Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1896, Page 21

Eimreiðin - 01.01.1896, Page 21
21 heldur og á stundum og meðfram bæði Norðmenn og Svíar. Petta kemur til af þvi, að Kaupmannahöfn eigi aðeins liggur vel við fyrir farmenn og ferðalanga, heldur verður hún einnig á vegi fyrir straumum heimsmenntunarinnar, er þeir leita norður á bóginn. Flestallar andlegar hreyfingar, er gjöra vart við sig hjá stórþjóðunum, komast þangað von bráðar, þó hægt og sígandi fari stundum; staðnæmast þær í bili, áður þær haldi lengra norður og ná að umskapast eptir eðli og þörfum þjóðar- innar. Pegar svo Norðmenn og Svíar taka að leita fyrir sjer og freista að ná uppsprettum heimsmenntunarinnar, þá er Kaupmannahöfn fyrsti áfangastaðurinn á leiðinni, og þar eru þeir vanir að staldra nokkuð við áður þeir haldi lengra. Um leið geta þeir svo þar fengið sjer ofurlít- inn »forsmekk« þeirrar andlegu hressingar, er þeir eru á leit eptir. Háskólinn og bókhlaða hans. Þegar um andlegt líf er að ræða, má þvi eigi neita, að Kaupmanna- höfn einnig hvað það snertir ber nokkurs konar stórbæjarbrag á sjer. Vilji rnenn skygnast urn andlegt lif i Kaupmannahöfn, liggur beinast við að leita til Kaupmannahafnarháskóla. Far hefur menningin aðalbæki- stöðu sína. Par hafa menntunarstraumarnir frá útlöndum nú í 400 ár safnazt fyrir, samlagazt lundarfari og andlegum hæfileikum hinnar dönsku þjóðar og streymt þaðan yfir landið. Frá ræðustólum háskólans hafa helztu gáfnavargar Dana ár frá ári í langan aldur rutt úr sjer þvílíku kynstri af allskonar vísindum, að æskulýðurinn hefur varla við að gleypa það allt í sig, þótt menntunarþorstinn sje mikill. Að þessum ræðustólum jháskólakennaranna safnast árlega í kring um 400 ungra netnenda, er henda á lopti hvert eitt orð, er fram gengur af þejrra munni og safna í sarpinn. Pegar svo þessi ungi nemendaflokkur, úrvalalið þjóðarinnar í andlegum skilningi, er búinn að svala þorsta sínum við Mímisbrunninn,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.