Morgunblaðið - 08.12.1991, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGJJR 8. DESEMBER 1991
C 38
Levi’s-vörumar ekki
dýrari hér heima?
heimtingu á því að þjóðfélagið sæi
til þess að í námunda við þá væru
ávallt fullkomin björgunartæki i
veikinda- og slysatilfellum. Hægt
væri að benda á slysatilfelli þar
sem þyrla hefði ekki komist austur
vegna veðurs á leiðinni þó að á
slysstað hefði hún vel getað at-
hafnað sig. Hér á Egilsstöðum
væri öll aðstaða fyrir þyrlu ásamt
flugvirkjum og viðhaldsmönnum.
Einnig mætti benda á að illviðri
við norðurströndina nái ekki inn
til Egilsstaða þannig að þyrla
kæmist suður ef á þyrfti að halda.
Það væri einnig spurning hvort
varðskipin sem væru öflug björg-
unartæki ættu ekki að vera stað-
sett í hvetjum landsíjórðungi með
aðstöðu og heimahöfn þar.
Of langan tíma tekur að fá
þyrlu að sunnan
Stefán Guðmundsson sem mikið
hefur unnið að björgunarstörfum
sagði að því miður væri það stað-
reynd að björgunarþyrla sem stað-
sett væri á Suðvesturlandi nýttist
Austfirðingum nánast aldrei.
Þetta stafaði einfaldlega af því hve
langan tíma það tekur að fljúga
hingað austur. Og ef eitthvað
væri að veðri þyrfti núverandi
þyrla Landhelgisgæslunnar að
fara með ströndinni. Þetta yrði til
að lengja flugleiðina og þá um
leið tímann sem hún tæki. Þyrlur
hefðu lítið flugþol og eins og birgð-
amálum þyrlueldsneytis væri hátt-
að í landinu í dag gæti þyrla Land-
helgisgæslunnar einungis tekið
eldsneyti í Reykjavík og á Höfn.
Þess væru dæmi að þegar þyrlan
væri komin austur yrði hún að
byija á að fara á Höfn og taka
eldsneyti áður en hún gæti farið
að sinna björgunarstörfum. Þetta
tæki einfaldlega of langan tíma
til að viðunandi gæti talist. Varn-
arliðið væri betur sett að þessu
leyti því þeirra vélar gætu tekið
eldsneyti á flugi. Eins og málum
væri háttað í dag tæki það þyrlu
Landhelgisgæslunnar um tvær
klukkustundir að komast hér aust-
ur og það væri við bestu skilyrði
þegar hægt væri að fljúga beint
yfir hálendið. Eina ásættanlega
lausnin væri þvi að hafa öfluga
björgunarþyrlu staðsetta á
Austurlandi.
Björn
Eg er algjöriega forfallinn Levi’s-
aðdáandi og vil helst eingöngu
klæðast ekta Levi’s-fötum. Því brá
ég á það ráð að fara í verslunar-
ferð erlendis og gera þessi reyfara-
kaup á Levi’s-vörum en því miður
varð reyndin önnur. Sögurnar sem
hafa farið af þessum verslunarför-
um erlendis eru með því móti að
halda mætti að þeir borgi með vör-
unum í búðunum þarna í útlöndum.
Því ákvað ég að fara út fyrir land-
steinana og gera þvílík kjarakaup
að ekki hefði heyrt um áður. Ég fór
í Levi’s-verslun úti og keypti mér
þessa forlátu Levi’s-peysu sem
kostaði 5.300 ísl. kr. Mér fannst
þetta svo yndisleg tilfinning að vera
að kaupa Levi’s-peysu á þessum
kostakjörum úti að ég keypti tvær
til þess að vera nú viss um að hafa
grætt allavegana 10.000 kr. á þess-
um kaupum, því að jú auðvitað
reiknaði ég með að þessi Levi’s-
peysa væri a.m.k. helmingi dýrari
heima ef ekki meira. En stuttu
seinna komst ég að því mér til mik-
Lítil saga úr
*
Eg bý á dvalarheimili aldraðra.
Það var um miðdegisleytið
þegar ég var að enda við að borða
að hún kom til mín fallega,
skemmtilega konan sem gleður
mig stundum með því að koma
með kaffibollann sinn að borðinu
mínu eftir matinn svo við getum
fengið okkur svolitla samtals-
hressingu. Okkur þykir svo gaman
að ræða saman um alla heima og
geima og þá sérstaklega skáldskap
og tónlist. í þetta sinn fannst mér
hún eitthvað öðruvísi en venjulega
og ég sem aldrei get vanið mig
af forvitninni spurði bara hrein-
skilnislega hvort eitthvað væri að
hjá henni. „Það er nú kannski
ekkert stórvægilegt,” sagði hún
„en þó get ég ekki gleymt því.”
Og nú óx forvitnin hjá mér svo
út af flóði. Láttu þetta nú bara
koma málalengingalaust sagði ég
eins og ég væri hálærður speking-
ur eða sálusorgun væri mér í blóð
borin.
„Þá það,” sagði hún, „þú skalt
illa vonbrigða að samskonar peysa
kostaði aðeins 5.700 kr. í Levi’s-
búðinni hérlendis. Eftir öll þessi
læti og æðibunugang, lafmóð
hlaupandi í hveija verslunina á
fætur annarri til þess í rauninni að
spara hafði ég 400 kr. upp úr krafs-
inu. Það munaði ekki nema 400
krónum á þessum peysum og eini
munurinn var sá að önnur var keypt
erlendis og hin var keypt hérna
heima. Því vil'ég benda fólki á að
hugsa sig tvisvar um áður en það
■ákveður að fara í verslunarferð er-
lendis, það borgaði sig ekki í mínu
tilfelli.
Eitt er víst að Levi’s-vörurnar
eru ekki dýrari hér heima og þessi
slæma reynsla hefur kennt mér það
að framvegis mun ég eingöngu
kaupa Levi’s-vörur á íslandi. Núna
þegar ég kaupi Levi’s-föt, kaupi ég
þau í ró og næði og hef fyrirtaks
þjónustu frá Levi’s-búðunum hérna
heima við höndina.
Margrét B. Eiríksdóttir
strætisvagni
fá að heyra hvað mér býr í bijósti.
Fyrir nokkrum dögum varð ég
fyrir því að skella á gólfið i strætis-
vagni og fór hálfpartinn innundir
næsta bekk. Vagninn var sneisa-
fullur af fólki og bjóst ég sannar-
lega við að margar hendur yrðu á
lofti mér til hjálpar en enginn, ég
segi enginn maður í vagninum
hreyfði hönd eða fót mértil aðstoð-
ar. Þótt ég fyndi sárt til í skrokkn-
um var það ekkert á við andlegu
pínuna. Hvar var nú mannkærleik-
urinn hjá náunganum? Einhvern
veginn dró ég mig á fætur. Ég
var eiginlega bálreið, ef þetta
skyldi henda mig aftur, sem ég
vona að ekki verði, ætli ég þurfi
þá að öskra af öllum lífs og sálar-
kröftum til þess að vekja einhvern
í þessum litla heimi, ég meina
strætisvagninum? Öskra eins og
mín áttræðu raddbönd þola til
þess að minna á orðin í Biblíunni
„elska skaltu náungann eins og
sjálfan þig”.”
F
Fæðingarheimili Reykjavíkur lifi!
Þegar ég frétti, að til stæði að
loka Fæðingarheimili Reykja-
víkur varð ég ákaflega hrygg. Ég
hugsaði með mér hvað væri eigin-
lega að þessu þjóðfélagi, sem skæri
niður það sem gott er, en mokaði fé
í alls kyns óþarfa.
Fæðingarheimili Reykjavíkur
hefur starfað í fjöldamörg ár. Þar
hafa verið innleiddar ýmsar nýjung-
ar sem létta konum fæðinguna og
gera hana og sængurleguna ánægj-
ulegri. Má þar nefna undirbúnings-
námskeið fyrir fæðingu, slökun,
leikfimi og tónlist. Fyrir rúmum 20
árum fór ég sjálf á eitt slíkt undir-
búningsnámskeið hjá Huldu Jens-
dóttur, sem þá var forstöðukona
Fæðingarheimilisins. Hún tók síðan
á móti frumburðinum. Leið mín lá
þangað aftur í desember 1990 þeg-
ar fyrsta barnabarnið mitt fæddist.
Það situr í minningunni hversu frið-
sælt og notalegt var, nóttina sem
sólargeislinn okkar kom í heiminn.
Ég vil nota tækifærið og þakka
starfsfólkinu fyrir alúð og skilning.
Ég er sjálf lítið fyrir stórar stofnan-
ir, sem mér finnst oft heldur kulda-
legar og ógnvekjandi. Það eru ekki
allir eins og einmitt þess vegna er
svo nauðsynlegt að eiga valkost.
Fæðingarheimilið hefur alltaf verið
hlýlegt og heimilislegt en þegar ég
kom þangað í heimsókn nokkrum
mánuðum síðar, var búið að gera
það ennþá notalegra, með því að
mála í mildum litum og hengja upp
ný glaðleg gluggatjöld. Athyglis-
Sólargeislinn
verð nýjung var kassettutæki sem
svo var inni á fæðingarstofunni og
gátum við spilað fallega tónlist á
það. Tónlist breytir andrúmsloftinu.
Hana má m.a. nota til að ná slökun
og hugarró. Sjúkrastofnanir ættu
að notfæra sér lækningamátt tón-
listarinnar mun meira en gert er.
Allar stofnanir, hvaða nöfnum
sem þær nefnast, eiga að kapp-
kosta að skapa aðlaðandi og heimil-
islegt andrúmsloft, þar sem skjól-
stæðingum þeirra getur liðið sem
best. Við vitum aldrei hvenær við
þurfum á þjónustu að halda, en
þegar það gerist viljum við að hún
sé góð og okkur líði vel þar sem
við þurfum að dvelja.
Það eru mannréttindi að geta
valið. Þess vegna eigum við að hafa
fleiri en einn stað þar sem konur
geta alið börn sín hér á Reykjavík-
ursvæðinu. Fæðingarheimili
Reykjavíkur er góður staður sem á
rétt á því að fá að lifa og fá fullan
stuðning heilbrigðisyfirvalda.
Á.K.O.
Njóttu jólanna
í sól og hita
ó Kanaríeyjum
með Veröld
- Síðustu sætiu
Jólafcrð 19. des. 2 vikur -örfá viðbóínrsæli
Jólaferð 19. des. 3. vikur - WlWSSfi
2. janúar 3 vikur - örla sæti laus
9. januar 3 vikur - JfflWSBTl
23. janúar 3 vikur - fffíTíTfSTl
30. janúar 3 vikur -8 sæii laus
13. febrúar 3 vikur -3 sæti laus
20. febrúar 3 vikur -
uppseli
56.900.-
Verð frá kr.
Verð fyrir mnnninn m.v. hján meA
2 hiirn 2-11 nra. 1‘laya Flor, 19. des. 2 vikur.
Verð frá kr.
Tveir í íhúá, Pláya Flor.
72.200.-
39.800.-
Verð frá kr.
Verii fyrir manninn m.v. hjón með 2 börn,
2 — II ára, Creen Oasis, 2. janáar , 3 vikur.
FERBAMIOSTDOIN
ASTURSTRÆTI17 - SÍMI 622200
faRKEBRT
FLUGLEIDIR
<