Morgunblaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 35 UMRÆÐAN LITLAR mannvitsbrekkur kunnum við að vera, fulltrúar ÁFRAM-samtakanna í Dalvíkur- byggð. En ef á að taka Morgun- blaðsgrein Höfuðborgarsamtak- anna frá 29. október sl. alvarlega er ljóst að lítill bratti er á þeirri brekku, víðar en hjá okkur. Grein þessi ber keim af því að hinir ýmsu aðilar s.s. arkitektar og fjárfestar (sem m.a. má finna á fram- boðslista samtak- anna), bíði eftir að komast í feitt og fá að leika sér í Vatnsmýr- inni. Varðandi áherslu þá sem við leggjum á sjúkraflug í umfjöllun okkar um Reykjavík- urflugvöll tala grein- arhöfundar um „vængjað“ flug sem óábyrgt og hættulegt og því séu sjúklingar fluttir með þyrlum! Hér hélt ég raunar að grein þessi væri sett fram í gríni (og get ekki varist þeirri hugsun enn). Heldur fólkið að enn sé flogið á bakinu á risa- fiðurfénaði eins og „the Flintston- es“ gerðu? Eða vilja þessar mann- vitsbrekkur ekki vinsamlegast kynna sér staðreyndirnar áður en svona bulli er varpað fram? Það lætur nærri að skilgreind bráða- tilfelli í sjúkraflugi („vængjuðu“) séu um helmingur þeirra, en það hlutfall hækkar þó verulega í þeim tilfellum sem fljúga þarf til Reykjavíkur, í stað Akureyrar. Það þarf enga mannvitsbrekku til að sjá að í öllum bráðatilfellum þurfa sjúklingar að komast undir lækn- ishendur eins fljótt og auðið er. Það er einfaldlega staðreynd sem ekki er hægt að hártoga, þó svo vafi á ástandi sjúklings sé ævinlega túlkaður honum í hag. Og flugtím- inn utan af landi er nóg töf frá þessu þó ekki komi til aukin akst- ursvegalengd, eftir að lent hefur verið utan borgarinnar, jafnvel í Keflavík. En „grínið“ heldur svo áfram þeg- ar greinarhöfundar fara að fjasa um fórn- arkostnað höfuðborg- arbúa, raunar án þess að geta þess hvaða forsendur þeir hafa fyrir útreikningum sínum. Engu er líkara en að allir íbúar aust- an Vatnsmýrarinnar sæki sína vinnu og þjónustu út á Sel- tjarnarnes, og öfugt, og þarna á milli sé þessi gígantíska torfæra sem kostar hvert heimili 570.000 kr! Reiknuðu fulltrúar mannvits- brekkufélagsins þetta út sjálfir? Mannvitsbrekkuskorturinn ég leyfi mér hins vegar að benda þessu fólki á að akstur til og frá nýju flugvallarstæði utan borgarinnar, eða til Keflavíkur, í þeim mæli sem fólk ekur til að komast í flug, hlýt- ur að telja eitthvað þarna á móti, í peningum, mengun og í slysatíðni. Vilduð þið gera svo vel að reikna þetta út líka? Látum vera að mál- efni þessa framboðs í borginni gangi m.a. út á að rífa sem mest af gömlum húsum til að skapa arki- tektunum meiri vinnu við að hanna ný hús í staðinn (eins og lesa má út úr dálkinum „Fyrir svörum“ á vefsíðu þeirra), en verra er það þegar þarf að storka lífi og heilsu þeirra sem flytja þarf til lækn- ismeðferðar í Reykjavík, með því að úthýsa flugvellinum þaðan. Á vefsíðu samtakanna má m.a. finna þessa setningu: „Fæstir sjúklingar sem fluttir eru með flugvélum eru það bráðveikir að lenging flutn- ingstíma um ½ – 1 klst skipti nokkru um framvindu eða meðferð þeirra“. Þótt þessi fjarstæðu- kennda fullyrðing væri rétt, er hér gefið að þeim „fáu“ tilfellum sem eftir eru sé rétt að fórna fyrir Vatnsmýrina. Svona er nú litið á okkur landsbyggðarfólk hjá þess- um höfuðborgarsamtökum. Lands- menn allir, ég skora á ykkur að íhuga vel hvað er hér í húfi. Ég hef sjálfur starfað við sjúkraflug og m.a. „misst“ sjúklinga á leið suður, þar sem tíminn reyndist ekki næg- ur. Tilfellin eru fleiri þar sem eng- an tíma má missa og þá er nálægð flugvallarins við sjúkrahúsin ómet- anleg. Nú stendur yfir undirskriftasöfn- un til varnar Reykjavíkurflugvelli, sem við hjá ÁFRAM stöndum fyr- ir. Það er von okkar að fé- lagasamtök í öllum byggðum lands- ins komi okkur til hjálpar í þessu, því samtök okkar geta fráleitt beitt sér um land allt, þótt við fegin vildum. Við höfum þegar fengið góð viðbrögð frá nokkrum stöðum, misjafnlega skipulögð þó, en víða er enn ekki farið að safna, okkur vitanlega. Við ákváðum að gera þetta upp á gamla mátann, þ.e. með eiginhandarundirritunum, til að hafa niðurstöðuna traustari, þó vissulega kalli það á meiri vinnu, en væri þetta gert í gegn um vef- inn. Hér er um slíka hagsmuni að ræða sem í húfi eru að lands- byggðin öll, að ekki sé talað um þá íbúa höfuðborgarsvæðisins sem nota þurfa innanlandsflug einnig eða hafa hagsmuni af því, þurfa að standa vel saman um að gæta þeirra. Best væri að ganga hús úr húsi eins og nú er verið að gera í Dalvíkurbyggð og e.t.v. víðar þegar þetta er ritað, og þar geta margar hendur unnið létt verk. Eru ekki t.d. Lions- og Kiwanisklúbbar, framfara- og kvenfélög, björg- unarsveitir og íþróttafélög á Norð- ur- og Austurlandi sem og Vest- fjörðum, sem eru tilbúin að leggja þessu hagsmunamáli okkar allra lið með því að setja sig í samband við okkur á afram@afram.is, fá undir- skriftarbréfið sent á móti og fara síðan að safna, hvert í sinni heima- byggð? Við stefnum að því að hafa fengið þessa lista í hendur fyrir 1. des. n.k. til að afhenda þá síðan samgönguráðherra og borgar- stjóra. Stöndum vörð um þessa ör- yggishagsmuni okkar, hér er það samstaða sem gildir. Til varnar Reykjavíkurflugvelli Þorkell Ásgeir Jóhannsson fjallar um Reykjavíkurflugvöll og getur undirskriftasöfnunar hagsmunasamtakanna ÁFRAM ’Stöndum vörð umþessa öryggishagsmuni okkar, hér er það sam- staða sem gildir.‘ Þorkell Ásgeir Jóhannsson Höfundur býr í Hofsárkoti, Svarfaðardal. GREIN minni um „eðlilegan launamun kynjanna“ hefur verið svarað með nokkrum greinum. Í sumum þeirra er töluvert um rangfærslur, misskilning og skrýtnar staðhæfingar. Lítið hefur borið á efnislegum athugasemdum við einstakar fullyrðingar eða skoðanir í grein minni. Ekki er nokkur leið að leiðrétta allan misskilning eða bregðast við því sem mætti kalla dylgjur, svo sem „… hefur Snjólfur nú bæst í hóp þessara metn- aðarfullu spek- inga …“. Mig langar hér að ræða örfá atriði, sér- staklega vegna þess að þeirri háskóladeild sem ég starfa í hefur verið blandað inn í málið. Viðskipta- og hagfræðideild Viðskipta- og hagfræðideild Há- skóla Íslands er rúmlega sextug en kona var fyrst fastráðin sem kenn- ari árið 1997. Ástæðan var einföld, það var fyrst þá sem kona sótti um slíkt starf. Nú eru þrjár konur lektorar við deildina, allar í við- skiptaskor. Enn hefur engin kona sótt um starf sem kennari í hag- fræðiskor. Í skólanum er kynblint framgangskerfi og því undir lekt- orum sjálfum komið hvort og hve- nær þeir verði dósentar og pró- fessorar. Reynsla mín úr háskólanum, meðal annars sem skorarformaður og síðan formaður stjórnar MBA- náms, hefur sýnt mér aftur og aft- ur hvernig ólíkt val kvenna og karla hefur áhrif á starfsferil þeirra og laun. Hér er ekki rúm til að gera grein fyrir því, en í lagi að benda á eitt dæmi úr Háskóla Ís- lands sem er að mínu mati lýsandi fyrir ólíkt val kvenna og karla. Fjölmargir karlar hafa sóst eftir að verða rektor Háskóla Íslands en aðeins ein kona (alla vega á síð- ustu áratugum), Kristín Ingólfs- dóttir. Háskólasamfélagið hefur aldrei hafnað konu sem vildi verða rektor en mörgum körlum! Eðlilegur launamunur kynjanna Mér finnst allt of mikill munur á launum karla og kvenna á Íslandi. Ég veit að ein af ástæðum þess er að misrétti kynjanna var mikið hér áður fyrr. Ég veit að sumar breytingar taka tíma og kynjamunur í at- vinnulífinu mun sjálf- krafa minnka á næstu árum. Eitt lítið dæmi er að hlutfall kvenna í starfi prófessora við HÍ mun hækka jafnt og þétt næstu árin. Annað dæmi er að konum í stjórn- unarstörfum mun fjölga í mörgum fyrirtækjum á næstu árum. Ég tel mikilvægt að margir vinni að því að minnka launamun kynjanna og ég þykist vita nokkuð mikið um hvaða leiðir eru árang- ursríkar í þeirri baráttu. Ég ætla að fjalla um þessar leiðir á þessum vettvangi eftir 3 mánuði, þegar ég hef fengið skýrslur frá nemendum sem ætla að kafa ofan í þetta mál fyrir mig (og sig). Ég er sannfærður um að það er marktækur munur á því hvernig kynin njóta lífsins, þó sá munur sé lítill miðað við muninn á milli ein- staklinga af sama kyni. Þetta er afar flókið mál og margir geta út- skýrt það betur en ég. Það er til dæmis athyglisvert að lesa í bók- inni „Sálfræði einkalífsins“, eftir Álfheiði Steinþórsdóttur og Guð- finnu Eydal, um það hvað mun- urinn á strákum og stelpum kemur fljótt í ljós. Ég tel að keppni og peninga- græðgi einkenni karla meira en konur og að konur beri heldur meiri umhyggju fyrir öðrum en karlar. Ég er sannfærður um að fleiri mæður en feður vilji mjög gjarnan vera alveg frá vinnu fyrstu 6 mánuðina eftir að barn fæðist. Kannski er þetta tómur misskilningur hjá mér. Kannski er enginn munur á konum og körlum hvað þetta varðar. Ég tók reyndar ekki mjög stórt upp í mig varðandi eðlilegan launa- mun kynjanna í grein minni. Það eina sem ég sagði beint um málið var þetta: „Það að munur er á launum karla og kvenna er að hluta til eðlileg afleiðing af mun- inum á starfsvali þeirra.“ Eru karlar kvenna gæfu smiðir? Sumt segi ég aftur og aftur, meðal annars við nemendur mína. Ég vitna til dæmis oft í máltækið „Hver er sinnar gæfu smiður“ vegna þess að ég trúi því statt og stöðugt að hver einstaklingur geti haft mjög mikil áhrif á gæfu sína. Ég mæli ekki með því sem bar- áttuaðferð að kvarta og kveina og að kenna öðrum um. Mér finnst einstaka sinnum að skilaboðin frá einstaka femínista séu að karlar séu kvenna gæfu smiðir. Karlforstjórar þurfi að breyta hegðun sinni. Brjóta þurfi niður karlveldið. Ungir feður þurfi að axla meiri ábyrgð. Og svo fram- vegis. Vonandi er þetta bara mis- skilningur hjá mér. Skólar og foreldrar hafa það hlutverk að undirbúa börn og ung- linga þannig að þau geti, hvert fyr- ir sig, óháð kyni, fundið sína ham- ingjuleið í lífinu. Við þurfum að gefa börnunum tækifærin en full- orðið fólk skapar sín tækifæri sjálft. Það er reyndar umhugs- unarvert að mikill meirihluti kenn- ara í leikskólum og grunnskólum eru konur. Vart þarf að taka fram að það er ótalmargt sem hefur áhrif á það hvaða tækifæri fólk getur skapað sér. Stundum er fótunum jafnvel kippt undan einstaklingi. En al- mennt séð þá ákvarðast starfsferill og kjör mest af því hvaða tækifæri einstaklingar grípa eða skapa sér sjálfir og það er greinilegur munur á því hvaða tækifæri konur og karlar skapa sér. Nokkrar leiðréttingar og útskýringar Snjólfur Ólafsson fjallar um gagnrýni sem síðasta grein hans olli ’Mér finnst einstakasinnum að skilaboðin frá einstaka femínista séu að karlar séu kvenna gæfu smiðir.‘ Snjólfur Ólafsson Höfundur er prófessor í Háskóla Íslands. Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali Lækjargata 8 Suðurlandsbraut 32 Við styðjum EggErt Pál lögmann og Vin Einkabílsins í Prófkjöri sjálfstæðismanna í rEykjaVík 4. og 5. nóVEmbEr ari björnsson Stjórnarmaður í Heimdalli atli rafn björnsson Formaður Heimdallar 2003-2004 ásthildur sturludóttir Stjórnarmaður í SUS 2003-2005 birgir ármannsson Alþingismaður bjarki már baxter Formaður Egils, FUS í Borgarnesi björgvin guðmundsson Formaður Heimdallar 2000-2002 bjarney sonja ólafsdóttir Tölvunarfræðingur Camilla ósk Hákonardóttir Formaður Hvatar Daníel ingi Þórisson Fv. form. nemendafélags FÁ Edda björgvinsdóttir Leikkona Erlingur Þór tryggvason Formaður Hugins, FUS í Garðabæ Hafsteinn Þór Hauksson Formaður SUS 2003-2005 Harpa Hrund berndsen Stjórnarmaður í SUS Helga árnadóttir Varaformaður Heimdallar 2002-2003 Helgi sigurðsson Hæstaréttarlögmaður ingvi Hrafn óskarsson Formaður SUS 2001-2003 jakob f. ásgeirsson Rithöfundur og útgefandi jón Hákon Halldórsson Framkvæmdastjóri SUS 2004-2005 maría margrét jóhannsdóttir Fv. varaformaður jafnréttisdeildar Heimdallar júlíus jónasson Fv. landsliðsmaður í handbolta ómar örn Hauksson Tónlistarmaður úr Quarashi Pétur gautur Listmálari Pétur örn sigurðsson Form. hverfafélags sjálfstæðismanna í Austurbæ og Norðurmýri ragnar jónasson Varaformaður Heimdallar 2003-2004 ríkharður Daðason Fv. landsliðsmaður í knattspyrnu rúnar ingi Einarsson Fv. formaður nemendafélags VÍ sigurður kári kristjánsson Alþingismaður sigþrúður ármann Lögfræðingur skúli gestsson Bassaleikari í Diktu Víðir smári Petersen Varaformaður Týs, FUS í Kópavogi Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson Hagfræðinemi Þorsteinn Davíðsson Aðstoðarmaður dómsmálaráðherra Þorvaldur Davíð kristjánsson Leiklistarnemi Þóra Helgadóttir Hagfræðingur Þórólfur jónsson Héraðsdómslögmaður Verið velkomin í kosningamiðstöð Eggerts Páls að sætúni 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.