Morgunblaðið - 24.11.2000, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 24.11.2000, Blaðsíða 51
'MÖRG&NBLÁÖífe ' ÖÖSTtírDÁGIÍRM’ NÖVÉMBÉR2Ó00 (Hl MINNINGAR " saumavélamar með ykkur og saum- uðuð allar gardínumar í íbúðina og settuð upp á mettíma. Það var gaman að fylgjast með hvað þið systkinin vomð samrýnd og miklir vinir. Þú hafðir ákveðnar skoðanir á því hvemig verkaskiptingin ætti að vera á heimilinu og ég hef reynt að fylgja því, við litla hrifningu konu minnar. Óll böm elskuðu þig, dóttir okkar kallaði þig alltaf litla barnið, því þeg- ar þið lékuð ykkur saman varst þú litla bamið og hún mamman. Þegar afi Böðvar dó var skilið eftir stórt tómarúm í lífi þínu og lífi okkar allra, þú talaðir mikið um hann, enda var söknuðurinn mikill, en þú stóðst þig eins og hetja þegar þú varðst orðin ein en nú emð þið saman að nýju.Við fómm saman til Ítalíu og Búlgaríu og einnig fómm við hringveginn saman, þetta vom ógleymanlegar ferðir. Elsku amma Dóra, við viljum þakka þér fyrir allar samverustundimar sem við áttum og við munum alltaf geyma minninguna um þig í hjarta okkar og aldrei gleyma því hvað þú varst góð við okkur, við vitum að afi Böðvar tekur á móti þér. Hvíl þú í friði. Pétur Smári, Jóhanna Soffía, Silja Rós. Elsku amma Dóra. Nú, þegar að kveðjustund er komið, reikar hugur- inn til æskuáranna. Til þeirra stunda sem ég átti í Skeiðarvoginum með þér og afa Böðvari. Ailtaf var vel tek- ið á móti manni og iðulega biðu heitar pönnukökur eða vöfflur á eldhús- borðinu. Ef beðið var um eitthvað var alltaf sama viðkvæðið, „þú mátt fá allt sem þú vilt, þú veist það“. Þú leyfðir okk- ur krökkunum líka stundum að stel- ast í sælgætisskúffuna hans afa (sem alltaf var stútfull) eða í kökuboxið sem geymdi dísætu kökumar hans. Aldrei kvartaðir þú yfir neinu og varst alltaf ótrúlega þolinmóð við barnabömin. Á unglingsárunum kom ég stund- um til þín með nokkrar vinkonur mínar með mér og fengum við að liggja yfir videómyndum á meðan þú barst í okkur mat eða sælgæti. Einn- ig kom það fyrir að við fengum allar að gista í kjallaranum, það vora alltaf allir velkomnir í Skeiðarvoginn. Ég gleymi heldur ekki Rimini- ferðinni sem ég fór með ykkur afa, Lilju, Helga, Bödda og Pétri Smára. Það var mjög skemmtileg ferð. Það lýsir þér kannski best að þú leyfðir mér að velja áfangastaðinn þó svo að þér væri meinilla við að vera í mikl- um hita. Ósérhlífin varst þú og vildir allt fyrir alla gera. Það er ómetanlegt fyrir böm að eiga ömmu sem hefur tíma fyrir þau. Því fengu líka dætur mínar að kynn- ast og þá sérstaklega Elín Ósk. Sam- an gátuð þið leikið ykkur tímunum saman, spilað, lesið eða dundað eitt- hvað í saumaherberginu. Eftir að afi dó og þú fluttir í Ár- skógana áttum við tvær fleiri góðar stundir saman. Þeir era mér ómetan- legir þriðjudagsmorgnamir sem ég kom til þín í morgunmat áður en við fóram að kaupa í matinn og skoða okkur um í bænum. Þeirra stunda á ég eftir að sakna. Ég kveð þig, elsku amma mín, með þökk fyrir allt sem þú hefur gert fyr- ir mig og fjöiskyldu mína. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfm úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir oglýsirumókomnatíð. (Þórunn Sig.) Þín nafna, Dóra. Elsku amma Dóra. Við systurnar eigum eftir að sakna þess að geta ekki lengur komið í heimsókn til þín í Árskógana. Það var alltaf gott að koma til þín og fá heitar pönnukökur. Þú vildir alltaf allt fyrir okkur gera. Við eigum eftir að sakna þín sárt. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring saenginniyfirminnl (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Elín Ósk, Eva Ósk og Eyrún Ósk. Mig langar til að minnast með nokkram orðum móðursystur minn- ar, Halldóra Jónsdóttur, eða Dóra systur eins og hún var alltaf kölluð af systkinum sínum og systkinaböm- um. Dóra var ein af 13 systkinum, þar af 6 systram. Samband þeirra systkinanna var einstaklega náið og átti Dóra ekki minnstan þátt í að halda fjölskyldunni saman. Hún lét sér ákaflega annt um alla sína ætt- ingja og fjölskyldur þeirra, sem og alla sem hún átti samskipti við. Dóra var alla tíð stór hluti af mínu lífi. Ég minnist allra heimsóknanna með mömmu til Dóra og Böðvars á Langholtsveginn þegar ég var bam, allra bókanna sem til vora á heimil- inu og hægt var að sökkva sér niður í tímunum saman, allrar hlýjunnar og gestrisninnar sem við nutum á heim- ili þeirra. Ég minnist ekki síður vin- áttu þeirra hjóna við mig og fjöl- skyldu mína eftir að ég varð fullorðin. Enginn getur átt betri vini en Dóra og Böðvar. Það er mikil gæfa að eignast vináttu fólks eins og þeirra. Ég og fjölskylda mín og móðir þökkum þér, elsku Dóra, fyrir sam- fylgdina. Líf okkar verður fátækara án þín. Fjölskyldu þinni og systkin- um sendum við innilegar samúðar- kveðjur. Erla og fjölskylda. + Brynleifur Kon- ráð Jóhannesson fæddist í Reykjavik 17. maí 1978. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Foss- vogi 14. nóvember sfðastliðinn. Útför Brynleifs fór fram frá Grafarvog- skirkju 22. nóvem- ber. Sú hugsun var fjar- stæð fyrir rúmri viku að það næsta sem við gerðum fyrir vin okkar Binna væri að skrifa um hann eftir- mæli. Þegar það er stórt skarð í hjarta manns er erfitt að pinna niður þau orð og þær tilfinningar, sem við áttum saman, í eina litla grein. Ef maður ætti að skrifa um allt það góða og jafnframt það slæma sem við deildum myndi heil bók ekki rýma þann texta. Þú varst vinur okkar og við feng- um oft að kenna á góðlátlegri stríðni þinni og þá var stutt í hláturinn. En oft varstu leiður og umkomulaus og þá reyndi maður að gjalda líku líkt og fá þig til að brosa aftur, það tókst nú yfirleitt. Við munum sérstaklega eftir því þegar þú varst á þeyt- ingi við að baka hitt og þetta, og svo spurðirðu okkur aftur og aftur hvort okkur þætti baksturinn þinn ekki góður. Auðvitað, hann var frábær. Eða þegar þú fékkst þér pinna í tunguna og við kölluð- um þig Binna pinna, svo gastu gert okkur brjál- aðar að fikta í þessum blessaða pinna þínum. Þú gast verið svo fynd- inn á einlægan, bams- legan hátt. Við fundum okkur alltaf eitthvað til dundurs og létum fólkið í kringum okkur hrista höfuðið yfir fíflagangin- um í okkur. Við voram líka oft að bralla eitthvað sem okkur þótti voða sniðugt en öðram ekki, þannig að við létum hina bara ekki vita af því. Það verður alltaf stór staður í hjarta okkar sem stendur á BynnY (ekki prentvilla) þar sem við geymum minningar okkar um ljúfan dreng. Það era margir snortnir af þessum skyndilega missi. Við megum ekki gleyma, að Binni glímdi við banvæn- an sjúkdóm, sem líkt og illkynja æxli getur tekið sig upp aftur. En sem betur fer er yfirleitt til lækning, þó svo sú leið sé frekar löng og stremb- in. Það er okkar von að fólk sjái að þjáning er ekki endalaus í þessum heimi. Þó svo það sjáist ekki glæta í bláan himin fyrir þungum skýjuiat kemur alltaf sá dagur þegar birtir tit Elsku Binni, hvar sem þú ert von- um við að þú sért fullfrískur og blómstrir eins og þú átt skilið. Það hefði verið gaman að geta séð þig blómstra hérna hjá okkur. Við kveðj- um þig nú í hinsta sinn í þessari til- vera, og vonumst til að sjá þig að nýju eftir um það bil 75 ár. Þínar vinkonur, Anna Sigríður Pálsdóttir og Sigurbjörg Magnúsdóttir (Anna Sigga og Sibba). Elsku Binni, síðast þegar ég sá þig geisluðu í þér augun af gleði og þú leist svo vel út. Þú sagðir mér þá að þér hefði aldrei liðið betur. Mér fannst að þú hefðir sigrast á þessari baráttu sem þú hafðir þurft að heyja alltof lengi, ég skil svo vel þína van- líðan sem þú þurftir að kljást við, því við voram að berjast við sama dóm- inn. En svona er þetta á hótel jörð, sumir dvelja lengi en aðrir fara allt of fljótt. Ég veit samt, elsku Binni minn, að að þér líður betur núna. Það verður hugsað vel um þá sem koma til guðs eftir svo langa baráttu sem þína. Ég kveð þig nú um stundarsakir því ég veit við munum hittast aftu|. Ég varðveiti fallega brosið þitt og tindrandi augun þín í huga mér. Þín vinkona, Hulda Björk Sigurðardóttir (Dulah). BRYNLEIFUR KONRÁÐ JÓHANNESSON + Hjartkær eiginmaður minn, NJÁLL BENEDIKTSSON frá Bergþórshvoli, Garði, lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 19. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Útskálakirkju laugar- daginn 25. nóvember kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar og annarra aðstandenda Málfríður Baldvinsdóttir. t Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengda- faðir, afi og langafi, PÉTUR M. SIGURÐSSON mjólkurfræðingur og fyrrum bóndi í Austurkoti, Engjavegi 67, Selfossi, sem lést þriðjudaginn 14. nóvember, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 25. nóvember kl. 10.30. Magnús Pétursson, Ólafur Pétursson, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Sigurður H. Pétursson, Ragnhildur Þórðardóttir, Margrét Pétursdóttir, Jórunn Pétursdóttir, Þröstur V. Guðmundsson, Guðrún K. Erlingsdóttir, Pétur Hauksson, barnaböm og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum við ykkur öllum, sem sýnduð okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR RÓSU JÓNSDÓTTUR, Túngötu 18, Grenivík. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki öldr- unardeildar Kristnesspítala fyrir góða og kærleiksríka umönnun. Jóakim Guðlaugsson, Júlíus Unnar Jóakimsson, Sigurlaug Svava Kristjánsdóttir, Rósa Jóna Jóakimsdóttir, Þórsteinn Arnar Jóhannesson, Guðlaugur Emil Jóakimsson, Elsý Sigurðardóttir, Jenný Jóakimsdóttir, Árni Dan Ármannsson, Rúnar Jóakim Jóakimsson, Þórunn Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okk- ur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ELSU D. HELGADÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, Árskógum 2, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Halla Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Hafstein Gíslason, Hans Bjarni Guðmundsson, Steinunn Njálsdóttir, Friðjón Guðmundsson, Karen Emilsdóttir, Snorri Guðmundsson, Lilja Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ERNA ARADÓTTIR, frá Patreksfirði, andaðist á líknardeild Landspítalans, Kópa- vogi, fimmtudaginn 23. nóvember. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Móðir okkar, KRISTÍN PETREA SVEINSDÓTTIR, lést á Hrafnistu laugardaginn 18. nóvember. Minningarathöfn verður í Áskirkju í dag, föstu- daginn 24. nóvember, kl. 13.30. Útförin fer fram frá Gufudal laugardaginn 25. nóvember kl. 14.00. Blóm vinsamlega afþökkuð. Þeir, sem vilja minnast hennar, láti björgunarsveitina Heimamenn á Reykhólum njóta þess, sími 570 5900. Fyrir hönd fjölskyldunnar, systkinin frá Gufudal. t Þökkum innilega vináttu, samúð og hlýhug við andlát og útför ÞORGERÐAR INGIBERGSDÓTTUR. Systkini hinnar látnu og aðrir aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.