Morgunblaðið - 08.12.1991, Blaðsíða 18
18 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1991
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1991
C 19 *
HVER DAGUR ER TILRAUN
eftir Kristínu Marju Baldursdóttur '
Myndir þessa manns fara oft ekki úr huga mér
og skæðastur er hann þegar hann myndar mann-
skepnuna,” sagði maður nokkur um Ijósmyndir
Ragnars Axelssonar. Sennilega segja þessi orð meira
en langur lestur um list og tækni, því Ijósmynd mó
vera mögnuð ef ekki er hægt að losna við hana úr
huga sér.
Ragnar Axelsson, eða RAX, hefur verið Ijósmynd-
ari Morgunblaðsins í meira en óratug, hóf störf hjó
blaðinu með nómi sem unglingur, og nú þegar von er
ó fyrstu bókinni með Ijósmyndum hans spyrja menn
einfaldlega hvers vegna hún hafi ekki komið út fyrr.
Ljósmyndir Ragnars, einkum af fólki og lífi þess,
hafa ekki einungis vakið athygli hérlendis, heldur
hafa þær birst í mörgum helstu blöðum og tímaritum
heims, eins og Life, Time, National Geographic, Stern
og Le Figaro.
Bókin sem nú kemur út með myndum hans ber
heitið „Reykjavík”, og þar er mannlífið, nóttúran,
húsin og allt þetta smóa sem gerir þessa litlu borg
svo skrýtna og skemmtilega, Ijósmyndað fró þessu
sjónarhorni sem enginn sér nema RAX. Hagall gefur
bókina út og voru myndirnar teknar ó síðasta óri ó
öllum tímum sólarhrings. „Skemmtilegast þótti mér
þegar ég fékk að leika mér aðeins með myndefn-
ið,” segir Ragnar. „Það var viss óskorun að taka
myndir af Reykjavík því ég þekki borgina kannski
of vel.”
Grótt malbikið fær regnbogans liti í Ijósmyndum
Ragnars og landslag verður eins og mólverk, en hann
segist þó sjólfur vera ó útivelli þegar um litmyndir er
að ræða. „Hver dagur er tilraun. Maður hugsar annað
hvort í svarthvítu eða lit, ég hugsa í svarthvítu og
því varð ég að aka um Reykjavík ó röngunni.”
Fyrstu órin tók Ragnar mikið af landslagsmyndum
en fór svo honum að þykja það meira spennandi
að mynda mannlífið. „Það reynir vissulega meira ó
mann að Ijósmynda fólk, því menn bregðast við ó
misjafnan hótt. Utlendingar treysta mér oftast, Græn-
lenskir veiðimenn leyfðu mér til dæmis að mynda
sig sofandi, en við íslendinga er oft erfiðara að eiga.
Stundum verð ég að dekstra þó. En ég reyni ætíð
að vera glaðlegur þegar ég fer ó fund manna og ég
ber fulla virðingu fyrir öllu og öllum sem ég mynda.
Mesta viðurkenning sem ég hlýt er að heyra í
fólki sem er ónægt með myndirnar mínar. Yfirleitt
er ég aldrei alveg ónægður með það sem ég geri,
kannski eitt augnablik, svo er það horfið, enda er
það svolítil heppni að taka’ góða mynd.”
Margar fréttamyndir sem Ragnar hefur tekið, hafa
fyrir einhverja „heppni” orðið ógleymanlegar og segja
sumir að bestu myndirnar taki hann undir miklu
ólagi. Þegar hann er spurður hvenær það sé erfiðast
að vera fréttaljósmyndari nefnir hann sem dæmi,
að þótt honum þyki gaman og spennandi að fljúga
geti aðstæður oft verið erfiðar í kolvitlausu veðri.
„Flugmaðurinn vill jú líka koma lifandi heim."
Ragnar hefur tekið myndir af fólki og lífi þess ó
Grænlandi, í Færeyjum, og Indónesíu, en segist núna
hafa mestan óhuga ó að mynda fólk í byggðum ís-
lands. „Lífsstíll fólks í þessum löndum er að breyt-
ast, eins og til dæmis veiðimannasamfélagið ó Græn-
landi, jafnvel smölun ó íslandi er ekki eins afger-
andi þóttur í lífi fólks og óður. Þetta líf vil ég skró
í myndum.”
Metsölublaó á hverjum degi!
Komdu og sjáðu okkar verð á
glæsilegum leðurtöskum frá Ítalíu
Vorum að taka upp stretc-flauel í kjóla. Frábært útval af efnum í
hátíðarfatnað, ásamt skrauttölum og leggingum.
Gallery Sora,
Trönuhrauni 6, 220 Hafnarfirði, sími 651660.
Opið mán. — föstud. kl. 9—18, laugard. 14. des. kl. 10—18, laugard. 21. des. kl. 10
Nýjar töskur
Frábært verð
Gjöf sem gleður
Snyrtitöskur
Lyklaveski
Seðlaveski
Snyrtiveski
Samkvæmistöskur
j
!
I
i
.i
\
I