Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992 21 Island viðurkennir sjálfstæði Georgíu Sjálfstæðisflokkur- inn Hafnarfirði: Fundur um utanríkismál LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Fram í Hafnarfirði og Félag ungra sjálf- stæðismanna, Stefnir í Hafnar- firði gangast fyrir hádegisverð- arfundi í Sjálfstæðishúsinu í dag, laugardaginn 4. apríl klukkan 12 og er ráðgert að fundurinn standi til klukkan 13,30. Um- ræðuefni fundarins eru utanrík- ismál. Gestur fundarins verður Björn Bjarnason alþingismaður, en Magn- ús Gunnarsson formaður fulltrúa- ráðs sjálfstæðisfélaganna í Hafnar- firði verður fundarstjóri. í frétt frá félögunum er allt sjálfstæðisfólk hvatt til þess að sækja fundinn. Jón Gunnarsson listmálari. Jón Gunn- arsson sýnir í Hafnarborg JÓN Gunnarsson listmálari opn- ar málverkasýningu í Hafnar- borg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, laugardaginn 3. apríl kl. 14.00. Jón Gunnarsson stundaði nám í Handíða- og myndlistarskólanum 1947-1949. Hann hefur einnig far- ið fjölda náms- og kynnisferða til annarra landa. Jón hefur haldið margar einkasýningar, m.a. á Kjar- valsstöðum, í Norræna húsinu, Há- holti og Hafnarborg. Hann hefur einnig tekið þátt í samsýningum hér heima og erlendis. Á sýningunni í Hafnarborg verða olíumálverk og vatnslitamyndir sem flestar eru unnar á síðustu þremur árum. Myndefnið sækir hann að störum hluta til sjávarsíðunnar en einnig notar hann mótív hvaðanæva af landinu. ----♦ ♦ ♦--- Kvikmynda- sýning fyrir börn í Nor- ræna húsinu KVIKMYND fyrir böru og ungl- inga verður sýnd sunnudaginn 5. apríl kl. 14.00 í fundarsal Nor- ræna hússins. Sýnd verður sænska myndina Elvis! Elvis! sem byggð er á sögu eftir Maríu Gripe. Elvis er 6 ára strákur sem fékk nafnið sitt af því að mamma hans er svo mikill Elvis Presley aðdá- andi. Elvis á stundum svolítið erfitt með að átta sig á heimi hinna full- orðnu því vill hann vera misskilinn. Þetta er mynd full af kímni og hlýju og hæfir fólki á öllum aldri. Sýning - myndarinnar tekur rúma Wi klst. Boðið verður upp á ávaxtasafa í hléi. Björn Bjarnason alþingismaður. Magnús Gunnarsson. í FRAMHALDI af ákvörðun um þátttöku Georgíu í Ráðstefnunni um öryggi og samvinnu í Evrópu og í ljósi þess að georgísk stjórn- völd hafa gengjð að samþykktum og gildum RÖSE-ferilsins, af- henti Ólafur Egilsson, sendi- herra Islands í Moskvu, fastafull- trúa georgískra stjórnvalda bréf frá Jóni Baldvini Hannibalssyni, utanríkisráðherra, til Alexander Chikvaidze, utanríkisráðherra Georgíu, 27. mars sl. þar sem viðurkenning íslenskra stjórn- valda.á sjálfstæði og fullveldi ríkisins er staðfest. Jafnframt gekk sendiherra ís- lands á fund fastafulltrúa Úkraínu í Moskvu 31. mars sl. og afhenti honum orðsendingu þess efnis að íslensk stjórnvöld hefðu fallist á til- lögu ríkisstjórnar Úkraínu um stofnun stjórnmálasambands ríkj- anna. Héraðsdóm- ari skipaður Forseti íslands hefur skiþað Sig- ríði Ingvarsdóttur héraðsdómara til þess að vera héraðsdómari við hér- aðsdóm Reykjavíkur frá 1. júlí 1992 að telja. HJUK RU N ARFRÆÐING AR LÆKNAR OKKUR BRAÐVANTAR FÓLK Okkur á Borgarspítalanum vantar samstarfsfólk vegna nýrra og aukinna verkefna á bráðadeildum. Framundan eru krefjandi tímar og mikið uppbyggingarstarf. Því þörfnumst við enn fleiri hjúkrunarfræðinga og aðstoðarlækna. 7SR g^ffiPSjr f i— Borgarspítalinn er skemmtilegur og líflegur vinnustaður. Starfsfólki gefst kostur á sveigjan- legurn vinnutíma, aðstöðu til heilsu- ræktar undir leiðsögn sjúkraþjálfara, afnotum af sundlaug og auk þess er möguleiki á barnaheimilisplássi. Á Borgarspítalanum gefst kostur á að taka þátt í lifandi þróunarstarfi. Aðstoðarlæknum býðst skipulagt námsár (blokkarstöður) sem byggir á markvissri starfsþjálfun í hinum ýmsu sérgreinum. Hjúkrunarfræðingum, nýútskrifuðum sem öðrum, er vilja kynnast nýjum starfsvettvangi, stendur til boða skipulagt starfsþjálfunarár, kjörár. Ennfremur gefast fjölbreytt tækifæri til símenntunar fyrir hjúkrunarfræðinga á spítalanum. Borgarspítalinn er einn stærsti spítali landsins og hefur sérstöðu á mörgum sviðum.Hann er aðalbráða- spítalinn og veitir landsmönnum slysaþjónustu allan sólarhringinn. Borgarspítalinn býður ykkur velkomin til starfa. Nánari upplýsingar veitir Laura Sch. Thorsteinsson, hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 696356 og yfirlæknar viðkomandi deilda í síma 696600. BORGARSPÍTALINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.