Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1957, Page 25
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
685
Þingeyrakirkja
eyrakirkja 80 ára afmæli, því að
hún var vígð á 15. sunnudag eftir
trinitatis 1877, sem þá bar upp á 9.
september. Hafði hún þá verið 13
ár í smíðum, enda er hún eitt af
mestu húsum frá þeim tímum og
áreiðanlega það traustbyggðasta.
Áður hafði verið torfkirkja á Þing-
eyrum, sennilega allmikið hús, því
hana hafði gera látið Björn Ólsen
Predikiinarsuiiiinn
umboðsmaður, sem var auðmaður
mikill og höfðingi. Eitthvað af þilj-
um úr þeirri gömlu kirkju var not-
að í baðstofu á Geirastöðum og
stóð hún til skamms tíma. Þær voru
rósamálaðar með rauðum og blá-
um ht. Til er sérstakt rit með lýs-
ingu Þingeyrakirkju og ræðum
þeim, sem fluttar voru við vígslu
hennar af héraðsprófastinum, síra
Eiríki Briem, og eiganda kirkjunn-
ar, Ásgeiri Einarssyni, alþingis-
manni, en mjög er það rit orðið fá-
gætt. Verður hér á eftir fylgt
frásögn þess í ýmsum greinum.
Ásgeir Einarsson fluttist að Þing-
eyrum 1860, tók bráðlega að hugsa
til kirkjugerðar og kveður hann
sig hafa langað til að hafa ina nýju
kirkju svo vandaða og prýðilega,
sem kostur var á, til þess að hún
gæti samsvarað háleitu augna-
miði sínu. Festist það áform í huga
hans að hafa hana úr steini, þótt
sá hængur væri á, að ekkert hent-
ugt grjót var til í landareigninni.
Varð að sækja það vestur í Ás-
bjarnarnesbjörg, draga það á ísum
yfir-Hópið freka viku sjávar og því
næst á kerrum heim á staðinn um
1400 metra veg, sem leggja varð í
því skyni. ViÖ dráttirm er mælt, aö
notaður hafi verið járnaður uxi.
Það olli erfiðleikum, að panta varð
flest erlent efni, og brugðust þær
! pantanir stundum, en sumt fékkst
ekki flutt nær en á Borðeyri, svo
sem allar þakskífurnar og nokkuð
af kalkinu, og varð að flytja það
þaðan fyrst til Höfðakaupstaðar
og síðan á áttæringi þaðan inn í
Húnavatn. Kirkjan kostaði alls um
16 þúsund krónur, átti sjálf í sjóði
um sex þúsund krónur, en tíu þús-
und krónur lagði Ásgeir sjálfur
fram og mun það hafa samsvarað
a.m.k. 150 kýrverðum, enda er
kirkjan í samtíma blaðafregnum
talin vandaðasta og dýrasta hús,
sem nokkur hafi gert af eigin efn-
um hér á landi.
Kirkjan er gerð úr óhöggnu blá-
grýti, lögðu í kalk og eru veggirnir
80 cm. þykkir, en undirstöður eða
grunnmúr undir öllum útveggjum
yfir tvo metra bæði á dýpt og
þykkt. Að innan er hún 12,20x6,60
m., vegghæðin að innan 3,2 en að
utan 3,75 m. Auk þess er stöpull-
inn, sem er um 1,70 m. á veg að
innan, en vegghæð hans er 9,2 m.
Skiroaríonturina