Morgunblaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 37 „ÉG vil borg án biðlista, fjöl- skylduvæna borg þar sem ekki eru biðlistar eftir sjálfsagðri þjónustu eins og leikskólaplássi, plássi á frí- stundaheimilum, hjúkrunarheim- ilum eða lóðum undir íbúðir. Ég vil heildstæða þjónustu fyrir barna- fjölskyldur í borginni, að tíminn á frístundaheimilum verði nýttur betur, að leikskólagjöld verði lækkuð í áföngum og foreldrum tryggð samfelld dagvistunarþjón- usta frá því fæðingarorlofi lýkur. Einnig að auknu fé verði veitt til þess að lækka þátttökugjöld grunnskólanema í íþróttastarfi. Það er algjört forgangsmál að tryggja nægt lóðaframboð í Reykjavík og greiðari samgöngur um borgina.“ Þetta sagði Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson um sín helstu áherslumál í prófkjöri sjálf- stæðismanna í samtali við Morg- unblaðið í gær. Vilhjálmur sagði að undir sinni forystu hefði borgarstjórn- arflokkur Sjálfstæðisflokksins kynnt sín stefnumál og um þau væru enginn ágreiningur innan flokksins, hvorki um brýnustu verkefnin né um framtíðarsýnina. „Ég vil fá umboð kjósenda til að leiða flokkinn í næstu kosningum,“ sagði Vilhjálmur. Það væri ljóst að ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að ná meirihluta í borgarstjórn þyrfti borgarstjóraefni hans að höfða til sem flestra kjósenda í Reykjavík. Sá einstaklingur þyrfti að vera lík- legur til að laða að sér fylgi óákveð- inna kjósenda. „Skoðanakannanir hafa sýnt það trekk í trekk að ég hef stuðning um það bil 70% óákveðinna kjósenda. Auk þess gerir reynsla mín og þekking á málefnum borgarinnar, stjórnsýslu hennar og borgarkerfinu almennt, það að verkum að hægt verður að hefjast handa strax í vor við að framkvæma stefnu okkar sjálf- stæðismanna. Reynsla hlýtur að vera mikilvæg fyrir borgarstjóra. Hann er framkvæmdastjóri fjöl- mennasta fyrirtækis í landinu og það hlýtur að þurfa reynslu og þekkingu á fyrirtækinu til að geta gengið strax til verka. Ég tel að ég hafi það umfram minn mótfram- bjóðanda,“ sagði Vilhjálmur. Spurður um málefnamun sagði Vilhjálmur að það hefði komið fram í umræðuþáttum að ekki væri málefnamunur á milli hans og Gísla Marteins Baldurssonar. Prófkjörið snerist um hverjum sjálfstæðismenn treystu betur til að leiða flokkinn til sigurs. Spurður hvort hann hefði fallið frá hugmyndum um svokallaða Eyjabyggð sagði Vilhjálmur að svo væri alls ekki. Um hefði verið að ræða hugmyndir um ákveðna framtíðarsýn sem hefði verið kynnt íbúum og hefði fengið góðar undirtektir á kynningarfundum. Í framhaldinu yrðu þær teknar til frekari meðferðar. Hugmyndirnar gæti hugsanlega orðið að veruleika eftir 20–40 ár. Um Vatnsmýrina sagði hann að í framtíðinni þyrfti að vera hægt að nota svæðið að mestu leyti undir íbúðabyggð. Það væri þó alveg klárt að innanlandsflugvöllur yrði áfram að vera í borginni eða í ná- grenni hennar. Hann myndi ekki samþykkja að innanlandsflugið yrði flutt til Keflavíkur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi Vill fjölskylduvæna borg án biðlista Morgunblaðið/Árni Sæberg „Ég vil borg án biðlista, fjölskylduvæna borg þar sem ekki eru biðlistar eftir sjálfsagðri þjónustu eins og leikskólaplássi,“ segir Vilhjálmur Þ. „ÉG held að það sé nauðsynlegt fyrir Reykjavíkurborg að það renni upp nýir tímar við stjórn borgarinnar. Ég held að borgin hafi setið eftir á meðan við- skiptalífið og ríkið hafa nútíma- væðst og hleypt að nýju fólki og nýjum hugmyndum. Sjálfstæð- isflokkurinn í Reykjavík þarf að gera það sama til að eiga mögu- leika á sigri næsta vor,“ sagði Gísli Marteinn Baldursson í sam- tali við Morgunblaðið í gær. „Ég býð mig fram sem fulltrúi nýrrar kynslóðar sem lítur málin öðrum augum og telur að borgin eigi ekki að stjórna borgarbúum eftir sínu höfðu heldur þjóna okkur,“ sagði Gísli. Auka þyrfti valkosti borgarbúa á öllum svið- um. „Þetta er hugsun nýja tím- ans og við sjálfstæðismenn eig- um að þakka gamla tímanum samfylgdina en horfa fram á við.“ Aðspurður hvort hann teldi Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson vera fulltrúa gamla tímans, sagði Gísli að þeir litu hlutina ólíkum aug- um enda af sitt hvorri kynslóð- inni. „Ég er með börn á leik- skóla- og grunnskólaaldri. Ég er á þeim aldri sem menn kaupa íbúðir eða sækjast eftir lóðum og í rauninni á þeim aldri sem mað- ur nýtir þjónustu borgarinnar einna mest. Það er því eðlilegt að aðrir hlutir brenni á mér en á þeim sem eldri eru og ég held að það séu einmitt þeir hlutir sem við sjálfstæðismenn þurfum að horfa í þegar við veljum okkur leiðtoga í borginni. Auðvitað þurfa borgarfulltrúar þó að horfa lengra en nef þeirra nær, eins og sést á því að ég hef lagt mikla áherslu á úrbætur í málefnum aldraðra þótt enn sé talsvert í að ég komist á þann aldur sjálfur.“ Málefnamunur minnkaði Spurður um hvort munur væri á þeim málefnum sem hann og Vil- hjálmur hefðu sett fram, sagði Gísli að fyrst og fremst væri um að ræða áherslumun. „Ég mark- aði mér sérstöðu með einarðri afstöðu í málefnum flugvallarins og ég sagði raunar fyrir margt löngu að ég teldi að við ættum að byggja í Vatnsmýrinni en hafa innanlandsflugvöll áfram í eða við Reykjavík. Framan af var málefnamunur á okkur Vil- hjálmi í þessu en Vilhjálmur skipti um skoðun í þessu máli og tók undir mitt sjónarmið. Það sama gerðist þegar ég lýsti því yfir að Engey væri ekki bygg- ingarland fyrir borgarbúa á næstu áratugum, Vilhjálmur tók undir það. Þannig að það hefur kannski minna orðið úr mál- efnaágreiningi en í upphafi stefndi í,“ sagði Gísli. Spurður hvort hann væri með þessu að afskrifa svokallaða Eyjabyggð benti hann á að borgin þyrfti ekki það aukna byggingarland sem fælist í þeirri hugmynd á næstu áratugum. Talið væri að mannfjölgun í borginni fram til 2045 yrði 20–30 þúsund og nægt pláss væri fyrir þennan fjölda í Geldinganesi og í Vatnsmýri. Gísli Marteinn Baldursson varaborgarfulltrúi Nýir tímar renni upp við stjórn borgarinnar Morgunblaðið/Sverrir „Þetta er hugsun nýja tímans og við sjálfstæðismenn eigum að þakka gamla tímanum samfylgdina en horfa fram á við,“ sagði Gísli Marteinn Baldursson. Hann sést hér á kosningaskrifstofu sinni við Aðalstræti í gær. KSTUR Reykjavíkurborgar er mjög eyttur, og mikilvægt að þeir sem veljast mboðslista Sjálfstæðisflokksins hafi jafn- framt fjölbreytta reynslu,“ segir Júlíus Vífill Ingvars- son, sem sækist eftir öðru sætinu á lista flokksins í borgarstjórnarkosning- unum næsta vor. Júlíus segir reynslu sína víðtæka, hann starfaði sem óperusöngvari á árum áð- ur og hefur haldið tengslum við tónlistarlífið, verið atvinnurekandi í eppnisrekstri í tuttugu ár og hefur und- ið rekið eigin lögmannsstofu, auk þess hann var borgarfulltrúi á síðasta kjör- bili. ykjavíkurborg þarf að endurheimta for- lutverk sitt að mati Júlíusar, sem nefnir dæmi að fólksfjölgun í Reykjavík sé und- dsmeðaltali í tíð Reykjavíkurlistans í arstjórn, fólk sæki frekar í nágranna- arfélögin vegna viðvarandi lóðaskorts í nni. g vil sjá nýtt aðalskipulag sem byggist á forsendu að það verði nóg af lóðum á gjörnu og gegnsæju verði. En Reykja- víkurborg hefur fleiri skyldur, borgin á að vera mild og réttsýn, og veita skjól þeim sem á þurfa að halda. Öldruðum sérstaklega og þeim sem þurfa að takast á við veikindi og heilsuleysi eða berjast við fjárhagslegar þrengingar,“ segir Júlíus. Hann segist vilja stuðla að aukinni samkeppni á milli skóla, við blasi að þeir foreldrar sem kjósi að senda börn sín á einkarekna leik- eða grunnskóla séu í raun skattlagðir umfram aðra foreldra. Hugsanleg nýting Engeyjar Júlíus Vífill segir hugmyndir borgarstjórn- arflokks sjálfstæðismanna um eyjabyggð og landfyllingar vera í samræmi við hugmyndir sem hann lagði fram í borgarstjórn árið 1999, um hugsanlega nýtingu Engeyjar. Þessar hugmyndir verði vart að veruleika strax en áhugavert sé að skoða þær frekar. Spurður um Reykjavíkurflugvöll segir hann að ná þurfi sem víðtækastri sátt um framtíð flug- vallarstarfseminnar og staðsetningu hans. Kostnaður Júlíusar vegna prófkjörsins er ekki kominn í ljós, hann verður trúlega ein- hverjar milljónir, mest fjármagnað af sparifé með einhverjum stuðningi einstaklinga og fyrirtækja. Júlíus segist ekki munu veigra sér við að opinbera bókhald prófkjörsins, en hann óski þá eftir því að aðrir geri slíkt hið sama. líus Vífill Ingvarsson Borgin á að vera réttsýn“ Vífill rsson SÍÐDEGIS í gær höfðu rúmlega 18.800 manns öðlast kosningarétt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninganna 2006 og hafði þeim fjölgað um 2.600 á rúm- lega tveimur vikum. Kosningarétt hafa allir fé- lagsbundnir sjálfstæðismenn sem eru búsettir í Reykjavík og hafa náð 16 ára aldri þegar prófkjörið fer fram. Hafi menn ekki gengið í flokkinn áður en prófkjörið hefst geta þeir öðlast kosningarétt með því að undirrita inntökubeiðni í Sjálfstæðisflokkinn fyrir lok kjör- fundar og teljast atkvæði þeirra vera utankjörfundarkosning. Þetta gildir þó aðeins um þá sem munu eiga kosningarétt í Reykjavík við borgarstjórnarkosningarnar 27. maí 2006. Geta fallið langt niður listann Alls eru 24 í kjöri, þar af fimm kon- ur. Kjósa skal níu frambjóðendur, hvorki fleiri né færri, með því að setja tölustafina 1 til 9 fyrir framan nöfn þeirra. Samkvæmt prófkjörsreglum Sjálfstæðisflokksins hlýtur sá mað- ur efsta sætið sem flest atkvæði fær í það sæti. Annað sætið hlýtur sá sem ekki lendir í efsta sæti en hef- ur hlotið flest atkvæði þegar lögð eru saman atkvæði hans í 1. og 2. sætið og svo koll af kolli. Þetta þýðir m.a. að sá sem tapar slagnum um fyrsta sætið á það á hættu að falla niður um nokkur sæti. Hafi frambjóðandi sem tapar slagnum um 1. sætið fengið fá at- kvæði í næstu sæti fyrir neðan gæti hann því hæglega fallið niður fyrir 2. sætið og jafnvel enn neðar á listann. Í þessu samhengi má benda á að Kjartan Magnússon er einn í framboði í 3. sætið. Með þessu er að sjálfsögðu ekki verið að spá fyr- ir um hugsanleg úrslit í prófkjör- inu. Fyrstu tölur kl. 18 á laugardag Talning atkvæða hefst um klukkan 13 á laugardag og fyrstu tölur liggi fyrir um klukkan 18. Næstu tölur verði lesnar um klukkan 18:30 og þar næst um klukkan 19. Vænt- anlega muni úrslit liggja fyrir klukkan rúmlega 23. Verði þátt- takan mikil gæti það þó dregist eitthvað. Ágúst Á. Ragnarsson, starfs- maður í Valhöll, höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins, segir að bú- ist sé við að um eða yfir 10.000 manns muni greiða atkvæði í prófkjörinu. Verði sú raunin verður niðurstaðan bindandi en helmingur manna á kjörskrá þarf að greiða atkvæði til að svo verði. Rúmlega 18.800 á kjörskrá og fer fjölgandi /% /%   > $%  ?> $%   9 @ A  * -  /  ! % * 9  ? ?   !%  3   45  1. #  , 6 1   B#  % )   71. 9 3 & / *  C . ?  * 3  @  * .    * ! %9*   * 5   * &1. 9 3 & / *  > $%  ?> $%   -  /  ! % * .  > C  !%  3   .    * ? % -&  >  *  5    /  ? /   / $ ** & ! %9*  ;  5+ ;   5& !  9 ? .  5 5  * = 3 5    3  9% * /&&* 9&  /% 9  < A  C   @& , A  9  * 0&  9 < A   .$ , 5  / )  0 , 0)  #  , 1   '  1. )1  . 5&   ' + ' +  +  +  + D + D + DE  +  +  +  + EF EG EG F + F + G + G + G + G + ( + H + H + % * Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is og nið- nar aðið í væða kann- rt. Í i ur ósa. Í verið kom- okka. na ru i búnir nir um su likinu. ár fyr- r Ólaf- ð- ví.“ óðu ir eirra als- urlist- fyrir um þó flokk- fram at- flokk- llt nið- lík- rúum m  + 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.