Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1960, Page 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
265
í skýaböggum frost og fjúk
flytur gamli Kári.
Einu sinni var fóstri minn á ferð
út í Hólm að vcrlagi og var kom-
inn í Helgafellssveitina árla morg-
uns. Þá var fagurt veður og ljóm-
aði sól um land og haf. Þá kvað
hann:
Nú er prýði að líta lönd,
Ijómar fríða stássið,
dýrleg skrýðir Drottins hönd
Drápuhlíðarplássið.
Einu sinni var fóstri að leiða kú
um vetur. Var þá veður gott og
hálft tungl á lofti. Um það kvað
hann:
Tóra dagar tylftir sex
tanna ígul grímu,
halakollu hef til vegs
hálfs í mána skímu.
ígultanni er björn, gríma er nótt,
ígultannagríma er því Bjarnar-
nótt, en svo var vetur kallaður.
Hann segir því að enn sé eftir 72
dagar af vetrinum. Halakolla er
kýr.
Þegar stórgripum var slátrað á
haustin, var venja að skera kjötið
utan af beinunum og salta það, en
beinin voru hengd upp í eldhús og
kölluð ruður, en hér syðra voru
þau kölluð hraun. Þessar ruður
voru svo soðnar á bóndadaginn.
Kom af þeim mikið flot, og gott
þótti fólki að kroppa beinin. Þá
var og drukkið kaffi til hátíða-
brigðis og þótti góð veizla. Ein-
hverju sinni á þriðja degi þorra sá
fóstri minn, að einhver var enn
að kroppa ruður Þá kvað hann:
Þorra er haldið þrflieilagt í þessu koti
með þjóðardrykk og þvestisáti,
þeir sem geta, meira láti.
Fróðleikur og gátur
Fóstri minn lék sér að því að búa
til gátur, og oft voru þær í ljóðum.
Bar hann þær svo undir heimilis-
fólkið til ráðninga, en enginn
mátti gizka á. Hver maður sem
kom með ráðningu, varð að leiða
rök að því að ráðningin gæti verið
rétt. Mér þótti snemma óskaplega
mikið gaman að þessu, og eg var
alltaf að nauða á fóstra mínum:
„Gefðu mér nú gátu!“ Hann varð
alltaf við því, og enn man eg
nokkrar gáturnar Ein var þannig:
Hver er þessi: Hógvært geð,
höfuð löngu, penni með,
undir fugli, alur hvass,
eitt 1 bók og síða vatns.
Ráðningin var vasahnífur. Hóg-
vært geð — þolinmóður, höfuð
löngu — kinn, penni — fjöður,
undir fugli — egg, alur hvass —
oddur, eitt í bók — blað. síða vatns
— bakki.
Einu sinni kom hann inn um
heyskapartímann og sagði:
Úti sá eg svínið lá nú samstundis
gert af strái. Gettu þess.
Ráðningin var galti. Öðru sinni
kvað hann:
Fimm þúsund og t'jögur hundruð mílur
tvennar stundir tólf eg fer,
tvíllaust fundin kyr þó er.
Það var jörðin, og gátu margir
ráðið þá gátu. En eg held að eng-
inn hafi getað ráðið þessa:
Fyrir barni foreldra minna
fyrsta skylda mín er að vinna.
Hafa lög þau heims allar þjóðir,
hvorki er það mín systir né bróðir.
Þar átti hann auðvitað við sjálf-
an sig. Þessa gátu gerði hann um
kvörnina:
Þörf eg snýst og þéna trú,
þó að stundum doski,
er mitt nafn og á sér bú
inni í haus á þorski.
En þessa gátu gat enginn ráðið:
Hvílu á eg húss við gafl,
hlustarskjól eg prýða kunni.
gadda ber mig odda afl,
árin tel í hesta munni.
Ráðningin er biti. í gafli hvers
húss er biti. Hlustarskjól er eyra
og mark á því er biti, enda þótt
skiftar skoðanir kunni að vera um
hvort prýði er að honum þar.
Matar-bita ber maður á oddum
gaffalsins, og aldur hesta merktu
menn á tönn þeirri er kallaðist
biti.
Þannig lék fóstri minn sér að því
að skemmta heimilisfólkinu, og
það var vel þegið Slíkar skemmti-
stundir gleymast' ekki. Eg lifi þær
enn í anda, þótt 80 ár sé liðin síðan.
Og oft finnst mér í vökudraumum
mínum sem eg sé komin í baðstof-
una á Emmubergi og hlusti á þau
Bergljótu og fóstra minn kastast á
vísum alla kvöldvökuna, eða gefa
heimilisfólkinu gátur að glíma við.
Á. Ó. skráði.
Rafmagnsbílar
ÞAÐ hefir verið fremur hljótt um það
á undanfömum árum að smíða bíla,
sem knúðir sé rafmagni. En hugmynd-
in hefir þó aldrei fallið niður og nú
er sagt að 12 fyrirtæki í Bandaríkj-
unum hafi snúið sér að því að finna
upp beztu rafbílana.
Eitt fyrirtæki, Nu-Klea Auto Corp.
í Michigan hefir þegar smíðað raf-
magnsbíl. Hann er einfaldari en
benzínbílar og talinn ódýrari í rekstri.
Honum fylgir og sá kostur, að hann
blæs ekki eitri, eins og aðrir bílar, og
mun því ekki spilla andrúmslofti í
borgum.
Þessi bíll (sem þó er aðeins sýnis-
horn) getur ekið með 65 km. hraða á
klukkustund, og hann getur farið 90
—100 km. á hverri rafmagnshleðslu.
Framleiðendur búast við því að geta
keppt við aðra um verð á bílum, þeg-
ar farið verður að framleiða þessa
bíla í stórum stíl.