Morgunblaðið - 08.12.1991, Side 14
M O
MÓRGSNBlíÁBIÐ’ SL'NNt'DAGUR 8. DHSKMiíKR 1091
Fyrstu f lugvélinni bjnrguð með rudnrnðf lugi til Reykjavíkurf lugvullur
eftir Jóhann Guðmundsson
Augu hinna blindu skulu sjá út úr
dimmunni og myrkrinu.
(Jesaja spámaður)
Það voru mikil tímamótí sögu flugsins
á Islandi, þegar fyrsta radartækið var
sett upp í gamla flugturninum á
Reykjavíkurflugvelli. Aldrei gleymi ég
því undri að sitja inni í myrkvuðu herbergi
og sjá allt umhverfi vallarins. Bílaumferð
á Hringbrautinni, hús, mannvirki og svo
það, sem mest var um vert,
umferð flugvéla í nágrenni
vallarins.
ið höfðum verið
Vum tíma við
radarþjálfun á
Midway-flugvelli í
Chicago í Banda-
ríkjunum árið
1951, Guðmund-
ur Matthíasson og
ég, og þar var
lagður grundvöll-
ur að þeirri þjálf-
un, sem nú tók við.
Radartækið var framleitt í Eng-
landi af Decca 424, það var með
breytilegri sjónskífu, við gátum
ekki séð flughæð vélanna, en
nokkuð nákvæmlega hver staða
þeirra var.
Væri um margar vélar að ræða
á sjónskífunni þurfti að byija á
því að gefa fyrirmæli um breyt-
ingu á ferli þeirrar vélar, sem rad-
araðflug átti að gera, til þess að
vera öruggur um að vera með rétta
vél.
Við æfðum radaraðflug af miklu
kappi, þó aðeins við sjónflugsskil-
yrði. Stilling tækisins var ná-
kvæmnisverk, sem endurtaka
þurfti aftur og aftur, jafnhliða
þurfti þjálfun radaraðflugsmanna
að koma til.
Það var þakkarvert hve þolin-
móðir flugmennirnir voru að taka
þátt í þjálfun okkar, en auðvitað
þjálfuðust þeir einnig, sem gat
komið þeim vel þótt síðar yrði.
Svo var það dag nokkurn ekki
löngu eftir að tækið var sett upp
að við vaktfélagarnir mætum á
eftirmiðdagsvakt. Eftir að hafa
kynnt okkur veður og veðurspár,
slökum við á. Um allt land er niða-
þoka, engin flugumferð. Dauft suð
í móttökurum, tif fjarrita, og sim-
hringingar færa okkur stöðugt
fréttir um veður, en þær fréttir
eru allar samhljóða, á íslandi eru
allir flugvellir lokaðir.
Fyrir okkur er aðeins að þreyja
tímann fram að vaktaskiptum, en
þegar ekkert er að gera tifar
klukkan ósköp hægt.
Allt í einu berst okkur flugáætl-
un á einum fjarritanna. Amerísk
herflugvél C-47 (Douglas Dakota),
er á leið til Keflavíkurflugvallar.
Einhver töf hefur orðið á því
að áætlunin 'berist á réttum tíma
og Gufunes radíó TFW er komið
í samband við vélina, sem er kom-
in upp að landinu á leið til Kefla-
víkurflugvallar, vélin er komin
fram yfir PNR (Point of no re-
turn). Það er, eldsneyti nægir ekki
lengur til þess að snúa við.
Við látum flugturninn á Kefla-
víkurflugvelli vita um ferðir vélar-
innar og biðjum um veðurlýsingu,
sem er stutt og laggóð, flugvöllur-
inn lokaður, skyggni og skýjahæð
Zero-Zero sem táknar skýjahæð
engin, skyggni ekkert. Við biðjum
þá að kalla út radartæki fyrir að-
flug, en á þeim tíma var tækjunum
komið fyrir á stórum hreyfanleg-
um vögnum.
Veðurstofan á Reykjavíkurflug-
velli er beðin um veðurathugun,
skýjahæð 100 fet (30 metrar),
skyggni hálfur kílómeter. Niður-
staðan er sú að báðir flugvellirnir
eru lokaðir. Flugturninn á Kefla-
víkui-flugvelli segir aðflug von-
laust. Hvernig okkur lítist á? Við
könnum alla velli, sem vélin gæti
Jóhann
Guðmundsson