Morgunblaðið - 24.11.2000, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 24.11.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2000 33 Listíðahópurinn, talið frá vinstri: Páll Jensson, Þórir Ormsson, Rita Freyja, Guðmundur Sigurðsson, Snjólaug Guðmundsdóttir og Gróa Ragnvaldsdóttir. Á myndina vantar Ástríði Sigurðardóttur, Ólöfu Sig. Davíðsdóttur og Sverri Vilbergsson. Listíð í Borgarnesi SÝNING Listíðahópsins verður opnuð í Safnahúsinu í Borgarnesi á morgun, Iaugardag, kl. 15. I hópnum er borgfirskt lista- og handverksfóik sem sýnir skraut- og nytjahluti úr horni, tré, ull, gleri og fleiri efnum. Flestir hlutir á sýningunni eru til sölu. Átta manna sönghópur undir stjórn Steinunnar Árnadóttur syngur við opnunina. Sýningin verður opin virka daga kl. 13-18 og á fimmtudags- kvöldum kl. 20-22. Sérstök helgaropnun verður dagana 16. og 17. desember. Sýn- ingunni lýkur 22. desember. Stórsveit Reykjavíkur Norræn stór- sveitartónlist STÓRSVEIT Reykjavíkur efnir til tónleika í Ráðhúsi Reykjavík- ur á morgun, laugardag, kl. 16, og sama efnisskrá verður flutt í sal Verkmenntaskólans á Akur- eyri á morgun, sunnudag, kl. 17. Á dagskrá verður tónlist eftir Sigurð Flosason saxófónleikai-a í útsetningum sænska stór- sveitastjórans og útsetjarans Daniels Nolgárds. Nolgárd mun sjálfur stjórna hljómsveitinni, en hann hefur tvivegis áður stjórnað Stórsveit Reykjavíkur. Sigurður Flosason mun koma fram sem einleikari með stórsveitinni á þessum tón- leikum. Daniel Nolgárd er einn af fremstu stórsveitastjórnendum og útsetjurum Svía. Hann hefur starfað með öllum atvinnustórsveitum þar í landi, m.a. Nordbotten Big Band og Bohuslen Big Band. Þá var Nol- gárd um fjögurra ára skeið aðal- stjórnandi Sandvikenastórsveit- arinnar, þekktustu og vin- sælustu áhugamannastórsveitar Svíþjóðar. Nolgárd starfar einn- ig sem píanóleikari og kennari, en hann er yfirmaður djass- deildar tónlistarháskólans í Ingesund. Sigurður Flosason hefur verið í fremstu röð íslenskra djass- tónlistarmanna um langt árabil, staðið fyrir fjölbreyttu tónleika- haldi og leikið inn á mikinn fjölda geisladiska, bæði eigin og annarra. Sigurður hefur verið yfirkennari djassdeildar Tónlist- arskóla FÍH frá 1989. Hann hlaut íslensku tónlistarverðlaun- in árið 1996 sem djassleikari ársins og var tilnefndur til Nor- rænu tónlistarverðlaunann árið 2000. Lögin sem ílutt verða samdi Sigurður Flosason á árunum 1987-1996, en Daniel Nolgárd hefur unnið að útsetningum verkanna undanfarin tvö ár. Sigurður og Daniel hafa áður flutt þessa efnisskrá með Stór- sveit Reykjavíkur, Sandviken- stórsveitinni í Svíþjóð og stór- sveitum tónlistarháskólanna í Stokkhólmi og Ingesund. í febr- úar verður sama efnisskrá svo flutt með Bohuslen-stórsveitinni í Gautaborg og norður-norsku unglingastórsveitinni í Bodö í Noregi. Norræni menningarsjóðurinn styrkir þetta verkefni. Bókmenntavaka á ísafírði HIN árlega bókmenntavaka Menn- ingarmistöðvarinnar Edinborgar á Isafirði verður haldin í Edinborgar- húsinu á morgun, laugardag, kl. 16. Eftirtaldir höfundar lesa úr verk- um sínum: Þorsteinn J. Vilhjálmsson: Takk mamma mín, minningabók. Þórhall- ur Vilhjálmsson: Svínahirðirinn. Bima Anna Björnsdóttir: Dís. Am- aldur Indriðason: Mýri. Sigurjón Magnússon: Hér hlustar aldrei neinn. Matthías Viðar Sæmundsson verður með erindi þar sem hann fjallar m.a. um nýja útgáfu á Píslar- sögu Jóns þumlungs. Söngfjelagið úr Neðsta sér um tónlistarflutning. Gestum stendur til boða að kaupa kaffi og meðlæti á kr. 500. Bach, Undína og einsetumaðurinn TONLIST Dómkirkjan KAMMERTÓNLEIKAR Tónlistardagar Dómkirkjunnar. Sigurbjörn Bemharðsson, Marta Guðrún Halldórsdóttir, Áshildur Haraldsdóttir og Anna Guðný Guð- mundsdóttir fluttu verk eftir Jó- hann Sebastian Bach, Wolfgang Amadeus Mozart, Carl Reinecke, Samuel Barber og Fritz Kreisler. Miðvikudag kl. 20.30. TÓNLISTARDÖGUM Dóm- kirkjunnar lauk á miðvikudag- skvöldið með tónleikum þar sem fram komu Sigurbjörn Bemharðs- son fiðluleikari, Anna Guðný Guð- mundsdóttir píanóleikari, Marta Guðrún Halldórsdóttir sópransöng- kona og Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari. Efnisskrá tónleikanna var blönd- uð og fjölbreytt en þó prýðilega vel samansett. Sigurbjöm Bemharðs- son lék fyrst Einleikssónötu nr. 1 í g-moll eftir Bach BWV 1001. Það kom gagnrýnanda vemlega á óvart að heyra Sigurbjörn leika talsvert undir getu. I heild var sónatan óró- leg og í túlkunina vantaði bæði yfir- vegun og meiri innileik. I fúguþætt- inum vora tvígrip óhrein og prestoþátturinn varð óskiljanlegum asa að bráð. Marta Guðrún Halldórsdóttir söng þrjú lög eftir Mozart við með- leik Ónnu Guðnýjar Guðmundsdótt- ur. Lögin vora Das Lied der Trenn- ung; Als Luise die Briefe ihres ungetreuen Liebhabers verbrannte og loks Abendempfindung. Síðast,- nefnda lagið bar af í flutningi þeirra; kliðmjúk kvöldstemmningin sem þær sköpuðu var sérstaklega áhnfamikil. Áshildur Haraldsdóttir og Anna Guðný fluttu sónötuna Undine eftir Carl Reinecke, einn virtasta pían- ista seinni hluta 19. aldar. Reinecke var í slíkum metum, að sjálfur píanósnillingurinn Franz Liszt réð hann til að kenna dætram sínum á píanó. Undine-sónatan ber þess líka merki að hann var fær píanóleikari. Sónatan er 'sérstaklega fallega sam- in fyrir flautuna en hlutverk píanós- ins er ekki síður stórt og fallegt. Mikið var gaman að heyra þær Ás- hildi og Önnu Guðnýju leika þetta ljúfa verk. Allegro-þátturinn var ástríðuþranginn og heitur, en hitinn leystist upp í mikinn gáska í bráð- fjöragum Intermezzo-þættinum. Angurvær Andante-þátturinn var yndislega leikinn; þar var hlutverk píanósins stórt og þær Áshildur og Anna Guðný fóra á kostum. Loka- þátturinn var leikinn með brillians og bravúr með sama ástríðuþunga og einkenndi fyrsta þáttinn. Þetta var ákaflega músíkalskur og indæll flutningur, og samleikur Áshildar og Önnu Guðnýjar var eins góður og hjá margreyndu dúói. Sönglög Samuels Barbers heyr- ast því miður allt of sjaldan hér, - og þá helst að maður heyri Söngva einsetumannsins. Það er undarlegt að söngvarar skuli ekki hafa áhuga á að sækja meira í þennan digra og fagra sjóð sönglaga. Marta Guðrún hefur áður flutt einsetumannslögin öll, en á tónleikunum í Dómkirkj- unni söng hún þijá söngva. Anna Guðný lék með á píanóið. Þessir söngvar henta rödd Mörtu ákaflega vel; - það er stutt í þjóðlagablæinn og textamir era einfaldir og auð- skiljanlegir. Marta Guðrún og Anna Guðný fluttu lög Barbers skínandi vel og af mikilli einlægni og list- fengi. Rúsínan í pylsuendanum á þess- um tónleikum var auðvitað endur- reisn fiðluleikarans. Resitatív og Scherzo eftir Fritz Kreisler lék í höndum Sigurbjöms Bemharðsson- ar og hann flutti þetta erfiða glans- númer, sem reynir bæði á fingrafimi vinstri handar og bogatækni hægri handar, frábærlega músíkalskt og vel. Þegar upp var staðið vora þetta prýðisgóðir tónleikar. Það var sér- staklega gaman að heyra Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur leika svo listavel með tónlistarkonunum Mörtu Guðrúnu og Áshildi sem gagnrýnandi man ekki eftir að hafa heyrt hana leika með áður. Bergþóra Jónsdóttir ------------------ Tónleikar í Skálholts- kirkju TÓNLEIKAR verða í Skálholt- skirkju á morgun, laugardag, kl. 16. Á efnisskránni eru verk eftir Pal- estrina, Jakob Arcadelt, Diderich Buxtehude, Jón Ásgeirsson, Atla Heimi Sveinsson o.fl. Fram koma Kór Nýja tónlistar- skólans, stjómandi Sigurður Braga- son, Kvennakórinn Ljósbrá, stjórn- andi Nína María Mórávek, og Skálholtskórinn, stjómandi Hilmar Öm Agnarsson. Undirleikarar verða Bjami Jónatansson, Richard Simm og Hilmar Örn Agnarsson. taeknival.is COMPAQ Compaq EX borðvél 600Mhz Intel Celeron örgjörvi 64 Mb vinnsluminni Geisladrif & hljóðkort 10 Gb harður diskur Windows 98 stýrikerfi 17“ Compaq S-710 skjár 3 ára ábyrgð Aukahlutir Stækkun úr 17“ í 19“ skjá Kr.15.000.- m.vsk Gpson Laser EPL 5700 Kr.44.900.- m.vsk 3Com XL 10/100 netkort Kr.6.800.- m.vsk Intel EtherExp Pro 10/100 netkort Kr.6.800.- m.vsk Vinnustöð 1 33,000.“ verðm.vsk Reykjavík • Sími 550 4000 | Akureyri • Sími 461 5000 | Keflavík • Sími 421 4044
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.