Morgunblaðið - 02.03.1972, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.03.1972, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, KÍMMTUDAGUR 2. MARZ 1972 31 Rey k j avíkurúrvalið sigraði 89-79 - eftir að staðan hafði verið jöfn að venjulegum leiktíma loknum f fyrrakvöld vom leikuir tveir leikir í körfubolta í Laugardals- liöllinni. Fyrri leikurinn var leik ur niilli kvennaliðs af Keflavík urflugvelli og ÍB og síðari leik- urinu var fjórði leikurinn í Iiinni árlegu Sendiherrakeppni. — Báðir voru þessir leikir æsi- spennandi, og fer nú varia fram leikur i körfubolta hér í Bvik án |>ess að allt sé á suðumarki i leikslok. Fyrri leikurinn var hnífjafn allan tímann, og í hálfleik var staðan 16:15 fyrir Vallarstúlk- urnar. í byrjun síðari hálfleiks leit iþó út fyrir að IR ætlaði að bera sigur úr býtum, því þær komust í 6 stiga forskot, 25:19. En eítir það gekk allt á aftunfótunum hjá iR, og liðið skoraði ékki eitt ein asta stig það sem eftir var leiks ins. En hinar skoruðu jafnt og þétt það sem eftir var leiksins og komust í 26 stig. — Að vísu fékk iR gullið tækifæri á a.m.k. jafntefli, þegar liðið fékk tvö viitaskot á siðustu sekúndu leiks ins. En taugar iR-stúikunnar sem skotin fmmkvæmdi brugð- ust, og hún hitti úr hvorugu skotinu. Það var vitað mál, að síðari leikurinn, sem'var milli Vamar- liðsins og Rvíkurúrvalsins myndi verða jafn og spennandi. En að hann yrði það hnífjafn að framlengingu þyrfti tií þess að fá fram úrslit reiknaði mað- ur nú e.t.v. ekki endilega með. —- Liðin fylgdust að allan leik- inn, og mesti munur á liðunum í leiknum var fimm stig. Rvík- urliðið lék þá mjög misjafnlega góðan körfubolta, sýndi glæsi- legan leik af og til, en svo fór allt i handaskolum inn á milli. Sérstaklega var áberandi ein- hver taugaveiklun i byrjun leiks ins, en þá var boltinn gefinn næstum eins oft til móéherja eins og samherja. — eftir að staðan hafði verið 34:33 í hálf- leik fyrir VL náði það að kom- ast fimm stig yfir i byrjun síð- ari hálfleiks. En okkar menn voru ekki á þvi að gefast upp, og þegar hálfleikurinn var hálfn- aður var búið að snúa dæminu við, og nú var fimm stiga mun- ur fyrir Rvik 55:50. En VL lék fast til sigurs sem endranær, og um tima leit líka svo út sem þeim ætlaði að takast að sigra. Þeir höfðu nefnilega tvö stig yfir þegar 15 sek. voru til leiksloka þegar Nelson, þeirra.bezti mað- ur var einsamall i hraðaupp- hlaupi með boltann eftir mis- heppnaða sendingu Kolbeins Pálssonar. En Nelson gerði, það sem maður hefur aldrei séð til hans áður, hann brenndi af und ir körfunni og Kolbeinn Pálsson sem fylgt hafði á eftir sneri vörn í sókn. Hann .brunaði á ofsahraða upp allan völlinn, og þegar hann fór yfir miðlínu sýndi klukkan að fjórar sek. væru eftir. Svo Kolbeinn var ekkert að hangsa við hlutina heldur fór upp í húkkskot af fimm metra færi með stóran mann VL utan á sér. Og það ótrú lega gerðist, boltinn fór bein- ustu leið í spjaldið og síðan ofan í körfuna, og um leið glumdi klukkan. Jafntefli varð 71:71, og þvi þurfti að framlengja í einu sinni fimm mín. Og ísl. liðið var ekkert að tví nóna við hlutina í franilenging- unni. Spilað var annað sóknar- kerfi, 1-3-1 og við gliesilegmn leik okkar nianna áttu VL-nienn ekkert svar. Hvert skotið af fætur öðru hafnaði í körfunni, og þeg- ar flautan gall í leikslok var Bvíkurúrvalið yfirburðasigurveg- ari, liafði unnið framlenginguna 18:8, og leikinn þvi með 89:79. Liðið sýndi jvá að það er til ýmissa afreka liklegt á Pol- ar Cup, seni framundan er, og nái það að sýna eitthvað svipað an leik þá, er ástæða tii bjart- sýni. En leikmenn þeir sem leika í Sendiherrakeppninni fyrir Beykjavik leika allir í landslið liðinu. Birgir Jakobsson var stigahæstur með 18 stig, þar af 10 í framlengingunni, en þeir Þórir Magnússon og Agnar Frið riksson skoruðu 16 livor. Hjá VL var Nelson (nr. 20) stigaliæstur með 20 stig. Tæikinn dæmdu þeir Erlendur Eysteinsson og Kristbjörn Al- bertsson, og voru lítt sannfær- andi. srk- íslendingar sigruðu Birgir Jakobsson sýndi mjög góðan leik í franilengingunni og skoraði þá 10 stig. Skota 112-100 — í landskeppni á skíðum Islendingar sigruðu Skota í landskeppni á skiðum, en keppn In fór fram í Skotlandi um síð- ustu helgi. Er þetta í annað skiptið sem íslendingar og Skot ar heyja landskeppni á sldðum, í fyrra skiptið fór keppnin fram á fsafirði, og þá sigruðu Islend- ingar einnig. Að jiessu sinni sigruðu fslend Ingar með 112 stigum gegn 100 stigiim Skota, en Skotarnir höfðu haft forystu eftir fyrri dag keppninnar 54:52. íslenzku keppendurnir í lands keppninni voru eftirtaldir: Haf- steinn Sigurðsson, Isafirði, Björn Haraldsson, Húsavík, Jónas Sig urbjörnsson, Akureyri, Amór Guðbjartsson, Reykjavík, Reyn- ir Brynjólfsson, Akureyri, H'á- kon Ólafsson, Siglufirði, sem jafnframt var fararstjóri hóps- ins og Áslaug Sigurðardóttir Reykjavík. Landskeppnin var haldin í tengslum við skozka meistara- mótið, og tóku auk Islendinga og Skota bæði Austurríkismenn og Norðmenn þátt í mótinu. Aðstæður voru allgóðar og snjór nægjanlegur. Fyrri dag inn var keppt í stórsvigi, og var nokkur þoka á meðan keppnin fór fram. Úrslit í stórsvig- inu urðu þessi: 1. Zepp Gufler, Austurríki. 2. Alan Stewart, Skotlandi. 3. Bjöm Oppedal, Noregi. 4. Stewart McDonald, Skotl. 5. Hafsteinn Sigurðsson, Islandi 6. Marten Röd, Noregi. 7. Bjöm Haraldsson, fslandi. 8. Arnór Guðibjartsson, 9. Jón- as Sigurbjörnsson, 17. Reynir Brynjólfsson, 20. Hákon Ólafs- son. Keppendur voru milli 50 og 60 talsins. 1 stórsvigi kvenna varð Ás- laug Sigurðardóttir í 6. sæti, en hún hafði verið i 2. sæti eftir fyrri ferðina, en hlekktist á í síðari ferðinni. Síðari daginn var svo keppt í svigi og var þá hvasst og nokk- ur skafrenningur. Úrsiitin urðu þessi: 1. Leo Schöpf, Austurríki. 2. Hafsteinn Sigurðsson, fslandi. 3. Zepp Gufler, Austurríki. 4. Stewart Fipzsemmons, Skotl. 5. Marten Röd, Noregi. 6. Alan Stewart, Skotlandi. 8. Hákon Ólafsson, 15. Reynir Brynjólfsson, 18. Arnór Guð- bjartsson. Þau Björn, Jónas og Áslaug voru dæmd úr leik, en Björn hafði haft þriðja bezta timann, eftir fyrri umferðina. Sigurvegari í tvíkeppninni varð Gufler, Austurríki, annar varð Hafsteinn Sigurðsson. þriðji Alan Stewart, níundi Há- kon Ólafsson, 12. Arnór Guð- bjartsson og 14. Reynir Brynjólfsson. Finnur setti tvö met TVÖ Islandsmet voru sett á sundmóti Ægis, sem fram fór í Sundhöllinni í fyrrakvöld. Finn- ur Garðarsson bætti eigið met í 200 m skriðstindi í 2:05,2 mín., en þeim árangri náði hann i 4x200 m skriðsimdinu, en í því setti sveit Ægis met, er hún synti á 8:45,0 mín. Gamla metið átti sveit Ægis, en það var sett í fyrra og var 8:52,4 min. Skemmtileg keppni var í flest- um greinum Ægissundmótsins, einkum þó í 100 m bringusundi karla, þar sem þeir Leiknir Jóns- son og Guðjón Guðmiindsson háðu hnifjafna baráttii. Leiknir var dæmdur á undan og fékk tímann 1:12,0 mín., en timi Gnð- jóns var 1:12,1 mín. — Minnl gat munurinn ekki verið. Hrafnhildur Giiðmundsdóttir náði ágætu afreki í 100 m skrið- sundi, synti á 1:06,9 mín., og sýnir þetta afrek hennar að ekkl er ótrúlegt að hún nái Olympiu- lágmarkinu. Skóla- mótið í GÆR voru leiknir þrír leikir í skólamótinu og urðu úrslit þeirra þessi: GA — Stýrimannaskólinn 5:9 Lindargötuskólinn — Réttarholts skólinn 4:1 KÍ — Tækniskólinn 0:1 f DAG, fimmtudaginn 2. ma.rz, fara eftirtaldir leikir fram I Skólamóti KSÍ: Melavöllur: Kl. 14:30 Háskólinn — Mennta- skólinn v/Hamrahlið. Kl. 15:45 Menntaskólinn v/Tjörn- ina — Ármúlaskólinn. Kl. 17:00 Víghóiaskólinn — Verzl- unarskólinn. Háskólavöllur: Kl. 17:00 Iðnskólinn í Reykjavik —- Þinghólsskólinfn. fslenzka landsliðsfólkið: falið frá vinstri: Bjiirn Haraldsson, Arnór Guðbjartsson, Hákon Ólafs son, Ástaug Sigurðardóttir, Beynir Brynjólfsson, Hafsteinn Sigu rðsson og Jónas Signrbjörnsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.