Morgunblaðið - 08.12.1991, Page 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1991
HEITIRÐU
ÓMAR?
Æskuminningar Ómars Ragnarssonar
Fróði hf. hefur sent frá sér
bókina „Heitirðu Ómar?”
eftir hinn kunna sjónvarps-
mann Ómar Ragnarsson.
Bókin hefur að geyma æsku-
minningar Ómars og kemur
hann víða við, segir frá eftir-
minnilegum persónum sem
hann kynntist í æsku og
bregður skemmtilegu ljósi á
tíðarandann eins og hann
var á íslandi á fimmta ára-
tugnum.
Hér á eftir fer stuttur kafli
úr bók Ómars, þar sem hann
fjallar um dvöl sína í sumar-
búðum KFUM í Kaldárseli:
„Jesús kallar: Veijið vígið!”
Það er kominn nýr foringi í
Kaldársel. Hann heitir
Benedikt Arnkelsson en er
kallaður Benni. Hann býr
í Foringjaherberginu en við
strákarnir sofum í kojum í svefnská-
lanum öðrum megin í húsinu en hin-
um megin er borðsalurinn.
Húsið í Kaldárseii er ekki stórt.
Það stendur á bakkanum á Kaldá
og yfír ána liggja mjóir plankar, svo
hægt sé að komast þurrum fótum
yfir á hinn bakkann.
Hinum megin við ána er úfið hraun
en yfír það gnæfir hnjúkur, sem
heitir Sandfell og er endi á langri
hiíð.
En bak við það er enn hærra fjall,
sem heitir Helgafell.
Hann Gulli, bróðir hennar
mömmu, var svo ágætur að koma
mér að hérna í Kaldárseli og gefa
mér þessa dvöl því að hann er í
KFUM og bæði hann og pabbi hafa
sjálfir verið í Kaldárseli, þegar þeir
voru litlir strákar. Hér erum við
strákarnir í tvo mánuði í sumar og
þetta er annað sumarið mitt í selinu.
Á morgnana er fánahylling og þá
stillum við okkur upp teinréttir í
kringum fánastöngina, fáninn er
dreginn að hún og við syngjum:
„Fáni vor sem friðarmerki
fara skaltu á undan nú...”
Söngvarnir, sem við syngjum, eru
þannig að við höfum tilfinningu fyrir
því að þetta sé kristindómsherstöð
og að við séum kristindómshermenn.
Við syngjum til dæmis:
„Áfram kristmenn, krossmenn!
Kóngsmenn erum vér.
Fram í striðið stefnið
sterki æskuher!”
og
„Jesús kallar: veijið vígið!
Vaskra drengja sveití
Láttu hljóma Ijúft á móti
loforð sterk og heit!”
„Myrkraherinn, syndasveimur,
sígur móti oss.
Margir falla, felast sumir.
Flýjum því að kross!
Jesús kallar: veijið vígið!
Þegar við erum að leika okkur í
hrauninu förum við oft í stríðsleiki
og syngjum þessa söngva eins og
við værum raunverulegir hermenn.
Við hlöðum vígi úr hraungijóti og
mosa og búum okkur til sverð og
byssur úr spýtum, sem við finnum,
og sumum þeirra komum við fyrir á
felustöðum í fyrra til þess að geta
gengið að þeim í sumar.
í sumar verða vígin frá því í fyrra
endurbætt og það er mjög gaman
að hlaða upp hús úr hraunhellum
með þaki yfir, svo að þetta verða
næstum því eins og alvöruhús með
dimmum rangölum og útskotum og
mörgum herbergjum.
í miðjunni á veggjaþyrpingunni
erum við að útbúa sérstakt foringja-
herbergi í stíl við foringjaherbergið
hans Benna í Kaldárselsskálanum.
Þetta er nú kannski ekki mjög
kristilegt hjá okkur að vera í svona
stríðsleikjum og syngja kristilegu
stríðssöngvana í orrustunum þegar
við erum að beijast hérna með sverð-
um og byssum en Benni veit ekkert
um það.
Hann er bara heima í seli og er
að undirbúa ræðuna sína, sem hann
ætlar að halda yfir okkur á kvöldvök-
unni í kvöld um Guðs náð og upprisu
Krists.
Þá þakkar hann Guði svo mikið
þegar hann biður bænina, að ég skil
stundum ekki hvað hann getur fund-
ið upp á að þakka honum fyrir margt.
En ég hef smám saman farið að
skilja það, sem hann er að segja, því
að ég veit hvað ég má þakka fyrir
að hafa ekki dáið úr mænuveikinni.
Þakka fyrir að hafa ekki dáið þeg-
ar mamma datt í stiganum á Lindar-
götunni.
Þakka fyrir að hafa ekki dáið í
árekstrinum við fulla Ameríkanann.
Þakka fyrir að hafa ekki farið mér
að voða þegar mér var tveggja ára
gömlum gefinn vörubíll og týndist
með hann.
Ég fannst víst langt niður á Skúl-
agötu, sem er bara malargata með
engum „fortóum”, þar sem ég labb-
aði mitt í allri umferðinni, teymdi
vörubílinn minn og sagði: „Trann!-
Trann!”
Þakka fyrir að hafa ekki orðið
undir afturhjólunum á vörubílnum
hans pabba, þegar ég datt út úr
honum og pabbi náði að grípa í ökkl-
ann á mér.
Þakka fyrir að hafa ekki dáið úr
mænuveikinni.
Fyrir allt þetta má ég þakka og
ég geri það í huganum á meðan
Benni þakkar fyrir allt hitt.
Og mér finnst það fallegt sem
Jesús kenndi og vildi gjarnan líkjast
honum ef það væri hægt.
En það er nú víst ekki alltaf auð-
velt. Það er ekki gott að gera við
því hvað söngvarnir, sem við höfum
lært hérna eiga vel við þegar við
leikum okkur við að hlaða virki og
vígi og rogumst með stórar hellur
og steina.
Þá syngjum við:
„Vanti Jesú verkamann
vinna léttastörf er kann,
far þú glaður fyrir hann.
Syng af hjarta, syng!”
Góðra söngva gleðimál
gleður marga dapra sál.
Leyfðu Guði sérhvert sinn
'söng að nota þinn!”
Ég efast nú stundum um að Guð
eigi beinlínis við það að við eigum
að skylmast og hlaða vígi um leið
og við syngjum þetta.
En okkur finnst að við séum að
setja á svið það sem segir í söngvun-
um um hermenn Krists og stríðið,
sem við eigum að stefna fram í sem
hinn sterki æskuher.
Og þá hlýtur hann Bjössi að vera
efni í mikinn herforingja eins og
Davíð var.
Bjössi er nýr í selinu og þótt hann
sé feitur mátar hann okkur alla í
skylmingum með alveg splunkunýrri
Á árum áður var það „toppurinn á tilverunni” að eignast matrósa-
föt og viðeigandi húfu. Ómar heilsar að hermannasið, en notar þó
vinstri höndina til þess.
aðferð. Hann stekkur að manni,
sveiflar sverðinu í hringi og stigur
mann svo allt í einu í magann.
Benni er góður og skemmtilegur
foringi.
Við höfum farið með honum í
göngutúra upp að Helgafelli, inn í
hundrað metra hellinn, upp á Búr-
fell og í Helgadal og upp í Valaból.
Margir KFUM-söngvamir eru
hressandi og fjörugir eins og til
dæmis:
„Já, gríðar er gaman að syngja!
Með gleði lát rödd þína klingja!
Því söngur vor aldna má yngja!
Húna! Húrra!”
Nú kunnum við þessa söngva alla
utan að og við vorum hreyknir af
því hvað við sungum þá af miklum
krafti þegar sjálfúr séra Friðriki kom
hingað í heimsókn.
Þá var eins og það væri kóngur
eða yfirhershöfðingi í heimsókn.
Það var stór stund þegar hann sat
inni í sal og við fengum að heilsa
honum, hver fyrir sig og hann kyssti
okkur alla á kollinn.
Hann var með svo mikið skegg
og það var svo mikil vindlalykt af
honum að ég veit að ég mun aldrei
geta gleymt því.
Og hvað við vorum samtaka, þeg-
ar við sungum fyrir hann:
„Þú æskuskari á íslandsströnd ...”
Ómar Ragnarsson heillaðist af leiklistinni þegar á unga aldri og hann var ekki gamali þegar hann steig
sín fyrstu skref á fjölunum — lék kóng í jólaleikritinu Babúsku.
og spruttu allir með látum á fætur,
eins og gert er niðri í KFUM, þegar
við sungum laglínuna:
„... Rís upp með fjöri og stíg á stokk
og streng þess heit að ijúfa ei flokk,
uns sigri er náð og sagan skráð,
er sýnir Guðs þíns náð!”
Nú er þessi heimsókn Séra Frið-
riks að baki og venjulegir dagar tekn-
ir við.
Á næturnar sofum við í kojunum
okkar, sem eru þijár hæðir, og þegar
okkur er mál að pissa, förum við
fram úr og pissum í sérstaka fötu,
sem er á gólfinu.
Einn morguninn varð allt vitlaust.
Tveir strákar fóru að slást og rák-
ust í fötuna, sem var full eftir nótt-
ina svo að hlandið flæddi um allt.
Úr þessu urðu mikil vandræði og
leiðindi en það jafnaði sig allt.
Á morgnana er fánahylling og síð-
an borðum við reiðinnar býsn af
hafragraut, brauði, kexi og skonroki.
Við erum hermenn Krists og þess
vegna borðum við hermannamat.
Það eru aldrei kökur eða gotterí
á borðum allt sumarið, heldur bara
rúgbrauð og skonrok hvem einasta
dag nema síðasta daginn, þegar við
förum.
Þess vegna á vísan um hafragraut-
inn vel við, sem við erum látnir
syngja:
„Hafragrautur góður er.
Gæða sér á honum ber.
Sá, sem hafra-góflar graut
gildur verður eins og naut!”
Þó að maturinn sé einfaldur hef
ég svo góða lyst að það er orðið að
keppni.
I hádegis- og kvöldmat fær hver
strákur venjulega einn disk af fiski
og svo einn disk af graut.
En ég læt mér aldrei nægja minna
en tvo diska af hvoru.
Maður stendur upp og fær aftur
á diskinn hjá henni Mörtu.
Daginn, sem við fórum að skoða
Búrfell og hundrað metra hellinn,
var ég sérstaklega lystarmikill um
kvöldið.
Þá setti ég Kaldárselsmet, sem
sennilega verður seint slegið.
Strákamir fylgdust með af áhuga
þegar ég renndi niður af hveijum
diskinum á fætur öðrum og fór jafn-
óðum til Mörtu að fá meira.
Loksins fékk ég ekki að borða
meira.
Hún var hrædd um að ég myndi
springa.
Þá hafði ég hesthúsað af alls níu
diskum, þremur diskum af fiski og
kartöflum og sex diskum af graut!
Umhverfið í Kaldárseli er mjög
skemmtilegt.