Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1946, Qupperneq 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS v ’
99
Þegar ísland var afvopnað
Sumarið 1856 komu hingað 6
enskir ferðamenn með danska
herskipinu „Thor“. Með skip-
inu var einnig Trampe greifi,
og höfðu þeir náin kynni af
honum á leiðinni og eins á
meðan þeir stóðu hjer við. í
cnska tímaritinu „Chambers
JournaV' birtist seinna ferða-
saga eftir einn þessara ensku
ferðalanga. Minnist hann þar
ofurlitið á Alþingi og sjálf-
stæðisbaráttu íslendinga og er
auðheyrt að hann hefir heim-
ildir sínar frá Trampe greifa.
Hjer fylgir þessi kafli úr ferða
sögunni.
HR. SIVERTSEN sýndi mjer
um daginn húsið þar sem Alþing
er háð. Og hjer sá jeg þetta litla
þing saman komið og gat ekki nóg
samlega undrast hve fátæklegt
það var. Tveir upphækkaðir stól-
ar voru þar í miðju, annar var fyr
ir stiptamtmanninn og hinn fyrir
fundarstjórann eða forsetann. Á
bak við þá var mynd af Kristjáni
konungi 8. í hálfhring þarna um-
hverfis var tvöföld stólaröð fyrir
þingmennina, sem eru 24 talsins.
Svo voru þar sæti fyrir ritara og
þingskrifara. Nokkrir þingmann-
anna voru í gráum vaðmálsfötum,
alveg eins og heima hjá sjer. Allir
voru þeir fátæklega til fara, en
gáfuleg andlit skorti þar ekki.
Mjer þótti leitt að heyra að það
var ekki gott samkomulag milli
þessa þjóðþings og dönsku stjórn-
arinnar. Eftir því, sem jeg komst
næst, þá er samskonar óánægja
á íslandi með stjórnarfarið eins og
verið hefir í írlandi með samveld-
isstjórnina. Þrátt fyrir það að
Danmörk * leggur árlega 12000
sterlingspund til opinberra fram-
kvæmda á íslandi, en fær ekki
nema 5000 punda tekjur þaðan í
staðinn, eru íslendingar óánægð-
ir með það að fá ekki meira. Þeir
vilja að Danir ráðist þar í fram-
kvæmdir, sem gefi landsjóði meiri
tekjur, en danska stjórnin telur
það nóg að vera að eyða 7000
pundum á ári í íslendinga, og vill
að íslendingar le^gi sjálfir á sig
skatta til viðreisnar landinu. Jeg
er hræddur um að hjer hafi sama
sagan gerst eins og í írlandi, að
stjórnin hafi of lengi dekrað við
þjóðina og þannig svift'hana löng
uninni til þess að hjálpa sjer sjálf.
Það er líka íslendingum til
skammar, eftir þúsund ára bygð í
landinu, að þar skuli ekki vera
einn einasti vegarspotti.
Árið 1848, þegar allar hinar óró
legu þjóðir Evrópu voru í upp-
námi, heldu íslendingar líka, að
tími væri kominn til að fá rjettar-
bætur, og þeir heimtuðu stjórnar-
skrá. Konungur sendi þeim frv. að
stjórnarskrá og átti Trampe greifi
að leg'gja það fyrir Alþingi. Þá var
þingið kvatt saman til þess að
ræða og yfirvega málið. En þing-
mennirnir lásu ekki einu sinni
frumvarpið, heldur tóku sjer fyrir
hendur að semja stjórnarskrá eft-
ir sínum geðþótta. Stiptamtmað-
urinn sýndi þeim fram á. að þetta
gæti ekki gengið, og að frumvarp
konungs yrði að leggja til grund-
vallar og gera á því þær breyting
ar, sem æskilegar þætti. En þeir
voru ósveigjanlegir, og er þeir
ógnuðu honum, þá leysti hann
upp þingið. en flestir töldu það
óforsvaranlegt/ og óheppilegt af
honum. Sá hávaði sem varð út úr
þessu hefði eflaust komið kjark-
minni manni til að hopa.*)
ískyg'gileg alda reis, og þess
vegna var nauðsynlegt að senda
herlið til eyjarinnar til þess að
bæla hana niður. Alls voru send-
ir þangað einn liðsforingi og 60
hermenn, og eftir að þeir komu
hættu ærslin. Þegar þeir fóru
höfðu þeir á brott með sjer fjórar
litlar fallbyssur, sem Jörgensen
hafði flutt þangað fyrir mörgum
árum í uppreisnarskyni. Öll eyj-
an var afvopnuð með þessu.--------
★
Um þennan herflokk orkti Brynj
ólfur Oddsson:
Það eru drengir þeigi linir,
þeir eru flestir g'reifasynir
og kanske sumir kóngbornir.
Þeir eiga að haldá oss í skefjum,
uppreisn til þess síður hefjum
og verði hver að vera kyr.
Ónóg reynsla
I mentaskóla nokkrum- í Nýja
Englandi í Bandaríkjunum átti að
skipa yfirkennara. Rektor tók
ekki neitt tillit til starfstíma
kennara skólans, en valdi ungan
mann til starfsins. Kennararnir
urðu sárgramir og einn þeirra fór
á fund rektors, og spurði gremju-
lega hvernig á því stæði að geng-
ið væri fram hjá sjer, hann hefði
þó 20 ára langa reynslu að baki.
— Góði vinur, sagði rektor, þú
hefir ekki 20 ára reynslu að baki.
þú hefir að eins eins árs reynslu
20 sinnum.
*) Það var þegar þingmenn
hrópuðu: Vjer mótmælum allir.