Morgunblaðið - 04.11.2005, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 04.11.2005, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 29 DAGLEGT LÍF STEINN KÁRASON TRAUSTUR ÖFLUGUR FRAMSÆKINN OG FERSKUR www.steinn.is 5. sæti Volvo YCC hefurnú verið ásýningarferðum heiminn í á annað ár. Kvennahóp- urinn sem hannaði bíl- inn hlýtur hönnunar- verðlaun Torsten og Wanja Söderberg í ár, en um er að ræða virt- ustu hönnunarverðlaun Svíþjóðar. Íslending- urinn Sigurður Gúst- afsson arkitekt hlaut þessi verðlaun árið 2003 og Aðalsteinn Ingólfs- son listfræðingur var einn af þeim sem hlutu þau árið 1999. „Neytendur hafa vald til að breyta,“ segir Eva-Lisa Andersson, verkefnisstjóri Volvo YCC (Your Concept Car) en bíllinn er hannaður með þarfir neytenda í huga og gengu hönnuðirnir eins langt og þær vildu því allt er leyfilegt í hug- myndahönnun. Bíllinn kemur reyndar aldrei á markað en hönn- uðirnir vonast til þess að ýmsir eig- inleikar hans rati í bíla í framtíðinni, en til þess þurfa neytendur að láta vita hvað þeir vilja. Vá, hugsar maður með sér þegar sest er inn í bílinn og vonar svo sannarlega að eiginleikarnir eigi eftir að rata í aðra bíla sem hæfa kaupgetu almennings. Viður, leður, ull, ál og plast eru meðal efna sem notuð eru í innréttingu, gólf, mott- ur, sæti og áklæði og ekkert er hefðbundið. „Við höfðum þrennt í huga þegar efni voru valin í innra rýmið: Skand- inavískt, stofuna heima hjá manni og að auðvelt væri að skipta út efn- um, segir Maria Uggla sem hafði umsjón með efnisvali. Bíllinn hefur verið á sýningarferð um heiminn í á annað ár. Hann er nú til sýnis í Röhsska hönnunarsafninu í Gauta- borg, stendur þar gljáandi á miðju gólfi og allt í kring eru teikningar og brot úr hönnunarsögu þessa bíls sem ekki stendur til að setja í al- menna framleiðslu, heldur er bara ein frumgerð sem bílaframleiðendur geta vissulega tekið sér til fyr- irmyndar. Það var nú ekki alveg á hreinu hvort blaðamennirnir fengju að prófa að sitja í þessum sérhannaða bíl þar sem hugsað er fyrir öllum smáatriðum. Bíllinn verður til sýnis fyrir almenning fram í janúar og þarf að þola það hnjask eins og textílhönnuðurinn Maria Uggla benti á. Henni er auð- vitað annt um áklæðin. Eðlisfræð- ingurinn Elna Holmberg bauð mér þó áhyggjulaus að setjast undir stýri. Hún er þriggja barna móðir sem hefur mikla reynslu af hasar á morgnana þegar allir eru að drífa sig út á síðustu stundu með allt sitt hafurtask. „Þá getur þetta verið þægilegt,“ segir hún og ýtir á hnapp á hvítu tæki sem hún hefur í bandi um hálsinn og líkist mest pínulitlum farsíma og upp ljúkast bíldyrnar eins og vængir. Bíllinn er opinn þegar út er komið og aðgengi að geymslurými og sætum eins og best verður á kosið. Þótt óskalistar kvenna hafi verið stæði á hverjum degi en karlar. Þær eru að keyra í og úr vinnu, skreppa úr vinnunni í hádeginu, versla á mismunandi stöðum, keyra börnin og reka ýmis erindi sem oftar virð- ast á þeirra herðum en karlanna. Bíllinn er fyrst og fremst hugsaður fyrir ökumann og farangur hans, þ.e. farþegasæti aftur í eru innfelld að öllu jöfnu og því meira pláss fyrir farangur. Sætin leggjast svo auð- veldlega niður ef farþegar eru með í för, þ.e. í hugmyndaveröldinni þar sem bíllinn er í hvers manns eigu.  HÖNNUN | Níu konur hönnuðu bíl sem hefur hlotið mikla athygli Þægindi, geymslurými, sniðugar lausnir, gæðaefni, gott pláss og útsýni einkenna Volvo YCC sem níu konur hönnuðu. Steingerður Ólafsdóttir prófaði að setjast undir stýri. steingerdur@mbl.is Kvennahópurinn sem hannaði bílinn hlýtur hönnunarverðlaun Torsten og Wanja Söderberg í ár. hönnuðunum inn- blástur er bíllinn ekki bara konubíll heldur hannaður fyrir nú- tímafólk af báðum kynjum. „Karlar og konur hafa sömu óskir en konur hafa bara lengri óskalista,“ segir Tatiana Butovitsch Temm, ein úr níu kvenna hópnum. Fjallað hefur verið um bílinn í ótal fjölmiðlum um allan heim, m.a. Tímariti Morgunblaðsins. Sérstakur skynjari sem hjálpar ökumanni að leggja í stæði hefur víðast hvar vak- ið athygli. Þröng stæði eru ekki sér- stök vandamál kvenna en stað- reyndin er sú eins og verkefnisstjórinn Eva-Lisa bendir á, að konur leggja að jafnaði oftar í Vængjaði Volvoinn hlýtur hönnunarverðlaun Morgunblaðið/SÓ Sérstök áhersla var lögð á að vanda valið á efnum sem notuð eru inni í bílnum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.