Morgunblaðið - 02.03.1972, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.03.1972, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1972 14 Danskir rekstrarhag- fræðingar í HÍ Halda fyrirlestra í boði viðskiptadeildar HÉR á landi eru nú stödd í lioði viðskiptadeildar Háskólans pró- fessor Arne Rassmunsen frá Verzlunarháskólanum í Kaup- mannahöfn og kona hans, frú Karen Gredal, sem einnig er rekstrarhagfræðingur. Bæði halda fyrirlestra fyrir nemendur viðskiptadeildar H.Í., sem eink- um munu fjalla um sölumark- aðsstarfsemi og neytendamál. Landsbanki íslands gaf árið 1961 í tilefni af 75 ára afmæli bankans og með hliðsjón af 60 ána afmæli Háskólans, viðskipta- deild fyrirheit um að standa straum af erlendum fyrirlesur- Akureyri, 29. febrúair. STRENGJASVEIT TónJistarskól ans í Reykjavíik iék á vegum Tónlistarfélags Akureyrar í Borg arbiói á laugardaginn. Stjómandi var Ingvar Jónasson og 7 hinna unigu stúlkna, sem s'kipa sttrengjasveitina, léku einleik. Viðfangsefnin voru eftir ýmsa erien da höfunda O'g þar að auki voru tilbrigði eftir stjómand- anm og fjögur isilenzk þjóðlög i útsetningu hans. Hinar ungu listakonur fengu feiknagóðar við tökiuir áiheyrenda, enda var framimistaða þeirra með ágæt- uin — Sv P. um, sem væru hér til nokkuð langs tima. Þá má getfi þess að viðskiptadeildin er 30 ára á þessu skólaári og því vel til fall- ið að halda upp á afmælið með þessum hætti. Prófessor Ame Rassmunsen hefur um langt skeið verið í röð fremstu kennimanna í sölufræð- um í Danmörku og undir hans forystu og prófessors Max Kjær- Hansens hefur byggzt upp hinn svokallaði Kaupmannahafnar- skóli í þeesum fræðum, sem sett hefur spor bæði á Norðurlöndum og t.d. í Bandaríkjunum. Hann hefur skrifað fjölda bóka og m.a. hefur lengi verið kennd við deildina hér bók um rekstrar- hagfræði og fá nú nemendur tækifæri til að kynnast höfund- inum af eigin raun. Innan skamms kemur út í Dammörku endurútgáía af doktorsritgerð hans ásamt viðbótum og munu fyrirlestrar hans styðjast mjög við hana í fyrirlestrum sínum hér. Sömuleiðis hefur hann ný- lega ásamt fleiri höfundum unn- ið að spá fyrir smásöluverzlun- ina í Danmörku fram til ársins 1980 og er fyrirhugað að ræða þá athugun á fundi með forsvars mönnum í íslenzkri verzlunar- stétt og fleiri aðilum. Frú Kairen Gredal gaf út bók árið 1959 um vöruval og neyzlu- Frá vinstri: Prófessor Guðmundur Magnússon í viðskiptadeild Háskóla ísland, frú Karen Gredal rekstrarhagfræðingur og prófess-or Arne Rassmunsen. — Ljósmynd Mbl. Kr. Ben. mynztur og sú bók hefur nú kom ið í nýrri endurbættri útgáfu. Hún hefur látið sig miklu varða neytendamál í Danmörku og á bæði sæti í stjórn danska ney-t- endaráðsins og sömuleiðis í ný- lega stofnaðri nefnd, sem lætur sig varða auglýsingasiðferði og auglýsingareglur. Mörg lönd h-afa samþykkt þessar reglur og ýmis dönsk blöð væru til dæm- is farin að framfylgja þeim og birta ekki auglýsingar, nema sannað væri að það sem stæði í þeim væri rétt. Það stendur til að Karen Gre- dal haldi opinberan fyrirlestur um neytendamál hér auk þess, sem hún mun halda fyrirlestra fyrir nemendur viðskiptadeild- arinmar. Arme Raissmunsen igiat þess í viðtali við Morgunblaðið í gær að hann væri mjög spenntur að koma hingað til íslands og kynn ast starfseminni hér við Háskól- ann og þeim breytingum, sem ættu sér stað á verzlunarháttum og skipulags-uppbyggingu verzlun arinnar. Honum virtist sem að þær öru breytingar, sem orðið hefðu á Norðurlöndum í þessum málum, hefðu ekki ennþá látið jafn mikið til sín taka hér. Hann lagði áherzlu á nauðsyn þess fyrir þá sem stunda kenmslu í þessum efnum að hafa aðistöðu til þess að stunda rannsóknir. Frú Gredal gat þess að hún hefði veitt því athygli að nærri engar verðmerkingar væru á vör um útstilltum i búðargluggum og dagsetningu vantaði á vörur í verzlumum og aJlm-ennar upplýs- ingar um sitlhvað fleira eins og þyn-gd og innihald. Prófessor Guðmundur Magn- ússon g-at þess í viðtali að við- skiptadeildin fengi hér kærkom- ið tækifæri til þess að skiptast á skoðunum um kenn-slu, náms- tilhögun og rannsóknir, en hainn sagðist álíta -að Island væri mjög hentugt til rannsókna í félags- fræðum og ha-gfræðum og öruggt væri að hjá þessum gestum væri hægt að fá leiðbeiningar um verkefnaval við raninsóknir í framtiðinni. Taldi hann það mikl-a andlega upplyftingu fyrir bæði kennana og nemendur að fá þessa hæfu vísindaim-enn í heim- sókn. By ggðask j alasafn Vorkaupstefnan á Seltjarnarnesi á Egilsstöðum í tilefni 1100 ára íslandsbyggðar Egilsstöðum, 28. febr. — í DAG afhenti Póst- og símamála stofnunin sýslusjóði Suður-Múla sýslu húseignina nr. 2 við Kaup- vang á Egilsistöðum, en nýlega keypti Suður-Múlaisýsla húsið af ríkinu á 3,3 millj. kr. Húsið var byggt um 1954, sem aðal póst- og símstöð fyrir Fljótsdalshérað. — Húsið er þriggja hæða. Fréttamaður Mbl. náði tali af sýslumanni S-Múlasýslu í dag og oagði hann að á síðasta aðalfundi sýslunefndar S-Múlasýslu hefði verið samþykkt að minnaist 1100 ára byggðar í landinu árið 1974 með þeim hætti að stofna byggða skjalasafn með aðs-etur á Egils- stöðum fyrir S-Múlaisýslu alla og líklega N-Múlasýslu, að kia-up- stöðum undanskildum. ,,Sj álf- sagt verður rei-st safnhús hér á Austurliandi í framtíðinni,“ sagði Valtýr Guðmundsson, sýslumað- ur, „en telja verður að hin k-eypta húseign verði í fyllsta máta nægileg næstu árin.“ Sýslumaður sagði að húseign- in yrði nýtt þannig, að á efstu hæð hússins er ætlunin að verði íbúð safnvarðar, en safnið sjálft á miðhæðinni. í kjallara verður lö-greglustöð og aðstaða fyrir aðra starfsmenn sýslunnar, sem erindi eiga við héraðsbúa. — ha. VORKAUPSTEFNA Félags ís- lenzkra iðnrekenda, tslenzkur fatnaður, verður ha-ldin í félags- heimili og Iþróttahúsi Seltjamar- nes-s, og hefst hún fyrir boðs- gesti 2. marz kl. 13.20. Verður kaupstefnan, sem stend -ur yfir i þrjá daga, opin þennan dag tiil kl. 18, föstudag og la-ugar- dag frá kl. 10—18 og sunmudag- inn klukkan 13—18. Á kaupstefn-unni sýna 17 fram leiðendiu-r vöru slna að þessu sinni, og hafa verið siend úit boðs- bréf til 500 aðila -um land allt. Verður daglega tízkusýning kl. 14, o-g þar verður sýnd vor- og sumartízíkan 1972. Á fundi, sem framkvgeimda- stjóri ka-upstefnunnar, Gísli Benedi-ktsson, boðaði tí-1 með fréttamönnum, var sýnd-ur ííz'ku- klæðnaður fyrir 'komir og karla Björgvin Lúthersson póst- og símstöðvarstjóri á Egilsstöðum handsalar Valtý Giiðmundssyni húseignina Kaupvang 2. (Ljósm. Mbi.: Hákon) og var sýnd glæsileg tízka árs- tímans, sem nú fer í hönd. Litir voru mjög fjörleigir og snið og mynztur glœsileg og kenndi að vonum margra grasa. Þama var m. a. sýnd „unisex" tízka, þ. e. eiins kl-æðnaður fyrir stíilkur og pidta á táningaaldri. Islenzku-r iðnaður er sifellt að verða álltlegni og sagði G-ísli Benedi'ktsson, að áberandi væri, hve mikliu betri að.sókn og undir- tektir innlkaiupastjóra uta-n af landi hefðu reynzt á undanföm- um kaupstefnum, en þetta er sú áttunda í röðinni. PáMna Jónmiundsdóttir stjóm- ar tízkusýnin-gunum. Fyrirtækin, sem þama sýna er-u Artemis s.f., nærfatagerð, Reykjaví-k, Belgja- gerð, Reykjavík, Lady hf„ Kópavogi, Fa t ave rk.sm i ð j an Hekla, A-k-ureyri, Fata-gerð JMJ hf., Akureyrd, L. H. Mu-ller, Fata- gerð Reykjavíkur, Lady hf., Reykjavíik, Model Magasiin h-f., Reykjavik, Peysan sf., Reykja- vík, Prjónastofa Önnu Berg- mann, Hafnarfirði, Prjónastofa Önnu Þórðardótbu-r hf., Reykja- vik, Prjónastofán Iðunn hif., Sel- tjarnarnesi, Sjóklæðagerðin hf., Svona verða nngar döniur í sumar. Verkstmiðjan Max hf„ Skógerð- in Iðunn, Akureyri, Verksmiðjan Dú-kur hf., Reykjavík, Venksmiðj an Föt hf. og Vinnufatagerð Is- lands hf. Kaupst-efnunni íslenzkur fatn- aður lýkur 5. marz. (I.jósni. Mbl. Kr. Ben.).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.