Morgunblaðið - 08.12.1991, Síða 22
22 C
—u:____
MORGUNBLAÐIÐ MENNiNGARSTRAUMAR sunnudagur ^.fPESEMBER 1991
ÉG ALDREI ÞORÐI ...
LANDSLAGIÐ 1991 er afstaðið og líklega vita flestir
hvaða lag bar þar sigur úr býtum, því nóg hefur það
hljómað í útvarpi síðustu daga. Sigurlagið, Ég aldrei
þorði, flutti Anna Mjöll Olafsdóttir, sem einnig samdi lag
og texta.
Anna Mjöll sagðist hafa
fengist nokkuð við lag-
asmíðar síðustu misseri og
eiga einhver lög á kassettum,
en ekki vera iðin við að
semja. „Það er frekar að mér
detti eitthvað í hug sem ég
svo vinn úr lag.” Hún sagði
þó að þessi sigur staðfesti
að eitthvað sé spunnið í lögin
og það gæti verið byrjunin á
einhverju meira; „mig klæjar
óneitanlega nokkuð í puttana
að gera sólóplötu í ljósi þess
hvemig keppnin fór”.
Anna Mjöll segist ekki
hafa átt von á því að vinna
í keppninni, „mér fannst
keppnin svo jöfn að ég átti
alls ekki von á að vinna. Ég
var því sallaróleg þangað
skýrt var frá úrslitunum, því
ég var svo viss um að Eld-
fuglinn myndi vinna. Mér
fannst lögin í keppninni vera
svo jöfn og það var örugg-
lega mjótt á munum í lokin.”
Anna Mjöll fór til Banda-
ríkjanna í sumar og fékkst
þar við tónlist, en hún segir
að það hafi verið meira upp
á grín í sumarleyfi. „Ef ég
ætlaði mér að bijótast áfram
úti, þá er það mikil vinna og
tekur langan tíma. Það blas-
ir við að reyna að koma sér
áfram hér eins og er, en
hver veit hvað framtíðin ber
í skauti sér; kannski á ég
eftir að fara út aftur.”
Anna segist þegar hafa
fengið tilboð um að troða upp
með Ég aldrei þorði, „þannig
að það virðast einhverjir vilja
sjá þetta aftur”.
DÆGURTONUST
Fyrirhverja eru bamaplöturf
Stóm bömin Idka sér
BARNAPLÖTUSMlÐ er
jafnan lífleg fyrir jól,
þegar baráttan um að
komast i jólapakkann
stendur sem hæst. Þá
láta menn oft nægja að
taka gömln lummuraar,
bæta við nýjum takti og
smá hijóðgervlakryddi
og láta það nægja. Þegai’
Þorvaldur Bjarai Þor-
valdsson, þriðjipartur
Todmobile, tók ao sér að
seQa saman baraaplötu
máttu menn þó búast við
að annað yrði upp á ten-
ingnum.
Barnaplatan Stóru böm-
in leika sér kom út
fyrir stuttu og hefur vakið
þó nokkra athygli, enda
ekki farnar troðnar slóðir
i útsetn-
ingum og
spiliríi, þó
alltaf sé
þess gætt
að láta
galsann
ráða ferð-
inni.
Þor-
valdur segist hafa valið
lögin með Jónatan Garð-
arssyni og Andreu Gylfa-
dóttur og þá þau lög sem
honum fannst skemmtileg
eftir Árna
Matthiosson
Ijósmynd/Bjðrg Sveinsdóttir
Hrekkjusvín Plata fyrir alla sem ekki hafa gleymt
að leika sér.
og sem nýja fleti mætti
finna á, en hann segir að
mörg þeirra hafi hann ekki
þekkt ýkja vei og þvi kom-
ið að þeim óháður fyrri til-
raunum til útsetninga.
Þegar hlustað er á plöt-
una fer ekki á milli mála
grallarasvipurinn. Þorvald-
ur, tókst þu þetta fyrir
hendur með hrekki í huga?
„Nei, en ég er svolítið
hrekkjusvín, svo það skilaði
sér þegar það átti við. Ég
átti jafnvel von á að ýmsir
yrðu mér ósammála með
útsetningar og fleira, þó
ég væri ekki að reyna að
storka neinum. Ert eí ég
er beðinn að gera svona
nokkuð þá geri ég það eins
og ég vil gera það.
Upphaflega stóð til að
hafa lögin í einskonar
poppútsetningum, en ég
ákvað að eltast ekki alltaf
við það að gera þau sölu-
leg; frekar að reyna að leita
að skemmtilegum hlutum S
lögununt og líta á laglín-
urnar frá öðrum sjónar-
homum.”
Þorvaldur segir að plat-
an sé að hans mati fyrir
alla sem ekki hafa gleymt
barninu i' sér, „alla sem
ekki hafa gleymt að leika
sér”.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Tunglfarar Geiri Sæm og félagar í Tunglinu.
Reikistjörnur
GEIRI Sæm sendi frá sér sína þriðju breiðskífu, Jörð,
fyrir stuttu og til að fylgja þeirri skífu eftir hóaði hann
saman í sveit, sem hyggst spila víða á næstu mánuðum.
Forsmekkur af því er tónleikar á Púlsinum í kvöld.
Með Geira í sveitinni em
Sigurður Gröndal,
Bjarni Bragi Magnússon,
Sigfús Óttarsson og Einar
Rúnarsson. Geiri segist
hafa viljað halda í gamla
sveitarnafnið sitt, Tunglið,
enda of gott til að henda.
Hann segir sveitina hafa
smollið einkar vel saman,
„þetta er samstilltasti hóp-
ur músíklega og móralslega
sem ég hef spilað með”.
Hann segir að framundan
sé mikið hark til að kynna
plötuna, en þeir ætli líka
að halda áfram eftir jól og
fara þá að heija á skólana.
„Við spilum bróðurpartinn
af plötunni og svo eldra
efni í bland. Það er um að
gera að nota líka veturinn
til að byggja upp nýrra
efni.”
Eins og áður sagði held-
ur Tunglið tónleika í Púls-
inum í kvöld, en áður verð-
ur skálað fyrir plötunni
nýju í glöggi.
Góður tími Brimkló.
Talið í og tekið upp
BRIMKLÓ var með vinsælustu sveitum landsins á sinni
tíð. Fyrir stuttu kom út fyrsta breiðskífa sveitarinnar,
Rock ’n’ Roll, öll mín bestu ár.
Ejörgvin Halldórsson,
sem var fremstur
meðal jafningja í sveitinni,
segist eiga góðar minning-
ar um þessa fyrstu plötu
Brimklóar. „Mér hefur allt-
af þótt vænt um þessa
plötu, en hún ber merki
uppruna síns og þess tíma
sem hún er gerð. „Þetta var
góður tími og það var gam-
an að þessu, það var bara
talið í og tekið upp.”
UROLLING STONES hef-
ur verið kölluð mesta rokk-
sveit heims. Það var því forr-
áðamönnum Sony Music
nokkuð áfall þegar sveitin
gekk á mála hjá Virgin-
útgáfunni. Ekki hefur verið
látið uppi um samningsupp-
hæð, en líklega er um að
ræða nokkur fjárlög íslenska
ríkisins. Samningurinn geng-
ur í gildi í ársbyrjun 1993.
LIFANDI PÓSTKORT
TÓNLISTARMYNDBÖND eru jafnan leiknar auglýs-
ingar fyrir plötur/lög/hljómsveitir og því yfirleitt ekki
ætlaðað lifa lengi. Fyrir stuttu kom út óvenjulegt tón-
listarmyndband, því segja má tónlistin undirstriki
myndskeiðið en ekki öfugt. Lagið við bandmyndina
heitir Island er land þitt Og er eftir Magnús Þór Sig-
mundsson.
Island er land þitt kom út
á plötunni Draumur ald-
amótabamsins fyrir tæpum
tíu árum og hefur náð þjóð-
arhylli ásíðan það kom út.
Magús segist hafa verið að
vinna á geðdeild þegar lagið
varð til; „ég var með bók
með ljóðum Margrétar Jóns-
dóttur og var að lesa fyrir
sjúklingana og síðan að
semja lög og spila fyrir þá.
Rúnar Júlíusson heyrði svo
þessi lög hjá mér og vildi
ólmur gefa þau út.
Astæðan fyrir mynd-
bandinu er sú að það hefur
töluvert af fólki hringt í mig
og beðið um að fá að nota
lagið sem undirspil í band-
myndum sem það er að taka
upp af fjölskyldunni eða
landslagi til að senda til vina
og ættingja í útlöndum. Það
vaknaði því sú hugmynd að
gera eins gott myndband
og kostur væri með laginu
til að selja fóki og fyrirtækj-
um. Við eyddum tveimur
mánuðum í að að velja
myndskeið með laginu, en
það er fyrir vikið góð land-
kynning og hefur selst mjög
vel.”
Sást þú fyrir þér að þetta
lag ætti eftir að lifa önnur
lög af plötunni?
„Nei, alls ekki. Þegar ég
var að gera plötuna fannst
mér Draumur aldamóta-
barnsins besta lagið, en frá
því hún kom út hefur ísland
er land þitt verið að slíta
sig frá henni.”