Morgunblaðið - 22.01.2000, Page 18

Morgunblaðið - 22.01.2000, Page 18
18 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Nýja tölvuverið tekið í notkun: Nemendur þriggja yngstu bekkja tóku nýju tölvurnar formlega í notkun með því að ræsa hverja af annarri. Nýtt tölvuver í grunnskólanum Þórshöfn - Betri tímar eru fram- undan í tölvufræðslu hjá nemend- um Grunnskólans á Þórshöfn en nýtt tölvuver er nú tilbúið til notk- unar þar. Fyrir nokkrum vikum var ákveðið að endurnýja tölvukostinn, m.a. vegna þess að ný námskrá ger- ir ráð fyrir mun viðameiri tölvu- kennslu en hingað til hefur verið, allt niður í yngstu bekki. Ásamt sveitarfélaginu voru þrír aðilar sem fjármögnuðu tölvukaup- in; Hraðfrystistöð Þórshafnar hf., Sparisjóður Þórshafnar og nágr. og Verkalýðsfélag Þórshafnar. Þessar nýju tölvur eru öflugar og langþráð viðbót í skólastarfíð. Þjálfun nem- enda í notkun þeirra kemur til með að búa nemendur undir þátttöku í atvinnulífinu en sífellt fleiri störf krefjast einhverrar tölvukunnáttu. Tölvuverið var opnað formlega að viðstöddum stuðningsaðilum og gestum. Nemendur í þrem yngstu bekkjunum fengu þann heiður að taka vélarnar formlega í notkun með því að ræsa þær eina af ann- arri og síðan var boðið upp á veit- ingar í skólanum. Eldri tölvubúnaður, sem til var í skólanum, verður nýttur áfram, t.d. til ritvinnslu í kennslustofum, sérk- ennslu og skráningar á bókasafni. Með þessum nýja búnaði og vænt- anlegum skjávarpa verður Grunn- skólinn á Þórshöfn kominn í röð best búnu skóla á landinu að þessu leyti. Hjartasjúklingar í Stykkishólmi mæta einu sinni í viku í sundleikfími Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason Hjartasjúklingar í Stykkishólmi mæta í sundleikfimi. Þátttakendur hafa aldrei orðið svo frægir fyrr að busla í vatni undir sljóm leiðbeinenda. hún ánægð með hvað fólkið er duglegt við æfingarnar. Það er öðruvísi að gera æfingar í vatni en þurru landi og voru sumir nokkuð óöruggir með sig á fyrstu æfingunni. Að sögn þátttakenda eru þeir mjög ánægðir með leikfimina og finna fyrir auknu þreki og vellt'ð- an eftir mátulega áreynslu. Nýja innisundlaugin komin í notkun Stykkishólmi - Hópur hjarta- sjúklinga í Stykkishólmi hefur á undanförnu mánuðum komið sam- an tvisvar í viku i leikfimi. Þar er lögð áhersla á létta leikfimi sem miðast við þeirra þrek. Aðrir bæjarbúar sem ekki eru heilir heilsu er velkomnir með í hópinn og hafa nokkrir þegið það. Hópurinn hefur notið aðstoðar sjúkraþjálfara á St. Frans- iskuspítalanum í Stykkishólmi. Eftir að nýja innisundlaugin í Stykkishólmi var tekin í notkun var ákveðið að efla þrekið með æfingum f sundlauginni. Það er Katrín Guðmundsdóttir sem stjórnar sundleikfiminni og er Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Jón Helgason hefúr unnið að endurbótum á Skjöld- ólfsstaðaskóla undanfarið. Meðferð- arheimili opnaðí byrjun febrúar Vaðbrekku, Jökuldal- Verið er að ljúka endurbótum á húsnæði Skjöldólfsstaðaskóla þessa dagana en þar mun opna með- ferðarheimili fyrir vistmenn á grunnskólaaldri nú í byrjun febrúar á vegum Bamavemd- arstofu. Að sögn Georgs Heide for- stöðumanns koma fyrstu starfsmennimir að meðferðar- heimilinu á Skjöldólfsstöðum í næstu viku en þeir verða þrír til að byrja með en verður fjölgað upp í fimm til sex eftir því sem vistmönnum fjölgar. Fyrstu skjólstæðingar með- ferðarheimilisins koma í byrjun febrúar, skjólstæðingamir koma síðan með einhverju millibili þar til húsnæðið verður fullnýtt en reiknað er með að húsið rúmi sex skjólstæðinga fyrsta kastið en mögulegt erað fjölga þeim í níu er fram líða stundir. Mikill áhugi fyrir stofnun framhalds- skóla á Snæfellsnesi Stykkishólmi - Sameiginlegur fund- ur stjórnarmanna í Stykkishólmi, Gmndarfirði og Snæfellsbæ var haldinn í Stykkishólmi 18. janúar sl. Þetta er í fyrsta skipti sem boðað er til slíks fundar. Tilgangur fundarins var að ræða sameiginleg hagsmuna- mál sveitarfélaganna á norðanverðu Snæfellsnesi. Mestar umræður fóra fram um stofnun framhaldsskóla á Snæfells- nesi sem staðsettur yrði í Grundar- firði. Fram kom mikill áhugi hjá sveitarstjómarmönnum fyrir að koma á fót framhaldsskóla. Að sögn Óla Jóns Gunnarssonar, bæjarstjóra í Stykkishólmi, er það staðreynd að sveitarfélög sem ekki hafa fram- haldsskóla á sínu svæði era að missa unglingana frá sér fyrr en ella. Þá er búið að hækka sjálfræðisaldurinn upp í 18 ár og það gerir kröfur til for- eldra að bera ábyrgð á bömum sín- um lengur. Þetta er mikið hags- munamál sveitarfélaganna og er þrýstingur á það að hafa unglingana lengur í heimabyggð. A fundinum var skipuð nefnd til að vinna að undirbúningi að stofnun framhaldsskóla og móta tillögur um að gera hann að veraleika. Nefndina skipa Björg Ágústsdóttir, Grandar- firði, Eyþór Benediktsson, Stykkis- hólmi, og Sveinn Elinbergsson, Ól- afsvík. Rætt var um branavarnir og ákveðið að fela héraðsráði að standa fyrir úttekt á eldvömum og tækja- búnaði slökkviliða. Þá kom fram tillaga um hvort kanna eigi kosti og galla þess að sameina sveitarfélögin á norðan- verðu Snæfellsnesi. Ekki vora sveit- arstjórnarmenn tilbúnir að taka það skref strax, en munu ræða hug- myndina nánar hver á sínu svæði. Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason Sveitarstjómarmenn í Stykkishólmi, Grundarfirði og Snæfellsbæ á fyrsta fundi til að ræða um sameiginleg hagsmunamál. Stofnun framhaldsskóla var efst á baugi og nefnd skipuð til að vinna að undirbúningi þess.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.