Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1896, Síða 61

Eimreiðin - 01.01.1896, Síða 61
6i Fyrir neðan myndina var stór skápur með kvennbuningi; einkum var þar töluvert af faldbuningi. Til beggja handa efst var tjaldað ábreið- um og reflum, en þar fyrir neðan var öðrum megin glerskápur með allskonar kvennsilfri, en hinum megin glerkassi með smástúlkum í; var ein þeirra búin brúðarbúningi, önnur i upphlut, þriðja i hátiðabúningi eða faldbúningi. Þar var og krói einn i skírnarbúningi. Mikið var þar af íslenzkri tóvinnu, og á gólfinu sat stúlka i peysubúningi við rokk- inn sinn og kvað: Úr þeli þráð að spinna mjer þykir næsta inndæl vinna o. s. frv., en svo lágt að enginn heyrði það, þvi stúlk- an var úr vaxi og spýt- um, en svo var um allar þessar íslenzku stúlkur, og þótti mörg- um það mein. Par voru Grænlend- ingar snjallari eða rjett- ara sagt Danir þeir, sem áttu og gerðu úr garði grænlenzku sýn- inguna. A henni sat grænlenzk kona i ut- saumuðum selskinns- fötum við hannyrðir sinar. Pess þarf eigi að geta, að hún var i sparifötunum sinum, vel gerðum að græn- lenzkri tízku, prýdd með rauðum selskinns bryddingum og perl- um. Hún var i brók- um, eins og títt er um konur á Grænlandi, og með rautt silkiband um Grænlenzka stúlkan við vinnu sína. hárið, en það þýðir, að hún var ungfrú eða ólofuð. Þó er þess eigi getið, að neinn yrði tiljað biðja hennar. Svo barnsleg og uppburðarlitil sem hún sat þarna við vinnu sína alltaf í sama horninu, þá hefur hún þó einna mest stutt að því, að ekkert var að líkindum skoðað optar á allri sýningunni en einmitt græn- lenzka sýningin. Allt, sem þar var, var lika samvalið og einkennilegt, hvað öðru likt að sniði og gerð, en öllu öðru ólíkt. f*að var ein heild fýrir sig og sýnishorn af annari menntun og öðru mannlífi, sem er óskylt með öllu lífi voru eða Dana, eða annara menntaðra Norðurálfu þjóða. Sökum alls þessa hlaut grænlenzka sýningin að vekja mikla eptirtekt,

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.