Morgunblaðið - 08.09.2000, Síða 55

Morgunblaðið - 08.09.2000, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ Island fyrir ís- lenska rík- isborgara? Frá Þráni Stefánssyni: JÓN NOKKUR Vigfússon, formað- ur Félags íslenskra þjóðernissinna, sem hlýtur að vera stjórnmálaafl ís- lenskra öfgasinnaðra hægiimanna, spyr í grein 5. september síðastliðinn hvort Island sé fyrir Islendinga. Þetta er náttúrulega mjög kjánaleg spurning svo ekki sé meira sagt. Eins og flestir vita eru flestir útlend- ingar sem á íslandi starfa í einhverj- um skítastörfum sem íslendingar fást ekki í og þessvegna neyðast margir atvinnurekendur til að ráða útlendinga ellegar að loka fyrirtæk- inu. Hvernig dettur þessum Jóni í hug að hægt sé að banna atvinnu- rekendum að flytja inn erlent vinnu- afl, þetta eru svo kjánalegar vanga- veltur. Nú er konan mín af erlendu bergi brotin en er í dag íslenskur rík- isborgari. Finnst Jóni hún hafa rétt á vinnu eins og aðrir íslendingar eða ætti að stoppa það líka þar sem hún er ekki hvít á litinn? Það er nefnilega stefna Félags íslenskra þjóðemis- sinna, það sem þeir eru að segja er Island fyrir hvita íslendinga. Þetta eru öfgasamtök þar sem kynþátta- hatur er efst á stefnuskránni. Það er mín einlæg von að þetta félag nái ekki að skjóta rótum hér á landi. Hinsvegar er ég á móti lögbanni, því eins og Jón segir er málfrelsi á Is- landi sem betur fer en þá verður málflutningur þeirra félaga að vera innan skynsamlegra marka. En hvort sem íslendingurinn er svartur, gulur eða rauður er hann alveg jafn- mikill íslendingur og Jón og félagar hvort sem honum líkar betur eða verr. Eða verður það kannski það næsta hjá þjóðernissinnum að þeir vilji að íslenskir ríkisborgarar af er- lendum uppruna skili inn íslenska vegabréfinu sínu? Spyr sá sem ekki veit. Að lokum: komið út úr torfkofun- um, þjóðemissinnar, það er árið 2000 ekki 1000. Fólk ferðast á milli landa og sest að á ólíklegustu stöðum, líka litla íslandi. Eina sem útlendingar gera okkur er gott, auðga menningu okkar og víkka sjóndeildarhring okkar. Lifum og njótum... ÞRÁINN STEFÁNSSON, Glaðheimum 14, Reykjavík. Fingur tannbursfi sébécarÍ] Barnavagnar Hlíðasmára 17 s. 564 6610 4 www.mbl.is Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna í sundlaug Kópavogshælis. Nánari upplýsingar og skráning í símum 588 6652 og 861 5161. Sæunn Gísladóttir, íþróttakennari. QPIN KERFI HF. Tilkynning v. rafrænnar skráningar hlutabréfa Opinna kerfa hf. Hinn 9. október 2000 verða hlutabréf Opinna kerfa hf. tekin til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu íslands hf. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hlutabréf félagsins sem eru útgefin á pappírsformi í samræmi við heimild í ákvæði til bráðabirgða nr. II í lögum nr. 131/1997 um rafræna eignar- skráningu verðbréfa, sbr. 6. gr. laga nr. 32/2000 um breyting- ar á ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignarskráning- ar á verðbréfum og reglugerð nr. 397/2000 um rafræna eign- arskráningu verðbréfa í verbréfamiðstöð. Skorað er á eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja nokkum vafa leika á því að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Opinna kerfa hf., að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til skrifstofu Opinna kerfa hf. á Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, fyrir nefndan dag. Ennffemur er skorað á þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veð- réttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reiknings- stofnun (viðskiptabanka, sparisjóð eða verðbréfafyrirtæki). Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reiknings- stofnun, sem hefur gert aðildarsamning við Verðbréfaskrán- ingu Islands hf., að hafa umsjón með eignarhlut sínum í fé- laginu. Hluthöfum félagsins hefur einnig verið kynnt þetta bréfleiðis. Stjóm Opinna kerfa hf. , ELLE Iþróttao^ ÍDAG FÖSTUDAG TILBOÐ Buxur + 2 toppar aðeins 5000 kr. Öllum kaupum á íþróttafatnaði fylgir 1 stakur tími í World Class. Korthafar í World Class fá 10% aukaafslátt. NATAMA TÍSKWÖRWVERSLWN LAWQAVEQI 87 SÍMI 511 6665 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2000 55 ■jtastbeef m998: Steiktar hakkabollur ^ 64a-4ob: 25% afsiáttur víð kassa eðaiaris Gordon blue 25% afsláttur við kassa Steíktar _ beikonbollur Bssa- 749: 125% afsláttur víð kassa Opíð aiia daga til kl. 23: Kiúkiingaliorgarar 2 stk. í pakka m/brauði 320,198= d

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.