Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2001, Page 13
MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2001
DV
Fréttir
13
Borgarb^jggð þarf stærri bæjarskrifstofur:
Bærinn kann að
fara í kaupfélagið
DV-MVND DANÍEL V. ÓLAFSSON
Bærinn í kaupfélagiö
Einn þeirra möguleika sem koma til greina er aö bæjarskrifstofur Borgar-
byggöar veröi í fyrrverandi húsnæöi KB viö Egilsgötu sem er á góöum staö
og mikiö af bílastæöum.
DV, BORGARBYGGÐ:__________________
Á slðasta bæjarstjórnarfundi var
bæjarstjóranum í Borgarbyggð
veitt heimild til að láta fara fram
athugun á framtíðarfyrirkomulagi
húsnæðismála hjá bæjarskrifstofu
Borgarbyggðar og eru nokkrir
kostir i stöðunni, segir Stefán
Kalmansson, bæjarstjóri í Borgar-
byggð.
„Það liggur fyrir að eigi bæjar-
skrifstofur Borgarbyggðar að vera
til frambúðar í núverandi húsnæði
þurfi að gera þar töluvert kostnað-
arsamar breytingar. Einkum á
þetta við ef og þegar af því verður
að sveitarfélagið taki við málefn-
um fatlaðra eins og stefnt er að.
Jafnframt er núverandi húsnæði
að sumu leyti óhentugt, einkum
hvað varðar nýtingu neðri hæðar
vegna nálægðar við umferðargötu
og vegna takmarkaðra bílastæða
við húsið,“ sagði Stefán.
Menn telja þvi skynsamlegt að
skoða alla möguleika. Einnig er
haft í huga að um þessar mundir
eru aðrir möguleikar til staðar.
Þar hefur einkum verið horft til
svokallaðs Stjómsýsluhúss við
Bjarnarbraut, þar sem Skólaskrif-
stofa Vesturlands var til húsa, og
til fyrrverandi húsnæðis KB við
Egilsgötu. Ætluntn er að skoða
þessa kosti á næstu mánuðum og
þá hugsanlega fleiri ef þeir koma
upp, að sögn bæjarstjórans. -DVÓ
Nýtt skipurit Akranesbæjar:
Sparar 23 milljónir á ári
DV AKRANESI
Nýtt skipurit Akranesbæjar getur
sparað bæjum árlega um 23 milljón-
ir króna. Forsaga málsins er sú að á
síðastliðnu hausti ákvað meirihluti
bæjarstjómar á Akranesi að ráðast
i þýðingarmiklar breytingar á
skipuriti bæjarins. Megininntak
breytinganna var að einfalda stjórn-
sýslu bæjarins, gera einingar henn-
ar sterkari, skilvirkari og hag-
kvæmari. Um leið var takmarkið að
bæta þjónustu við íbúana. Lutu
þessar breytingar einkum að mál-
efnum Akranesveitu og hluta bæjar-
skrifstofu.
Ákveðið var að stofna til þriggja
nýrra sviða innan stjórnkerfisins.
Sameinað var embætti bygginga- og
skipulagsfulltrúa við tæknideild
Akranesveitu og gert úr því eitt
svið, tækni- og umhverfissvið. Þá
var lagt niður starf sérstaks veitu-
stjóra og stofnað til nýs sviðs, fyrir-
tækjasviðs, þar sem saman koma
Akranesveita, Andakílsárvirkjun,
Gáma, Áhaldahús o.fl. Ennfremur
var stofnað nýtt svið inni á bæjar-
skrifstofunum, fjármála- og stjórn-
sýslusvið.
Þá var sérstök stjórn veitufyrir-
tækjanna lögð niður og bæjarráði
falin yfirstjórnin. Til að koma
ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar
í framkvæmd voru skipaðir í starfs-
hóp þeir Gísli Gíslason, bæjarstjóri,
Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari, Jó-
hann Þórðarson frá endurskoðunar-
skrifstofu Jóns Þórs Hallssonar og
Þorvaldur Vestmann, forstöðumað-
ur framkvæmda- og tæknisviðs
Akranesveitu. Þessi starfshópur átti
að hrinda tillögunum í framkvæmd
og ljúka þvi fyrir 15. desember árið
2000.
Nú hefur starfshópurinn skilað
skýrslu um þessar breytingar. Þar
kemur fram að vegna skipulags-
breytinga í rekstri Akraneskaup-
staöar og veitufyrirtækjanna geti
lækkun árlegra útgjalda numið um
34 millj. króna. Þá kemur fram að í
stað kostnaðar sem fellur út vegna
breytinganna komi til útgjalda sem
nemi um 11 millj. króna. Því er nið-
urstaðan sú að árlegur sparnaður
vegna breytts skipulags geti numið
um 23 millj. króna á ári.
-DVÓ
íslenska járnblendifélagið hf. óskar að taka á leigu
raðhús, parhús eða einbýlishús í austurhluta
borgarinnar, heist í Ártúnsholti eða Árbæjarhverfi.
Húsnæðið óskast leigt frá og með júlí nk. Jk
Nánari upplýsingar veittar í síma 432 0200 og 5674880.
-enn meiri afsláttur
Bæjarlínd 6, sími 554 6300
Opið virka daga 10-18. Laugard. 10-16, sunnud. 13-16.
Kjarnagluggar
Dalvegur 28 • 200 Kópavogi • Sími 564 4714 • Fax 564 4713
Heilsan er ofar öllu:
Velnýtt
heilsuparadís
DV, TÁLKNAFIRÐI:
Tálknfirðingar eiga sína
heilsuparadís eins og svo mörg önnur
byggðarlög. íþróttahúsið er mikið not-
að til hinna ýmsu íþróttaæfmga og má
segja að það sé fullnýtt, aðeins einn
tími laus, nánar tiltekið klukkan 19 á
þriðjudögum.
Að sögn Barkar Nóasonar, umsjón-
armanns íþróttamiðstöðvarinnar, er
aðsóknin mjög góð, bæði í sundlaug-
ina og íþróttasalinn. Skipulagðir tím-
ar fyrir fullorðna eru körfubolti, fót-
bolti, blak og leikfimi og stunda þess-
ar greinar um 130 manns á viku
hverri. Hjá börnum og unglingum eru
timar í körfu, fótbolta og sundi og er
þátttakan þar á viku um 190 þátttak-
endur. Sundlaugin er 25 metra
útisundlaug og nýtingin þar fer nokk-
uð eftir veðri en fjöldinn er 15-50 dag-
lega alla daga vikunnar yfir vetrar-
mánuðina. Þannig að hver bæjarbúi
stundar einhverja hreyfmgu í formi
íþrótta nær 1,3 sinnum í viku hverri
yflr veturinn en íbúafjöldi á Tálkna-
firði er rúmlega þrjú hundruð og
fimmtíu manns. -KA
i sumar
Hjá okkur nærðu árangri
pTTpTTprqTrr
Frír pruFutfr^
Aloe Vera
komin til að vera
Sími
553 3818
Tilboð í Febrúar
10 tímar - 40 mínútur
kr. 6.900
Matarráðgjöf og fitumæling
Kynnið ykkur önnur tilboð
Ví áfninga atnsnuc id
og Ijós
TRIM/\F0RM
Bercjhdar
11 ára reynsla
Grensásvegi 50
Opið: mán.-flm. 8-22
fös. 8-20, laug. 10-14