Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1960, Qupperneq 1
17. tbl.
Sunnudagur 15. maí 1960
XXXV árg,
ÖNNUR VAR ÖLDIN ÞEGAR
FÓLK TALAÐI SAMAN í LJÓÐUM
Á ELLI- OG HJÚKRUNARHEIM-
ILINU GRUND í Reykjavík er
blind kona, sem Ólöf heitir Jóns-
dóttir, og er nú á 86. árinu, fædd
11. okt. 1874. Hún er systir hins
mikla áhugamanns og hugsjóna-
manns Stefáns B. Jónssonar kaup-
manns og ritstjóra, sem fyrstur
manna hóf mjólkursölu í Reykja-
vík og gerilsneiddi mjólk, varð og
fyrstur til að nota jarðhita til upp-
hitunar. Þau eru af traustum ætt-
um. Faðir þeirra, Jón Guðmunds-
son, Vigfússonar stórbónda á Bíld-
hóli. Móðir þeirra var Marta Sig-
ríður, dóttir séra Jóns Benedikts-
sonar á Breiðabólstað, Setbergi og
víðar. Móðir séra Jóns var Helga,
systir séra Sigurðar á Hrafnseyri,
föður Jóns forseta. Þau séra Jón
og Helga áttu mörg börn, þar á
meðal Benedikt Gabríel amtsskrif-
ara og smáskammtalækni (föður
Benedikts Gabriels skrautritara í
Reykjavík), Sigurð söðlasmið að
Haukagili í Hvítársíðu (föður Jóns
alþingismanns) og Hildi sem átti
Sigurð Andrésson (þau voru for-
eldrar Ásgeirs konsúls og kaup-
manns í Reykjavík).
Ó'óf Jónsdóttir
Þetta verður að nægja sem
kynning, en það má um Ólöfu
segja, að þrátt fyrir sjónleysið er
hún enn svipmikil og ber með sér
að hún hafi skörungur verið.
Minnið er óbrjálað og fylgist hún
enn með öllu sem gerxst, hlustar
stöðugt á útvarp og leggur á minn-
ið allt sem hún heyrir.
Fundum okkar bar fyrst saman
þarna í Elliheimilinu, og var það
af nokkurs konar tilviljun, því að
eg þekkti hana ekki og hafði ekki
heyrt hennar getið. Við tókum tal
saman og eg sagði eitthvað á þessa
leið:
— Þú munt kunna frá mörgu að
segja. Mér er sagt að þú sért fædd
Þjóðhátíðarárið.
Þjóðhátíðin 1874
— Jú, satt er það, en af góðum
og gildum ástæðum man eg ekki
eftir Þjóðhátíðinni, því að eg var
þá ekki fædd. En margt heyrði eg
um hátíðina talað í æsku minni,
það var eins og menn þreyttust
aldrei á að rifja upp ýmislegt í
sambandi við hana. Skógstrend-
ingar heldu sína Þjóðhátíð á
Breiðabólstað og var þar mikið um
dýrðir. Þangað kom allt fólk úr
sókninni, og þar var móðir mín
svo að eg hefi verið þar líka.
Frú Katrín, kona Guðmundar
prófasts Einarssonar bauð öllum
til veizlu og á eftir boðaði hún all-