Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1971, Side 15
Þekkirðu aiullitið? Já, þetta er Kingo Starr, en geturðu séð Jivern liann er að leika? Jæja, þú
ert ekki svo vitlaus. Já, liann er að leika Frank Zappa og er myndin tekin í London, en nýlega
lauk ]iar kvikmyndun á mynd eftir Zappa, sem ber nafnið 200 motel. Auk Bingos leika í mynd-
inni liðsmenn hljómsveitar Zappa, Mothers of Invention, ýmsir vinir Zappa og kunningjar og síð-
ast en ekki sízt Keith Moon, trommuleikari hljóm sveitarinnar WHO, sem fer með hlutverk mmnu.
Er Keith fyrst og fremst að æfa sig áður en hafizt verður handa við gerð kvikmyndar hljóm-
sveitarinnar Who, og því fékk hann þetta hlutverk hjá Zappa, en uppliaflega var gert ráð fyrir
að Mick Jagger léki minnuiia!
Melody Maker í sókn
Brezka músikbiaSið Melody
Maker er í stöðugri sókn. Töl-
ur fyrir síðustu sex mánuði
ársins 1970 sýna, að salan er
að meðaltali rúm 145 þúsund
eintök á viku. Fyrstu sex mán-
uði ársins var salan að meðal-
taii rúrrá. 121 þúsund eiwtök og
er aukningin þvi um 24 þús-
und eintök á viku. Salan sið-
ustu sex mánuði ársins 1969
var að meðai'tali uon 107 þús-
und eintök á viku, þannig að
sala blaðsins hefur á einu ári
aukizt um 38 þúsund eintök á
viku. Þessum tölum sló blaðið
að sjálfsögðu upp á forsíðu, um
leið og það tiikynnti verð-
hækkun á blaðinu vegna auk-
ins kostnaðar.
Melody Maker er næst
staersta músíkblaðið i Bretlandi
að upplagi, en stærst að upp-
lagi er New Musical Express,
sem er gefið út i milli 170 og
180 þúsund eintökum. Hins
vegar er Melody Maker lang-
stærsta músíkblaðið að siðu-
f j öl da. fer iðuiletga upp í
48 síður, en önnur músík-
blöð fara aldrei yfir 24 síður.
Sama útgáfufyrirtækið gefur
bæði þessi blöð út og reyndar
einnig þriðja stærsta blaðið,
Disc and Music Echo.
Ginger — Elvin:
Jafntefli
Ginger Baker og Elvin Jones
háðu nýlega i London einvígi
um titilinn bezti trommuleikari
heims. Ginger Baker var full-
trúi popptóniistarinnar, en
Elvin Jones var fulltrúi jass-
tónilisitairinniar. Báðir börðu sem
þeir mest máttu á trommusett-
m sín og þegar einviginu var
lokið, var ómögulegt að gera
upp á milli þeirra. Þeir sætt-
ust báðir á jafntefli og gagn-
rýnendur voru á sömu skoðun.
Led Zeppelin í
klúbbum og danshúsum
Ein vinsæiasta hljómsveit
heims, LED ZEPPELIN, er nú
ú hljómleikaferðalagi um Bret-
landseyjar. Er ferðalagið
óvenjulegt að því leyti, að í
stað þess að leika í hljómleika-
sölum i stærstu borgunum, leik
ur hljómsveitin á dansstöðum
°S í poppMúbbuim, m.a. hjá
háskólastúdentum.
Viðbrögð forráðamainna dans-
húsanna og klúbbanna voru
eins og við var að búast: Sim-
inn var í stanzfliaiusri notkun í
tvo daga á skrifstofu umboðs-
manns hljómsveitarinnar. Því
næstum hver einasti danshúss-
eigandi og klúbbforstjóri
i landinu hringdi til að biðja
um hljómsveitina fyrir sitt hús.
Umboðsmaðurinn var himinlif-
andi yfir öllum þessum áhuga
°g sagðist ekki vera í nokkrum
vafa um, að þetta yrði skemmti-
leg hijómleikaferð.
Og hver er ástæðan fyrir
14. mai-z 1971
þessari ákvörðun hljómsveitar-
innar að spila ekki i hljómleika
sölum? John Bonham,
trommuleikari hljómsveitarinn-
ar, sagði: „Við vildum fara í
hljómleikaferð á þá staði, þar
sem flestir gætu komið til að
sjá okkur, staðina, þar sem
sigurganga okkar hófst.“
Alan Price og Georgie
Fame saman í hljóm-
sveit
Tveir af þekktustu orgel-
leikurum í brezka poppheim-
inum, Alan Price og Georgie
Fatœ, eru nú búnir að stoifna
hljómsveit með gitarleikaranum
Colin Green og trommuleikar-
anum Clive Thacker. Hljóm-
sveitin hefur ennþá ekki hlot-
ið nafn og hafa þeir félagar
Alan og Georgie þó báðir lagt
höfuðið i bleyti og reynt að
finna nafnið. En líklega hefur
vatnið ekki verið nógu blautt
(eða kannski var það ekki
vatn), því nafnið hefur ennþá
ekki fundizt.
Alan Price var orgeSleikari
hljómsveitarinnar Animals
lengst af, en hætti nokkru áð-
ur en hljómsveitin rann sitt
skeið á enda. Siðan stjórnaði
ha’m sinni eigin hljómsveit,
Alan Price Set, en hætti í
henni nokkru áður en hún
rann sitt skeið á enda. Síðan
hefur hann ekki haft sig mik-,
ið í frammi, enda á hann erf-
itt með að lifa þvi lifi, sem-
liðsmenn frægra hljómsveita
þurfa að sætta sig við. Hann
er nefnilega haldinn ofsalegri
flughræðslu, en eins og allir
vita, eru vinsælar hljómsveitir
á stöðugum þeytingi út um all-
ar trissur, yfirleitt í flugvélum.
Vegna flughræðslunnar hefur
hann tvívegis orðið að
segja skilið við frægar hljóm-
sveitir. Vonandi finnur hann
einhverja lausn á þessum
vanda sLnum, áður en nýja
hljómsveitin f-er af stað — í
flugvél.
Georgie Fame var fyrir
nokkrum árum aimennt talinn
í hópi beztu orgeUe-ikara
i brezka poppheiminum, þegar
hann stjórnaði hljómsveitinni
Georgie Fame & Blue Flames.
Nú er hann hins vegar ekki
lengur í þeim hópi, en ástæð-
an er ekki sú að homim hafi
farið aftur, heldur hefur hann
haft hægt um sig, lítið gefið út
af plötum og þess vegna hætt-
ir mönnum til að gleyma hon-
um, þegar talað er uim beztu
orgelleikarana. En Georgie
hlýtur að vinna sæti sitt á ný,
þegar hann fer af stað með
nýju hljómsveitinni. Hann hef-
ur líka verið talinn i
hópi beztu jasssöngvara Breta
og ekki er hann síðri i popp-
lagasöng.
Rafmagnaða
ljósahljómsveitin
Hljómsveitin MOVE hefur
hægt um sig þessa dagana, en
óþarfi er að hefja upp harma-
grát mikinn, því liðsmenn
hennar hafa stofnað aðra hljóm
sveit, sem gegnir nafninu Elec-
tric Light Orchestra eða Kaf-
magnaða ljósiahljómsveitin.
Yfirrafvirki er Roy Wood, sá
frábæri lagasmiður, sem öðrum
fremur á heiðurinn af vinsæld-
um hljómsveitarinnar Move,
því hann hefur samið öll lög
hljómsveitarinnar, sem flest
urðu geysivinsæl. Roy hefur
gengið með hugmyndina um
þessa nýju hljómsveit í mag-
anum um langt skeið, en nú er
stutt í fyrstu hljómleika henn-
ar. Roy leikur á gítar og með
honum í hljómsveitinni eru
tveir félagar hans úr Move,
þeir Bev Bevan, trommu-
leikari, og Jeff Lynne, sem
leikur iöfnum höndum á gítar
og bassa. Þá verður i hljóm-
sveitinni hljóðfæraleikari, sem
leikur á franskt horn, og fjór-
ir hljóðfæraleikarar, sem sam-
an mynda strengjakvartett.
Auk þess verða í hljómsveit-
inni tveir hljóðfæraleikar-
ar, sem ekki er hægt að nafn-
greina að svo komnu máli, því
þeir eru ennþá ekki hættir að
spila i öðrum hljómsveitum, en
þó er það vitað, að þeir eru
i frægum hljómsveitum.
ELO mun senda á markað-
inn fyrstu stóru plötuna sina
í næsta mánuði og þá kemur
einnig á markaðinn ný, stór
plata frá Move.
Jcthro:
Ádeila á trúarbrögð
Þessa dagana er væntanleg á
markaðinn ný, stór plata frá
hljómsveitinni Jethro Thull, og
hefur hún hlotið nafnið
„Aquialung“. Á Mið 1 eru sex
lög eítir Ian Anderson og seg-
ir hann texta þeirra fjalla um
þá skoðun sina, að Guð eigi
ekkert sameiginlegt með þeim
hugmyndum, sem var troðið í
ha rm i uppvextinum. „1 uppeld-
inu er manni kennt að dýrka
Guð á ákveðinn hátt og mér
fiimst það mjög ósmekklegt.
Sérhver maður ætti að finna
sinn eigin guð á sinn eigin
hátt, þegar honum sjálfum sýn
ist svo.
Þetta mun sjálfsagt vekja
reiði sumra að vissu marki, en
ég hef ekki reynt að yfirlögðu
ráði að æsa fólk.“
Á hlið tvö eru sex lög, seim
öl'l fjaTla um einhvern flækiing.
nn
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15