Tíminn - 15.02.1964, Blaðsíða 9
Karl Kristjánsson, alþingismaður:
„Það er eitt sem oss bind-
ur - að elska vort landy/
Snemma á þessari öld kvað
þjóðskáldið Einar Benediktsson:
,JÞað er eitt, sem oss bindur, —
að elska vort land, fyrir ofan
aUt stríð“------
Skáldið mælti fyrir munn ís-
: lenzku þjóðarinnar þá. Skyldi
ekki vera almennt hugsað svona
á íslandi enn?
Ég hygg, að enginn efi sé á
því, að flestir hugsi þannig að
, minnsta kosti, þegar mikið ligg-
ur við, ef þeir gá sín fyrir of-
metnaði, hégómaskap, kappgirni
eða nærsýnni flokkshyggju.
Eins og ná standa sakir hjá
þjóðinni, er full þörf á því, að
menn veki þessa hugsun og taki
höndum saman, til þess að koma
efnahagsmálum þjóðarinnar
þannig fyrir, að sem flestir geti
unað þeim og haft ástæðu til
að bera ekki kvíðboga fyrir þeim
í nánustu framtíð.
Það þarf að koma í veg fyrir
að eins fari með efnahagslífið
og veiðiskip, sem sekkur fyrir
misvægishleðslu.
Hin svonefnda ,viðreisn‘ er mát.
Ekki dettur mér í hug að halda
því fram, að þeir, sem fyrir „við-
reisnarstefnunni" standa, hafi
viljandi stofnað til óefnis þess,
sem í er nú komið af hennar
völdum. Auðvitað fóru þeir sjálf-
ir af stað í góðri trú á að vel
mundi farnast, þó að markmið-
in sum væru hins vegar fráleit
fyrir hag almennings, — og ein-
hverjir þeirra hafi vitað það, en
talið annað skipta meira máli.
Aflagóðærin miklu drógu úr og
frestuðu því, sem fram hlaut að
koma. Meira ekki.
Nú dylst fáum niðurstaffari.
Góðu markmiðin náðust fá.
Eða hver er ánægður með árang-
urinn?
Ekki virðast þingmenn stjórn-
arflokkanna vera það, þó að þeir
harki nokkuð af sér á Alþingi
og mannamótum.
Ekki blaðamenn stjórnarflokk
anna, því þó að þeir skrifi af
húsbóndahollustu, þá slær út í
fyrir þeim við og við, af því að
sannfæringuna vantar.
Ekki eru aðalatvinnustéttirnar
ánægðar: bændurnir, útgerðar-
mennirnir, sjómennirnir, iðnað-
armennirnir, verkamennirnir, —
það er öðru nær.
Ekki er ánægjuhljóð í þeim,
sem annast daglegu innkaupin
á náuðsynjum heimilanna.
Ekki er sá, sem þarf að koma
sér upp íbúð, hamingjusamur.
Ekki er sparifjáreigandinn
glaður yfir verðrýmun innstæðu
sinnar.
Er þá enginn ánægður? Jú,
braskarar eru ánægðir. Verffbólg
an er þeirra stríðaldi góðhestur.
(Braskara kalla ég auðvitað ekki
þá kaupsýslumenn, sem veita
heilbrigða þjónustu. Þeir eru
heldur ekki ánægðir). Kaupstaða
búar kannast t. d. vel við húsa
braskarana, sem græða á verð-
bólgunni.
Skortir menn föt og fæffi?
Er atyinnuleysi?
Þannig spyr einstaka þrákálf-
ur. Nei. — En það er ekki nóg.
Skipulagslaus atvinnumál draga
yinnuaflið frá undirstöðuatvinnu
vegunum. Framundan eru öng-
pveitishorfur.
Þess ber að gæta að kunnátta
og tækni og margháttaðar að-
stöðubætur gera það að verk-
um, að ekki er heilbrigt, ef hag-
urinn fer ekki stórlega batnandi.
„Mönnunum munar afturábak"
— miðað við umhverfi og að-
stöðu, — ef þeir „standa í stað.“
Það er hið mikla ásökunarefni
á hendur hinni rangnefndu „við
reisn“, að góðærin í hennar tíð
hafa að miklu leyti farið í að
mæta mistökum hennar, svo
ekki hefir áfram miðað. Hún
hefir „týnt í tímans haf“ dýr-
mætum hagsbóta-tækifærum
fyrir þjóðinni — og mishlaðið
þjóðarskútuna.
Þaff er gengiff á ísi,
sem svíkur meff vorinu.
Dýrtíðin spinnur sig upp dag
frá degi. Verkalýðsstéttirnar
hafa kjör sín óbundin samning-
um eftir að kemur fi-am í maí
og júní. Starfsmenn ríkis og
bæja hafa áskilið sér ré.tt til
launahækkunar hvenær sem al-
mennt kaup hækkar. Verð á af-
urðum bænda á að fylgjast með.
Kjör sjómanna koma til endur-
skoðunar fyrir síldarvertíðina í
sumar.
Undir fótum er flugháll ísinn
og veikur. Af honum þarf, sem
allra fyrst að komast.
Hvaff gerir ríkisstjórnin?
Þannig spyrja menn almennt
þessa dagana? Sú spurning er
yfirleitt kuldalega sögð, — úr
hvaða stjórnmálaflokki, sem
spyrjandinn er. Ríkisstjórnin
virðist hafa fárra tiltrú (því þó
að braskararnir ráði miklu, þá
eru þeir ekki mikill hundraðs-
hluti þjóðarinnar). Menn búast
ekki við snillitökum af stjórn-
inni. Hún er á sínum 4—5 ára
stjórnarferli búin að sýna hverju
hún hefir að tjalda. Það eru:
gengisfellingar, söluskattar,
vaxtaokur, lánsfjárkreppa, spari
fjárfrysting, kaupmáttarskerff-
ing, kaupbinding — — —
Meirihlutinn viff kosningamar
1963.
Stjórnarflokkarnir fengu meiri
hluta við kosningarnar í vor,
sem leið. Lítinn meirihluta, en
meirihluta samt. Ríkisstjórnin
vitnar oft í það, að hún, og
stefna sín hafi með þessu hlot-
ið traust þjóðarinnar.
En þessi litli meirihluti henn-
ar við kosningarnar sannar ekk
ert um tiltrú hennar nú.
Margt ófagurt er þessa mán-
uðina sagt um þá vesalings ó-
reiðumenn, sem berir hafa orðið
að því að svíkja út fé á ávís-
anir, sem engin innstæða hefir
reynzt fyrir.
í líkingu talað gaf stjórnin út
á „viðreisnina“ og sig í kosning-
unum frásagna- og loforðaávís-
anir, sem komið hefir síðan í
Ijós, að ekki var innstæða fyrir.
Ekki skal sakast um
orffinn hlut.
Rétt er að verja ekki miklu tii
að sakast um það, sem illa hef-
ir til tekizt á undanförnum ár-
um, eri snúa sér að því, sem
fyrst og fremst ber að gera á
líðandi stund. Og þá kemur að
því, sem Einar Benediktsson
sagði: „Það er eitt sem oss bind
ur,“ — sameiginleg ást til ættar
1 landsins og þjóðarinnar.
Þetta ber að setja ofar öllu
flokkastríði, — sem vissulesga get
ur þó oft átt rétt á sér —,
en leita sameiginlegra úrræða í
miklum vanda, sem heimskulegt
er að viðurkenna ekki að fyrir
dyrum sé.
Ummæli stjórnarliffsins
og játningar.
Sitthvað segir ríkisstjórnin
um þessar mundir og þeir, er
hana styðja, sem gefur til kynna,
að henni og ýmsum þar sé orð-
ið ljóst, að hún gangi á of mjó-
um fótum.
Forsætisráðherrann talaði —
að því, er virtist með miklum
alvöruþunga — um nauðsyn frið
ar og samstarfs, þegar hann reif-
aði á Alþingi fyrir stuttu sem
neyðarúrræði til bráðabirgða hið
óvinsæla frumvarp til laga um
hækkun söluskatts.
í blaði fjármálaráðherrans,
Vísi, var 5. þ. m. fyrirsögn aðal-
leiðara: „Samstarf er allt sem
þarf“ þar er kvartað yfir sund-
urlyndinu orðrétt eftir haft:
„í þessu litla þjóðfélagi þar
sem allir ættu að vinna saman
að lausn vandamálanna. Og
árangurinn af sundurlyndinu
er sá, að erfiðleikarnir, sem
viff erum að berjast við eru
að mestu sjálfskaprvíti."
Síðustu orð leiðarans eru: „Og
enn er það ekki of seint.“
Flokksstjórnarfundur Alþýðu-
flokksins, haldinn 1.—3. þ. m.
ályktaði á þessa leið:
„Nauðsynlegt er að ríkisstjórn
in hafi forystu um víðtækt
samstarf launastétta, bænda,
• atvinnurekenda og hins opin-
bera um ráðstafanir til að
forða þjóðinni frá óðaverð-
bólgu og gengishruni.“
Játningarnar um óhæfuástand
ið eru skýrar — og einnig játn-
ingar um brýna þörf fyrir sam-
starf út fyrir stjórnarflokkana.
En hvað sýnir sig um sam-
starfsviljann, þegar á reynir?
„Fróffárpaura varff felmt og
meint
hann fór í gegnum sig sjáfan“.
Framsóknarflokkurinn flutti i
sambandi við „neyðarúræðið",
söiuskattshækkunarfrumvarpið,
tillögu um samstarf allra flokka
til að reyna að leysa efnahags-
málavandann: skipun þingnefnd
ar, tveggja þingmanna frá hverj
um flokki.
Þá varð stjórnarflokkunum
„felmt“, — „skolti brugffiff á
sniff“, — farið „í gegnum sig sjálf
an“, — öfug tilþrif gerð, svo
KARL KRISTJÁNSSON
„hnéskelin vatzt á kálfann", —
eins og Einar Benediktsson lýsti
viðbrögðúm Frijðárhirðarinnar.
„ef orffuff var hugsun einlægt og
hreint.“
Tillagan var felld hið skjót-
asta með öllum atkvæðum stjórn
arflokkanna. Hvað segir þjóðin
um svona vinnubrögð?
Öll stjórnarandstaðan greiddi
atkvæði með tillögunni og bauð
þannig samstarfið.
Stjórnarblöðin reyndu að af-
saka þinglið sitt með því, að
Framsóknarmenn hefðu flutt til
löguna, af því að fyrir þeím vekti
Framhald é 15 siðu
O
Sinfóníu-
tónleikar
Niundu tónleikar Sinfón-
íuhltómsveitar íslands fóru
fram , samkomuhúsi Háskól-
ans þ. 6. febrúar s. 1. Að
þesu sinni var stjórnandi
hinn velkunni Olav Kielland,
og fiðlueinleikari Einar G.
Sveinbjörnsson.
Karneval í París op. 9 eftir
norska tónskáldið Johan
Svendsen, er verk sem fellur
og stendur með góðri túlkun,
og gerði stjórnandinn það áð
reglulegum „karnevals“
heimi úr litlu efni, spannst
þarna heilt ævintýri.
Jean Sibelius, samdi aðeins
einn fiðlukonsert, eins og svo
margir aðrir fyrri meistarar
og í okkar konsertsölum heyr-
ist hann örsjaldan.
Einar G. Sveinbjörnsson\
hefir svo sannarlega ekki dreg
ið af sér við undirbúning og
túlkun þessa níðþunga verks.
Frá upphafi hafði h'ann gott
vald á sínu verkefní bæðj
hvað bogatækni, tón og tján
ingu snerti.
Sá innri geigur, sem óhjá-
kvæmilega og oftast fylgir
hverjum einieikara, hindraði
ekki þá jafngóðu heildar-
mynd, sem Einar dró upp af
verkinu. Samleikur hans og
hljómsveitarinnar var mjög
viðfeldin. Einar er nú í hópi
þeirra fiðluleikara okkar sem
hér eftir verða gerðar til mikl
ar kröfur, þar eð hann hefir
reynzt fullkomlega þeim
vanda vaxinn sem honum til
þessa hefir verið falinn. Þeg-
ar Olav Kielland þjálfaði Sin-
fóníuhljómsveitina á hennar
alfyrstu árum, voru verkefn-
um, eðlilega takmörk sett.
í fyrsta sinni, sem sinfónía
eftir J. Brahms var flutt hér
undir hans stjórn, var raun
verulega ráðizt í stórvirki,
sem fáir aðrir en Kielland
hefðu leyst betur. Sú er þetta
ritar minnist þess, hvernig
hann jós af sínum ótæmandi
þrótti, og fékk okkar fá-
mennu sveit, til að hljóma
eins og hundrað manna hljóm
sveit. Þessara sömu tilfinn-
inga gætti, þegar hann stjórn
aði sinfóníu nr. 2 í Ö-dúr eft
ir Brahms. Sá kraftur sem
hann á í fórum sínum, líktist
heízt eldgosi og þótt stund-
um kunni að virðast svo sem
jaðri við það mögulega held-
ur Kielland fast við allt, en
málar þó sterkum og þykk-
um litum.
Er ekki þakkarvert, á okk-
ar vélrænu tímum, þar sem
lífið renur orðið eins og á
færibandi að geta á einni
kvöldstund, notið svo jötun-
elfdra tilfinninga, sem stjórn-
andi og hljómsveit sýndu að
þessu sinni.
Musioa Nova
Á vegum Musica Nova hélt
Dorianblásarakvintettinn tón
leika í Súlnasal Hótel Sögu
þ. 10. febrúar s. 1.
Kvintettinn er skipaður
fimm ungum amerískum lista
mönnum, eða þannig: Jane
Taylor, fagott, Charles Kusk-
in, óbó, John Perras, flauta,
William Lewis, klarinett og
William Brocon, horn.
Hver einstakur meðlimur i
þessum hópi, er þroskaður og
fágaður listamaður og saman
lagt mynda þau heild hinna
hárfínustu blæbrigða, sem
spannar vítt registur.
Aðaluppistaða efnisskrár-
innar voru verk nútíma tón
skálda, þótt þeir alyngstu
væru ekki með að þessu sinni.
voru nokkur verkanna svo
til nýsamin. í heild var efn-
isskráin, skemmtilega breyti
leg innbyrðis. Má þar nefna
höfunda svo sem Gunther
Schuller, Volfgang Fortner og
Hindemith, svo og Villa-Lab
os ásamt Elliot Carter, sem
átti þarna hugmyndaríka
„Etiides og Fantasíu."
Öll var spilamennska þeirra
fimmenninganna fágæt að
gæðum og smekkvísi, og allur
flutningur verkanna túlkaður
með miklum ágætum. Eiga
þeir forystumenn Musica
Nova, sem að því stóðu, að
fá þennan kvintett hingað.
þakkir skildar. Hljóðfæraskip
an 'sem þessi, skapar vissan
trúnað milli hlustanda, flytj
enda, og myndaði það á þess
um tónleikum óvenjulega
skemmtilegt andrúmsloft.
Unnur Arnórsdóttir.
'í f M I N N , laugardaginrt 1J. febrúar 1964 —
a