Morgunblaðið - 02.03.1972, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.03.1972, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAEHÐ, FIMMTUÐAGUR 2. MARZ 1972 - Viðtalið við James Johnson Framhald af bls. 1 brezáía þinginu. Morguntolaðið vísaði í upphafi til yí'irlýsing- ar Anthony Royle í brezka þinginu í fyrradag þess efnis, að brezka ríkisstjórmin teldi brezka togana hafa rétt til veiða innan 50 mílna mark- anna og spurði þingmanminm, hvernig haran teldi að Bretar mundu fylgja þessu sjónar- miði fram. Johnison svaraði: Enn eru sex mánuðir til stefnu, fram til 1. september, svo að við hljótum að vona, að á næstu sex mánuðum ná- ist einhvers konar samkomu- lag. En náist ekki samkomu- lag, á gagnkvæmum grunni byggt, þá er enginn vafi á þvl, að skipstjórar okkar og sjómenn í Hull og frá öllum höfnum öðrum, munu freista þess að veiða innan fimmtíu sjómílna markanna. Ég ræddi við skipstjóra í Hull á laug- ardagsmorgun og þessi er af- staða þeirra. Otgerðarmenn, skipstjórar, hafnarverka- menn sem vinna að löndun og allir aðrir, sem málið snert ir, eru þeirrar skoðunar, að þetta skuli gert. En þess ber að gæta, að enn eru sex mán- uðir til stefnu. Stjórnin hefur og látið auka vernd okkar eigin fiskiskipa- flota og mun ef til vill auka gæziu enn á næstu mánuð- um, augljóslega til að vernda okkar eigin 12 mílna landhelgi vegna inngöngu okkar í EBE. En auðsætt má vera, að skip sem verja okkar eigin land- helgi má einnig nota til varn- *r annars staðar. Enginn vafi leikur á því nú, að meðal alira þeirra sem hlut eiga að máli þ.e. útgerðarmanna og sjómanna, verkamanna og að sjálfsögðu ríkisstjómarinnar er ríkjandi afdráttarlaus ein- hugur um þetta efni. Stjórn- arandstöðuiþingmenn eru þessu fylgjandi/* Morgunblaðið spurði hinn brezka þin/gmann að því, hvort Bretar mundu senda herskip til þess að vemda brezk fisikiskip í íslenzkri landhelgi og hann sagði: — Þessu get ég ekki svar- að að svo stöddu, en efitir u. þ.b. hálfan mánuð eða svo, mun ég e. t. v. getað tjáð skoð anir mínar á því, þar eð ég fer með sendinefnd til ráð- herra nú aiveig á næsbunni. Við héldum fund í sjávarút- vegsnefndinni sl. mánudag og var þá ákveðið að ég, Anthony Crosland, þingmaður frá Grimsby, og skozkur þingmað ur tækjum okkur ferð á hend ur í utanrikisráðuneytið og kynntum okkur, hvemig mál- inu yrði framfylgt og hversu iangt yrði gengið. Þá var James Johnson innt- ur eftir þvi, hvort brezka rik- isstjómin mundi að hans dómi leita álrts Alþjóðadómstólsins i Haag á lögmæti uppsagnar Islendinga á samkomuilaginu frá 1961 og hann svaraði: — Það skilst mér að sé fyrirsetlan stjómarinnar. Ég feHst á það sjónarmið. Þeir telja og hafa aJitaf talið að þessu ágreiningsmáli sem er milli þjóða okkar skuii visað til þriðja aðila, þ. e. Aiþióða- dómstólsins í Haag. Þeir álita að það skuli leyst á sama hátt og væri nriHi Bretiands og Noregs eða Bretlands og Dan- merkur og ef málstaðurinn — og auðvitað lítur íslenzka þjóðin svo á, að hún hafi góð an máistað að verja — er góð- ur og réttur, mun dómstóll- inn væntanlega taka málið til meðferðar. f framhaldi af þessu svari Johnsons var hann spurður, hvort brezka ríkisstjómin mundi vísa þessu máli til Al- þjóðadómstólsins, jafnvel þótt íslendingar neituðu að mæta fyrir dómstólnum. Hann sagði: — Um það treysti ég mér tæpast til að segja að svo stöddu. En ég geri þó ráð fyr- ir því að svo verði. Væntan- iega gæti ég sagt af eða á um það etftir tíu daga eða svo, þegar við höfum hitt ráðherr- ann að máli. En mér skilst, að bnezki sendiherrann Mac Kenzie hafi verið kvaddur til London til viðræðna við ráð- herra og í ljósi viðræðna hans og ráðherrans og með hliðsjón af ákvörðunum stjórnarinnar munum við sjálfsagt bera saman bækur okkar og draga af þeim okk- ar ályktanir. Þá beindi Morgunblaðið þeÍTri fyrirspurn til þing- mannsins, hvort hamn teldi hugsanlegan samkomulags- grundvöll vera fyrir hendi ef íslendingar veittu Bretum umþóttunartíma innan 50 mllna markanna gegn viður- kenningu brezku rikisstjóm- arinnar á 50 mílna fiskveiði- lögsögunni. Hann svaraði: — Ég tel það ekki. Áður leit ég svo á sjálfur, að slíka ráðstöfun -mætti reyna að at- huga. En nú er trúa mín sú, að ríkisstjórnin sé þeirrar skoðunar og raunar allar greinar sjávarútvegsins Mka, að ef við og stjórnin í Bonn tækjum undir þetta sjónarmið jafngilti það því að við íéll- umst á skoðanir íslendinga. Morgunblaðið spurði Jam- es Johnson, hvort vænta mætti nýrra tillagna frá brezku ríkisstjóminni til lausnar landhelgisdeilunni í þeim viðræðum, sem væntan- lega ættu enn eftir að fara fram miHi fulltrúa rikis- stjórna landanna. Hann kvaðst ekki geta svarað því. Það væri mál Joseph Godber eða Anthony Royle (báðir að- stoðarutanríkisráðherrar) að svara til um það. Ég mun sjálfur spyrja ráðhemana um þetta, sagði þingmaðurinn en ég get ekki talað fyrir hönd ríkisstjómar íhalds- flokksins. Loks beindi Morgunhlaðið þeirri spumingu tii James Johnson, hvort hann teldi lák- legt, að löndunarbann yrði sett á íslenzkan fisk í brezk- um höfnum, ef samkomulag tækist ekki í landhelgisdeil- unni fyrir 1. september. Svar hans var þetta: — Þetta er spuming, sem ég get ef til vill svarað að þvi leyti, að fulltrúar hafnar- verkamanna í Hull og annars staðar, hafa komið saman til fundar í London og rætt við þingmenn um þetta. Ég segi í einlægni, að verkalýðssam- bandið sjálft talar um að setja í bann sérhvert islenzkt skip sem kemur inn á Hum- berána eða til Fleetwood og Leith og annarra hafna. Þetta þýðir, að sjálfsögðu, eins og með þýzk skip eftir fyrri heimsstyrjöldina, að ef ís- lenzku skipin koma inn á Humber og hafnarverkamenn irinir setja þau í bann geta þau ekki landað fiskinum. í hreinskilni verð ég að segja, að hafnarverkamennimir hafa sagt hreint út, að ef svo ilia tekst til að samkomulag tekst ekki munu þeir ekki landa fiskinum. Þetta er stað- an í augnablikinu. YFIRLÝSING - frá póst- og símamálastjóra Morgimblaðinu barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning: „VEGNA ummæla foTmanins út- varpsráðs í sjónvarpsþættinum „Setið fyrir svörum" svo og í viðtali við Alþýðublaðið 23. febrú ar sl. þess efnis að varaarliðmu á Keflavikurflugvelli hafi upp- Ihaflega verið veitt heimild til Bjónvarpsreksturs á grundvelli fjarskiptalaganna nir. 30/1941 vit ég taka fram eftirfarandi stað- reyndir til þess að skýra hið rétta í þessu' máli: í marz 1955 veitti utanríkis- xáðuneytið bráðabirgðaleyfi til tilraunasjónvarps á Keflavikur- flugvelli fyrir varnarliðið þar. Þegar slík heimild var fengin frá rikisBtjómánini gaf póst- og síma- málastjómin vamarliðinu tæfcni- legt leyfisbréf um bráðabirgða- heimild til tilraunasjónvarps á tíðnisviðinu 180—186 megarið/ eek. ásamt þeim skilyrðum, sem ráðuneytið hafði sett fram um afl tíl loftnets og aðalútgeislun frá loftneti. Aðgerðir pósts og síma voru í þessu tilviki í sam- ræmi við ákvæði alþjóðafjar- ekiptasamningsins um útgáfu tæknilegra leyfisbréfa radíó- stöðva í landinu, og eru ákvæði þar að lútandi einnig í íslenzku fjarskiptalögunum. Haustið 1956 óskaði vamarlið- ið eftir breytingu á leyfisbréfinu, en utanrikisráðuneytið veitti þá ökki heimild til umbeðinmar breytingar, og var leyfið því ó- breytt um sinn. En í aprílmánuði 1961 heimilar utanríkisráðuneyt- ið, að póst- og sámamálastjómin geri þá breytingu á tilraunaleyfi því, er gilti um sj ónvarpsstöð á Keflavíikurflugvelli, að útgeislað afl sjónvarpsstöðvarimnar megi auka í allt að 250 w. Samkvæmí þessu er því aug- Ijóst, að póst- og símamálastjórm- in gefur ekki út tækinileg leyfis- bréf fyrr en fyrir liggur grund- vallarheimild réttra stjómvalda, sem í umræddu tilviki var utan- ríikismálaráðuneytið, en undir það ráðuneyti heyrðu meðal annars útvairpsmál, svo og. póst- og sároamál á Keflavíkurflug- velli að því er varðaði vamar- liðið, og hefur því lögleg ákvörð- un verið tekin af réttum stjórn- völdum, bæði fyrir sjónvarp og hljóðvarp. Að lokum tel ég rétt að taka það fram, að leyfið fyrir sjón- varpsrekstri vamarliðsins é Keflavíkurvelli hefur aldrei verið veitt á grundvelli fjarskiptalag- anma, það er sarn/kvasmt eðli máls ins augljós misskilningur. Hins vegar er sennilegra að umrædd leyfisveiting hafi verið byggð á ákvæðum í vamarsamningnum. Reykjaví'k, 25. febrúair 1972, póst- og símamálastjóri. Gamla krónan i fullu verðgildi BÓKA MARKAÐURINN StllA OG VALDA- HÚSINU ÁLFHEIMUM Athugasemd STJÓRN Bændahallarinnar hef- uæ beðið Morgunblaðið að geta þess, að formaður stjómar Bænda hallarinmar er ekki „arkitekt í Reykjavík“, eins og fram kom í greim Hermóðs Guðmumdssonar í grein i Morgunblaðinu í gær. — Formaður stjórnarinmar er Ólaf- ur E: Stefánsson, ráðunautur Búnaðarfélags íslamds. * N orður-Irland; Skotinn í aug- sýn dótturinnar Belfast, 1. marz, NTB, AP. TVEIR menn úr írska heima- varnarliðinu vorn skotnir til bana í gærkvöldí og í morgun, annar þeirra á heimili sínu í augsýn ellefu ára dóttnr sinnar, sem einnig varð fyrir skoti og hlaut sár á fæti. Hermenn og lögregla hafa leitað morðingj- anna ákaft en árangurslaust. í báðum tilvikum voru „byssu- mennirnir" með hettu á höfði. Hins vegar segir yfirstjórn brezka hersins, að handtekinn hafi verið einn af heiztu sprengju smiðum ,,provisionaI“ IRA, þar sem hann var í felum á geyinslu- lofti í húsi einu í Andersons- town, einu af kaþólsku hverfun- um í Belfast. Alls hafa nú verið drepnir á Norður-írlandi 253 menn sl. 31 mánuð. Mikið vaT um sprengingar á N-lrlandi í dag, einkum i Belfast og Londonderiy. 1 Newry særð- ist lögreglumaður alvarlega af skotsárum í gær og í sjúkrahús- inu i Londonderry hafa brezkir heilaskurðlæknar barizt i dag fyrir lífi þritugs manns, sem skotinn var í höfuðið. Brian Faulkner, forsætisráð- herra N-lriands, hefur enn á ný gagnrýnt John Lynch, forsætis- ráðherra Irlands, og sakað hann um að samsinna morðum og hryðjuverkum Irska lýðveldis- hersins með þvi að taka á hon- um vettlingatökum. Fundur Heaths og Pompidous 18. marz London, 1. marz — NTB-AP FIINDUE George I'ompidons, forseta Frakklands, i»g Edwards Heaths, forsætisráðherra Bret- lands, sem upphaflega átti að vera 19. og 20. febrúar sl. verð- ur haldinn að Chequers, sveita- setri brezka forsætisráðherrans, dagana 18. og 19. marz að því er tilkynnt var í London í dag. Fundinum var upphaflega frestað vegna verkfalls verka- manna i brezku kolanámunum. Búizt er við, að þeir Heath og Pompidou ræði fyrst og fremst um málefni Efnahagsbandalags- ins, en einnig samskipti austurs og vesturs, þróunina í Mið-Aust- urlöndum og Asíumálin í sam- bandi við Kínaheimsókn Nixons, Bandaríkjaforseta. SEX ára ielpa, Klínborg Harðar- dóttir, Grettisgötu 5, meiddist á höfði, er hún varð fyrir bíl á Laugavegi i fyrrakvöld. Hún liggur nú í Borgarspítalanum, en meiðsli hennar ern ekki tal- in mjög alvarlegs eðlis. Elínborg litla var á hlaupum frá Laugavegsapóteki inorður yf- ir götuma, þegair hún lemiti fyrir fólksbíl. Neyðar- ástand hjá róm- verskum köttum Róm, 1. marz — NTB HUNGURSNEYÐ er nú fyrir dyrum katta Rómar vegna þess, að manmfólkið notar í vaxandi mæli plastpoka utan um rusl, sem það fieygir. Kattavinir hafa auðvitað hafið mikla herferð, undirbúið kattasýningu í einu finasta hverfi borgarinnar og skrifað f jölda greina um kctti. Þeir segja m.a., að ahnenning- ur geri sér aiis ekki grein fyrir hversu kettirnir geri mikið gagn við að halda rottuplágunni í skefjum. Aðrir Rómverjar eru lítt snortnir og segja, að ef kett- imir fái ekkert að éta hjá mönn- umira, mumi þeir bara hafa enn betri lyst á rottunum. - NÆSTI Framhaíd af bls. 1 sem kemur næst sarnan í sept- enriber nk. og er haft fyrir satt, að A-Evrópuþjóðimar hafi fyrir löngu komið sér saman um að hann verði að þessu sinni frá Póliandi. Hatfi pólska stjómin tilnefnt Trep- czynski og sé ólikiegt annað em hann verði samþ.vkktur, þegar þingið kemur saman. -SÝRLAND Framliald af bls. 1 þeirra sé óbugað, þrátt fyrir fjög urra daga hemaðaraðgerðir gegn þeim. ísraelar hafa fyrir sitt leyti tilkynnt að aðgerðir þeirra hing- að til hafi aðeins beinzt gegn skæruliðum. Ef hins vegar stjóm ir þeirra landa sem hýsa þá, hafi i hyggju að veita þeim hemaðar- legan stuðning, muni þeir snúa sér að þeim lika. Málfunda- námskeið Heimdallar Heimdalhir, samtök ungra sjálfstæóismanna i Beykjavik, efnir tíl málfundanámskeiðs i félagsheimilinu ValhöII, Suður- götu 39. Námskeiðið verður 7. ©g 9. marz (þriðjudag og finiml udag) bæði kvöldin kl. 20.30. Stjórnandi verður ViIhjáJmur Þ. Vilhjálmsson, stíid. jur. Nokkrir þekktir mælskumenn koma í heimsókn ð námskeiðlð og flytja stutt erindi nm taina einstöku þættí. Leiðbeint verðnr um ýmsa þætti ræðumennskn og funda skapa, svo sem framsögu, funða- stjóm og einnig um fundaform. Þðtttaka tilkynnist I sfana 17102 og er ölltim heimil. MA frumsýndi Minkana LEIKFÉLAG MA frumsýndi á suimudagsikvöld sjónleikinn Mtokana etftir Eriin/g E. Halldórs son og var hér um f rumflutntog leikritsiins að ræða Leikstjóri var María Kristjánsdóttir, en leiikmynd gerði Ivan Török. Tón- list sömdu 4 nemendur MA. Leikendur eru alis 24, en Mut- verk eru 28. Næsta sýntog er I kvöld. — Sv. P.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.