nokkuð merkileg- ur staður í sögu Grundarfjarðar og Eyrarsveitar. Þegar amma fæddist og fram yfir 1940, var sjópláss með verslun á Kvíabryggju. Kvíabryggja fór að mestu í eyði þegar farið var að byggja höfn og hraðfrystihús í Grundarfirði upp úr 1940. Foreldrar ömmu voru Halldór Indriðason og kona hans Dagfríður Jóhannsdóttir. Amma var næst eJst af ellefu börnum þeirra hjóna. Hall- dór faðir þeirra lést 1919, þegar flest systkinin voru í ómegð. Af systkinum ömmu er Óskar Hall- dórsson nú einn á lífi. Jóhann sem var elstur af systkinunum lést viku á undan ömmu. Amma giftist 2. desember 1921 Finni Sveinbjörnssyni, skipstjóra frá Hellnafelli í Eyrarsveit. Það átti jafnt við ömmu og afa og foreldra okkar, að þeim þótti ástæðulaust að fara yfir hreppamörkin til að finna sér maka. Amma og afi hófu búskap að Hellnafelli, og fyrsta barn þeirra, Freyja, fæddist þar 11. júlí 1922. Freyja giftist Jóni ísleifssyni, og eignuðust þau þijá syni. Freyja og Jón fórust í bílslysi 22. ágúst 1976. Amma og afi fluttu inn í Stykkis- hólm 1923. Þar fæddist annað barn þeirra, Halldór, 2. maí 1924. Hall- dór, faðir okkar, kvæntist Pálínu Gísladóttur, móður okkar og eiga þau átta börn. Amma og afi kaupa jörðina Spjör í Eyrarsveit 1924, og búa þar í 21 ár. Á Spjör fæddist þriðja barnið, Ása, 7. ágúst 1926. Ása giftist Sig- urði Eiríkssyni og bjuggu þau lengst af á Sauðanesi í Austur- Skaftafellssýslu. Ása og Sigurður eiga þijú börn. Fjórða barn ömmu og afa var Dagfríður, fædd 20. október 1932. Dagfríður eignaðist dóttur 1954 og síðan giftist hún Guðjóni Péturssyni frá Vestmannaeyjum, og áttu þau tvo syni. Dagfríður og Guðjón eru bæði látin. Fimmta og yngsta barn ömmu og afa, Sveinbjörn, fæddist á Spjör 8. maí 1934. Sveinbjörn kvæntist Agnesi Egilsdóttur og eignuðust þau tvö börn. Sveinbjörn fórst með allri áhöfn á vitaskipinu Hennóði 18. febrúar 1959. Amma og afi bjuggu á Spjör 1924-1945. Afi var alla tíð meira gefinn fyrir sjósókn en búskap. Meðan þau bjuggu á Sjör, stundaði afi sjóinn, en búskapurinn hvíldi meira á ömmu. Afi var skipstjóri og tók þátt í útgerð með fleii-um. í kjölfar þess að hafnaraðstaða í Grundarfirði er bætt og Hraðfrystihúsið tekur til starfa flytja þau 1945 frá Spjör í kauptúnið. Spjör áttu þau áfram, og voru tún nytjuð. Árið 1946 kemur Hrefna Hjart- ardóttir, systurdóttir afa, með son sinn, Ágúst Breiðfjörð, fárra vikna til ömmu og afa á Grundargötu 8. Hrefna bjó hjá þeim upp frá því, og Ágúst þar til hann stofnaði eig- ið heimili. Hrefna var alla tíð mikil stoð og stytta á heimili afa og ömmu. Finnur afi lést 15. janúar 1978. Eftir að afi lést, kaupir Hrefna íbúð á Grundargötu 18, og bjó amma hjá henni, þar til Hrefna andast 30. september 1988. Amma og afi fóstruðu einnig eitt barnabarnið. Hallveig dóttir Dag- fríðar fæddist á heimili þeirra 1954 og var hjá þeim til tíu ára aldurs. Amma flutti í Fellaskjól, dvalar- heimili aldraðra í Grundarfírði þeg- ar það var opnað í desember 1988. Ámma og afi voru dásamleg hjón. Amma og afi spiluðu mikið marías og var bókhaldið yfir mar- íasinn gert upp í vertíðarlok. Nokk- uð kapp var í báðum við spila- mennskuna og ekki spilað af neinu lauslæti. Hún amma var ákveðin og stund- um kostuleg kona. Við erum bæði fædd hjá henni, fluttum í burt tveggja og fjögurra ára, fórum þó ekki langt, vestar í sömu götu í Grundarfirði. Við vor- um eins og gráir kettir hjá ömmu, afa og Hrefnu. Var gott að koma til þeirra. Amma kenndi okkur systkinunum að lesa. Amma vildi stundum hafa hönd í bagga með uppeldi okkar og fund- um við þá strax fyrir stjórnsem- inni. Er við fluttum að heiman átti hún það til að hringja í okkur, sér- staklega hana nöfnu sína. Vildi hún stjórna henni örlítið en gekk það misjafnlega vel. Var hún mjög hneyksluð er nafna hennar ætlaði að fara að búa án þess að gifta sig. Iæt hún afa hringja í nöfnu sína til að hafa vit fyrir henni. t Móðir okkar, MARTA PÉTURSDÓTTIR, Víðimel 38, Reykjavík, lést í Landspítalanum 2. apríl. Vigdís Guðfinnsdóttir, Pétur Guðfinnsson, Þorbjörn Guðfinnsson. t Elskuleg systir mín og frænka okkar, BERGÞÓRA PÁLSDÓTTIR, lést á Sólvangi 24. mars sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Bjarnfriður Pálsdóttir, \ Haraldur Eyjólfsson, Guðrún Júlíusdóttir. t Utför KRISTJÁNS EGGERTSSONAR frá Gljúfurá í Arnarfirði, fór fram í kyrrþey í Fossvogskapellu 18. mars sl. Synir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LAUFEY GUÐMUNDSDÓTTIR, Vesturgötu 14, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 6. apríl kl. 14.00. Hermann Friðriksson, Jóhanna Júlíusdóttir, Vilmundur Árnason, Kristín Gisladóttir, Slgrún Árnadóttir, Magnús Emilsson, Jóhanna Árnadóttir, Jóhann Kristbergsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför föður okkar, ÁSMUNDAR JÓHANNESSONAR, Austurbrún 6, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 6. apríl kl. 15.00. Eyrún Ásmundsdóttir, s. Elísabet Ásmundsdóttir. t Fósturfaðir minn og afi okkar, GUÐMUNDUR ANDRÉSSON fyrrverandi dýralæknir, Hólavegi 10, Sauðárkróki, lést 20. mars síðastliðinn. Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Erling R. Guðmundsson, Erla Gígja Erlingsdóttir, Guðmundur Andrés Erlingsson. t Útför ROBINS GUNNARS ESTCOURT BOUCHER flugmanns, sem andaðist í Bandaríkjunum 26. mars sl., verður gerð frá Dóm- kirkju Krists konungs, Landakoti, nk. þriðjudag, 7. apríl, kl. 10.30. Fyrir hönd aðstandenda, Ingibjörg Dís Geirsdóttir, Kristófer Róbertsson Boucher. t Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku litiu dóttur okkar, INGU GUÐRÚNAR EÐVARÐSDÓTTUR, Tunguvegi 12, Njarðvík. Sérstakar þakkir fá læknar og starfsfólk vökudeildar Landspítalans. Eðvarð Þór Eðvarðsson, Anna Lilja Lárusdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.