Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1896, Side 15

Eimreiðin - 01.01.1896, Side 15
15 teknar fram í »Konunglegri auglýsing til íslendinga« 2. nóv. 1885. Þar segir svo: »Ef æðsta stjórn íslands yrði, eins og ákveðið er í hinu samþykkta frum- varpi, fengin í hendur ábvrgðarfausum landstjóra, skipuðum af Oss óg með að- setur í landinu sjálfu, er skyldi hafa vald til að ráða þeim málum til lykta í umboði Voru, er konunglegs samþykkis þurfa, — með þeim einum undantekn- ingum, að hann gæti eigi staðfest breytingar á stjórnarskipunarlögunum, eigi náðað menn nje veitt almenna uppgjöf á sökum — og sem skyldi taka sjer rá'ð- gjafa og láta þá framkvæma vald sitt og hafa ábyrgð á stjórnarstörfunum fyrir alþingi, þá myndi ísland með þessu móti, eins og Vjer þegar áður höfum tekið fram í auglýsing Vorri til alþingis 23. maí 1873, er urn líka uppástungu frá al- þingi var ao ræða, í raun og veru verða leyst úr öllu sambandi við rikið, þar sem æðsta stjórn þess þá yrði falin á hendur stjórnarvaldi í landinu sjálfu, er óhdð vœri baði liinni annari stjórn Vorri og eins rikisrdði Voru. En slíkt týrir- komulag mundi Jara i bdga við hina gildanai stjórnarskipun rikisins, og gœti eigi samrýmzt stöðu islands að lögum sem óaðskiljanlegs hluta Danaveldis, er gjörir það að verkum, að æðsta stjórn hinna íslenzku mála sem og allra mála ríkisins til samans verður að vera í höfuðstað Vorum, eins og líka er gengið út ffá í lög- unum 2. jan. 1871, 6. gr.« Þetta er allt og sumt sem stjórnin hefur fram að færa sem ástæður fyrir neitun sinni. En þessar ástæður telja Islendingar nokkurn veginn einskisverðar, og skoða þær fremur sem yfirskyns- vífilengjur en sem sannar ástæður. Stjórnin virðist allt af gleyma því, að hjer er einungis að ræða um skipulag hinna sjerstöku mála Islands. Látum okkur nú skoða þessar ástæður, sem skipta virðist mega í fernt. 1. Þetta skipulag á að leiða til þess, að Island verði úeystúr öliu sambandi við ríkið«. Hvernig geta menn nú sagt slíkt, þegar öll hin almennu málefni landsins eptir sem áður liggja undir hið almenna löggjafarvald ríkisins, ríkisþingið og stjórnina i sarnein- ingu, og þegar engar breytingar verða gerðar á stjórnarskrá ís- lands, nema þær nái staðfesting konungsins sjdlfs? Er þetta tvennt ekki nægileg trygging fyrir því, að Island geti ekki orðið leyst úr sambandi við ríkið? Það skyldu menn halda. 2. Þetta skipulag á enn fremur að »fara í bága við hina gild- andi stjórnarskipun ríkisins«. Hjer getur ekki verið átt við annað en grundvallarlögin; en þar sem grundvallarlögin, eins og jeg hefi þegar tekið fram, gilda ekki á Islandi, þá getur skipun hinna sjer- stöku mála Islands, hvernig sem henni væri fyrir komið, aldrei komið í bága við grundvallarlögin, því hin sjerstöku mál íslands og grundvallarlögin eiga ekki agnar ögn saman að sælda. 3. Þá á þetta skipulag »eigi að geta samrýmzt stöðu íslands að lögum sem óaðskiljanlegs hluta Danaveldis«. Stjórnin gleymir

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.