Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1896, Page 54

Eimreiðin - 01.01.1896, Page 54
54 Og herinn dirfist, gortar, hrín og grobbar, og sjer af ótal afreksverkum hreykir, stelur og rænir, bruggar banaráð, Og sæmdum krýnast álfar, ærutobbar, og einkum sá, er bítur bezt og sleikir; í frelsis nafni er níðingsverk hvert háð. Ó hvað skal þessi voða villieldur um víðar sveitir, ofsi, flan og fum, tálflugur, lygar, heipt og hróp og gum, er stjórnarglamrið vekur, skapar, veldur! Vit þú, að fólkið flónsku sinnar geldur, ef fyrir sannleik tekur skrök og skrum, en vitkast ekki og fær sitt bar og brum og manndómskrapt, er sjer í söðli heldur. Því þótt menn lögin þrisvar helgi og blessi, er þeim og verður fall og fjörtjón búið af falsi jafnt sem ofsans axarsköptum. Vor einka-ábyrgð (ef því orði trúið), sem aldrei bregzt nje bilar, hún er þessi: að læra að verja viti sínu og kröptum. Og þetta orð mun þykja satt og rjett, er þagna fer og slævast ofsinn heiti, og ekki býr á öðruhvoru leiti skrílkóngur sá, er kallar: þing er sett! Og enginn nefnir íhalds-flugufrjett, að frelsið ekkert einkaleyfi veiti óðara, en fólkið viti og orku beiti, og vakni sjálft að setja lög og rjett.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.