Fréttablaðið - 08.11.2002, Síða 12
12 8. nóvember 2002 FÖSTUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Ábyrgar
veiðar
eður ei ?
Garðar Björgvinsson skrifar:
Eftir að Landsbankinn var seldurog í þann mund sem ganga átti
frá sölu Búnaðarbankans kom í ljós
að enginn hafði
hugsað til lista-
verka sem bank-
arnir hafa eignast í
gegnum árin. Hvor
um sig á veglegt
safn verka eftir
þekkta íslenska
listamenn, bæði
laus og múrföst.
Kaupendur bank-
anna virðast ekki hafa haft þessa
eign sérstaklega í huga við kaupin.
Þeir voru að kaupa sér banka – ekki
listaverkasöfn. Og fyrrum eigandi
bankanna, ríkisvaldið, hafði heldur
ekki leitt hugann að verkunum. Þau
flutu með í kaupunum ásamt öðrum
búnaði, tólum og tækjum til banka-
starfsemi.
Auðvitað er það broslegt að mik-
ið safn listaverka skuli renna úr
eign ríkisins með þessum hætti.
Það hefur verið stefna ríkisstjórn-
arinnar árum saman að selja hlut
ríkisins í bönkunum. Samt hefur
enginn velt fyrir sér listaverkun-
um; ekki listfræðingar, ekki yfir-
menn listasafna ríkisins – enginn.
Fyrr en um seinan. Þá rjúka menn
upp til handa og fóta og tala um
þjóðargersemar. Sumir láta jafnvel
í það skína að það sé menningarlegt
slys að ríkið eigi ekki lengur þessi
verk.
Söguþráðurinn í þessu máli seg-
ir allt. Ef ríkisvaldið mat þessa eign
sína ekki meira en svo að hafa selt
hana óafvitandi á það ekki skilið að
eiga verkin. Því er auðsjáanlegt að
verkin eru betur komin í höndum
annarra. Það er misskilningur að
ríkið þurfi að eiga allt sem kallast
þjóðargersamar. Menn mega ekki
rugla saman þjóð og ríki. Gersemar
í einkaeigu geta verið þjóðarger-
samar. Það á við um önnur verk
sömu listamanna og gerðu verkin í
eigu bankanna.
Einstaklingar og fyrirtæki eru
síður en svo þekkt af því að fara
verr með listaverk en ríkið. Ríkið
fer með sínar gersemar eins og op-
inber starfsmaður; skráir þær og
flokkar og setur í eldfasta geymslu.
Týnir síðan hlut og hlut úr safni
sínu og sýnir almenningi stöku
sinnum – það er, ef safnbyggingin
er ekki lokuð vegna endurbóta.
Stór söfn í eigu ríkja eru arfur
frá landvinningatímum. Napóleon
var mikill safnamaður, sömuleiðis
stjórnendur breska heimsveldisins.
Íslenska ríkið hefur enga landvinn-
inga unnið. Það hefur hins vegar
látið greipar sópa um kirkjur og
býli víða um land. Það væri nær að
velta því upp hvort ekki sé kominn
tími til að skila þeim munum í stað
þess að heimta aftur listaverkin af
kaupendum bankanna.
„Ef ríkisvaldið
mat þessa eign
sína ekki meira
en svo að hafa
selt hana óaf-
vitandi á það
ekki skilið að
eiga verkin.“
Geta einstaklingar gætt þjóðargersema?
skrifar um listaverkaeign fyrrum ríkis-
bankanna; Lands- og Búnaðar.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
699
Frábært
verð!
Tilboð á
grilluðum
kjúkling
alla föstudaga
ill
ll
kr/stk
Grillaður
kjúklingur
SFC
...safaríkur og bragðgóður!
BEIJING, AP Búist er við því að Jiang
Zemin, forseti Kína, láti af for-
mennsku í kínverska Kommúnista-
flokknum á flokksþinginu sem
hefst í dag. Arftaki
hans verður að öll-
um líkindum Hu
Jintao varaforseti.
Á næsta ári er bú-
ist við því að Hu
taki einnig við for-
setaembættinu af
Jiang.
Þingið stendur í
sjö daga. Mikil
leynd hefur hvílt
yfir dagskrá þess.
Stjórnvöldum er mikið í mun að
allt gangi snurðulaust fyrir sig og
hafa látið þrífa götur og torg ásamt
því að handtaka fjölda manns sem
líklegir eru til að valda einhverjum
óskunda.
Á mánudaginn heimsótti lög-
reglan til dæmis Fang Jue, fyrr-
verandi embættismann sem var
settur í fangelsi eftir að hafa kraf-
ist frjálsra kosninga. Systir hans
segir lögregluna hafa tekið hann á
brott með sér.
Hópur 192 pólitískra andófs-
manna í Kína sendi frá sér opið
bréf nú í vikunni þar sem stjórn-
völd voru hvött til þess að láta
lausa pólitíska fanga og efla beinar
kosningar.
„Framfarir í efnahagsmálum
geta ekki dulið þau vandamál sem
fylgja djúpri félagslegri neyð og
verða æ augljósari,“ segir í bréfi
þeirra.
Flokkurinn hefur hins vegar
gert allt sem hann getur til þess að
þagga niður í röddum af þessu
tagi.
325 manna miðstjórn flokksins
hélt fund í þessari viku til þess að
undirbúa flokksþingið. Mikil leynd
hvíldi yfir þessum fundi eins og
öðru sem varðar undirbúning
flokksþingsins. Í yfirlýsingu frá
miðstjórninni má þó ráða að Jiang
fái margvíslegt lof fyrir stjórnar-
tíð sína.
„Hin stórkostlegu afrek undan-
farinna 13 ára verða örugglega
skráð í hina dýrðlegu sögu hinnar
miklu endurfæðingar kínversku
þjóðarinnar,“ segir í ályktun mið-
stjórnarinnar.
Jiang hefur komið í kring efna-
hagsumbótum sem margir telja að
gætu orðið upphafið að endalokum
kommúnismans í Kína. Jiang Zem-
in varð formaður Kommúnista-
flokksins árið 1989. Hann tók við
af Deng Xiaoping, sem hóf efna-
hagsumbæturnar í Kína eftir að
Mao Zedong, stofnandi Kommún-
istaflokksins, lést árið 1976.
Hu Jintao verður því fulltrúi
fjórðu kynslóðar kínverskra ráða-
manna. Hann er 59 ára, sautján
árum yngri en Jiang.
Kynslóða-
skipti hefjast
í Kína
Flokksþing kínverska Kommúnistaflokksins
hefst í dag. Búist er við að það marki upphafið
að kynslóðaskiptum hjá kínverskum ráða-
mönnum. Mikil leynd hefur hvílt yfir undir-
búningi þingsins.
HU JINTAO VARAFORSETI OG JIANG ZEMIN FORSETI
Hu Jintao, sem tekur væntanlega við af Jiang Zemin, er 59 ára, sautján árum yngri en Jiang.
AP
/G
R
EG
B
AK
ER
Jiang hefur
komið í kring
efnahagsum-
bótum sem
margir telja að
gætu orðið
upphafið að
endalokum
kommúnism-
ans í Kína.
GÍBRALTAR, AP Íbúar á Gíbraltar-
skaga kusu í gær um það hvort þeir
vilji að Bretland og Spánn fari með
sameiginleg yfirráð þar. Úrslit áttu
að liggja fyrir í morgun, en fyrir-
fram þótti nánast öruggt að tillög-
unni yrði hafnað með yfirgnæfandi
meirihluta.
Bretar hafa farið með yfirráð á
Gíbraltar frá því 1704. Spánverjar
afsöluðu sér yfirráðum þar form-
lega níu árum síðar, en hafa reynt
að ná skaganum aftur á sitt vald.
Bresk og spænsk stjórnvöld hafa
átt í samningaviðræðum undanfar-
in misseri, þar sem meðal annars
kom fram þessi möguleiki, að ríkin
fari sameiginlega með yfirráðin. Í
framhaldi af því var boðað til þess-
ara kosninga.
Peter Caruana, aðalráðherra á
Gíbraltar, er eins og flestir íbúarnir
á móti því að fara undir yfirráð
Spánar. „Við erum í ESB og það
verður að virða óskir okkar.
Kosningar á Gíbraltarskaga:
Sameiginlegum
yfirráðum hafnað
STOLTIR AF ÞVÍ AÐ VERA BRETAR
Íbúar á Gíbraltar hafa óspart látið í ljós
andstöðu sína við að Bretar og Spánverjar
fari sameiginlega með yfirráðin.
AP
/S
AN
TI
AG
O
L
YO
N
Ég velti því oft fyrir mér hvaðKristján Ragnarsson, formað-
ur LÍÚ, eigi við þegar hann segir
að smábátasjómenn stundi óá-
byrgar veiðar. Ég tel rétt að Krist-
ján skýri hvað í þeirri fullyrðingu
felst og upplýsi jafnframt hvort
hann telji veiðar risatogara um-
hverfisvænar og ábyrgar. Þá er
rétt að Friðrik Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ, skýri
hvað hann á við með því að segja
að við séum nú með leifarnar af
smáútgerð í höndunum. Er fram-
tíðarsýn LÍÚ manna, sem byggist
á því að útrýma öllu sem heitir
smábátaútgerð, að verða að veru-
leika?