Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1960, Page 10
270
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
týraleikinn Hans og Grétu eftir Willy
Kruger. Leikstjóri er SigurSur Krist-
insson (3.)
Prófessor Lárus Einarsson frá Arós-
um flytur tvo fyrirlestra um læknis-
fræðileg efni í Háskólanum (5.)
Starfsfræðsludagur var haldinn á
Akureyri og tókst með ágætum (8.)
Ný ljóðabók er komin út eftir Þor-
stein Jónsson frá Hamri. Nefnist hún
„Tannfé handa nýum heimi“ (8.)
Halldór K. Laxness hefir þegar af-
hent nokkrum bókaútgefendum í ýms-
um löndum meginhluta af handriti að
nýrri skáldsögu (8.)
Karlakór Reykjavíkur hefir haldið
nokkra samsöngva. Sá síðasti var hald-
inn á 65 ára afmæli söngstjórans, Sig-
urðar Þórðarsonar, sem var hylltur (9.)
Leikfélag Akureyrar sýnir íslands-
klukkuna eftir Halldór K. Laxness
(12.)
Þjóðleikhúsið efnir til margvíslegra
hátíðahalda í tilefni af 10 ára afmæli
leikhússins, sem var 20. apríl (20.)
Þjóðleikhúsið flytur tónverkið Car-
mina Burana eftir Carl Orff. Stjórn-
andi dr. Róbert A. Ottósson (23.)
Leikhús Heimdallar sýnir revíu, er
nefnist „Eitt lauf“. Höfundar eru
margir. Leikstjóri Gunnar Eyjólfsson
(24.)
Komin er út sjötta bók Þórleifs
Bjarnasonar. Nefnist hún „Hjá afa og
ömmu" (30.)
TJÓN OG SLYSFARIR
120—150 lestir af saltfarmi danska
skipsins Clipperen, sem tók niðri við
Ólafsvík, eyðilögðust (5.)
Skipstjórinn á danska skipinu Clipp-
eren varð bráðkvaddur á götu í
Reykjavík (9.)
Hjálmar Stefánsson, kunnur skíða-
maður á Siglufirði, fótbrotnaði illa á
æfingu (10.)
71 árs kona, Sesselja Helgadóttir í
Hafnarfirði, slasaðist mikið í bílslysi
(13.)
Grindavíkurbátar urðu fyrir miklu
netjatjóni á föstudaginn langa af
völdum íslenzkra togara (20.)
Patreksfjarðartogarinn Ólafur Jó-
hannesson sigldi á togarann Hvalfell
frá Reykjavík á Grænlandsmiðum.
Bæði skipin skemmdust nokkuð (20.)
18 ára piltur, Sveinbjörn Sigvalda-
son, beið bana, er bíll fór fram af
bryggju í Hafnarfirði (23.)
Trillubátur frá Ólafsfirði fórst með
einum manni, Axel Péturssyni. Hann
var um fimmtugt, og lætur eftir sig
konu og 6 börn (26.)
Hollenzkt flutningaskip strandaði í
Grundarfirði, en náðist á flot (30.)
FÉLAGSMAL
Bergur Jónsson kosinn formaður Fé-
lags pípulagningameistara (5)
Ólafur E. Stefánsson kosinn formað-
ur Félags ísl. búfræðikandidata (6.)
Kristján Siggeirsson endurkjörinn
formaður Fríkirkjusafnaðarins (7.)
Ragnar Guðmundsson var kosinn
formaður Farfugladeildar. Farfuglar
frá 18 löndum komu hingað á sl. ári
(9)
Úrslit fengust í 4. atrennu við
stjórnarkjör í Verkamannafélaginu
Fram ó Sauðárkróki, 61:59. Friðrik
Sigurðsson var kosinn formaður (12.)
Baldvin Jónsson, hrl., kosinn for-
maður Flugmálafélags íslands í stað
Alexanders Jóhannessonar prófessors,
er baðst undan endurkosningu (29.)
iÞRÓTTIR
Armann varð íslandsmeistari í
körfuknattleik kvenna (6.)
Jón Pétursson, KR, stökk 2,02 m á
æfingu í hástökki (6.)
ÍR varð íslandsmeistari í körfu-
knattleik karla (8.)
Um 150 íslendingar hafa keypt að-
göngumiða á Ólympíuleikana í Róm á
þessu ári (9.)
Ákveðið hefir verið að alþjóðamót
sjóstangveiðimanna fari fram í
Vestmanneyum í sumar (10.)
FH varð íslandsmeistari í handknatt-
leik karla, en Ármann í handknattleik
kvenna (12.)
Jón Pétursson, KR, setti nýtt ís-
landsmet í þrístökki án atrennu, 10,08
m (12.)
Sveinn Sveinsson, Siglufirði, varð
íslandsmeistari í 15 km skíðagöngu, en
sveit Reykvíkinga í flokkasvigi.
Kristinn Benediktsson, ísafirði, varð
Islandsmeistari í svigi karla, Eysteinn
Þórðarson, Reykjavík, í stórsvigi, bruni
og þríkeppni í alpagreinum, Skarphéð-
inn Guðmundsson, Siglufirði, í stökki,
Sveinn Sveinsson, Siglufirði, í nor-
rænni tvíkeppni, Sigurjón Hallgríms-
son, Fljótum, í 30 km göngu, sveit ís-
firðinga í 4x10 km boðgöngu og
Kristín Þorgeirsdóttir, Siglufirði, í
svigi kvenna, bruni, stórsvigi og þrí-
keppni í alpagreinum (20.)
Kristleifur Guðbjörnsson, KR, varð
fyrstur í 45. Víðavangshlaupi ÍR (23.)
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu:
Valur vann Víking, 5:0 (23.)
Þróttur vann Fram, 2:0 (26.)
Agnar J. Leví, KR, varð fyrstur í
drengjahlaupi Armanns (26.)
Freysteinn Þorbergsson varð skák-
meistari Islands 1960 (26.)
Friðrik Ólafsson, skákmeistari, varð
4. í röðinni á alþjóðlegu stórmóti í
Mar del Plata í Argentínu (24.)
AFMÆLI
Félag járniðnaðarmanna í Reykjavík
varð 40 ára 11. apríl.
Sigurður Kristjánsson, fyrrv. alþm.,
varð 75 ára 14. apríl.
Magnús Kjaran, stórkaupmaður, varð
70 ára 19. apríl.
Byggingarfélag alþýðu 30 ára (24.)
Karlakór Bólstaðarhlíðar 35 ára (24.)
Kjartan Thors, framkvæmdastjóri,
sjötugur 26. apríl.
Ungmennafélag Svarfdæla 50 ára
(27.)
Kvennadeild Slysavarnafélags Is-
lands í Reykjavík 30 ára 28. apríl (29.)
MENN OG MALEFNI
Nýr sendiherra Belgíu á Islandi, de
Fontaine, afhenti forseta trúnaðarbréf
sitt 1. apríl (2.)
Dr. Konrad Adenauer, kanzlari Vest-
ur-Þýzkalands, kom við á Keflavíkur-
flugvelli á heimleið frá Tókíó. Ráð-
herramir Ólafur Thors og Emil Jóns-
son voru meðal þeirra, sem tóku á
móti honum (3.)
Ingvar Gíslason, lögfræðingur á Ak-
ureyri ,tók sæti á Alþingi sem vara-
maður Garðars Halldórssonar, 4. þm.
Norðurlandskjördæmis eystra (6.)
Aðalsteinn Þorgeirsson ráðinn bú-
stjóri að Korpúlfsstöðum (29.)
Lárus Jóhannesson, hrl., skipaður
dómari við Hæstarétt (30.)
Jón ísberg, lögfræðingur, skipaður
sýslumaður Húnvetninga (30.)
ÝMISLEGT
Ljóstæknivika var haldin í Reykja-
vík fyrst í mánuðinum. Forseti al.
þjóðaljóstæknisambandsins kom m. a.
í heimsókn (5.)
Gerður hefir verið loftferðasamning-
ur milli Islands og Svíþjóðar (5.)
Lögregluþjónn í Keflavík stal 12 þús.
kr. með því að taka til sín hluta af
skemmtanaskatti (6.)
17 ára þýzkur sjómaður bjargaði
drukknum manni úr höfninni í Reykja-
vík (8.)