Morgunblaðið - 24.11.2000, Side 30

Morgunblaðið - 24.11.2000, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Kostunica Júgóslavíuforseti varar við „miklum átökum“ Aukin skæru- liðastarfsemi Albana í Serbíu Vranje, Pristina. AP, AFP. VOJISLAV Kostunica, forseti Júg- óslavíu, hefur krafist þess í bréfi, sem gert var opinbert í gær, að Atlantshafsbandalagið, NATO, komi í veg fyrir, að albanskir skæruliðar fari inn í Suður-Serbíu frá Kosovo- héraði. Sagði hann, að ella væri hætta á „miklum átökum". Yfir- stjórn gæsluliðs NATO-ríkjanna í Kosovo brást við með því að vara Serba við að senda herlið inn á vopn- laust belti við Kosovo en lokaði auk þess einni eftirlitsstöð á mörkum Kosovo og Serbíu. Kostunica segir í bréfinu, að al- banskir skæruliðar hafi setið fyrir serbneskum lögreglumönnum í fyrradag skammt frá Kosovo og hann varar við „miklum átökum“ verði ekki komið í veg fyrir vaxandi skæruliðastarfsemi Albana í Suður- Serbíu. Ætlaði Kostunica að fara um átakasvæðin í gær. „Þrátt fyrir sigur lýðræðisaflanna í Júgóslavíu hefur alþjóðasamfélagið ekki staðið við sínar skyldur gagn- vart landinu,“ segir Kostunica í bréf- inu til George Robertsons, lávarðar og framkvæmdastjóra NATO. Zoran Djindjic, einn helsti ráð- gjafi Kostunica, segir, að síðustu fjóra daga hafi að minnsta kosti fjór- ir serbneskir lögreglumenn verið skotnir og 10 særst á vopnlausu belti milli Kosovo og Serbíu. Friðar- gæsluliðar handtóku 10 Albani í fyrradag þegar þeir reyndu að kom- ast framhjá bandarískri eftirlitsstöð og sama dag fundust vopn í bíl, sem stöðvaður var rétt við landamæri Kosovo og Serbíu. „Glæpsamlegar árásir“ fordæmdar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær yfirlýsingu þar sem „glæpsamlegar árásir“ eru harðlega fordæmdar og hvatt til, að þeir, sem að þeim standi, verði tafarlaust dregnir til ábyrgðar. Starfsemi albanskra skæruliða í Suður-Serbíu hefur verið mest í Presevo-dalnum en hann er að mestu byggður fólki af albönskum ættum. Segjast skæruliðar berjast fyrir einingu hans og Kosovo og fullu sjálfstæði héraðanna. Talsmaður Lýðræðisflokks Kos- ovo, PDK, sem spratt upp úr skæru- liðahreyfingunni í héraðinu, hvatti í gær Albani í Serbíu til að láta af of- beldi. Sagði hann, að tími átaka væri liðinn og leysa yrði málin með lýð- ræðislegum hætti. Gíslar frelsaðir í Thailandi LIÐSMENN sérsveita í Thailandi gerðu í gær áhlaup á bíl nokk- urra fanga sem flúðu úr fangelsi á miðvikudag og tóku með sér gísla, þ. á m. fangelsisstjórann. Allir fangarnir voru felldir í gær en þeir voru innflytjendur frá Búrma, öðru nafni Myanmar og höfðu verið ákærðir fyrir ýmsa glæpi. Þeir voru vel vopnum bún- ir og reyndu að komast undan til Búrma en námu staðar er hjól- barði sprakk á bílnum f Kanch- anaburi-héraði, í um 150 km fjar- lægð frá fangelsinu sem þeir struku úr. Sérsveitarmennirnir eltu þá í 13 klukkustundir og létu siðan til skarar skríða. Þrír gísl- ar mannanna voru frelsaðir en einn þeirra var illa særður. Sér- sveitarmenn sjást hér flytja lík eins fangans á brott. Valentin Paniagua, nýskipaður forseti Perú, er orðlagður fyrir heiðarleika Heitir því að styrkja lýðræðið Lima. AFP, AP. HINS nýskipaða forseta Perú, Val- entin Paniagua, bíður nú það erfiða verkefni að stýra umskiptunum til raunverulega lýðræðislegra stjómar- hátta í landinu, þai- til nýjar kosning- ar verða haldnar í apríl á næsta ári. Stjómmálaskýrendur binda vonir við að hann sé einmitt rétti maðurinn til þess að styrkja lýðræðið í landinu, eftir tíu ára valdatíð Albertos Fuji- moris. Paniagua, sem leiðir miðjuflokkinn Þjóðfylkinguna, hefur notið virðingar sem einn af leiðtogum stjómarand- stöðunnar í Perú, en afskipti hans af pólitík hófust fyrir nærri fjómm ára- tugum. Hann hefur orð á sér fyrir að vera hófsamur stjómmálamaður og þykir eiga gott með að miðla málum, enda hefur hann notið trausts, jafnt meðal stjórnarsinna og stjóraarand- stæðinga. Hann er orðlagður fyrir heiðarleika og hefur aldrei verið við- riðinn pólitísk hneykslismál. Við embættistökuna hét Paniagua því að beita sér fyrir víðtækum um- bótum á stjómkerfinu. „Nýtt tímabil er að hefjast," sagði hann í ræðu sinni, og bætti því við að hann myndi leggja höfuðáherslu á að ná sáttum og styrkja lýðræðið í landinu. En um- bætur í efnahagsmálum em ekki síð- ur aðkallandi í Perú, og hét hinn ný- skipaði forseti því að gera gangskör að því að minnka erlendar skuldir landsins, sem nema um 2.500 millj- örðum króna. Samdráttur hefur ríkt í efnahagslífi landsins undanfarin tvö ár og atvinnuleysi er um 8%. Eitt af fyrstu embættisverkum Paniaguas var að skipa Javier Perez de Cuellar, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í embætti forsætisráðherra fram að kosningum. De Cuellar beið ósigur fyrir Aiberto Fujimori í forsetakosn- ingunum árið 1995 og hefur síðan haft búsetu í Frakklandi, en var væntan- legur til Perú í dag. Stjómmálaskýr- endur segja skipun hans ljá bráða- birgðastjórninni trúverðugleika og styrk. Tvisvar gegnt ráðherraembætti Valentin Paniagua er 64 ára gamall og er lögfræðingur að mennt. Hann var fyrst kjörinn á þing árið 1963 fyrir Kristilega demókrataflokkinn, og tók tveimur ámm síðar við embætti dómsmálaráðherra í stjóm Femand- os Belaundes. Þegar herinn steypti Belaunde af stóli árið 1968, með Valentin Paniagua stuðningi Kristilega demókrata- flokksins, gekk Paniagua til liðs við Þjóðfylkinguna. Hann var kosinn for- seti fulltrúadeildar þingsins þegar Belaunde tók á ný við völdum árið 1980 og tók við embætti menntamál- aráðherra árið 1984. Ári síðar gerði hann hlé á stjómmálaþátttöku sinni og sneri sér að kennslu í stjórnskip- unarrétti en hóf aftur afskipti af stjómmálum fyrr á þessu ári. Bresk þingnefnd vill skera upp herör gegn sjúkrahússýkingfum SKERA verður upp herör gegn því alvarlega vandamáli, sem „alvarleg- ar og oft banvænar sýkingar á sjúkrahúsum" em. Kemur þetta fram í skýrslu breskrar þingnefndar en hún telur að allt að 5.000 manns deyi árlega vegna sjúkrahússýkinga og er kostnaður heilbrigðiskerfisins vegna þess metinn á 127 milljarða ís- lenskra króna. í skýrslunni, sem BBC, breska ríkisútvarpið, greindi frá í gær, er sagt að grípa verði til róttækra ráð- stafana í baráttunni við þennan vanda, sem ógni lífi sjúklinga og sé samfélaginu ákaflega dýr. Skýrsluhöfundar segja að árlega fái um 10.000 manns alvarlega sýk- ingu á sjúkrahúsum. Hafi stjórnvöld V er ða allt að 5.000 manns að bana árlega vissulega reynt að bregðast við þessu en samt sé langt í frá að nóg sé að gert. Heyja verði stríðið gegn banvænum sjúkrahússýkingum á öllum stigum og öllum sviðum heil- brigðiskerfisins. „Nauðsynlegt er að allir taki þátt í þessu, ekki bara sérfræðingarnir," segir í skýrslunni. í henni segir enn- fremur að ein af meginástæðunum fyrir auknum sýkingum sé sú að læknar og hjúkmnarfræðingar þvoi sér ekki um hendur á milli þess sem þeir meðhöndli sjúklinga. „Það er með öllu ólíðandi að þessari fram- skyldu skuli ekki vera sinnt betm-.“ Talsmaður bresku læknasamtak- anna hefur tekið undir með skýrslu- höfundunum en þeir gagnrýna einn- ig yfirvöld fyrir það að það skuli taka allt að þremur áram að ná saman upplýsingum um fjölda fyrrnefndra sýkinga. John Denham, heilbrigðisráð- herra Bretlands, segir að verið sé að ráðast í aðgerðir, sem hafi verið van- ræktar áram saman. Meðal annars verði sjúkrahúsum gert skylt að skýra strax frá sýkingum af þessu tagi og þær upplýsingar birtar al- menningi. Reuters Yfirlýsing ráðherranefndar Evrópuráðsins Aðildar- umsókn Júgóslavíu verðitekin fyrir Strassborg, Zagreb. AFP, AP. RÁÐHERRANEFND Evrópu- ráðsins er reiðubúin að sam- þykkja að Júgóslavíu verði veitt aðild að ráðinu, að því er sagði í yfirlýsingu nefndarinnar í gær. Þing Evrópuráðsins mun fjalla um málið en nýr forseti Júgósla- víu, Vojislav Kostunica, telur mikilvægt að landið fái aðild til að auðveldara verði að byggja upp á ný samskipti ríkisins við umheiminn. Þótt ráðherramir mæltu með aðild Júgóslavíu sögðu þeir einnig að þeir myndu fylgjast af- ar vel með stjómmálaþróun í Júgóslavíu en þingkosningar verða þar 23. desember. Þing Evrópuráðsins mun fara yfir stjómarskrá landsins, lýðræðis- hættír verða skoðaðir grannt og einnig réttarfar áður en ákveðið verður hvort þessi atriði full- nægja þeim skilmálum sem sett- ir era fyrir aðild. Einnig verður ákveðinn frestur til lagfæringa sé talin þörf á þeim. Júgóslavía sótti einnig um að- ild að Evrópuráðinu 1998 er ókyrrðin í Kosovo var farin að magnast en umsóknin var lögð til hliðai'. Árið 1989 fékk Júg- óslavía eins konar aukaaðild að þingi Evrópuráðsins og undir- ritaði og staðfesti ýmsa samn- inga sem aðildarríkm hafa gert sín í milli, einkum á sviði menn- ingarmála. Er átökin hófust á Balkanskaga og upplausn sam- bandsríkisins byrjaði 1992 voru öll samskipti ráðsins við Júg- óslavíu fryst. Jacques Chirac, forseti Frakklands, er í heimsókn í grannlandi Júgóslavíu, Króatíu. Hann sagðist í gær vera þess fullviss að Kostunica myndi á endanum feta í fótspor nýrra valdhafa í Króatíu og taka upp samstarf við stríðsglæpadóm- stól Sameinuðu þjóðanna í Haag. „Hann er lýðræðissinni,“ sagði Chirac um starfsbróður sinn í Belgrad. Kostunica hefur neitað að framselja foi’vera sinn í emb- ættí, Slobodan Milosevic, til Haag og fullyrt að dómstóllinn sé ekki hlutlaus heldur gangi er- inda Vesturveldanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.