Morgunblaðið - 08.09.2000, Síða 16

Morgunblaðið - 08.09.2000, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Anna Árnadóttir, Lovísa Helgadóttir og Þórdís Guðmundsdóttir. Lárus Scheving. Morgunblaðið/Ásdís Félagsstarf aldraðra við Dalbraut opnað öllum Reykjavík Á DALBRAUT 27 hefur lengi verið boðið upp á fé- lagsstarf fyrir íbúa í nær- liggjandi þjónustuíbúðum fyrir aldraða. Þar hefur einnig verið starfrækt dag- deild fyrir aldraða, sem búa annars staðar, en nýverið var dagdeiidin flutt í Þorra- sel í Skeijafirði. Þegar plássið, sem nýtt hafði verið undir dagdeild- ina losnaði, var ákveðið að auka umsvif félagsstarfsins og er það nú opið öllum eldri borgurum. Margrét Einars- dóttir, forstöðumaður á Dal- braut, segir að þar sé nú rúmgott húsnæði með góðri aðstöðu og því vilji þau gjaman bjóða alla sem þang- að vilja koma velkomna. Margrét segir að í starf- inu sé mikið upp úr hannyrð- um af ýmsu tagi og í hand- avinnustofunni er prjónað, heklað og saumað, málað og ofið svo dæmi séu nefnd. Einnig er góð aðstaða til körfugerðar og smíða og segir Margrét að hver ætti auðveldlega að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Einnig eru stofur þar sem gestir geta komið saman og spjallað, eða spilað. í einni stofúnni er auk þess sjónvarp og í annarri billjardborð og pflukastsskífa. Margrét segir að vilji fólk fá sér blund eða fara í bað sé slík aðstaða fyr- ir hendi og einnig er boðið upp á mat í hádeginu. Margrét segir að félags- starf af þessu tagi hafi mjög mikið gildi fyrir þau sem það sækja, bæði vegna þess sem þau hafa fyrir stafni og einn- ig vegna þess félagsskapar sem þau hafa hvort af öðru. Boðið er upp á leikfimi tvisvar í viku, þar sem áhersla er Iögð á teygju- og öndunaræfingar og segir Margrét að margir sem komi til þeirra noti jafn- framt tækifærið og fari í sund, enda sé aðeins nokkra mínútna gangur í Laugar- dalslaugina. Fyrsta skóflustunga að viðbyggingu við Klébergsskóla Kjalarnes INGIBJÖRG Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri tók á þriðjudag fyrstu skóflustung- una að viðbyggingu við Klé- bergsskóla á Kjalarnesi. Við- bygging þessi verður um 1500 fermetrar og er gert ráð fyrir að framkvæmdum Ijúki árið 2001. Klébergsskóli var stofnað- ur 1929 og auk nemenda af Kjalamessvæðinu þjónar skólinn nemendum á ungling- astigi úr Kjós. Haustið 1999 var haldin samkeppni um tillögu að nýju skólahúsi við Klébergsskóla og urðu teikningar frá Arki- tektur.is fyrir valinu. Við hönnun skólans voru eldri hús tengd saman og var unnið út frá því að elsti hluti skólans fengi mikilvægan sess í heild- armyndinni. Eldra húsið mun hýsa skólasafn og tölvustofu og í viðbyggingunni verða meðal annars sérgreinastofur. Gert er ráð fyrir því við hönnun hússins að þar geti farið fram sveigjanlegt starf og sam- vinna milli bekkjardeilda þeg- ar unnið er að sameiginlegum viðfangsefnum. Morgunblaðið/Þorkell Morgunblaðið/Ómar Barist um bitana ÞEIR eru margir og fjöl- breyttir fuglarnir sem vilja krækja sér í brauðbitana sem vegfarendur kasta út í Miðbær Tjörnina. Yfirleitt eru bit- arnir ætlaðir öndum og álftum en stundum ná máv ar að steypa sér niður og hrifsa þá til sín með gogg- inum. Tölvugögnum stolið úr Lindaskóla Unnið að því að bæta tjónið Kópavogur UNNIÐ er að því hörðum höndum að bæta það tjón sem varð í Lindarskóla í Kópavogi þegar brotist var inn í skólann aðfaranótt síðastliðins íbstu- dags og netþjóni stolið, ásamt afritum af þeim gögnum sem á honum voru. Gunnsteinn Sigurðsson, skólastjóri Lindarskóla, segir að vonir þeirra um að endur- heimta búnaðinn og gögnin séu famar að dofna verulega. „Við erum að setja upp nýtt tölvukerfi núna,“ segir Gunn- steinn, „og erum hka að byrja á því að vinna upp gögn.“ Lítið gagn að þessum gögnum fyrir aðra Gunnsteinn segir að kenn- arar, ritarar og aðrir starfs- menn við skólann hafi bætt á sig vinnu til að koma því efni sem glataðist, aftur á tölvu- tækt form. Þama hafi meðal annars verið undirbúnings- vinna kennara fyrir veturinn, kennarahandbækur, námskrá fyrir skólann og handbækur fyrir bekkina. „Ég held að það sé hægt að vinna lang mest af þessu upp. Við eigum töluvert mikið af gögnum í handritum, en þetta tekur samt nokkum tíma,“ segir Gunnsteinn og bætir því við að hann telji óskiljanlegt hvers vegna gögnum þessum var stolið. Lítið sem ekkert gagn geti verið að þeim fyrir aðra en þá sem starfa í skólan- um, auk þess sem áhugasöm- um væri velkomið að fá afrit af flestum þeirra á skrifstofu- tíma. Hefði ekki getað gerst á óheppilegri túna Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Lindaskóla að und- anfomu og aðfaranótt föstu- dags var þar fjöldi manns að störfum frá ýmsum verktök- um. Gunnsteinn segir að þeir hafi lokið störfum um kl. 2.30 og um fimm klukkustundum síðar mætti húsvörður skólans til vinnu. Vegna framkvæmda- nna var þjófavamakerfi skól- ans ekki tengt. Nýlega var tek- in í notkun álma við skólann og af þeirri ástæðu vildi svo illa til að afrit af þeim gögnum sem vom á netþjóninum voru geymd í sama herbergi. Inn- brotið hefði því ekki getað komið á óheppilegri tíma, að sögn Gunnsteins, því það ást- and hafi aðeins staðið í eina til tvær nætur. Þeir eða sá sem braust inn í Lindaskóla höfðu engin önnur verðmæti á brott með sér þrátt fyrir að auðvelt hefði ver- ið að nálgast þau. Gunnsteinn segist þó ekki trúa að einhver hafi viljað vinna skemmdar- verk á skólastarfinu. Mikil vinna í súginn Gunnsteinn segir að þegar allt sé talið saman hafi sjálf- sagt einhver ársverk glatast. Þetta muni þó ekki hamla skólastarfinu þótt langan tíma taki að vinna það upp sem glat- aðist.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.