Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1896, Qupperneq 25

Eimreiðin - 01.01.1896, Qupperneq 25
25 fyrir hvern J)ann skynberandi mann, er upp vill ljúka augunum. Hið nafnkunna safn af fornnorrænum gripum, er hefur muni að geyma allt frá frumaldalííi Norðnrlandabúa, löngu, löngu fyrir Drottins minni, og niður til síðari alda, bregður eins og í fjölbreyttri lifandi myndaröð menningarsögu Norðurlanda fyrir augu áhorfenda. Hið mikla og fjöl- skrúðuga safn af alheimsgripum sýnir oss hinar ýmsu þjóðir heimsins og lifnaðarháttu þeirra, frá Eskimóum og Indíánum, er hafast við í dimmum og draugslegum hreysum og leggja sjer til munns selspik og soðna maðka, og til fornþjóðanna, Kinverja og Indverja, er i ýmsum greinum hafa náð hærra menningarstigi, en Evrópuþjóðir þekkja til. far er dýrafræðissafn, auðugt að fágætum dýrategundum, allt frá geysi- stórum beinagrindum af dýrum frumaldanna, er mest líkjast finngálknum þeim og ferlíkunum, sem endur og sinnum finnst getið í fornum skræðum, og til örsmárra fugla frá heitu löndunum, er bregða slíku glitskrúði fyrir augun, að engum mennskum manni hefur tekizt að mynda það. Þar er hið heimsfræga höggmyndasafn Thorvaldsens, er hann gaf Kaupmanna- höfn eptir sinn dag. Standa þar með veggjum fram öll hin aðdáanlegu listaverk hans og finnst enginn maki þess safns í víðri veröld. Sjálfur kaus meistarinn sjer legstað í miðjum húsagarði, og finnst mönnum ósjálfrátt sem andi hins framliðna hvíli yfir staðnum og blási lifi í kaldan steininn fyrir sjónurn vorum. Með innilegri gleði og djúpri lotningu lítum vjer þessi andans börn snillingsins. Þótt þau hvorki sjeu hold nje bein, heldur að eins kaldur steinn, þá eru þau þó i bezta og göfugasta skilningi hold af hans holdi og bein af hans beinum. Á ári hverju streymir fjöldi útlendinga úr ýmsum áttum til Hafnar, eigi hvað sizt til að sjá safn þetta. Enn fremur er þar litmyndasafn, er meðal annars hefur að geyma hin nafnkenndustu verk danskra listamanna. Eá er konunglega bókhlaðan, sem er eitt af hinum stærstu bókasöfnum heimsins. Allir eiga kost á að nota söfn þessi ókeypis. Sem uppeldis- og menningarmeðöl hafa söfn þessi meiri þýðingu en frá verði sagt. Að vísu er það satt, að margur er sá maðurinn, er aldrei á æfi sinni litur við þeim, og að fjöldinn allur af þeirn, er koma og skoða þau, eigi tekur neinum dýpri áhrifum af þeim, en hitt er og engu síður víst, að mörgum mönnum hafa þau skapað hinar fegurstu unaðsstundir og haft djúp og óafmáanleg áhrif á sálir þeirra. Eef*ltr námfús og skýr unglingur i fyrsta skipti kernur inn á listasöfn þessi, er eins og honum birtist nýr heimur, er sýnir honum undramyndir, fegurri en hjarta hans hafði dreymt um, og hann þykist allt i einu vera staddur þar, er nýr himinn og ný jörð blasir fyrir sjónum í geislum hinnar fyrstu morgunsólar. Hann finnur nýjar og óþekktar tilfinningar hrærast í hjarta sinu, og svo framarlega sem hann ber fólgið í sálu sinni nokkurt listafrækorn, þá tekur það þegar að þroskast og ber á sínum tima fögur blóm. Eað er margt athugavert við stórbæjarlifið. Eað er mjög hætt við að svo geti farið, að glaumurinn og gleðin gripi æskumanninn, er þangað kemur til að leita sjer menningar, deyfi algjörlega rödd hjartans og samvizkunnar, stingi honum svefnþorn, svo hann gleymi heimkynni sinu, foreldrum, vinum og sjálfum sjer með, sjúgi úr honum merginn og sogi hann að lokum til botns i hringiðuna eða skili honum aptur sem útþvældum aumingja. En það er lika margt fagurt og gott við
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.