Morgunblaðið - 08.09.2000, Page 47

Morgunblaðið - 08.09.2000, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2000 47 sambúð þeirra varaði í rúm 67 ár. Vissulega skynjaði maður það, að þau fáu ár, sem Jón lifði konu sína, urðu honum nokkuð einmanaleg, enda flestir frændur og vinir hans horfnir af sjónarsviðinu. Samt hélt hann ró sinni til hinztu stundar, enda rólynd- ur maður og geðprúður að eðlisfari. Lengi vel greip hann í orgelið sitt til þess að stytta sér stundir og vafa- laust um leið að rifja upp þær mörg- um ánægjustundir á Giljum, þegar Lárus frændi spilaði á orgel sitt til skemmtunar heimilisfólkinu og gest- um og gangandi, sem að garði bar. Var Gilnaheimilið mjög rómað fyrir söng og gleði á bemsku- og unglings- árum mínum. Upphaflega mun hafa staðið til, að ungu hjónin hæfu búskap á hluta Gilnanna, en af því varð ekki. Þau settu hins vegar fljótlega saman bú í Vík í Mýrdal, og þar fæddust böm þeirra fjögur. Lifa tvö þeirra föður sinn, Guðrún Sigríður og Páll Heiðar. í Vik fékkst Jón við margs konar störf, sem til féllu, enda veitti ekki af, þvi að kreppan svonefnda reið í garð, þegar þau hófu búskap sinn í Víkinni. Einkum fékkst hann við smíðar af ýmsu tagi, enda lagtækm- vel. Árið 1945 fluttust þau Jóna og Jón til Reykjavíkur, enda þar allt auð- veldara um vinnu en í Mýrdalnum. Þá vora bömin líka að vaxa úr grasi og því þægilegra um alla skólagöngu hér syðra en þar austur frá. Engu að síð- ur slitnaði taugin aldrei við heima- hagana. Þau reistu sér sumarbústað á land- spildu við Deildará. Þannig varð Jóna í nánd við bemskustöðvar sínar á sumrin og Jón ekki langt frá Heiðar- vatni, þar sem hann hafði oft unað margar stundir við veiðiskap. A þess- um slóðum dvöldust þau fjölmörg sumur og nutu þess að hvíla sig þar og ylja sér jafnframt við minningar löngu liðinna sumra. Þá höfðu þau mikia ánægju af að taka á móti frænd- og vinafólki, sem að garði bar, því að þau vom gestrisin með af- brigðum. Um það get ég og fólk mitt borið af eigin raun. Jón undi sér líka vel að geta dyttað að bústaðnum og haldið öllu í góðu horfi, enda þau hjón bæði samhent í allri snyrtimennsku. Af eðlilegum ástæðum kom að því, að þau hættu að vera húsráðendur þar eystra, en þá tók dóttir þeirra við og hennar mað- ur. Síðar tók svo Ragnheiður, dóttur- dóttirin við, og maður hennar, sem ættaður er frá Fossi í Mýrdal. Þannig hafa böndin aldrei rofnað við Mýrdalinn fallega. Þegar þau hjón héldu suður til Reykjavíkur, gerðist Jón fljótlega húsvörður í Landsbankanum. Höfðu þau á þeim ámm íbúð á efstu hæð í Ingólfshvoli, sem stóð á homi Hafn- arstrætis og Pósthússtrætis og bank- inn átti. Þar var jafngott að heim- sækja þau sem áður, og eigum við og allir þeir, sem þar bar að garði, marg- ar góðar minningar frá þeim dögum. Sama var og einnig þau ár, sem þau bjuggu í Skerjafirðinum og Safamýr- inni. Jón gerðist svo síðar mælingarfull- trúi hjá Ólafi, bróður sínum, sem rak mælingaskrifstofú fyrir múrara. Síð- ar tók Jón við sams konar skrifstofu fyrir málara og vann þar um fjölmörg ár. Vafalaust muna margir iðnaðar- menn vel eftir Jóni frá þessum árum, þótt nú sé orðið langt um liðið, síðan hann vék úr starfi fyrir þá sökum ald- urs. Nú hefur Jón frá Heiði kvatt okkur og gerði það á jafnhljóðlegan hátt og átakalítinn og hann lifði sínu langa og farsæla lífi. Hann sofnaði út af í stól sínum við að hlusta á útvarpið og leið þannig út í ódáinsgeiminn. Eg vona, að þar hafi hann hitt fyrir í varpa Jónu sína og aðra vini, sem hann var vafalaust farinn að þrá, orðinn sadd- ur langra lífdaga, enda þótt heilsan væri yfirleitt mjög góð og hann nyti góðrar umönnunar vina og vanda- manna og eins þeirra, sem önnuðust hann á Dalbrautinni. Eg fann, að hann var þakklátur fyrir það allt. Að endingu kveð ég og mín fjöl- skylda þennan fomvin okkar og sendum bömum hans og háaldraðri systur, Sigrúnu Straumland hjúkr- unarfræðingi, sem ein lifir Heiðar- systkma, og öðm skylduliði samúðar- kveðjur okkai'. Jón Aðalsteinn Jónsson. + Faðir okkar og tengdafaðir, KRISTINN GUÐBRANDSSON forstjóri, Smárarima 108, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 6. septem- ber. Fyrir hönd aðstandenda, Þórarinn Kristinsson, Kristinn Kristinsson, Sigríður Gunnarsdóttir, Sigurður Þór Kristjánsson, Ágústa Lárusdóttir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, JÓN SIGVALDASON, Ausu, Andakílshreppi, verður jarðsunginn frá Hvanneyrarkirkju laugardaginn 9. september kl. 14.00. Auður Pétursdóttir, Pétur Jónsson, Sigvaldi Jónsson, Unnsteinn Einar Jónsson, Anna Lilja Sævarsdóttir, Steinunn Jónsdóttir, Kari Sigurðsson, Ragnhildur Helga Jónsdóttir og barnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma, langamma og langalangamma, INGUNN KJARTANSDÓTTIR, Flagbjarnarholti, Landsveit, verður jarðsungin frá Skarðskirkju í Landsveit laugardaginn 9. september kl. 14.00. Teitur Kjartansson, börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför ástkærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐRÍÐAR JÓHANNESDÓTTUR, frá Vatnsenda, Vesturhópi, V-Hún., síðast til heimilis á Háaleitisbraut 52, Reykjavík, sem lést föstudaginn 1. september sl. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir einstaka umönnun. Jarðarförin hefur farið fram I kyrrþey að ósk hinnar látnu. Gunnar Árnason, Jóna Kristjánsdóttir, Jóhannes Árnason, Sigrún S. Jensen Björgúlfsdóttir, Árni Gunnarsson, Sylvía Björg Runólfsdóttir. + Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, PÁLS FRIÐFINNSSONAR byggingameistara, Seljahlíð 13a, Akureyri, síðast til heimilis á dvalarheimilinu Hlíð. Anna Ólafsdóttir, Björgvin L. Pálsson, Anna Eiðsdóttir, Þór S. Pálsson, Ólöf J. Pálsdóttir, Tryggvi Pálsson, Bragi V. Pálsson, Hrefna Sigursteinsdóttir, Jóhannes Hjálmarsson, Aðalbjörg Jónsdóttir, Hafdís Jóhannesdóttir, Friðfinnur S. Pálsson, Inga G. Tryggvadóttir og fjölskyldur. + Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN EIRÍKUR BJÖRNSSON fyrrverandi bóndi, Eiríksstöðum, Jökuldal, Útgarði 6, Egilsstöðum, sem lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum sunnu- daginn 3. september, verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 9. september kl. 14 Björgvin Geirsson, Guttormur Metúsalemsson, Árný Sigurðardóttir, Karen J. Snædal, Birna Jóhannsdóttir, Ragnar Sigvaldason, Sigrún Jóhannsdóttir, Snædís Jóhannsdóttir, Jóhann Ö. Ragnarsson, Sigvaldi H. Ragnarsson, Bragi S. Björgvinsson, Garðar S. Björgvinsson, Elsa G. Björgvinsdóttir, Gyða Þ. Guttormsdóttir, Aðalsteinn Þórhallsson, Linda K. Guttormsdóttir og langafabörn. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR JÚLÍUS JÓNSSON, áður Framnesvegi 8, Reykjavík, er lést á Hrafnistu, Reykjavík, föstudaginn 1. september, verður jarðsunginn frá Fríkirkj- unni í Reykjavík í daq, föstudaginn 8. septem- ber, kl. 13.30. Jón H. Guðmundsson, Hrafnhildur Matthíasdóttir, Svanhiidur Guðmundsdóttir, Pálmi Stefánsson, Karl K. Guðmundsson, Alla Ó. Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Bróðir okkar, GESTUR GUÐNASON frá Þorkelsgerði 2, Selvogi, til heimilis á Oddabraut 23, Þorlákshöfn, verður jarðsunginn frá Strandarkirkju, Selvogi, laugardaginn 9. septem- ber kl. 13.30. Sætaferð frá skólanum kl. 12.30. Systkini hins látna. + Elskulegur eiginmaður minn, JÓHANNES PÉTURSSON kennari, frá Reykjarfirði, til heimilis í Hraunbæ 77, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir I Grafarvogi þriðjudaginn 5. september. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda, Kristfn Bjömsdóttir. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁGÚST RUNÓLFSSON, Garðsbrún 4, Hornafirði, verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju mánudag- inn 11. september kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Slysavarnafélagið. Nanna Ólafsdóttir, Sigurborg Ágústsdóttir, David Parish, Ásgeir Núpan Ágústsson, Valgerður Egilsdóttir, Bjartmar Ágústsson, Elínrós Jóhannsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.