Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2001, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2001
I>V
Fréttir
Umdeilt SímaHapp Friöar 2000:
Vinningaskrá villandi
- og dómsmálaráðuneytið með takmarkanir á útdrætti Milljónapottsins
Töluverð óánægja hefur verið með
hvernig staðið er að SímaHappi Frið-
ar 2000 sem er eins konar hlutavelta
þar sem fólk hringir í ákveðið síma-
númer sem kostar 990 kr. og fær vinn-
inga. Það hefur verið gagnrýnt að
vinningur, sem er t.d. 4000 kr. úttekt
á veitingastað, sé í raun 1000 kr. út-
tekt á fjórum stöðum. Fjölskylda sem
fær slíkan vinning og ætlar út að
borða þarf því að skipta sér niöur á
staðina eða velja einn þeirra og
greiða sjálf mismuninn. Ástþór
Magnússon, forsvarsmaður Friðar
2000, segir að hugmyndin að baki
vinningunum sé sú að noti fjölskyld-
an einn miðann þá sé hún búin að fá
verð símtalsins til baka auk þess sem
hún er komin í Milljónapottinn. Frið-
ur 2000 gerir samstarfssamninga við
fyrirtæki sem vilja kynna sig og eru
vinningar SímaHappsins úttektir á
vöru og þjónustu þeirra.
Þessi gagnrýni er þó
ekki sú eina sem komið
hefur fram á SímaHappið
þvi símalínum Síma-
Happsins var lokað tíma-
bundið á fimmtudag þar
sem upp kom ágreiningur
um hvort um hlutaveltu
eða happdrætti væri að
ræða, en um rekstur
happdrætta gilda strangir
skilmálar. „SímaHappið
er í raun hlutavelta þvi
allir fá vinning,“ segir
Ástþór. Á fimmtudag voru símalín-
umar opnaðar aftur eftir að ráðu-
neytið staöfesti að Friði 2000 væri
áfram heimilt að starfrækja leikinn,
með takmörkunum þó, en leiknum
er ætlað að safna fé til styrktar
stríðshrjáðum. Takmarkanimar
munu vera þær að ekki sé dregið úr
svokölluðum Milljónapotti, sem allir
sem hringja í SimaHappið
fara í, nema einu sinni en
áætlað var að draga úr hon-
um vikulega. Ástþór segir
að þessi krafa ráðuneytis-
ins eigi sér enga stoð en
ætli ráðuneytið að halda
henni til streitu muni það
verða kært til Samkeppnis-
stofnunar og umboðsmanns
Alþingis fyrir brot á sam-
keppnislögum, stjómarskrá
og stjórnsýslulögum. Ást-
þór segist hafa heimildir
fyrir því að einstakir þingmenn, sem
dragi taum samkeppnisaðila á happ-
drættismarkaði, hafi reynt að þrýsta
á ráðherra til að fá leyfi SímaHapps
afturkallað. „Það virðist sem reynt
hafi verið að nota ráðuneytið, að
hætti gamaldags íslenskrar fyrir-
greiðslupólitikur, í þeim tilgangi að
stöðva leikinn," segir hann. „Við
þykjum óæskileg samkeppni þvi hjá
okkur fá allir vinninga.“
Breytt í spurningakeppni
Fái Friður 2000 ekki leyfi til að
draga úr Milljónapottinum vikulega
mun honum verða breytt i spurn-
ingakeppni á meðan kæran á ráðu-
neytið er í vinnslu. „Þeir sem sækja
tombóluvinninga á þessu tímabili
verða spurðir einnar eða tveggja
spurninga og ef þeir vita svarið
munu þeir fá afhentan miða í Millj-
ónapottinn án endurgjalds. Þessar
spurningar eru: Viltu vinna milljón?
og Hvað eru margir fimm þúsund
króna seðlar í einni milljón?“ segir
Ástþór. Hann segir SímaHappið hafa
gengið vel hingað til enda sé hug-
myndin svo góð að ráðgert sé að selja
hana til útlanda og að í framtíðinni
geti alþjóðleg velta Símahapps numið
hundruð milljóna króna. -ÓSB
Ástþór
Magnússon.
Starfsmenn við Vatnsfellsvirkjun:
Otrúlega heppnir með veðrið
- þar sem oft er hreint veöravíti á vetrum
Þórarinn Sigurðsson og Haraldur
Jósefsson voru að fylgjast með er sá
fyrri af tveim rafspennum Vatns-
fellsvirkjunar var hífður af dráttar-
bíl sl. miövikudag.
Þórarinn er búinn að starfa við
Vatnsfellsvirkjun í eitt ár en var
áður í eitt ár að vinna í Sultartanga-
virkjun. „Hér er ágætt aö vinna.
Það hefur verið mjög góð tíð núna
en í fyrravetur var veðrið hérna al-
veg hryllingur frá febrúar og fram
yfir páska. Þá var hífandi rok og allt
á kafi í snjó,“ sagði Þórarinn og leit
yfir virkjunarsvæðið þar sem varla
var nokkum snjó að finna.
Haraldur Jósefsson er tæknimað-
ur hjá ísafli sem er einn af verktök-
unum á svæðinu. „Ég er búinn að
vera hér siðan 1 júlí í sumar. Það er
ágætt að vera héma og tilbreyting
að vinna við þetta. Hér em allt aðr-
ar áherslur og annað umhverfi en
maður er vanur. Yflr vetrarmánuð-
ina vinnum viö fimm daga í einu og
eigum þá frí um helgar. Á sumrin
er unniö á vöktum í sex daga töm-
um og síðan er frí í þrjá daga á
milli.“
- Er ekki ætlunin að klára virkj-
unina fyrir næsta vetur?
„Jú, og það
gengur alveg eftir.
Ég get ekki séð
neitt sem ætti að
koma í veg fyrir
það. Við erum
reyndar búnir að
vera ótrúlega
heppnir með veðr-
ið. Það er nokkuð
ljóst að ástandið
væri miklu verra
ef hér hefði verið
brjálað veður og
snjór það sem af
er vetri. Hér getur
orðið mjög hvasst
og þegar verst er
og þá standa menn
hreinlega ekki á
fótunum, sérstak-
lega þar sem unn-
ið er við inntaks-
mannvirkið. Þar
getur vindurinn
náö sér upp í mik-
inn streng eftir að-
veituskurðinum,"
sagði Haraldur
Jósefsson.
-HKr.
vs.
DVA1YND HORÐUR
Sannlr fjallamenn
Þórami Siguróssyni og Haraldi Jósefssyni líkar bærilega viö virkjunarstörfin.
Akranes:
Fjórir piltar
ákærðir fyrir
Sýslumaðurinn á Akranesi hefur
geflð út tvær ákærur á hendur fjór-
um ungum mönnum fyrir að ráðast
f tvígang að 16 ára gömlum pilti.
Fyrri árásin var á skólaballi á
Akranesi hinn 4. nóvember í fyrra,
þegar piltinum og öörum 17 ára
unglingi lenti saman í kjölfar
illinda á ballinu með þeim afleiðing-
um að pilturinn nefbrotnaði. Seinni
árásin, sem varð viku síðar, er ekki
talin tengjast þeirri fyrri að öðru
leyti en að fómarlambið var hið
sama, en þá er þremur ungum
mönnum á aldrinum 16 til 18 ára
gefið að sök að hafa ráðist að piltin-
um með höggum og spörkum á bíla-
stæði í miðbæ Akraness. Hann
meiddist ekki verulega f það skipti,
en að sögn Ólafs Þórs Haukssonar,
sýslumanns á Akranesi, er síðari
árásin talin alvarlegri þar sem hin-
ir meintu árásaraðilar vom fleiri en
einn.
„Lögin og löggæsluyfirvöld líta
það alvarlegri augum ef aðilar taka
sig saman um brot,“ sagði Ólafur
Þór.
Talsvert var um árásir og illindi
maima í millum á Akranesi fyrir
áramótin, en að sögn Ólafs Þórs hef-
ur ástandiö róast mikið eftir ára-
mótin. -SMK
Austfjarðamið:
Leit að skip-
verja hætt
Leit að ungum skipverja sem
hvarf fyrir borð á togaranum Björg-
vini EA frá Dalvík á fostudagsmorg-
un hefur verið hætt. Skipið var við
veiðar um 50 sjómílur úti af Aust-
fjöröum þegar skipverjinn fór fyrir
borð. Fjöldi togara og varðskip leit-
uðu mannsins allan föstudaginn.
Leitin bar ekki árangur og var
henni hætt þegar komið var fram í
myrkur. -aþ
Ólafsvíkurenni:
Ölvunarakstur á
stolnum bíl
Stolnum bíl var ekiö út af undir
Ólafsvíkurenni um kl. 8.20 í gær-
morgun. ökumaðurinn er 19 ára
gamall piltur og sem að sögn lög-
reglu var ölvaður. Hann var fluttur
á heilsugæslustöðina í Ólafsvík, lít-
ils háttar meiddur á höfði en bíllinn
telst ónýtur. -ss
Veöriö í kvöld
Léttskýjað sunnanlands
í kvöld er gert ráö fyrir norðlægri eða breyti-
legri átt, 3-8 m/s. Sunnanlands verður létt-
skýjaö en skýjaö og þurrt að mestu norðan-
lands. Þykknar upp m/vaxandi austanátt suð-
vestanlands í nótt. Hiti veröur 0-4 stig við
suöur- og austurströndina, annars vægt frost.
Sólargangur og sjávarföll
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 17.03 16.50
Sólarupprás á morgun 10.16 10.45
Síödegisflóö 20.59 01.32
Árdeglsflóö á morgun 09.15 13.58
Skýrii'4ar & v®öuttákniim
^^VINDÁTT —HITI -10! &
^VINDSTYRKUR i nurtrum á sokúrxiu ^FROST HEJOSKÍRT
*>,.íD o
lÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ AtSKÝJAD
w %S? Ö
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
w =
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEOUR SKAF- RENNINGUR FOKA
Allt eftir vi
Hálka í höfuðborginni
Höfuöborgarbúar og sjálfsagt fleiriu
urðu áþreifanlega varir við aö götur
voru orönar hálar nú um helgina eftir
mikið og langt góöviðristímabil.
Samkvæmt upplýsingum Veöurstofu
verður hitastig á næstu dögum í
kringum frostmark og því um aö gera
aö aka varlega.
Rigning eða skúrir Á morgun gerir Veðurstofan ráð fyrir
austlægri átt víðast hvar, 8 til 13 m/s. Rigning eöa skúrir veröa
sunnanlands en skýjaö og úrkomulítiö á Norðurlandi. Hiti verður á bilinu 2
til 6 stig.
Miövikudagur FimmLjdngur Föstudagur
Vindur: "O <T N 5-10 m/% ’ Jjjtíí Vindur: C"7W> 5-10 m/s Vindur: r.' 13-18 m/» > >,,,
Hiti 1° til 5“ Hiti 1° tii 4“ Hiti 1° til 5°
Gert er ráö fyrir suöaustanátt, 5-10 m/s og rigningu eöa skúrum, einkum sunnan- og vestan tll. Vestlæg átt, 5-10 m/s veröur víöast hvar. Rigning austaniands en annars þurrt aö mestu. Veöurstofan gerir ráö fyrir suöaustanátt, 13-18 m/s, en heldur hægari austanlands. Skýjað og viöa rigning.
Veðrið kl. U J ]
AKUREYRI snjókoma 0
BERGSSTAÐIR skýjaö 0
BOLUNGARVÍK snjóél 0
EGILSSTAÐIR 0
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaó 2
KEFLAVÍK Kúrkoma i grennd 2
RAUFARHÖFN rigning 0
REYKJAVÍK skýjað 1
STÓRHÖFÐI léttskýjað 4
BERGEN skúr 3
HELSINKI aiskýjaö 2
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 4
ÓSLÓ rigning og súld 3
STOKKHÓLMUR þokumóöa 3
ÞÓRSHÖFN léttskýjaö 6
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 6
ALGARVE alskýjað 14
AMSTERDAM skúr á siö. kls. 5
BARCELONA hálfskýjaö 11
BERLÍN léttskýjaö 7
CHICAGO skýjaö -5
DUBLIN léttskýjaö 5
HALIFAX léttskýjaö -9
FRANKFURT skúr 7
HAMBORG skúr á síö. kls. 6
JAN MAYEN þokumóða 1
LONDON hálfskýjaö 8
LÚXEMBORG skúr á siö. kls. 3
MALLORCA skýjaö 14
MONTREAL -9
NARSSARSSUAQ snjókoma -9
NEW YORK heiðskirt -6
ORLANDO helöskírt 2
PARÍS skýjaö 7
VÍN rigning 4
WASHINGTON heiöskírt -8
WINNIPEG þoka -8