Morgunblaðið - 24.11.2000, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.11.2000, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þetta er síðasta hálmstráið hr. Gore, fóttalning er eina aðferðin sem eftir er að reyna. 82% telja að skylda eigi inn- flytjendur til að læra íslensku TÆPLEGA 82% íslendinga, eða 81,9%, telja að skylda ætti útlend- inga sem setjast að á íslandi til frambúðar að læra íslensku, að því er fram kemur í þjóðarpúlsi Gall- ups. 12,9% eru því andvíg en 5,2% segjast hvorki fylgjandi né andvíg. Könnun Gallups, sem unnin var dagana 18. október til 7. nóvem- ber, leiddi einnig í ljós að ríflega 56% landsmanna þykja reglur sem heimila útlendingum að setjast að á íslandi hæfilega strangar. Á hinn bóginn telur um þriðj- ungur að reglurnar séu of rúmar og ríflega 10% að þær séu of strangar. Menntun hefur áhrif á afstöðu manna Vekur nokkra athygli að mennt- un virðist skipta nokkru um af- stöðu manna hvað þetta varðar, en rösklega 46% þeirra sem hafa grunnskólapróf og hafa auk þess stundað annað nám þykja reglum- ar of rúmar. Einungis 10% þeirra sem hafa háskólapróf eru hins veg- ar sammála því mati. Þá telja 48,2% þeirra sem svör- uðu að Islendingar taki vel á móti innflytjendum, þ.e. að innflytjend- ur fái jákvæð viðbrögð frá íslend- ingum þegar þeir koma hingað til lands. 26,6% telja innflytjendur fá neikvæð viðbrögð og 25,3% telja viðbrögðin hvorki jákvæð né nei- kvæð. Úrtakið í könnun Gallups var 1661 maður af öllu landinu á aldr- inum 18-75 ára og af þeim svöruðu tæplega 70%. HORNSÓFAR m 220 Horn 2 + 3 Hom 2 + 2 Áklseði hornsófanna or moð ðhrelnlndavörrt. SUÐURLANDSBRAUT 22 • SÍMI 553 7100 & 553 6011 Horn 1+2 Uppeidis- og menntunarfræðiskor Hl Mat og þróun í skólastarfi Sigrún Aðalbjarnardóttir UPPELDIS- og menntunarfræði- skor við félagsvís- indadeild Háskóla íslands stendur fyrir málþingi í Odda, stofu 101 klukkan 14 í dag. Þar verður fjallað um mat og þróunarstarf í skól- um. Dr. Sigrún Aðalbjam- ardóttir prófessor við um- rædda deild og formaður uppeldis- og menntunar- íræðiskorar hefur annast með fleirum undirbúning málþingsins. Hún var spurð um tilefni málþings- ins. „Sérstakt tilefni er það að í haust kom til okkar Fulbright-kennarinn dr. Penelope Lisi prófessor, sem sérhæft hefur sig í mati á skólastarfi. Annað tilefni er að við erum að breyta matslínu meistaraprófsnámsins hjá okkur, við erum að undirbúa eins árs meistaraprófsnám til 45 eininga í mati og þróunarstarfi í skólum og einnig námsleið þar sem þátttakendur geta sérhæft sig í mati með því að taka fimmtán ein- inga nám. Markmiðið með þessari námsleið er að þátttakendur öðlist fræðilega þekkingu á margvísleg- um aðferðum við mat á skólastarfi og fái þjálfun í beitingu þeirra. Þriðja tilefni þessa málþings er að sjálfsögðu mikilvægi þess að skapa vettvang til umræðu um þessi mál. Skólum er skylt að meta starf sitt og það er áríðandi að skólafólk fái til þess stuðning. Það þarf að standa mjög vel að slíku mati til að það geti þjónað markmiði sínu sem best - þ.e. að bæta og þróa skóla- starfið." - Ermikil þörf á slíku mati? „Nokkur ár eru síðan leitt var í lög að svona mat fari fram. Hugs- unin er sú að mat á skólastarfi leiði til árangursríkara skólastarfs. Ég tel að í því efni sé afskaplega mikil- vægt að kennaramir meti starf sitt sjálfir. Að þeir séu með í þessu matsferli. Þeir eru lykdlinn að þró- unarstarfi í skólum og það er mjög gefandi og lærdómsríkt fyrir þá að skoða hvar þeim tekst vel til og hvar kannski síður til að geta bætt starfið. Um þetta verður m.a. fjall- að á þinginu." - Hvað flcira verður fjallað um? „Þama koma ýmis sjónarmið fram um mat á skólastarfi. Menntamálaráðherra, Bjöm Bjamason, mun hefja þingið með ávarpi, þar á eftir flytur deildar- forseti, dr. Jón Torfi Jónasson pró- fessor við félagsvísindadeild, ávarp. Þá mun dr. Penelope Lisi tala. Hún kallar erindi sitt Þankar um mat og þróun í skólastarfi: Beggja skauta byr. í framhaldi af erindi hennar verður teflt fram ýmsum sjónaimiðum þar sem nokkrir skólamenn verða með framsögu. Hér verða á ferð fulltrúi frá menntamálaráðu- neytinu, skólameistari, fræðslustjóri Reykja- víkur, grunnskólakenn- ari sem lokið hefur meistaraprófi í mats- fræðum og svo lektorinn okkar hér í matsfræðum við upp- eldis- og menntunarfræðskor HI.“ - Hefur orðið mikil framþróun í skólastarfí? „Það hefur verið mikil þróun í skólastarfi hér á landi og kennarar eru mjög virkir í því starfi. Sjálf bind ég miklar vonir við nýja náms- grein, lífsleikni, en þeim þætti er meðal annars ætlað að eíla félags- þroska og samskiptahæfni nem- enda. Ég tel að slík þjálfun sé feiki- lega góður undirbúningur undir lífið.“ - Gerið þið hjá uppeldis- og fé- ► Sigrún Aðalbjarnardóttir fæddist á Hvammstanga 9. júlí 1949. Hún lauk kennaraprófi 1969 og stúdentsprófi 1970 frá Kennaraskóla Islands, BA-prófi 1983 í uppeldisfræði frá HÍ og meistaraprófi 1984 og doktors- prófi 1988 frá Harvard-háskóla úr sálfræðideildinni innan School of Education. Hún starfaði sem grunnskólakenn- ari um tíma og námsefnishöf- undur á vegum menntamála- ráðuneytisins en hefur siðan 1988 verið kennari við félags- vi'sindadeild HI. Sigrún er gift Þórólfi Ólafssyni tannlækni og eiga þau tvo syni og eina son- ardóttur. lagsfræðiskor HI rannsóknir á þessum sviðum? ,Já, það eru ýmsar rannsóknir gerðar hér. Sjálf hef ég sérstakan áhuga á að rannsaka félagsþroska nemenda, en hér eru líka gerðar rannsóknir á fagmennsku kennara, á skólastjómendum og mennta- kerfinu, framvindu nemenda í námi og að meta og gera úttekt á stofnunum. Mikið þróunarstarf er í gangi hjá okkur í uppeldis- og menntunarfræðiskorinni. Til við- bótar því sem ég nefndi hér á áðan erum við jafnframt að undirbúa tvær aðrar námsleiðir í framhalds- námi sem hægt verður að taka til fimmtán eininga en líka til meist- araprófs, 45 eininga. Aðra köllum við Fræðslustarf og stjómun. Hún er ætluð fólki sem vinnur við eða hefur áhuga á að sinna fræðslu- starfi á breiðum vettvangi, hvort sem það er í menntastofnunum eða innan fyrirtækja. Æ fleiri starfa í fyrirtækjum og stofnunum að því að sinna fræðslu og mikilvægt er að þeir hafi til þess góðan grann. Markmið námsins er að þátttak- endur öðlist þekkingu og hæfni í að skipuleggja fræðslu, vinna að gerð fræðsluefnis og verði færir um að hafa umsjón með fræðslustarfsemi. Hin námsleiðin er Kennslu- fræði og námsefnisgerð. Þessari 15 eininga námsleið er ætlað að koma til móts við vax- andi þörf fyrir sí- og endurmenn- tun kennara og þá einkum kennara í efri bekkjum gmnnskóla og fram- haldsskóla. Markmiðið er að gefa kennumm tækifæri til að fylgjast með þróun í kennslu faggreinar sinnar." - Hverja óskið þið helst að sjá á málþinginu? „Allir em velkomir. Mat á skóla- starfi er í brennidepli og ættu því fjölmargir innan menntakerfisins að eiga erindi á málþingið. Ekki síst skólameistarar, kennarar og náms- ráðgjafar." Það þarf að standa vei að mati á skóla- starfi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.