Morgunblaðið - 24.11.2000, Page 26

Morgunblaðið - 24.11.2000, Page 26
26 ■ Fös^rúDÁaúR&t: úövéiííBéR2ooo 'MÖRGÉNÉÉXfiÍÐ VIÐSKIPTI IKE A notar lausnir ÁrsuppRjör Fiskiðjusamlags Húsavikur frá Landsteinum DANSKA hugbúnaðarfyrirtækið Navision Software A/S, framleiðandi Navision-viðskiptalausnanna, og Landsteinar hafa gert samkomulag við Inter IKEA Systems B.V., móð- urfyrirtæki IKEA-samstæðunnar, um innleiðingu lausna sem Land- steinar hafa þróað í Navision-kerf- inu. Með samningnum mun Inter IKEA Systems B.V. mæla með notk- un sérþróaðrar lausnar í Navision Financials, sem Landsteinar hafa smíðað, í öllum þeim verslunum sem selja IKEA-vörur með sérleyfi frá Inter IKEA Systems B.V. Navision- lausnir frá Landsteinum hafa nú þegar verið settar upp í verslunum IKEA í Ástralíu, á íslandi og í Kúv- eit. í fréttatilkynningu Navision-fyr- irtækisins kemur fram að reiknað sé með að samningurinn muni skila um 250 milljónum íslenskra króna í sölu á hugbúnaðarleyfum á næstu þrem- ur árum, en velta Landsteina verður mun meiri þar sem fyrirtækið mun einnig selja sínar vörur og vinna við innleiðingu lausnanna ásamt því að veita þjónustu við notkun þeirra. Lego hættir við að nota hugbúnað frá Oracle STJÓRNENDUR Lego í Dan- mörku hafa ákveðið að hætta við uppsetningu á Oracle-viðskipta- hugbúnaði örfáum mánuðum áður en hann átti að vera fullbúinn til notkunar. Fyrir aðeins um ári ákv- að Lego að hætta við SAP-við- skiptahugbúnaðinn, sem þó hafði ekki að fullu verið lokið við að setja upp og nota frekar hugbún- aðinn frá Oracle sem nú á að láta sigla sinn sjó. Og til þess að kór- óna allt saman ætlar Lego að láta hefja aftur uppsetningu á SAP- hugbúnaðinum. Peter Perregaard, framkvæmdastjóri Oracle, segir að ákvörðun stjórnenda Lego sé ill- skiljanleg: „Ég hef aldrei kynnst svona vinnubrögðum. Við áttum ekki eftir nema nokkurra mánaða vinnu til þess að ljúka verkinu og þá gerist þetta. Þetta er stórfurðu- legt, eiginlega bara tragíkómískt." Talsmenn Lego segja hins vegar að viðskiptakerfi Oracle, lli, hafi ekki reynst vera nægjanlega nú- tímalegt til þess að halda utan um viðskipti Lego og því hafi verið hætt við allt saman. „Þetta eru skringileg rök,“ segir Perregaard. „Við höfum sett upp hugbúnaðinn hjá meira en hundr- að fyrirtækjum í Evrópu sem mörg hver eru svipuð Lego. Þar að auki buðum við Lego fast verð og fastákveðinn afhendingartíma.“ Stjórnendur Lego segja hins vegar að Oracle hafi ekki staðið við það sem um var samið og því kunni Lego að fara fram á skaða- bætur. „Ég held að það sé ekki rétt að láta klögumálin ganga á víxl í fjölmiðlum. Við munum funda með stjórnendum Lego inn- an skamms og fara yfir málið,“ segir Perregaard. 225,3 milljóna kr. tap TAP Fiskiðjusamlags Húsavíkur nam 225,3 milljónum króna á síðasta rekstrarári, það er frá 1. september 1999 til 31. ágúst árið 2000. Rekstr- arárið á undan nam tap félagsins 126,4 milljónum króna. Eigið fé félagsins minnkar um 35,4%, eða úr 605,2 milljónum króna í 391,2 milljónir króna. 1 ársreikningi Fiskiðjusamlags Húsavíkur eru kröfur og eignarhlut- ir í hlutdeildarfélögum færðir niður um 172 milljónir króna vegna van- fæmissjónarmiða. Hér er um kröfur vegna eignasölu upp á 71 milljón, 14 milljón króna viðskiptakröfur, krafa og eignarhlutur vegna verksmiðju í Kanada upp á 56 milljónir og eignar- hlutir í hlutdeildarfélögum upp á 31 milljón króna þar sem rekstrarfor- sendur þeirra eru nú ótryggar, sam- kvæmt upplýsingum frá Fiskiðju- samlaginu. Afkoma félagsins á reikningsárinu er nokkru verri en áætlanir höfðu gert ráð íyrir og stafar það af lækk- andi framlegð í rækjuvinnslu og óhagstæðri þróun gengis seinni hluta ársins, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Gert er ráð fyrir áframhaldandi erfiðleikum í rekstri félagsins næsta reikningsár, meðal annars vegna óhagstæðra ytri skilyrða. í hálf fimm fréttum Búnaðarbanka íslands kem- ur fram að niðurstaða reikningsárs- ins sé afleit og ljóst sé að breyting þarf að verða á rekstri félagsins. Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf Úr ársreikningi 2000 wmMSBkmmmm 1.9.-31.8. br HHHH 1.9.-31.8. Rekstrarreikningur 1999/00 1998/99 Breyting Rekstrartekjur Milljónir króna 1.996,1 1.750,8 +14,0% Rekstrargjöld 1.816,2 1.572,3 +15,5% Afskriftir 137,6 110,6 +24,4% Fjármagnsliðir -84,6 -122,2 -30,8% Aðrar tekjur og gjöld -153,6 -19,1 +704,2% Aflögð starfsemi -29,4 -53,0 -44,5% Hagnaður (tap) ársins -225,3 -126,4 +78,2% Efnahagsreikningur 31.08.00 31.08.99 Breyting Eignir samtals Milljónir króna 1.565,3 2.654,8 -41,0% Eigið fé 391,2 605,2 -35,4% Skuldir 1.174,1 2.049,6 -42,7% Skuldir og eigið fé samtals 1.565,3 2.654,8 -41,0% Kennitölur og sjóðstreymi 1999/00 1998/99 Breyting Eiginfjárhlutfall 25,0% 22,8% Veltufjárhlutfall 0,80 1,16 Veltufé frá rekstri Milljónir króna 54,5 155,6 -65,1% Samskip annast lagerhald og vöruafgreiðslu Búrs Heildarverð- mæti samnings- ins 800 milljónir Viltu vita hvað tekvr viö af boókerfi Símans? BÚR ehf. hefur samið við Samskip um allt lagerhald og afgreiðslu vöru sem Búr kaupir inn. Heildar- verðmæti samningsins er um 800 milljónir króna. Samningurinn er til fimm ára og í honum felst, með- al annars, að Samskip taka að sér alla afgreiðslu á 6.500 vörunúmer- um, sem samsvarar um tveimur milljónum heildsölueininga á ári. Ákveðið var á dögunum að ganga til samninga við Samskip eftir lokað útboð. Búr ehf. er hlutafélag sem sér um innkaup, lagerhald og vöruaf- greiðslu fyrir Kaupás, Samkaup, Matbæ, Kaupfélögin, _ hraðbúðir Olíufélagsins og fleiri. Árlega velta í þurrvöru er um 4 milljarðar króna. Samskip reisa nýtt vöruhús í fréttatilkynningu kemur fram að þjónusta við Búr verði aukin á næstunni, meðal annars munu Samskip reisa nýtt vöruhús á at- hafnasvæði félagsins sem tekið verður í notkun í júlí á þarnæsta ári. Með því skapast möguleiki fyrir Búr að fjölga verulega vöru- flokkum, bæta við innflutningi á ávöxtum og grænmeti og fjölga vörutegundum í frysti- og kæli- vöru. Markmiðið með samningnum við Samskip er að gera búðir fyrir- tækjanna; Nóatún, 11/11, KÁ, Sparkaup, Nettó, Úrval, Strax, kaupfélögin og hraðbúðir ESSO, samkeppnishæfari á matvöru- markaði. Það var mat forráðamanna Búrs að best væri að láta þessa þjón- ustu í hendur fyrirtækis sem hefði sérhæfingu á þessu sviði; þannig fengjust aukin gæði og hagstæð- ara verð. Verslanirnar geta dregið úr birgðahaldi, veitt betri þjónustu, fengið vöru á lægra verði og aukið hraðann í vöruveltunni. Með því að hafa allt birgðahald á einum stað nægir búðunum að fá eina vöru- sendingu á dag, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Á ráðstefnunni Björgun 2000 á Grand Hótel í Reykjavík um helgina verður haldin málstofa um samræmdan gagnagrunn viðbragðsaðila og nýjar leiðír í boðunarmálum. — ICELANDAIR HÓTELS Málstofan er sérstaklega áhugaverð fyrir þau fyrirtæki sem hafa notað boðkerfi Símans en þurfa nú að leita nýrra lausna. Á málstofunni sem verður á morgun, laugar- dag, klukkan 16.00 tala fulltrúar Neyðar- línunnar, Símans, Verkfræðistofunnar Hnita og Landsbjargar. Síminn og Neyðarlínan bjóða upp á léttar veitlngar. Ráðstefnugjald er 8.000.- Aðgangseyrir á málstofu eingöngu er 500.- stmmn.is Allar nánari upplýsingar og skráning er í síma 570 5900 og á www.landsbjorg.is 7^ S í M I N N Hlaðin jólastemmning Á Hótel Flúðum er boðið upp á kræsilegt jólahlaðborð alla laugardaga til 16. desember. Komdu íjólaskapið á Flúðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.