Morgunblaðið - 08.12.1991, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. DESEMBER1991
C 15
lent á, en það er alls staðar sama
svarið, völlurinn lokaður.
Vélin gefur staðarákvörðun.
VM, sem er þvert á Vestmannaeyj-
ar þ.e. út af Vestmannaeyjum.
Flugstjórinn tekur við veðurfrétt-
unum og fær fyrirmæli um að
lækka flugið í átt til Keflavíkur.
Hann fær gefnar upplýsingar um
möguleika á radaraðflugi. Radar-
inn á Reykjavíkurflugvelli hafi
ekki enn verið tekinn í notkun
fyrir blindflug, er aðeins notaður
til þjálfunar.
Flugstjórinn biður um neyð-
araðflug (Emergency radar appro-
ach) til Reykjavíkurflugvallar. Á
meðan málið er kannað, heldur
flugvélin áfram að radíóstefnuvita
Keflavíkurflugvallar. Við sjáum í
hendi okkar að um annan mögu-
leika er ekki að ræða en radarað-
flug til Reykjavíkurflugvallar, ef
möguleika skuli kalla.
Þar sem ég gegni störfum varð-
stjóra og stjórna jafnframt rad-
araðflugstækjunum, þá er þetta
kannske ein erfiðasta ákvörðun
sem ég hef tekið, en það er ekki
eftir neinu að bíða. „Samþykkt að
reyna neyðaraðflug með radar-
tækjum Reykjavíkurflugvallar.
Það hefur oft farið um hug minn
síðan, hvaða dóm hefðu mistök
fengið? Ef stórslys hefði orðið?
Margir farist?, vélin lent í íbúða-
hverfi?
Það er logn og því eðlilegt ör-
yggis vegna að vélin komi inn yfir
Skeijafjörðinn og lendi á braut 14.
Spennan vegna þess, sem í hönd
fer magnast upp, verður lamandi
nokkur augnablik, en öll skilning-
arvit skerpast, gengið er til starfa
hratt og ákveðið.
Radartækið er stillt til aðflugs
á braut 14. Á meðan ég vinn að
því, heyri ég að vélin kallar
flugturninn „Reykjavík tower Af
6908. Nálgast radíóstefnuvita
Reykjavíkurflugvallar í 5.000 feta
Litla radartækið verður fjöregg
hans. Tilfínningin um það hvar
hann sé staddur má engu ráða.
Vélin kemur nú í ljós á sjón-
skífu radarsins, þar með hefst
þetta samspil tveggja manna, sem
aldrei hafa sést. Annar stjómar
flugvél, sem æðir áfram án þess
að sjá nokkuð fram fyrir sig. Hinn
stjórnar radartæki sem er kyrrt
og sér þar flugvélina.
Flugstjórinn verður að hlýða
öllum fyrirmælum og framkvæma
þær fljótt og örugglega, lítill ljós-
depill fer um sjónskífu radarsins,
ég veit að í honum er lifandi fólk.
Vélin fær fyrirmæli um stefnu
og flughæð, hvað ber að gera ef
talsamband rofnar. Það er mikill
léttir að sjá hve vel og nákvæm-
lega flugstjórinn útfærir aðflugið,
greinilega maður sem kann sitt
fag, röddin róleg og styrk.
Eg beini vélinni út á Faxaflóa,
kem henni á þverlegg fyrir braut-
ina, ætla síðan að sveigja hana til
hægri inn á lokastefnu fyrir braut
14.
Radarinn er þannig byggður að
hægt er að breyta sjónskífunni,
úr 30 mílum í 15, en við það
stækkar allt sem er innan 15 míln-
anna um helming, en um leið verð-
ur að gæta þess að vélin sé komin
inn fyrir 15 mílurnar, annars kæmi
hún ekki fram á sjónskífunni. Síð-
an er skipt yfír í 10 mílur og svo
að lokum 3 mílur, mest er um
vert að 3ja mílna skiptingin sé
rétt upp sett, en við enda brautar-
innar eru tvö radarendurskins-
merki við hvorn jaðar hennar og
milli þeirra verður vélin að fara
til þess að aðflugið takist.
„Hægri beygja 140 gráður,
flughæð á að vera 1200 fet, er 6
mílur frá brautarenda, hægri
beygja 5 gráður stefna 145 gráður
ath. hjól niðri og læst.”
Ég verð að gæta þess að tala
stöðugt, skjóta inn upplýsingum
Gamla radarhúsið við Reykjavíkurflugvöll.
hæð. Flugþol 2 klst. og 36 mínút-
ur.”
Flugturninn gefur veðurlýs-
ingu, hver setning hæðarmælis er,
segir veður fýrir neðan lágmark
til aðflugs, gefur fyrirmæli um að
skipta yfir á radaraðflugsbylgju.
Vélin kallar eftir augnablik á
radarbylgjunni og biður um radar-
aðflug, ég spyr flugstjórann að
því hvort honum sé kunnugt um
veður og aðstæður, svar hans er:
„Hef fengið allar upplýsingar, á
ekki aðra kosti en treysta á radar-
aðflug til vallarins, sem ég óska
hér með eftir.”
Teningnum er kastað. Við vitum
báðir að eldsneytið brennur hratt,
timinn líður hratt.
Flugstjórinn virðist rólegur og
öruggur, ég sé fyrir mér flug-
stjórnarklefann, tugi mæla, ljósa,
stjórntækja, sem hann verður að
fylgjast með. Athygli hans er
áreiðanlega þanin til hins ítrasta.
Kortin sem ég veit að hann leitast
við að skoða, sýna óhugnanleg fjöll
í nágrenni vallarins, sem ekki eru
árennileg.
Ég veit að það skiptir öllu máli
að halda ró sinni, minnstu radd-
brigði gætu skert traust flugstjór-
ans á því, 'sem mun gerast á næstu
mínútum. Gagnkvæmt traust
verður að ríkja, ég vona að þetta
sé reyndur flugstjóri, sem nær því
að fylgja út í æsar þeim fyrirmæl-
um, sem hann fær varðandi að-
flugið, en á því veltur líf áhafnar
hans, og farþega.
um brautarlengd og breidd, og
gefa upplýsingar um veður til þess
að flugstjórinn geti verið öruggur
um að sambandið hafi ekki rofnað.
„4 mílur úti á lokastefnu, vinstri
beygja 5 gráður, stefnan á að vera
140 gráður, flughæð á að vera
1200 fet, byija að lækka flugið í
300 fet, hef þig á lokastefnu 3
mílur úti, flughæð 900 fet, vinstri
beygja 3 gráður, stefnan 137 gráð-
ur, 2 mílur úti, flughæð 600 fet,
hægri beygja 3 gráður, stefnan
140 gráður, 1 mílu frá brautar-
enda, stefnir á miðja brautina.”
Svitadropi silast niður ennið.
Svo heyri ég rödd flugstjórans:
„Sé brautina, lending,” um leið
heyri ég gleðióp félaga minna, sem
sjá vélina koma út úr þokunni og
lenda.
Fyrsta björgun flugvélar með
radaraðflugi til Reykjavíkurflug-
vallar er staðreynd.
Litla frumstæða radartækið
sannaði gildi sitt. Flugstjórinn
þakkar fyrir gott radaraðflug,
kveður, lokar talstöðinni. Við
sáum aldrei hvor annan.
Vaktin er senn liðin. Skömmu
seinna var bætt inn í loftumferðar-
stjóraskírteinið mitt: „Réttindi til
radaraðflugs á Reykjavíkurflug-
velli.”
Ilöfundur er fyrrverandi
fliigumferðarstjóri og starfar nú
við Háskóla Islands.
Útlitsráðgjöf
Starf tíunda áratugarins
Tiundi áratugurinn mun verða tímabil per-
sónulegrar þjónustu, s.s að hjálpa konum
að finna hvaða fatastíll hæfir þeim, hvaða
hórgreiðsla, litir og snyrting o.s.frv.
Alhliða ókeypis þjálfun með „Beauty For
All Seasons" til að verða „útlits-ráðgjafi”.
Skrifið til: Annica Ullhag, Nardmarksv. 42,
123 51 Farsta, Svíþjóð.
VZterkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
s JMmqjtuiMfifrift
Auglýsing frá
Tryggingaeftirlitinu
Tryggingaeftirlitið vekur athygli á auglýsingu er
birtist í Lögbirtingarblaðinu 28. nóvember síðast-
liðinn, varðandi fyrirhugaða sameinginu á rekstri
B.í. Líftryggingar g.t., Brunabótafélags íslands
og Líftryggingafélagsins Andvöku g.t. í Líftrygg-
ingafélag Islands hf. og um breytingu á rekstrar-
' formi Líftryggingafélagsins Andvöku g.t.
Tryggingaeftirlitinu ber lögum samkvæmt að at-
huga hvort ástæða sé til að ætla að yfirfærsla
tryggingareksturs og breyting á rekstrarformi
geti á nokkurn hátt skaðað vátryggingartaka og
hina vátryggðu. Vegna þess hefur Tryggingaeftir-
litið, með nefndri auglýsingu, óskað eftir skrifleg-
um athugasemdum innan þriggja vikna frá birt-
ingu auglýsingarinnar.
Tryggingaeftirlitið, 6. desember 1991.
NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR
pCtur
zophonasson
VIKINGS
IÆiqAROTV
Asgeir Jakobsson
SÖGUR ÚR
TÝNDU LANDI
Ásgeir Jakobsson er landskunnur
fyrir œvisögur sínar um íslenska
athafnamenn. Þessi bók hefur
að geyma smásögur eftir hann,
sem skrifaðar eru á góðu og
kjarnyrtu máli. Þetta eru
bráöskemmtilegar sögur, sem
eru hvort tveggja í senn
gamansamar og með alvar-
legum undirtóni.
Pétur Zophoníasson
VÍKINGSLÆKJARÆTTV
Fimmta bindið af Víkingslœkjarœtt,
niðjatali Guðríðar Eyjólfsdóttur og
Bjarna Halldórssonar, hreppstjóra
á Víkingslœk. í þessu bindi er fyrsti
hluti h-liöar œttarinnar, niöjar
Stefáns Bjarnasonar. Efninu fram
að Guðmundi Brynjólfssyni á
Keldum verður skipt í tvö bindi,
þetta og sjötta bindi, sem kemur
út snemma á nœsta ári (1992).
Myndir eru rúmur helmingur
þessa bindis.
BÆKUR - SKUGGSJÁ
Pétur Eggerz
ÁST, MORÐ OG
DULRÆNIR HÆFILEIKAR
Þessi skáldsaga er sjöunda bók
Péturs Eggerz. í henni er meðal
annars sagt frá ummœlum
fluggáfaðs íslensks lœknis, sem
taldi sig fara sálförum að
nœturlagi og eiga tal við fram-
liðna menn. Þetta er forvitnileg
frásögn, sem fjaliar um marg-
breytilegt eðli mannsins og
tilfinningar.
M.Scott Peck
Leiðin til andlegs
Iproska
Öll þurfum við að takast á við
vandamál og erfiðleika. Það er
oft sársaukafullt að vinna bug á
þessum vandamálum, og flest
okkar reyna á einhvern hátt að
forðast aö horfast í augu viö
þau. í þessari bók sýnir banda-
ríski geðlœknirinn M. Scott Peck
hvernig við getum mœtt erfið-
leikum og vandamálum og
öðlast betri skilning á sjálfum
okkur, og um leið öðlast rósemi
og aukna lífsfyllingu.
Hnnhogi Guðinundsvni
Gamanscmi
$noira ^turlusonav
Nokkur valin dæmi
SUss<ji
atilBHÍÍÍÉHHBnd
Finnbogi
Guömundsson
GAMANSEMI
SNORRA STURLUSONAR
23. september voru liðin 750 ár
síöan Árni beiskur veitti Snorra_
Sturlusyni banasár í Reykholti. í
þessari bók er minnst
gleðimannsins Snorra og rifjaðir
upp ýmsir gamanþœttir í verkum
hans. Myndirí bókina gerðu
Aðalbjörg Þórðardóttir og
Gunnar Eyþórsson.
Auöunn Bragi
Sveinsson
SITTHVAÐ KRINGUM
PRESTA
í þessari bók greinir Auðunn Bragi
frá kynnum sínum af rúmlega
sextíu íslenskum prestum, sem
hann hefur hitt á lífsleiðinni.
Prestar þeir, sem Auðunn segir
frá, eru bœöi lífs og liðnir og kynni
hans af hverjum og einum mjög
mismikil; við suma löng en aðra
vart meira en einn fundur.
SKUGGSJÁ
Bókabúð Olivers Steins sf
NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ