Morgunblaðið - 02.09.1982, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1982
11
THE OBSERVER
PAKISTAN
Þrýst á herforingjana
um pólitískar umbætur
Enginn hefði spáö því, er Zia-ul Haq hershöfð-
ingi tók við æðstu völdum í Pakistan í júní 1977,
að hann myndi enn sitja þar fimm árum síöar.
Ýmiss konar alþjóðlegar hræringar hafa orðiö til
þess að gera honum vært svona lengi, og stjórn-
arandstöðuflokkarnir í Pakistan hafa þurft að
halda að sér höndum. Þessir flokkar hafa mynd-
að breiðfylkingu undir nafninu Hreyfing til
endurreisnar og lýöræðis.
Og nú hafa síöustu atburöir í
Líbanon og stríöiö milli írana og
íraka gefiö Zia enn eina átyllu til
aö komast hjá almennum kosn-
ingum, en þegar hann tók viö
völdum lofaöi hann því aö efnt
yröi til kosninga í landinu innan
90 daga. Heforingjarnir sem fara
meö völd í Pakistan hafa iöulega
sagt: — Landamærum ríkisins er
ógnaö og því getur herinn ekki
afhent borgurunum völdin í land-
inu. Þaö er nú talið ósennilegt aö
þessar röksemdir hríni á öllu
lengur.
í desember nk. ætlar Zia í
mjög þýöingarmikla, opinbera
heimsókn til Washington og
fregnir herma, aö hann muni ef til
vill gera einhvers konar tilslakan-
ir frá herlögum til þess aö kom-
ast hjá gagnrýni Bandaríkja-
manna. Pakistanar hafa þegar
undirritaö tilboö Bandaríkja-
manna um 3.2 milljaröa dollara
þróunaraöstoö. Von er á heilum
her bandarískra hernaöarráö-
gjafa til Pakistan til aö veita
landsmönnum leiöbeiningu og
aöstoö samkvæmt því sem í
áætluninni segir.
Ógerlegt viröist aö efna til al-
mennra þingkosninga fram í des-
ember, því aö þá myndi þjóöar-
flokkur frú Bhutto, sem er flokka
verst séöur hjá ríkisstjórninni.
áreiöanlega bera sigur úr býtum.
Hvorki Bandaríkjamenn nó vell-
auöugir stuöningsmenn Pakist-
ana í arabaríkjum gætu hugsaö
sér aö vinstri sinnuð stjórn kæm-
ist til valda í Islamabad.
Zia hefur viöraö ýmsar hug-
myndir um, hvernig lappa megi
upp á stjórnarfariö j landinu. Ein
er sú, aö efnt veröi til kosninga,
sem enginn stjórnmálaflokkur
byöi fram til. Sérstök nefnd Mú-
hameöstrúarmanna myndi til-
nefna frambjóöendur, sem ekki
tilheyröu neinum stjórnmála-
flokki. Breiöfylking stjórnarand-
stööuflokkanna er lítt ginnkeypt
fyrir þessu úrræöi. Aö mati henn-
ar yröi slík tilhögun ekkert skárri
en Majlis-e-Shoora, en þaö er
ráö manna, sem valdir eru af
handahófi. Zia segir, aö þaö sé
raunveruleg íslömsk ríkisstjórn,
en í raun réttri samanstendur
hún af skósveinum forsetans,
sem fá ekki aö fjalla um mál fyrr
en herforingjastjórnin hefur af-
greitt þau.
Háttsettir aöilar í hernum
segja, aö í raun réttri sé herfor-
ingjastjórn ósvikiö íslamskt
stjórnarfar. Aörir telja, aö Pakist-
anar eigi aö fara að dæmi Tyrkja,
Indónesa og Bangladesh og láta
stjórnarskrá landsins kveöa á um
hlutverk hersins. Ekki er Ijóst,
hvaö Zia hyggst fyrir í þessum
efnum. Hitt er Ijóst, aö herfor-
ingjar fara meö tögl og hagldir í
landinu á nánast hvaöa sviöi
þjóölífsins sem er.
i Pakistan hafa tvívegis áöur
ríkt stjórnir í skjóli herlaga. Hvor-
ug þeirra seildist eins langt til
áhrifa innan rikisbáknsins og at-
vinnulífsins og sú er nú situr.
Hershöföingjar á eftirlaunum fara
nú með stjórn helztu atvinnufyr-
irtækja landsins, og yngri her-
menn ganga til starfa í ráöuneyt-
um, er fjalla um efnahagsmál,
samgöngur, stjórnun og fjöl-
miöla.
Um þaö bil 15 hershöfðingjar
gegna sendiherraembættum víös
vegar um heim, og nýskipaöur
utanríkisráöherra Pakistan hefur
einnig veriö nershöföingi.
Þessi ásókn hersins inn á öll
sviö þjóölífsins hefur leitt til mik-
illar andúöar við hann í ríkiskerf-
inu, innan lögfræöingastéttarinn-
ar svo og víöa í atvinnulífinu. En
margir hafa þó oröiö til þess aö
taka upp hanzkann fyrir herfor-
ingjastjórnina. Þeir segja aö hún
hafi gætt þjóölíf og efnahagsmál
landsins talsveröum stööugleika
eftir glundroöann, sem var viö
lýöi í forsetatíö Zulfikar Ali
Bhutto.
Herinn er undir miklum þrýst-
ingi frá samtökum hægri sinn-
aöra Múhameðstrúarmanna. Zia
forseti hefur leitt Múhameðstrú
til meiri vegs og viröingar en
nokkur af fyrirrennurum hans, en
hægri sinnuö öfl, einkum öfga-
samtökin Jamaat-i Islami krefjast
þess aö landiö veröi algert Mú-
hameöstrúarveldi. Þessi samtök
hafa náin tengsl viö Bræöralag
Múhameöstrúarmanna í Austur-
löndum nær og áratugum saman
hafa þau starfaö meö leynilegum
hætti. Þau hafa skipulagt starf-
semi sína mjög vel og komiö
stuöningsmönnum sínum aö inn-
an hersins, stjórnkerfisins og í
öðrum lykilstööum.
Starfsemi samtakanna byggist
mikiö á leynilegum starfshópum
eöa sellum, eins og tíökast i
kommúnistaflokkum. Herfor-
ingjastjórnin hefur nánast lagt
blessun sína yfir starfsemi þeirra,
en slíkt hafa fyrri stjórnir landsins
aldrei gert. Jamaat-samtökin
hafa löngum fengiö drjúgan fjár-
stuöning frá Saudi-Arabíu, og
andstæöingar þeirra fullyröa, aö
þeir njóti einnig fjárstuönings frá
Bandaríkjunum.
Jamaat-samtökin greinir aö
sumu leyti á viö trúbræöur sína í
íran. í utanríkismálum eru þeir
t.d. mjög hallir undir Bandaríkja-
menn. Samtökin hafa aldrei haft
áhuga á aö stofna til fjöldahreyf-
ingar, sem hrifsaði vöidin í land-
inu í sínar hendur. Vinnubrögö
þeirra hafa verið þau að koma
stuöningsmönnum sínum í ýmsar
áhrifastööur og ná þannig smám
saman völdum.
Sumir stjórnmálamenn telja,
aö finni Jamaat snöggan blett á
Zia forsætisráöherra, muni þeir
reyna aö steypa honum af stóli
með stuðningi skoöanabræöra
sinna úr hernum. Slíkt tiltæki
myndi hins vegar veröa illa séö,
því aö almenningur í landinu ber
þungan hug til Jamaat. Aörir sér-
fræöingar segja, aö Zia muni
taka ómakiö af Jamaat og ætli
sjálfur aö sjá um aö íslömsk áhrif
veröi alls ráöandi í efnahags- og
þjóölífi. En ekki eru allir í hernum
ánægöir með þessa stefnu for-
sætisráðherrans. Starfshættir
hersins hafa frá fornu fari tekiö
miö af brezkum erfðavenjum, og
þaö samræmist þeim ekki aö
hann sé aö vasast í trú- og
stjórnmálum. Fulltrúar þessara
sjónarmiöa vilja aö herinn hætti
öllum afskiptum af stjórnmálum
og snúi sér þess í staö aö her-
mennsku. Zia hefur reynt aö hafa
þessa menn góða með því aö fá
þeim störf á efnahagssviöi og
ýmiss konar stjórnun, þar sem
þeir fá góö laun, óskoraö vald og
hafa góöan aögang aö mútum og
spillingarstarfsemi, sem hingaö
til hafa veriö forréttindi óbreyttra
borgara. Þaö er engum efa
bundið, aö baráttuhæfni hersins
hefur fariö dvínandi á síöustu 5
árum vegna spillingarinnar í
ríkiskerfinu, sem er af ótrúlegri
stæröargráöu.
Hvaö sem um Zia-ul Haq má
segja, veröur ekki af honum
skafiö aö hann kann þá list aö
leika tveimur skjöidum. Honum
hefur tekizt aö ala á sundurlyndi
meöal andstæöinga sinna, en
lætur þá jafnframt stööugt lifa í
voninni um, aö brátt geti komiö
til kasta þeirra.
Nú, er líður aö fyrirhugaöri
heimsókn forsetans til Bandaríkj-
anna, væntir fólk þess enn á ný,
að lýöræðisleg og borgaraleg öfl
komist til einhverra áhrifa. Hins
vegar eru hverfandi líkur á því aö
svo veröi, eins og málin standa.
— JOHN STOKES
Paðerekkiáhven^.^
'ssSfsssu
TatyönU °9 G^.nRov Fransen.
^utomXmsemhérsegir:
Laugardag og sunnudag.
- k rÆ---
- 20-00 ^XamirTatyanaog
GennadyBondarchuk^^
99 45 Ofurhuginn RoV
22 13 en miðasala hefst kl. 12
«■ 1600 S'arnirTatyanaog
Gennady Bondarchuk.
- 2000 Akrobafarnir Tatyana og
GennadyBondarchuk^
__ 22.45 OfurhugmnRoy