Tíminn - 08.06.1974, Blaðsíða 10
10
TÍMINN
Laugardagur 8. júni 1974
TÍMINN
11
Laugardagur 8. júni 1974
listans og gera má fastlega rá8
fyrir þvi, að hann annaðhvort sitji
á alþingi næsta kjörtimabil, sem
kjörinn fulltrúi eða sem vara-
maður.
Við hittum ólaf að máli, er
hann var á ferðinni fyrir sunnan
og inntum hann eftir fregnum af
kosningabaráttunni þar fyrir
vestan.
— Hvernig spá menn kosninga-
úrsligum á Vestfjörðum?
— Það rikir mikil óvissa á
Vestfjörðum um úrslit kosning-
anna, sem fram eiga að fara nú
siðar i þessum mánuði. Hannibal
vann mikinn sigur i siðustu
alþingiskosningum. Þetta er al-
mennt skoðað, sem persónulegur
sigur hans. Gera menn nú ráð
fyrir að atkvæðin muni skipazt
öðru visi að þessu sinni.
Framsóknarmenn komu
vel út úr siðustu
kosningum
— Framsóknarflokkurinn kom
nokkuð vel út úr bæjar- og sveita-
stjórnarkosningunum á Vest-
fjörðum. Tel ég, þegar úrslit
þeirra kosninga eru skoðuð, að
flokkurinn hafi ekki oft áður haft
sterkari stöðu. Flokkurinn var
viða i kosningasamvinnu við aðra
flokka. Sama er að segja um
stjórnarflokkana, en þó er ekki
ljóst, hvort lita ber á SFV á Vest-
fjörðum, em stjórnarflokk, þar eð
Karvel Pálmason, sem skipar
fyrsta sætið hjá þeim, var i and-
stöðu við núverandi rikisstjórn á
siðustu dögum þingsins, sem öll-
um er kunnugt.
— Hver er einkum ástæðan fyr-
ir góðri stöðu Framsóknarflokks-
ins i kjördæminu?
Ný atvinnutæki og 50
sjómilna landhelgi hafa
gjörbreytt hag Vestfirð-
inga
A Vestfjörðum hefur orðið sú
jákvæða þróun á undanförnum
árum, að i staðinn fyrir fólks-
fækkun, sem var hér á dögum
viðreisnarstjórnarinnar, fer fólki
hér heldur fjölgandi. Þetta segir
mikið, talar sterku máli um lifs-
kjör manna og trú þeirra á
byggðina. Ástæðan fyrir þessari
jákvæðu byggðaþróun er að at-
vinnuuppbygging hefur verið
mikil. Mikið hefur komið af góð-
um, afkastamiklum atvinnutækj-
um, eins og skuttogurum og báta-
flotinn hefur stækkað. Þá hafa átt
sér stað verulegar endurbætur á
hraðfrystihúsunum i kjördæm-
inu. Þetta tvennt að ógleymdri út-
færslu landhelginnar i 50 sjómil-
ur, er það, sem snúið hefur hjól-
inu við, fyrir okkur á Vestfjörð-
um. Menn eru nú bjartsýnni á
framtiðina fyrir vestan.
— Rétt er að taka það fram,
að varðandi landhelgina hefur
verið reynt að þyrla upp miklu
moldviðri til að leyna þeirri stað-
reynd, að viðreisxnarstjórnin
vildi ekki færa landhelgina út og
ætlaði að biða eftir hafréttarráð-
stefnunni með útfærsluna, og svo
hitt, að viðreisnarherrarnir vildu
ofurselja okkur alþjóðadómstóln-
um i Haag.
Frh. á bls. 15
Skólahúsið á Suðureyri við Súgandafjörð.
Skuttogarinn FRAMNES IS, er einn þeirra fjölmörgu skuttogara, er nú eru undirstaða atvinnulffsins út
um land, ekki einasta á Vestfjörðum, heldur um allt land. 50mflna landhelgis ogsex tugir skuttogara, er
stórkostlegasta átak, sem nokkur rlkisstjórn hér á iandi hefur gert, til eflingar atvinnulifi. Staða is-
lenzks fiskiðnaðar væri æði bágborin, ef ekki heföi komið til vinstri stjórnar, eftir langa, ömurlega „við-
reiösn”.
Einhvern veginn virð-
ist það hafa fylgt Vest-
fjörðum, að þar hafa
kosningar ávallt verið
spennandi og þaðan hafa
komið miklir þing-
skörungar. Svipmikið
land, þar sem barátta
við s jó og fisk var eilif og
setti svip sinn á fas
þeirra og óviða var
félagshyggja meiri en
hjá Vestfirðingum, en
hvergi var ihaldið held-
ur fornlegra og blindara
en einmitt þar.
Eins og sviptivindar
eru tiðir i norðan á
þröngum, djúpum fjörð-
unum, hefur verið
byljótt i pólitikinni og oft
róið i tvisýnu. Þar hefur
verið djarflega sótt og
úrslit kosninga oft verið
tvisýn. Telja hefur mátt
þau atkvæði á fingrum
annarrar handar, er
skáru úr um þingsæti —
og gagnstætt þvi, sem
orðið hefur um önnur
kjördæmi þessa lands,
hafa kosningar orðið
óvissari en áður á Ves^-
fjörðum, eftir kjör-
dæmabreytinguna.
En einn kemur og
annar fer, eins og þar
stendur. Nú er Hannibal
hættur i pólitik og verð-
ur ekki i framboði,
hvorki á Vestfjörðum né
heldur annars staðar, og
er seztur að á búi sinu i
Selárdal. Bjarni Guð-
björnsson, bankastjóri á
ísafirði, lætur einnig af
þingmennsku, eftir nær
Rætt við Ólaf
Þ. Þórðarson,
skólastjóra á
Súgandafirði,
sem skipar
3. sætið ó lista
Framsóknar-
flokksins í
Vestfjarða-
fimmtán ára þingsetu og
tveggja áratuga stjórn-
málastörf i bæjarstjórn
Isafjarðar og Halldór
Kristjánsson á Kirkju-
bóli, hverfur frá vara-
þingmennsku og skipar
nú heiðurssætið á fram-
boðslista Framsóknar-
flokksins.
Fleiri umtalsverðar
breytingar eru á Vest-
fjörðum, þar á meðal sú,
að Birgir Finnsson, fer
ekki fram og sitthvað
fleira mætti telja.
Enn eru tvisýnar
kosningar framundan i
Vestfjarðakjördæmi. Ný
andlit koma fram i stað-
inn fyrir hin gömlu, sem
hverfa og pólitikin fyrir
vestan er sem oft áður
óskrifað blað — að
mestu.
Rætt við Ólaf Þ|. Þórðar-
son
Þrjú efstu sæti framboðslista
Framsóknarflokksins i Vest-
fjarðakjördæmi skipa þeir
Steingrimur Hermannsson, sem
er i fyrsta sæti, Gunnlaugur
Finnsson, Hvilft i öðru sæti, en
þriðja sætiið skipar ungur skóla-
stjóri vestan af Súgandafirði,
Ólafur Þ. Þórðarson, sem getið
hefur sér gott orð fyrir félags-
málastörf i heimabyggð sinni.
Ólafur skipar þannig baráttusæti
kjördæmi
.
Ólafur Þ. Þóröarson, skólastjóri á Súgandafirði skipar 3. sætið á framboðslista Fram-
sóknarflokksins I Vestfjarðakjördæmi.
ólafur er fæddur á Súgandafirði árið 1940. Foreldrar hans eru þau Jófriður Péturs-
dóttir og Þórður Agúst Ólafsson, bóndi á Stað iSúgandafiröi.
ólafur lauk gagnfræöaprófi frá Núpi I Dýrafirði, siðan varð hann búfræðingur frá
Hvanneyri, en settist svo I Kennaraskólann og lauk kennaraprófi og hefur nú i nokkur ár
verið skólastjóri barnaskólans á Súgandafirði.
Ólafur er kvæntur Þóreyju Eiriksdóttur Þorsteinssonar f.v. alþingismanns og kaup-
félagsstjóra á Dýrafirði. Eiga þau eina dóttur, Áslaugu, sem er tveggja ára.
Æskuheimili ólafs Þ. Þórðarsonar, Staður I Súgandafirði.
Fólki fjölgar nú aftur á Vestfjörðum,
Skuttogarar, endurnýjun hraðfrystihúsa
og 50 mílna landhelgin, hafa gjörbreytt
högum manna á Vestfjörðum
Félagsheimilið i Hnifsdal.
Viða er sumarfagurt á Vestfjörðum. Tignarleg fjöllin risa þverhnipt upp úr sjónum, úfin og veðruð, en
inni á fjörðunum eru blómleg bændabýli og landið er grasi gróið og viöa vex kjarr og skógur. Landbún-
aður hefur viða átt i vök aö verjast og þá sér i lagi við innanvert Djúp, en nú hafa verið gerðar merkiieg-
ar fræðilegar rannsóknir til að hefta eyðingu sveita þar. Hin forna skipan, að hver fjörður væri sjálfum
sér nógur, riki I rikinu er ekki lengur i takt við timann, gerð hefur verið viðtæk áætlun um alla byggð á
Vestfjörðum og unniðer aðþvi að tengja firðina með öruggu vegasambandi. — Myndin er frá Þingeyri.