Morgunblaðið - 04.11.2005, Side 12

Morgunblaðið - 04.11.2005, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR á morgun Ljóðið er lífseigt Samræður um ljóð NÝR OG glæsilegur línubátur bættist í flota Húsvíkinga nú í vikunni er Karólína ÞH 111 kom til heimahafnar í fyrsta sinn. Karólína ÞH 111 er af gerðinni Cleópatra 38, smíðuð hjá bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Báturinn er yfirbyggður og með línubeitningakerfi frá Mustad fyrir 15000 króka um borð auk línu- og færa- spila frá Beiti. Báturinn er 15 brúttótonn að stærð og rúmar lest hans 12 660 lítra kör. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og há- seta en svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofni og ísskáp. Þá er í bátnum innangeng upp- hituð stakkageymsla. Eigandi bátsins er Útgerðarfélagið Dodda ehf. en að því standa Haukur Eiðs- son skipstjóri, Örn Arngrímsson og Jóhann Gunnar Sigurðsson, en þeir eru í áhöfn bátsins ásamt Gunnlaugi Karli Hreinssyni, eiganda GPG fiskverkunar á Húsavík. Þeir félagar keyptu einnig á haustdögum út- gerðarfélagið Kristínu ehf. á Suðureyri og segir Gunnlaugur Karl að með þeim kvóta sem því fylgdi sé kvóti Karólínu ÞH um 700 þorskígildistonn í krókaaflamarkskerf- inu. Þeir Haukur og Gunnlaugur eru frændur og er báturinn nefndur eftir ömmu þeirra, Karólínu Friðbjarnardóttur. Auk þess eiga þeir báðir dætur sem bera þetta nafn. Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 6HYM-ETE, 700 hestöfl tengd ZF gír. Þá er báturinn einnig útbúinn með vökvadrif- inni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýr- ingu hans. Í brúnni eru siglingatæki af gerðinni Furuno frá Brimrúnu og örygg- isbúnaður hans kemur frá Ísfelli og Viking. Þá mun Karólína vera fyrsti báturinn af þessu tagi, þ.e.a.s. yfirbyggður smábátur með línubeitingarvél, sem gerður er út frá Húsavík og Norðurlandi ef menn telja ekki aðkomubáta með. Nýr línubátur til Húsavíkur Á Húsavík Eigendur Karólínu ÞH 111, frá vinstri, Jóhann Gunnar Sigurðsson, Örn Arngrímsson, Haukur Eiðsson og Gunnlaugur Karl Hreinsson, sjá um veiðar og vinnslu aflans á Húsavík. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Nýr bátur Karólína ÞH í heimahöfn á Húsavík, fyrsti yfirbyggði smábáturinn á Húsavík. ÚR VERINU ORSÖK tjóna af völdum lausagöngu búfjár, sem aðallega er af völdum sauðfjár og hrossa, er að búféð leikur lausum hala á þjóðvegum landsins þar sem meginreglan er sú að engar sérstakar vörsluskyldur hvíla á bú- fjáreigendum annarra en eigenda graðpenings. Þetta kemur fram í rannsóknaverkefni sem Ólafur Páll Vignisson, laganemi við Háskóla Ís- lands, vann í sumar, en hann kynnir helstu niðurstöður þess á málþingi sem Úlfljótur, tímarit laganema, heldur í dag. Í verkefninu fjallaði Ólafur Páll um tjón af lausagöngu búfjár á þjóð- vegum. Hann bar meðal annars sam- an Ísland og önnur lönd og lagði fram tillögur að úrbótum. Ólafur Páll bendir á að slys af völdum lausa- göngu búfjár á vegum eru um fimmt- ungur allra umferðarslysa í dreifbýli og því um stórt vandamál að ræða. „Ég rakti orsökina í skýrslunni. Meginreglan er sú að það hvíla eng- ar sérstakar vörsluskyldur á búfjár- eigendum. Girðingar á vegum eru oft og tíðum ekki vörsluheldar auk þess sem þær eru ekki samfelldar þannig að búfé á oftar en ekki auðvelt með að haga för sinni eftir eigin hentug- leika. Jafnframt haga vegfarendur akstri sínum oft ekki eftir aðstæð- um,“ segir hann. Ólafur Páll segir að sumar greinar vegalaga virki ekki í raun og auki oft á réttaróvissu. Bendir hann sérstak- lega á 56. grein laganna, en hún kveður á um að lausaganga búfjár sé bönnuð þar sem girðingar eru beggja vegna vegar. „Þar sem girð- ingar í kringum landið eru svo kafla- skiptar og slitróttar skiptist réttar- staðan til dæmis 40 sinnum á kaflanum frá Reykjavík til Horna- fjarðar í samræmi við þessa grein.“ Ólafur Páll skoðaði stöðuna í þess- um málum í öðrum löndum. Í ljós kom að þar er víðast hvar lagt bann við lausagöngu og eru búfjáreigend- ur alfarið ábyrgir í slíkum málum. Lögin ekki nógu skýr Spurður um atriði til úrbóta úr bendir Ólafur Páll á að bæta þurfi lagasetningu um þessi mál. „Frumathugun leiddi í ljós að lög- in eru ekki nógu skýr og ekki þannig úr garði gerð að menn sjái sig knúna til þess að fara eftir þeim. Rannsókn laganema um vegarollur og umferðaröryggi Engar sérstakar vörslu- skyldur hvíla á bændum Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is SJÓNVARPSMAÐURINN Sigmar Guðmundsson verður spyrill í Gettu betur, spurningakeppni framhalds- skólanna, í vetur. Hann tekur við starfinu af Loga Bergmann Eiðs- syni. Sigmar sagðist í samtali við Morgunblaðið mjög spenntur fyrir nýja starfinu. „Þetta leggst mjög vel í mig, þetta verður frábærlega skemmtilegt,“ sagði hann. Sigmar þekkja margir af skján- um en hann hefur verið einn þátta- stjórnenda Kastljóssins í Sjónvarp- inu undanfarin ár. Áður hefur verið tilkynnt að Anna Kristín Jónsdóttir taki við hlutverki dómara og spurningahöf- undar í Gettu betur en stigavörður verður sem fyrr Steinunn Vala Sig- fúsdóttir. Sigmar sagðist ekki eiga von á því að neinar róttækar breytingar yrðu gerðar á formi Gettu betur í kjölfar mannabreytinga, enda væri sami mannskapur við stjórnvölinn bakvið myndavélarnar. Gettu betur hefst fljótlega upp úr áramótum en fyrstu umferðir fara fram á Rás 2. Úrslitarimmurnar verða svo háðar í sjónvarpssal að vanda þar til einn skóli stendur uppi sem sigurvegari. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Nýr spyrjandi, Sigmar Guðmundsson, ásamt Páli Magnússyni útvarpsstjóra og fulltrúum framhaldsskólanna. Sigmar spyr í Gettu betur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.