Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1960, Side 8
268
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
1
ÞETTA GERÐIST í APRiLMÁNUÐI
FORETAKOSNINGAR hafa verið
boðaðar 26. júni nk., og mun Asgeir
Ásgeirsson forseti verða í framboði
við þær kosningar. Áskriftalistar
fyrir meðmælendur með framboði
hans lágu frammi til loka apríl-
mánaðar. Ásgeir Ásgeirsson hefir
gegnt forsetaembættinu í tvö kjör-
tímabil, eða frá árinu 1952 (8.)
FORSETf ALLSHERJARÞINGS
SAMEINUÐ ÞJÓÐANNA
TUkynnt hefir verið að Thor
Thors, sendiherra, fulltrúi Islands
hjá Sameinuðu bjóðunum, hafi
gefið kost á sér sem forseti næsta t
allsherjarþings SÞ. (14.)
ÞRJÚ STJÓRNARFRUMVÖRP
Um mánaðamótin marz-apríl var
útbýtt á Alþingi þremur frumvörp-
um frá ríkisstjórninni, um breyt-
ingu á tekju- og eignaskattslögun-
um, um bráðabirgðabreytingu á
lögum um útsvör og um Jöfnunar-
sjóð sveitarfélaga. Er hér um að
ræða tillögur, sem eru liður í við-
reisnarráðstöfunum ríkisstjórnar-
innar. I fyrstnefnda frumvarpinu
segir m. a. að enginn skattur skuli
greiðast af hreinum tekjum ein-
staklinga undir 50 þús. kr., hjóna,
sem skattlögð eru sameiginlega
undir 70 þús. kr., hjóna með eitt
bam undir 80 þús., hjóna með tvö
böm undir 90 þús. kr. o. s. frv.
(1. og 2.)
LÁNASJÓÐUR NÁMSMANNA
Rikisstjórnin Iagði fram á Al-
þingi frumvarp um lánasjóð ís-
lenzkra námsmanna erlendis. Er
sjóðnum ætlað að Iétta að verulegu
leyti þær byrðar, sem lagðar voru
á herðar námsmönnum erlendis
með nýafstaðinni gengisskráningu
(8.)
VIÐSKIPTA- OG FRAM-
KVÆMDAFRELSI
Rikisstjómin lagði fram á Al-
þingi frumvarp til laga um skipan
innflutnings- og gjaldeyrismála. I
frumvarpinu felst m. a. að um 85—
90% innflutningsverslunarinnar er
Ásgeir Asgeirsson
forseti íslands
gefinn frjáls. Innflutningsskrifstof-
an verður lögð niður. Fjárfestingar-
hömlur þær, sem gilt hafa siðan
1947, verða afnumdar. Lagðar verða
niður ýmsar nefndir, svo sem út-
flutningsnefnd sjávarafurða og út-
hlutunamefnd jeppabifreiða. Fram-
varp þetta markar stærsta sporið,
sem stigið hefir verið á síðari árum
til viðskipta- og framkvæmdafrelsis
í landinu (9.)
GENFARRÁÐSTEFNAN
íslenzka sendinefndin á sjóréttar-
ráðstefnunni í Genf bar fram svo-
hljóðandi tillögu:
„Þegar þjóð er að langmestu leyti
háð fiskveiðum við strönd sína um
afkomu eða efnahagsþróun og
nauðsynlegt reynist að takmarka
heildarafla fisktegundar eða teg-
unda á svæðum, sem liggja að fisk-
veiðibeltinu við ströndina, skal
strandrikið, þegar slíkar takmark-
anir hafa verið settar, hafa forrétt-
indi að því marki, sem nauðsynlegt
er, vegna þess hve það er háð fisk-
veiðum. — Rísi ágreiningur í þessu
efni, getur hvert það ríki, sem
hagsmuna á að gæta, skotið málinu
til gerðardóms". (7.)
Tillaga þessi var samþykkt í
nefnd með 31 atkv. gegn 11, en 46
sátu hjá. Hún var svo felld á ráð-
stefnunni með 37 atkv. gegn 25.
Síðar á ráðstefnunni bar islenzka
sendinefndin fram breytingartillögu
við Kanada-USA-tiIIögu (þar sem
gert var ráð fyrir 10 ára söguleg-
um réttindum), á þá leið að sögu-
legi rétturinn nái ekki til þjóða,
sem yfirgnæfandi er háð fiskveið-
um (23.) Tillagan var felld með 48
atkv. gegn 24.
SAKARUPPGJÖF
Dómsmálaráðherra tilkynnti, að
ákveðið hefði verið að brezk-
um togaraskipstjórum, sem brot-
legir hafa gerzt við islenzk
landhelgislög frá þvi að fiskveiði-
takmörkin voru færð út í 12 mílur,
verði veitt sakaruppgjöf (30.)
VEÐRIÐ
Suð-vestan átt var að mestu ríkjandi
hér sunnan lands í apríl og hlýtt í
veðri, en stundum allhvasst. Vestan-
lands og norðan var aftur á móti
breytilegra veður og nokkru kaldara.
Hiti var þar um og undir frostmarki
og snjókoma stundum nokkur þótt sá
snjór stæði ekki lengi við í byggð.
Síðustu daga mánaðarins var stillt
veður og gott um allt land. 28. apríl
gerði ofsarigningu hér syðra, sem stóð
þó stutt. Einkennilegast mun veðrið
hafa verið á Eyrarbakka, þar sem
gekk á með miklu hagléli í 8 stiga
hita.
Utgerðin
Fyrst í mánuðinum var afli togar-
anna heldur tregur, en fór svo batn-
andi og má heita að síðan hafi veiði
verið góð og stundum ágæt. Lang-
flestir togararnir voru á heimamiðum
og þá mest á Selvogsgrunni og Eldey-
arbanka. Nokkrir hafa verið að veið-
um við Austur-Grænland og veiði þar
verið dágóð. — Þegar á heildina er
litið hefir afli bátanna einnig verið